Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Svonefndum skráðum atvikum sjúk-
linga á Landspítalanum fjölgaði tals-
vert á fyrsta fjórðungi ársins, frá jan-
úar til apríl miðað við sama tíma í
fyrra. Þetta kemur fram í starfsemis-
upplýsingum Landspítalans frá jan-
úar til apríl. Alls voru skráð atvik
1.159 talsins en 896 frá janúar til apríl
árið 2014, þau eru því 23% fleiri í ár.
Atvikin eru misjöfn og eru flokkuð
niður í 12 flokka auk óvæntra dauðs-
falla. Óvænt andlát við Landspítalann
voru fjögur talsins á tímabilinu en þau
eru helmingi fleiri en á sama tímabili í
fyrra. Yfirleitt eru þau skráð á bilinu
sex til tíu talsins á ári.
Flest skráð atvik tengjast umhverfi
og aðstæðum en þau voru 328 talsins
en voru 298 í fyrra. Einnig fjölgaði at-
vikum tengdum meðferð/rannsókn,
lyfjameðferð og þjónustu auk annars
konar atvika.
„Af þeim atvikum sem ég hef rýnt í
er hægt að tengja eitt atvik við verk-
fall BHM. Það var skoðun á sýni, svo-
kallað skyndipróf vegna inflúensu, en
enginn skaði hlaust af. Rannsóknin
tafðist og því þurfti sjúklingurinn að
dvelja lengur í einangrun en hann
hefði annars þurft,“ segir Elísabet
Benedikz, yfirlæknir á gæða- og sýk-
ingarvarnardeild Landspítala Ís-
lands, spurð hvort verkfall Bandalags
háskólamanna hafi haft áhrif á skráð
atvik sjúklinga.
Elísabet bendir á að ýmsar skýr-
ingar geti legið að baki fjölgun
skráðra atvika sem megi að hluta
skýra með auknu hlutfalli skráningar
en að auki geti hún ávallt sveiflast á
milli ára. Síðustu þrjú til fimm ár hef-
ur skráning þó verið nokkuð jöfn.
„Veturinn hefur verið erfiður, með-
al annars vegna erfiðs flensutímabils
og spítalasýkinga. Rúmanýtingin hef-
ur verið mikil eða um og yfir 100% á
mörgum deildum en við erum alltaf að
berjast við skort á sjúkrarúmum og
þá sérstaklega einbýlum,“ segir El-
ísabet. thorunn@mbl.is
Eitt skráð atvik
tengt verkfalli
Skráðum atvikum vegna sjúklinga fjölgar
Morgunblaðið/Golli
Landspítali Mikil rúmanýting.
SKÁK
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Héðinn Steingrímsson er skákmeist-
ari Íslands 2015 eftir sigur á helsta
keppinaut sínum um titilinn, Hjörv-
ari Steini Grétarssyni, í lokaumferð
mótsins sem fram fór á sunnudag-
inn. Skák þeirra
var hreint úrslita-
uppgjör en fyrir
hana hafði Héð-
inn ½ vinnings
forskot á Hjörvar
en á móti kom að
Hjörvar hafði
hvítt í skákinni.
Hann tefldi byrj-
unina hinsvegar
fremur óná-
kvæmt og í
þröngri stöðu gaf hann Héðni kost á
öflugum biskupsleik sem í raun gerði
út um taflið. Lauk skákinni eftir að-
eins 23 leiki. Þar með hafði Héðinn
unnið sína sjöunda skák í röð, hafði
hlotið 9 ½ vinning úr ellefu skákum
en það er árangur sem reiknast upp
á 2763 elo-stig. Hækkar hann um 29
elo-stig fyrir frammistöðuna. Þetta
er í þriðja sinn sem Héðinn verður
Íslandsmeistari, hann vann titilinn
fyrst árið 1990, þá aðeins 15 ára
gamall og sá yngsti í skáksögunni,
og í annað sinn árið 2011. Héðinn er
vel að sigrinum kominn, en hann
mætti vel undirbúinn til leiks og á
lokasprettinum vann hann bæði Jó-
hann Hjartarson og Jón L. Árnason.
Árangur Hjörvars Steins er einnig
frábær og reiknast árangur hans
upp á 2626 elo-stig. Jón L. Árnason
varð í 3.-4. sæti ásamt Hannesi Hlíf-
ari Stefánssyni. Einar Hjalti Jens-
son, sem varð í 5. sæti, náði áfanga
að alþjóðlegum meistaratitli.
Fjölmargir lögðu leið sína í Hörpu
til að fylgjast með viðureign Hjörv-
ars og Héðins á sunnudaginn. Þá var
hægt að fylgjast með skákinni í
beinni útsendingu á a.m.k. tveim
netmiðlum og mótshaldarinn var
einnig með streymisútsendingu frá
skákstað:
Skákþing Íslands 2015; 11. um-
ferð:
Hjörvar Steinn Grétarsson – Héð-
inn Steingrímsson
Tarrasch-vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
c5 5. e3
Sneiðir hjá skarpasta framhaldinu,
5. cxd5 Rxd5 6. e4.
5. … Rc6 6. cxd5 exd5 7. Be2 cxd4
8. Rxd4 Bd6 9. O-O O-O 10. h3 He8
11. Rf3 a6 12. b3 Bf5 13. Bb2 Bc7 14.
Dd2 Dd6 15. Hfd1 Hfd8 16. Hac1 h5!?
Þessum fremur óvænta leik virðist
hafa verið beint gegn næsta leik
Hjörvars og heppnast því fullkom-
lega. En leikurinn gaf Hjörvari engu
að síður tækifæri til að þróa stöðu
sína áfram með 17. De1!
17. Bd3??
Eftir svar Héðins er ljóst að stöðu
hvíts verður ekki bjargað.
17. … Bg4!
- Sjá stöðumynd -
Hótar 18. … Bxf3. Hvítur er varn-
arlaus.
18. hxg4 hxg4 19. g3 gxf3 20. Bf1
Bb6!
Beinir spjótum sínum að e3-peð-
inu og hótar eftir 21. … Bxe3 eða eft-
ir því sem verkast vill, 21. … Hxe3.
21. He1 Rg4 22. Bh3
22 Rd1 dugar skammt vegna 22.
… Dh6!
22. … Bxe3! 23. Hxe3 Rxe3
- og Hjörvar gafst upp.
Jón L. Árnason tefldi síðast á
lokuðu móti fyrir 20 árum – afmæl-
ismóti Friðriks Ólafssonar. Hann
byrjaði rólega en eftir því sem leið á
mótið tefldi hann af meira sjálfs-
trausti og 3.-4. sæti ásamt Hannesi
Hlífari Stefánssyni telst ásættanleg
frammistaða. Jóhann Hjartarson
náði sér ekki á strik og átti afleitan
kafla frá fimmtu umferð til þeirrar
síðustu. Hann var eini keppandinn
sem gerði ekki jafntefli. Jóhann
þurfti yfirleitt ekki að kvarta undan
stöðunum sem hann fékk upp úr
byrjunum. Styrkur hans hefur oft-
ast legið í góðri leiktækni í miðtöfl-
unum en þar var hann mistækur að
þessu sinni. En þátttaka hans og
Jóns L. lyfti mótinu á hærra plan.
Skákir Björns Þorfinnssonar vöktu
athygli fyrir fjörleg tilþrif og
marga skrýtna leiki. Framkvæmd
mótsins tókst með miklum ágæt-
um.
Héðinn
Steingrímsson
Héðinn Íslands-
meistari í þriðja sinn
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma