Fréttablaðið - 09.11.2015, Blaðsíða 16
Fólk|
Dragháls 14-16 · 110 Reyk jav ík
S ími 4 12 12 00 · www. i s l e i f u r . i s
L O G I S 1 6 0
T a l i s S V A R I A R C T a l i s S V A R I A R C
m . ú ð a r a
F O C U S 2 6 0
m . ú ð a r a
Gæði fara aldrei úr tísku
T a l i s S V A R I A R C
m . ú ð a r a
T a l i s S
F O C U S 1 6 0
F O C U S 1 6 0 L O G I S 2 6 0
T a l i s S
m . ú ð a r a
Eitt mesta úrval landsins
af eldhúsblöndunartækjum
heimili
Fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Philippe Ricart hlaut Skúlaverðlaunin 2015 sem afhent voru á opnunarkvöldi sýningar-innar Handverk og hönnun síðasta fimmtu-
dagskvöld í Ráðhúsi Reykjavíkur. Verðlaunin hlaut
Philippe Ricart fyrir handofin teppi úr íslenskri
ull en þau eru ofin með salunsvefnaði og vaðmáls-
áferð þar sem notast er við bæði fléttað vaðmál og
víxlað vaðamál.
Teppin þykja einstaklega falleg og vönduð en
þau eru að öllu leyti handgerð af Philippe Ricart,
sem þykir einn af okkar fremstu listhandverks-
mönnum enda starfað í greininni í langan tíma.
Hann segir vefnaðinn vera afar heillandi listform.
„Fyrir mér er vefnaður svolítill galdur því ég er að
púsla saman ýmsum hráefnum, litum og munstri. Í
vefnaði er líka hægt að vinna svo fjölbreytt og ólík
verk. Svo er auðvitað íslenska ullin svo skemmti-
legt efni til að vinna úr en ég nota hana eingöngu í
verk mín.“
Verðlaunateppin eru gerð með öðruvísi vefnaði
en önnur verk hans. „Ég vildi prófa eitthvað nýtt
og nálgast því verkefnið á annan hátt en áður. Þessi
aðferð hefur ekki verið notuð mikið í léttum vefn-
aði áður enda notaði ég léttara og liprara efni.“
byrjaði með kvöldnámskeiði
Philippe er fæddur í Frakklandi en hann og eigin-
kona hans fluttu til landsins árið 1979 og bjuggu
á Ísafirði um margra ára skeið. Þar kynntist hann
fyrst vefnaði þegar hann sótti kvöldnámskeið hjá
Guðrúnu Vigfúsdóttur. „Hún var vefnaðarkennari
við húsmæðraskóla á þessum tíma auk þess sem
hún rak eigin vefstofu sem var held ég sú eina
sinnar tegundar á landinu á þessum tíma. Það voru
fleiri að vinna í vélum á þessum tíma en hún var
held ég sú eina í handverki.“ Að námskeiði loknu
vildi hann endilega halda áfram og úr varð að hann
hóf störf sem lærlingur hjá Guðrúnu þar sem hann
starfaði í nokkur ár.
Forvitinn að eðlisFari
Philippe vinnur ekki bara úr íslenskri ull heldur
einnig úr öðru íslensku hráefni á borð við lerki,
birki, málm og kopar, auk þess sem hann hefur
komið að myndlist. „Ég er forvitinn að eðlisfari
og finnst gaman að prófa nýja hluti en framleiði
þó mest með stólvefnaði. Ég er auk þess sérfræð-
ingur í spjaldvefnaði en þar eru notuð mjó bönd
með alls konar mynstri og litum. Einnig geri ég út-
saumspakkningar með mynstrum sem ég teikna og
hanna. Þessi verk mín og fleiri eru til sölu í hand-
verks- og hannyrðabúðum á höfuðborgarsvæðinu
og víða í nágrenni hennar.“
gaman að Fá verðlaun
Skúlaverðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon
fógeta, sem var frumkvöðull smáiðnaðar í Reykja-
vík á sínum tíma, og eru styrkt af Samtökum
iðnaðarins. Þau hafa verið veitt frá árinu 2008 og
alltaf fyrir besta nýja hlutinn á sýningunni. Hlut-
irnir mega því hvorki hafa verið til sýnis né til sölu
opin berlega fyrir sýninguna í Ráðhúsi Reykjavíkur
og fer fagleg valnefnd yfir innsendar tillögur og
velur úr. „Verðlaunin komu mér ekki beint á óvart,
þannig séð. Ég er búinn að vera í þessum bransa
lengi og tekið þátt í mörgum sýningum. Þegar mað-
ur kemur á þessa sýningu þarf auðvitað að koma
með eitthvað nýtt og þannig leiddi eitt af öðru. Það
er alltaf gaman að fá verðlaun og fróðlegt að sjá
hver viðbrögðin verða eftir sýninguna.“
Handverk og hönnun 2015 lýkur í dag, mánudag.
Sýningin fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur
yfir milli kl. 10 og 18. Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar má finna á www.handverk
oghonnun.is og á Facebook undir Handverk og
hönnun. n starri@365.is
svolítill galdur
skÚlaverðlaunin Philippe Ricart hlaut Skúlaverðlaunin 2015 fyrir hand
ofin teppi úr íslenskri ull. Öll teppi hans eru handgerð og eru úr íslenskri ull.
Falleg hlÝja Handofið teppi með fléttuðu vaðmáli úr ís-
lenskri ull.
verðlaunahaFinn Philippe Ricart tekur við Skúlaverðlaunum 2015 úr höndum Almars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra
Samtaka iðnaðarins. MYNDIR/GUÐMUNDUR INGólFSSON
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
E
D
-D
0
9
4
1
6
E
D
-C
F
5
8
1
6
E
D
-C
E
1
C
1
6
E
D
-C
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
8
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K