Fréttablaðið - 09.11.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.11.2015, Blaðsíða 6
Búin að kjósa Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar á Búrma, tekur við blómum úr hendi stuðningsmanns. Hún heimsótti kjördæmi sitt eftir að hafa greitt atkvæði í þingkosningunum í landinu, þeim fyrstu í aldar- fjórðung. Niðurstaðna er vænst í dag. Fréttablaðið/EPa stjórnsýsla Séra Geir Waage, sóknar prestur í Reykholti, sagði á Kirkjuþingi í október að fjármunir sókna í landinu hefðu verið „teknir í nokkuð stórum stíl á undanförnum árum til að launa presta og til þess að greiða ýmsan kostnað á biskups­ stofu,“ eins og Geir orðaði það. Geir vísaði til Jöfnunarsjóðs sókna. Í hann rennur hluti sóknargjalda sem meðlimir þjóðkirkjunnar greiða til sinna söfnuða. Kom fram í máli Geirs að á tímabilinu eftir hrun hefðu sam­ tals runnið 175 milljónir króna úr jöfnunarsjóðnum til Biskups stofu. Það sagði Geir óheimilt samkvæmt lögum og reglugerðum. Það hafi þó verið gert  vegna hagræðingar­ kröfu ríkisins  á hendur þjóðkirkj­ unni, sem eftir hrun hefur ekki fengið fullt afgjald samkvæmt kirkjujarða­ samkomulagi. Því afgjaldi er ætlað að standa undir launum presta og starfs­ manna á Biskupsstofu. „Og menn spyrja sig vitaskuld; hvert hafa þessar greiðslur runnið þaðan og til hvaða verkefna?“ sagði Geir. „Jafnvel þó að um einhvers konar neyðaraðstæður hafi verið ræða vegna peningaástandsins í kirkjunni í kjölfar hrunsins þá verðum við að breyta þessu strax og ekki síðar en nú, hér á þessu þingi, því þetta gengur ekki.“ Geir undirstrikaði að lögin leyfðu ekki að peningum jöfnunarsjóðs væri ráðstafað í annað en í þágu sóknanna og starfsemi þeirra. „Það er hvergi nokkurs staðar opnuð leið í lögunum eða reglugerðinni til þess að taka fé úr þessum sjóði til þess að kosta prestsþjónustu eða til annars kostnaðar heldur en einhverrar umsýslu sjóðsins á Biskupsstofu,“ sagði Geir. Séra Gísli Gunnarsson, sem situr í fjárhagsnefnd Kirkjuþings, svaraði Geir og sagði alveg ljóst að frá hruni hefði þurft að fjármagna rekstur þjóðkirkjunnar á dálítið annan hátt en fyrir hrun. Eina leiðin sem hefði verið fær til að brúa bilið á þeim tekjulið sem Biskupsstofa og þjóð­ kirkjan heyrir undir á fjárlögum hafi verið farin með  samþykki Kirkju­ þings og með samþykki ríkisendur­ skoðunar. „Það var að taka fé úr jöfn­ unarsjóði, taka fé úr Kirkjumálasjóði og selja eignir,“ skýrði séra Gísli. Gísli Jónasson, formaður fjár­ hagsnefndar Kirkjuþings, tók í svip­ aðan streng og Gísli Gunnarson. „Við getum sjálfsagt gert ágreining um það hvort það hafi verið rétt Prestur segir sóknargjöld nýtt án leyfis Um 175 milljónir af félagsgjöldum meðlima Þjóð- kirkjunnar voru nýttar til á biskupstofu og í laun presta án lagaheimildar sagði séra Geir Waage á Kirkjuþingi. Var gert til að koma í veg fyrir fækk- un starfsmanna. Framkvæmdinni verður hætt. Ég treysti því að nú veitist kirkjuráðinu ráðrúm til að verja eftirleiðis fé til verkefna í samræmi við heimildir í lögum. Geir Waage, sóknarprestur í Reykholti MenntaMál Framhaldsskóla­ nemendur vilja fjölbreytt náms­ umhverfi, meiri sveigjanleika og brjóta upp gömlu skólastofuna sem þeir hafa setið í frá sex ára aldri. Þetta kemur fram í niðurstöð­ um  rannsóknar Önnu Kristínar Sigurðardóttur sem hún gerði um námsumhverfi framhaldsskóla­ nema. 56 nemendur voru spurðir hvað þeim fyndist ákjósanlegt umhverfi til náms og hvaða mögu­ leika þeir hefðu til áhrifa á náms­ aðstæður sínar. Helstu niðurstöður eru að fram­ haldsskólanemendur vilja hafa umhverfi sitt á allt annan veg en það er í allflestum framhaldsskól­ um í dag. „Í fyrsta lagi eru nemendur ekki spurðir álits en þeir vilja gjarnan hafa meira til málanna að leggja. Í öðru lagi kjósa þeir námsumhverfi þar sem þeir geta setið í hópum án þess að hópavinnu sé þröngvað upp á þá. Þeir kjósa síður námsumhverfi sem er í föstum skorðum eða inn­ rammað, eins og í hefðbundnum skólastofum,“ segir Anna Kristín. Aðspurð hvort einbeiting nem­ enda verði ekki minni ef þeir fá slíkt frelsi segir Anna Kristín nemendur þvert á móti vilja meiri ramma með breyttu umhverfi. „Í stórum stofum og fyrirlestrasölum geta nemendur lokað sig af úti í horni, farið á netið eða sofnað. Nemendurnir vilja einmitt meiri aga og ramma sem heldur þeim við efnið, þeim fannst breytt fyrirkomulag bjóða upp á það. Þeir voru alls ekki að biðja um umhverfi þar sem þeir geta slegið slöku við.“ Nýir framhaldsskólar hafa verið byggðir eftir hugmyndafræði um opna skóla. Anna Kristín bendir á að eldri skólar geti brotið upp umhverfið með nýjum kennslu­ háttum, líkt og margir grunnskólar hafa gert. „En hefðin er afar sterk í þessum málum,“ segir hún. –ebg Nemendur vilja láta halda sér við efnið noregur Norska matvælastofn­ unin segir stjórnendur laxeldiskvía í Nordmöre í Noregi hafa misst stjórn á aðstæðum. Í sumum kvíum sé magn lúsa sem herja á fiskinn 20 sinnum meira en stofnunin sam­ þykkir. Ástandið þykir sérlega alvarlegt þar sem vandinn hafi verið mikill um langt skeið. Ekki hafi tekist að vinna bug á honum. Matvælastofnunin norska hefur varað við að hún muni krefjast þess að 1,3 milljónum laxa verði á næst­ unni slátrað í tveimur kvíum við Kornstad og Leite. – ibs Alvarlegur lúsafaraldur ákvörðun eða ekki en hún var alla vega gerð til þess að forða því að fækka starfsmönnum meira en orðið hefur,“ útskýrði Gísli sem dró í efa fullyrðingu Geirs um að þessi aðferð væri ekki í samræmi við lög og reglur. „Allavega var sá gjörningur í það minnsta samþykktur af Kirkjuþing­ um og þeir ársreikningar sem gerðir hafa verið upp á þessu tímabili hafa nú verið áritaðir af ríkisendurskoðun þannig að ég tel nú hæpið að tala um kannski lögbrot en þetta er auðvitað ekki mitt svið svo sem að túlka það í smáatriðum,“ sagði Gísli Jónasson. Þegar upplýst var að kirkjuráð Þjóðkirkjunnar hefði samþykkt í sumar að ekki yrði fært frekara fé milli sjóða og að fengnum svörum Gíslanna tveggja kvaðst Geir vera sáttur. „Og ég treysti því að nú veitist kirkjuráðinu ráðrúm til að verja eftirleiðis fé til verkefna í sam­ ræmi við heimildir í lögum,“ sagði sóknarpresturinn í Reykholti við lok umræðna um fjármál Þjóðkirkj­ unnar. gar@frettabladid.is Hlutverk jöfnunarsjóðs a Að veita styrki til þeirra kirkna sem sérstöðu hafa umfram aðrar sóknarkirkjur. b Að leitast við að jafna aðstöðu og styrkja sóknir þar sem lögmæltar tekjur skv. 2. gr. laga þessara nægja ekki fyrir nauðsynlegum útgjöldum að dómi sóknarnefndar og sóknar- prests og að fenginni umsögn héraðsnefndar. C Að auðvelda stofnun sókna í nýjum byggðahverfum. D Að styrkja kirkjulega félags- og menningarstarfsemi. Úr lögum um sóknargjöld. Þeir kjósa síður námsumhverfi sem er í föstum skorðum eða innrammað, eins og í hefð- bundnum skólastofum. Anna Kristín Sigurðardóttir, menntunarfræðingur 9 . n ó v e M b e r 2 0 1 5 M á n u D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 2 -1 1 -2 0 1 5 1 5 :5 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 E E -6 4 B 4 1 6 E E -6 3 7 8 1 6 E E -6 2 3 C 1 6 E E -6 1 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 8 1 1 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.