Ægir - 01.07.2014, Page 10
10
Útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tækið Einhamar Seafood ehf. í
Grindavík tók nú í ágústmánuði
við tveimur nýjum 30 tonna
Cleopatra 50 bátum frá
bátasmiðjunni Trefjum ehf. í
Hafnarfirði. Bátarnir eru í
hvívetna vel tækjum búnir,
rúmgóð vinnuaðstaða um borð,
sem og aðstaða fyrir áhöfn í
lúkar. Bátarnir hafa fengið
nöfnin Gísli Súrsson GK og Auð-
ur Vésteins SU en þeir verða yfir
sumar- og haustmánuðina
gerðir út frá Stöðvarfirði en frá
áramótum til vors á vetrarver-
tíð frá Grindavík. Fyrir átti Ein-
hamar Seafood minni báta með
sömu nöfnum sem hverfa úr
rekstri og auk þess báturinn
Nafri SU. Tveir bátar koma því í
stað þriggja en forsvarsmenn
Einhamars segja stærri og öfl-
ugri báta þrátt fyrir það skapa
fyrirtækinu meiri stöðugleika í
hráefnisöflun en Einhamar
Seafood vinnur úr öllum sínum
veiðiheimildum í ferskan fisk
til útflutnings. Heildarfjár-
festing í nýju bátunum er um
350 milljónir króna.
Skila betra hráefni að landi
Stefán Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Einhamars Sea-
food ehf., segir gríðarlega
breyt ingu fyrir fyrirtækið að fá
þessa tvo öflugu línubáta í
rekstur. Minni bátarnir sem fyr-
irtækið átti gátu síður róið í
verri veðrum og þá þurfti að
treysta á fiskmarkaðina hvað
hráefni fyrir vinnsluna varðar.
Stefán segir því fækkun þessara
„bræludaga“ eitt af stóru at-
riðunum. Fyrirtækið sé skuld-
bundið kaupendum um af-
hendingu á ferskum afurðum
og því sé dýrkeypt að fá marga
daga þegar veður hamla hrá-
efnisöfluninni.
„Síðan er það blóðgunar- og
ískrapakerfið frá 3xStál, það
hvernig fiskurinn er meðhöndl-
aður og blóðgaður í hreinum
krapa áður en hann fer niður í
Einhamar Seafood ehf. í Grindavík tekur fyrir tveimur nýjum
línubátum frá Trefjum:
Gríðarleg breyting með
tilkomu bátanna
- segir Stefán Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Gísli Súrsson GK 8 og Auður Vésteins SU 88 í höfninni í Grindavík. Myndir: Trefjar
Tækjaflóra í brúnni.
Vel búinn lúkar með eldavél, bakaraofni og örbylgjuofni, svo fátt eitt sé
nefnt.
S
k
ip
a
stóllin
n