Fréttablaðið - 09.11.2015, Blaðsíða 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Berglindar
Pétursdóttur
Bakþankar
Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M
Við göngum hreint til verks
og í áratugi höfum við lagt
áherslu á hreina framleiðslu-
tækni. 90% af okkar pappír
kemur úr nytjaskógum.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Fílar hafa ótrúlega gott minni og það sama má segja um mig. Ég man til dæmis einstaklega vel
eftir æsku minni og öllum hennar
smáatriðum. Ég komst að því um
daginn þegar ég byrjaði að rifja upp
minningar úr leik- og grunnskóla
af slíkri nákvæmni að vinnufélagar
mínir litu hvor á annan og sögðust
sjálfir aðeins muna eftir tilvist sinni,
svona nokkurn veginn, í grunnskóla
en ekki mikið meira en það.
Ég held að þessi skýra sýn mín á
uppvaxtarárin sé að einhverju leyti
því að þakka að ég skoðaði mikið
myndaalbúm (muniði eftir svo-
leiðis?) þegar ég var krakki. Áður en
ég lærði að lesa fannst mér ekkert
skemmtilegra en að skoða myndir.
Af mér. Enda af nógu að taka. Bróðir
minn var 15 ára þegar ég fæddist og
löngu hættur að vera krúttlegur svo
foreldrar mínir gátu einbeitt sér að
krúttleika mínum allan daginn og
var nánast hvert einasta fótspor mitt
fest á filmu.
Filmu eftir filmu var æska mín svo
sótt í framköllun og öllu raðað sam-
viskusamlega í albúm. Á heimilinu
var safn myndaalbúma, nokkur græn
sem ég nennti aldrei að skoða. Í þeim
voru gamlar og brúnleitar myndir
af mömmu, pabba og vinum þeirra
þegar þau voru ung og mjó. Svo voru
rósótt albúm og í þeim voru allar
myndirnar af mér.
Ég sat löngum stundum og fletti
rósóttu albúmunum og dáðist að
sjálfri mér.
Þegar ég lærði að lesa og skrifa
dundaði ég mér svo við að skrifa
stutta, sniðuga texta á flipana
sem hægt var að smeygja milli
mynda. Ef mér fannst einhverjar
myndir ljótar eða hallærislegar
sneri ég þeim á hvolf eða faldi ofan
í skúffu. Myndunum var öllum
raðað í tímaröð og minningar
mínar um æsku mína byggjast á
þessum fína grunni. Sannkallað
Instagram fortíðarinnar.
Albúm
1
2
-1
1
-2
0
1
5
1
5
:5
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
E
D
-A
E
0
4
1
6
E
D
-A
C
C
8
1
6
E
D
-A
B
8
C
1
6
E
D
-A
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
8
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K