Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 ✝ BrynjólfurGuðmundsson fæddist 7. júlí 1926 á bænum Kolsholts- helli í Vill- ingaholtshreppi, nú Flóahreppi, í Árnessýslu. Hann lést á Fossheimum, hjúkrunardeild Heilsustofnunar Suðurlands, 15. maí 2015. Hann var fimmti í röðinni af sex börnum foreldra sinna, þeirra Guðmundar Kristins Sig- urjónssonar, f. 23. maí 1896, d. 28. nóv. 1966, og Mörtu Brynj- ólfsdóttur, f. 28. júlí 1889, d. 11. mars 1969, en þau voru ábú- endur jarðarinnar. Brynjólfur ólst upp við dagleg sveitastörf og vann að búi foreldra sinna. Hann lauk barnaprófi frá barnaskóla sveitarinnar sem var farskóli sem starfræktur var í Hróarsholti og í Vest- urbænum í Kolsholti, kennt hálfan mánuð á hvorum stað. Kennari var Jón Konráðsson úr Skagafirði. Brynjólfur kvæntist 24. apríl 1952 eftirlifandi eiginkonu þrjú börn, Rúnar Gerard, f. 25. nóv. 1995, Braga Daníel, f. 23. júlí 1997, og Bryndísi Emilíu, f. 11. febr. 2013 Brynjólfur var um tíma ritari ungmennafélagsins Vöku í Vill- ingaholtshreppi og hann var stofnandi og formaður sauð- fjárræktarfélags Gaulverjabæj- arhrepps. Brynjólfur var í hús- nefnd félagsheimilisins Félags- lundar í Gaulverjabæjarhreppi í tuttugu ár og lengi formaður nefndarinnar. Þegar Fé- lagslundur var stækkaður gegndi húsnefndin einnig hlut- verki byggingarnefndar. Hann sat einnig um árabil í fræðslu- nefnd Gaulverjabæjarhrepps. Eftir að búskap lauk og með- an heilsa Brynjólfs leyfði fóru þau Arndís í ferðir til Evrópu- landa, Bandaríkjanna, þar sem Guðmundur bróðir Arndísar bjó, og eina ferð til Kanada. Brynjólfur fór einnig með Ragn- ari syni sínum og fjölskyldu hans í ferð til Filippseyja árið 2004. Í frístundum fékkst Brynj- ólfur við handverk og ljóðagerð og árið 2010 kom út eftir hann ljóðabókin „Það er draumur þinn jörð“. Síðustu mánuðina dvaldist Brynjólfur á Fossheimum, hjúkrunardeild Heilsustofnunar Suðurlands á Selfossi. Útför hans verður gerð frá Selfosskirkju í dag, 27. maí 2015, kl. 14. sinni, Arndísi Er- lingsdóttur, f. 2. júlí 1932, frá Galta- stöðum í Gaulverja- bæjarhreppi og hófu þau búskap ásamt foreldrum Brynjólfs í Kols- holtshelli. Þar bjuggu þau til árs- ins 1956 er þau fluttust að Galta- stöðum og tóku við búinu þar. Á Galtastöðum bjuggu þau til ársins 1990 er þau fluttu til Selfoss. Brynjólfur og Arndís eignuðust tvo syni: Erling, f. 17. des. 1952, og Ragn- ar Geir, f. 31. mars 1961. Fyrr- verandi sambýliskona Erlings er Sigurey Finnbogadóttir, f. 3. nóv. 1955, og eignuðust þau tvo syni, Brynjólf, f. 17. nóv. 1977, og Andra, f. 7. nóv. 1984. Kona Brynjólfs yngri er Kristín Rann- veig Snorradóttir, f. 18. sept. 1977, og eiga þau þrjú börn, Hilmi Snorra, f. 6. febr. 2003, Egil Kára, f. 6. maí 2005, og Ið- unni Emblu, f. 26. okt. 2011. Kona Ragnars Geirs er María Geraldine B. Cuizon, f. 16. des. 1970 á Filippseyjum og eiga þau Nú er afi minn og nafni bú- inn að kveðja, 89 ára að aldri. Við bárum ekki bara sama nafn, heldur vorum við að mörgu leyti líkir. Báðir rólegir og kannski dálítið einrænir menn sem gátu sökkt sér í eig- in hugðarefni. Við vorum meira að segja með sama göngulag. Ég held að Binni afi hafi allt- af fundið sig best í samskiptum við börn, umfram fullorðna, og ég man vel eftir því hvað hann var góður við mig þegar ég var strákur. Ég var oft í sveitinni í Flóanum og hjálpaði til við að reka beljur og kíkja í fjárhúsin með honum. Seinna þegar ég varð eldri sá ég að hann ljóm- aði allur þegar barna- og barnabarnabörn komu í heim- sókn. Afa fannst gaman að yrkja ljóð og eftirfarandi samdi hann um mig þegar ég var þriggja ára (ásamt því að semja fram- haldsljóð um Hilmi og Egil, syni mína, þegar þeir fæddust): Nafni minn þú komst þó að pillan fengist í apótekinu Vertu alltaf velkominn með koppinn litli vinur Bless afi, ég er viss um að við rekum beljur saman aftur í Nangíala. Brynjólfur Erlingsson. Okkar góði vinur Brynjólfur Guðmundsson, einn af vor- mönnum Íslands, er látinn eftir langa og gifturíka ævi. Hann var afar vandaður maður, gæddur ríkri samúð með öllum sem stóðu höllum fæti í lífinu. Í blóma lífsins var hann frækinn íþróttamaður og glæsimenni. Vinátta hans og einstök hug- ulsemi var öllum sem nutu dýr- mæt. Heimsóknir að Galtastöð- um standa okkur lifandi fyrir hugskotssjónum. Þar var gest- um tekið með höfðingsskap og rausn sem seint gleymist. Brynjólfur bjó þar myndarbúi ásamt sinni hæfileikaríku eig- inkonu, Arndísi Erlingsdóttur, sem lifir mann sinn. Vart gat fegurri blómaskála fullan af ilmandi yndislegum rósum í öllum litum en þann sem Brynjólfur byggði fyrir Dísu sína á Galtastöðum enda var hann mjög listfengur mað- ur. Allt sem hann gerði var fal- legt og bjó yfir sérstökum þokka. Fuglahús sem hann gaf okkur var einstakt, svo fallegt og frumlegt, allt unnið úr smáum birkigreinum, enda var því strax stolið þegar við hengdum það í tré í garðinum okkar. Við fengum annað í sárabætur en tímdum ekki að hengja það út ef einhver með fágað fegurðarskyn gæti ekki staðist það! Að loknum búskap fluttu þau Dísa að Tunguvegi 1 á Selfossi og þaðan stafar áfram birtu af heimsóknum til þeirra. Sama var hvort komið var með gesti frá Englandi eða Ítalíu, alltaf voru móttökur svo rausnar- legar og fágaðar að hinir er- lendu gestir urðu frá sér numd- ir við að koma inn á slíkt heimili norður á Íslandi. Oft varð þetta hápunktur Íslands- ferðar þessa fólks. Í áratugi var fastur liður hjá okkur að heimsækja þau hjón á nýárs- dag. Þær minningar eru okkur dýrmætar. Þegar horft er til baka er efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt vináttu Brynj- ólfs en tryggð hans var einstök. Aðal hans var að hlúa og hlynna að öllu lífi. Hann var góðum gáfum gæddur, sagði af- ar vel frá og var hneigður til skáldskapar. Litla ljóðabókin hans „Það er draumur þinn jörð“ ber máltilfinningu hans og fegurðarskyni fagurt vitni. Síðustu árin sóttu að honum erfið veikindi en alltaf reis hann upp úr þeim af ótrúlegri seiglu og æðruleysi. Andlegur styrkur hans var óbugandi. Nýliðinn vetur hitt- um við hann hinsta sinni. Hann var þá kominn í hjólastól en við áttum ánægjulega samveru- stund á veitingastað í Kringl- unni. Dísu, sonum þeirra og allri fjölskyldu vottum við dýpstu samúð. Blessuð sé minning Brynjólfs Guðmunds- sonar. Helga Friðfinnsdóttir og Gunnar Grettisson. Brynjólfur Guðmundsson Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HREINN HEIÐMANN JÓSAVINSSON, áður bóndi Auðnum Öxnadal, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 29. maí kl. 13.30. Jarðsett verður í Bakkakirkjugarði í Öxnadal. . Margrét Helga Aðalsteinsdóttir, Ragnheiður G. Hreinsdóttir, Leó V. Leósson, Sigurlaug U. Hreinsdóttir, Páll V. Sigurðsson, Hlíf S. Hreinsdóttir, Friðrik S. Pálmason, Aðalsteinn H. Hreinsson, Sigríður Svavarsdóttir, Ásdís H. Hreinsdóttir, Jón G. Snorrason, Jósavin H. Hreinsson, Kristjana Gunnarsdóttir, Hjördís A. Pétursdóttir, Björn Pálsson, afa- og langafabörn. Okkar ástkæra sambýliskona, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SNJÓLAUG SNJÓLFSDÓTTIR, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, lést af slysförum föstudaginn 15. maí á Hrafnistu í Hafnarfirði. Guðrún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 29. maí kl. 13. . Guðbjartur Alexandersson, Óskar Sigurðsson, Katarzyna S. Sigurdsson, Sigrún Sigurðardóttir, Hörður Benediktsson, Hafdís Björg Sigurðardóttir, Óskar Ásgeirsson, Þjóðbjörg Heiða Þorsteinsd., Snorri Níelsson, Valdís Ingunn Óskarsdóttir, Hörður Páll Steinarsson, Markús Georg Óskarsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÓBERT NIKULÁSSON frá Vopnafirði, lést á sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 24. maí. Jarðarförin fer fram laugardaginn 30. maí kl. 14 í Vopnafjarðarkirkju. . Eydís Bjarnadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku ástin mín, fallega eiginkona mín og besti vinur, móðir og tengdamóðir, dóttir, systir, tengdadóttir og mágkona, JÓHANNA GUNNLAUGSDÓTTIR, verslunarstjóri í Álafossbúðinni í Mosfellsbæ, lést sunnudaginn 17. maí á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 29. maí kl. 15. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Bleiku slaufuna (og að fara sjálf tímanlega í skoðun). Sérstakar þakkir fá starfsmenn dagdeildar E10 sem hún heimsótti síðustu 12 ár, E11 og Líknardeildar Landspítalans þar sem hún dvaldi síðustu vikurnar, en allt þetta starfsfólk virðist hafa sérstakan hæfileika til að sýna nærgætni og tryggja virðingu sjúklinga. . Tryggvi Þorsteinsson, Kristín Tryggvadóttir, Guðmundur K. Pálsson, Gunnlaugur Kr. Jóhannsson, Unnur Gottsveinsdóttir, Gottsveinn Gunnlaugsson, Jónína Guðný Árnadóttir, Gunnlaugur Ö. Gunnlaugsson, Anna B. Eyvindsdóttir, Sigurjón Gunnlaugsson, Ragnheiður Jóhannesd., Þorsteinn V. Þórðarson, Kristín Tryggvadóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Jón Ragnar Harðarson og fjölskyldur. Ástkær sonur okkar, faðir, bróðir og barnabarn, BENT BJARNI JÖRGENSEN, lést að morgni 20. maí. Útför verður frá Grensáskirkju föstudaginn 29. maí kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning Bjarts Freys sonar hans: kt. 081009-3840, rknr. 0111-05-260831. . Aðalheiður Jörgensen, Sigurbjartur Halldórsson, Margrét Ragnarsdóttir, Bjartur Freyr Heide Jörgensen, Sigrún Ásta Jörgensen, María Guðrún Nolan, Jóhanna Astrid, Ragnar Aron, Guðrún Jörgensen, Bent Bjarni Jörgensen, Sigrún Ásta Sigurbjartsdóttir, Halldór Hjartarson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, frænka, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi, Söðulsholti, Snæfellsnesi, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi sunnudaginn 17. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. maí kl. 13. . Einar Ólafsson, Jón Einarsson, Sigrún Sigurðardóttir, Halldóra Einarsdóttir, Grétar Már Ómarsson, Ólafur Einarsson, Julie Gaudette Olafsson, Guðmundur Jón Helgason, Lilja Ægisdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍNA GUNNLAUGSDÓTTIR garðyrkjufræðingur, áður Reykjum í Ölfusi, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 27. maí kl. 13. . Hulda Axelsdóttir, Álfdís Elín Axelsdóttir, Martin Kennelly, Erla Dís Axelsdóttir, Pétur H. Hannesson, Ari Víðir Axelsson, Anna Margrét Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, tengdasonur, bróðir og mágur, HÖRÐUR ÓSKARSSON viðskiptafræðingur, Hrauntúni 12, Vestmannaeyjum, lést á heimili sínu laugardaginn 16. maí. Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 30. maí kl. 11. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyjum. . María Guðbjörg Pálmadóttir, Pálmi Harðarson, Elín Ósk Harðardóttir, Ásta María Harðardóttir, Ásta Haraldsdóttir, Anna Steinunn Eiríksdóttir, Haraldur Óskarsson, Guðbjörg Karlsdóttir, Elínborg Óskarsdóttir, Sigurður Georgsson, Sigbjörn Þór Óskarsson, Kristín Hjartardóttir, ættingjar og vinir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN OTTÓ KJARTANSSON viðskiptafræðingur, Garðatorgi 7, Garðabæ, lést þriðjudaginn 19. maí á Landakoti. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 29. maí kl. 13. . Þórunn Birna Björgvinsdóttir, Guðni V. Jónsson, Guðmundur Þ. Björgvinsson, Árni Björgvinsson, Svava Sæberg, Kjartan G. Björgvinsson, Eva Lísa Reynisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.