Morgunblaðið - 22.04.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015
www.isfell.is
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Biskup Íslands hefur auglýst laus til
umsóknar embætti sóknarprests og
prests í Selfossprestakalli. Umsókn-
arfrestur er til 19. maí og fyrir ligg-
ur að þeir tveir prestar sem nú eru á
Selfossi, sr. Þorvaldur Karl Helga-
son og sr. Axel Árnason, gefa ekki
kost á sér. „Safnaðarstarfið hefur
gengið vel en vissulega voru á tíma-
bili skiptar skoðanir í samstarfi. Nú
horfum við hins vegar til framtíðar
og viljum fá tvo presta sem ná að
vinna vel saman og eru í góðum og
sterkum tengslum við söfnuðinn,“
sagði Björn Ingi Gíslason, formaður
sóknarnefndar Selfosskirkju, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Í Selfossprestakalli eru fjórar
sóknir, þær eru Selfosssókn og í Fló-
anum sóknir kenndar við kirkjustað-
ina Hraungerði, Laugardæli og Vill-
ingaholt. Um 7.000 manns búa í
prestakallinu. Í auglýsingu um emb-
ættin tvö eru nefnd atriði eins og
menntun, starfsreynsla og að kanna
megi sakaskrá viðkomanda. Að öðru
leyti er lögð rík áhersla á víðtæka
reynslu af kirkjulegu starfi, færni í
prédikun, helgiþjónustu og hæfni í
samskiptum.
Koma til starfa 1. ágúst
Þegar umsóknarfrestur er runn-
inn út fer valnefnd yfir umsóknir og
velur prestana tvo. Ef þriðjungur at-
kvæðisbærra sóknarbarna óskar eft-
ir almennum prestskosningum er
skylt að verða við því. Slíkt gerðist
til dæmis í Seljaprestakalli í Reykja-
vík sl. haust, nýverið í Keflavík, svo
og á Selfossi fyrir 20 árum.
„Hverjir taka við þjónustu skýrist
vonandi fyrrihluta sumars,“ segir
Björn Ingi um málið. Miðað er við að
prestarnir nýju komi til starfa á Sel-
fossi 1. ágúst.
Viljum presta sem
ná að vinna saman
Auglýst eftir
tveimur prestum
til starfa á Selfossi
Morgunblaðið/Ómar
Selfoss Tveir prestir og 7.000 sálir.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Það var pólitísk ákvörðun að kýla
Íslendinga niður,“ sagði Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í
stjórnmálafræði, í erindi sínu um
framferði Breta gagnvart bönk-
unum Heritable Bank og Kaupthing
Singer & Friedlander, sem einir
banka fengu ekki fyrirgreiðslu frá
breska ríkinu í október 2008, en
Hannes segir að bankarnir hafi ekki
verið gjaldþrota þegar breska fjár-
málaeftirlitið tók þá yfir.
Þetta kom fram í erindi hans um
meðferð íslenskra eigna erlendis eft-
ir hrunið, sem flutt var á sérstakri
málstofu um banka og samfélag á
vorþingi Viðskiptastofnunar Há-
skóla Íslands á Háskólatorgi í gær.
Auk Hannesar fluttu þau Þórhall-
ur Guðlaugsson, dósent í viðskipta-
fræði, Lára Jóhannsdóttir, lektor í
umhverfis- og auðlindafræði, og Vil-
hjálmur Bjarnason alþingismaður
erindi á málstofunni. Þau Þórhallur
og Lára fjölluðu um rannsóknir sín-
ar á samfélagslegri ábyrgð í banka-
kerfinu og Vilhjálmur talaði um það
hvenær siðrof hefði orðið í íslensku
samfélagi fyrir hrun.
Á fundinum færði Hannes fram
rök sín fyrir því hvernig Íslendingar
hefðu orðið af allt að 270 milljörðum
króna í kjölfar bankahruns, annað-
hvort vegna handvammar eða
fólsku, en hann ritaði grein í Morg-
unblaðið í gær um sama efni.
Afstaða Dana breyttist
Kom fram í máli Hannesar að
Norðurlönd hefðu brugðist mismun-
andi við bankahruninu, þar sem
seðlabankar Noregs og Finnlands
hefðu gengið mjög hart fram gegn
íslenskum hagsmunum á meðan
sænski seðlabankinn hefði sýnt
mikla sanngirni gagnvart sænskum
bönkum með íslensku eignarhaldi.
Að sögn Hannesar hafði danski
seðlabankinn svipaða afstöðu í upp-
hafi og sá sænski. Þegar komið var
fram á haustið 2010 hefði seðlabanki
Danmerkur hins vegar knúið á um
sölu FIH-bankans, sem Seðlabanki
Íslands hafði fengið sem allsherj-
arveð í kröfur bankans á hendur
Kaupþingi. Fjallaði Hannes nokkuð
um það hvernig staðið hefði verið að
sölunni, og spurði hvers vegna ís-
lensk yfirvöld hefðu samþykkt þann
þrýsting sem borist hefði frá Dön-
um. Sagðist Hannes sammála því að
staðan hefði verið þröng, en að hún
hefði ekki verið ómöguleg.
Að loknu erindi Hannesar var
opnað fyrir spurningar úr sal, og var
hann meðal annars spurður út í það
hver viðbrögð Íslendinga hefðu orð-
ið ef þarna hefði verið um að ræða ís-
lenskan banka í eigu Dana, og
danski forsætisráðherrann hefði
reynt að beita þann íslenska þrýst-
ingi. Hannes sagði að það þyrfti allt-
af að hafa í huga lífshagmuni lítillar
þjóðar á afskekktri eyju á Norður-
Atlantshafi. „Við verðum að halda af
djörfung á okkar hagsmunamálum.
Við megum ekki kikna í hnjáliðunum
þó við séum að tala við útlendinga.“
Verðum að halda á lífs-
hagsmunum af djörfung
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vorþing Viðskiptastofnunar Fjölmenni var á málstofunni sem haldin var á Háskólatorgi í hádeginu í gær.
Danir beittu Íslendinga þrýstingi um sölu FIH-bankans
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Jón Helgi Egilsson, formaður banka-
ráðs Seðlabanka Íslands, telur
ástæðu til þess að viðskiptin með
danska bankann FIH, dótturfélag
Kaupþings í Danmörku, verði rann-
sökuð, þegar öll kurl eru komin til
grafar í málinu og Seðlabankinn hef-
ur gert skýrslu um málið.
Hannes Hólm-
steinn Giss-
urarson, prófess-
or í
stjórnmálafræði,
skrifaði grein í
Morgunblaðið í
gær, undir fyr-
irsögninni 270
milljarða króna
tap af handvömm
og fólsku? Í
greininni kemur
fram að Hannes Hómsteinn telur Má
Guðmundsson bera ábyrgð á því að
Seðlabanki Íslands hafi orðið af 3,1
milljarði danskra króna (um 60 millj-
arðar íslenskra króna) þegar FIH
var endurskipulagður fjárhagslega,
og afgangurinn af söluverðinu frá
Seðlabankanum til danskra stjórn-
enda FIH, sem hafi fengið að kaupa
bankann, hafi horfið í tap sem knúið
hafi verið fram af nýjum eigendum.
„Full ástæða er til að rannsaka
þessi viðskipti, eins og Guðlaugur
Þór Þórðarson alþingismaður hefur
lagt til. Líklega nemur óþarft tap
Seðlabankans í þessu dæmi um sex-
tíu milljörðum íslenskra króna,“ seg-
ir Hannes Hólmsteinn m.a. í grein
sinni.
Eigið fé var milljarður danskra
króna - lánið ½ milljarður
Jón Helgi Egilsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
það hefði verið hans persónulega
skoðun lengi að viðskiptin með FIH
þyrfti að rannsaka. Jón Helgi sagði
jafnframt: „Það þarf að fara yfir það
hvernig tókst að tapa þessum fjár-
munum miðað við að upphaflega var
lánið veitt gegn mjög öruggu veði og
m.a. eftir að Seðlabanki Íslands ráð-
færði sig við danska kollega sína.“
Hér er Jón Helgi að vísa til 500 millj-
óna danskra króna neyðarláns Seðla-
banka Íslands til Kaupþings í banka-
hruninu, með allsherjarveði í FIH,
en þá var bókfært eigið fé FIH skráð
1 milljarður danskra króna.
Skýrslu seðlabankastjóra beðið
Jón Helgi bendir á að Már Guð-
mundsson, seðlabankastjóri, hafi í
febrúar gert grein fyrir því opin-
berlega að tekin yrði saman skýrsla
um þetta mál – „samantekt stað-
reynda. Þegar það liggur fyrir og eft-
ir umræðu í bankaráði verður síðan
tekin ákvörðun um framhaldið hvað
bankaráðið áhrærir.“
Már Guðmundsson, seðla-
bankastjóri, gat ekki veitt viðtal í
gær vegna anna.
Hlynntur rann-
sókn á FIH-
viðskiptunum
Lánið veitt gegn mjög öruggu veði
Jón Helgi
Egilsson
Rannsókn Jón Helgi Egilsson vill
að FIH-viðskiptin verði rannsökuð.