Morgunblaðið - 22.04.2015, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.04.2015, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Jón Björn Bragason rafmagnstæknifræðingur var nýkominn úrþriggja tíma göngu á Tenerife þegar blaðamaður náði tali afhonum. Hann er þar í vikufríi ásamt konu sinni í tilefni af fimm- tugsafmæli sínu. „Það er nóg af fjöllum og hólum hérna til að príla á. Á afmælisdaginn ætlum við í kláf upp á Teide sem er stærsta fjallið hérna. En svo munum við líka flatmaga eitthvað á ströndinni.“ Jón Björn er mikið fyrir útivist og fer töluvert á fjallaskíði. „Ég fór um næstsíðustu helgi á Botnsúlur og er í litlum skíðahóp sem ætlar í ferð á hálendið í sumar en það er ekki ákveðið hvert við förum. Ég geng einnig á fjöll á sumrin og veiði yfirleitt hreindýr ef ég er dreginn út og er búinn að vera að byrja í golfinu í nokkur ár. Svo tók ég mig til og skráði mig loksins á gítarnámskeið í tilefni af afmælinu og er búinn að fara í tvo tíma. Hef átt gítar lengi en hafði ekki gert neitt með hann.“ Jón Björn er fagstjóri á sjávarútvegssviði hjá EFLU verkfræði- stofu. „Ég sé um að þjónusta Síldarvinnsluna í Neskaupstað ásamt ýmsum verkefnum ótengdum sjávarútvegi. Ég hóf störf hjá EFLU ár- ið 2008 en er fyrrverandi starfsmaður Síldarvinnslunnar og sinni ýmsum rafmagnstæknilegum málum í hönnun, ráðgjöf og þjónustu í þeirra kerfum.“ Eiginkona Jóns Björns er Ásta Huld Henrýsdóttir, kennari í Snæ- landsskóla í Kópavogi, og þau eiga þrjú börn. Jón Björn Bragason er fimmtugur í dag Fjölskyldan Jón Björn ásamt Ástu Huld og börnum þeirra, Kolbeini Inga, f. 2003, Ragnhildi Kötlu, f. 1999 og Henrý Þór, f. 1995. Staddur í sólinni á Kanaríeyjum Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Sólrún Erna fæddist 26. september 2014 kl. 01.29. Hún vó 2.744 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Ragn- hildur Reynisdóttir og Andri Þór Eyjólfsson. Nýr borgari J órunn fæddist á Húsavík 22.4. 1975 en ólst upp í Vestamannaeyjum. Hún var í Grunnskóla Vest- mannaeyja, Framhalds- skóla Vestmannaeyja og lauk þaðan stúdentsprófi 1995, lauk B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1999, hóf mastersnám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands haustið 2008 með áherslu á mannauðsstjórnun og hefur lokið 30 ECT-einingum. „Eftir að ég hafði lokið námi við KHÍ lá leiðin til Danmerkur þar sem maðurinn minn var í námi í læknis- fræði. Þar bjuggum við til 2004. Ég vann við afleysingakennslu, fyrst sem „cykelvikar“ þar sem ég hjólaði á milli skóla og leysti af þar sem vant- aði kennara hverju sinni en síðar var ég umsjónarkennari í 6. bekk í for- föllum kennara í barnsburðarleyfi. Þar kenndi ég einnig íþróttir, sund og heimilisfræði. Þegar við komum heim árið 2004 fluttum við til Akureyrar en þar lauk maðurinn minn kandidatsári sínu. Ég kenndi hins vegar dönsku í 9. og 10. bekk í Lundarskóla eftir stutt fæð- ingarorlof. Á árunum 2008-2010 sinnti ég síð- an almennri kennslu á unglingastigi í Hvammshúsi í Kópavogi. Þar var ekki um að ræða hefðbundna kennslu. Í skólanum voru fáir nem- endur sem allir fengu verkefni við sitt hæfi en áherslan lögð á að nemendum liði vel og upplifðu jákvæða skólavist. Stundaskráin var óhefðbundin sem og allt starf skólans, en jöfn áhersla var lögð á verklega og bóklega kennslu og auk þess var lögð rík áhersla á að efla félagsfærni nem- enda og undirbúa þá fyrir framtíðina. Þaðan lá svo leiðin til Vestmanna- eyja þar sem ég hef kennt við Grunn- skóla Vestmannaeyja, fyrst frá 2005 og síðan 2008-2010. Þar hef ég eink- um sinnt dönskukennslu og almennri bekkjarkennslu, en einnig fagstjórn og stjórnunarstörfum innan skólans sem deildarstjóri unglingastigs. Jórunn Einarsdóttir, kennari og fyrrv. bæjarfulltrúi – 40 ára Fjölskyldan Ágúst Óskar með Tjörva, Eyþór, afmælisbarnið og Katrín Sara. Þau eru áreiðanlega á þorrablóti þarna. Á leið í framhaldsnám Bræðurnir Jórunn fagnar nýju ári með bræðrum sínum, Hjalta og Rúnari. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. ...með nútíma svalalokunum og sólstofum Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16 • Svalalokanir • Glerveggir • Gler • Felliveggir • Garðskálar • Handrið Við færumþér logn & blíðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.