Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 24
Smáþjóðaleikarnir í Reykjavík
2015 eru samstarfsverkefni
Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands, sérsambanda ÍSÍ,
mennta- og menningarmála-
ráðuneytis, Reykjavíkurborgar
og Íþróttabandalags Reykja-
víkur.
Kostnaðaráætlun Smáþjóða-
leikanna er tæpar 600 milljónir
króna. Tekjur leikanna felast í
þátttökugjöldum og styrkjum frá
ólympíuhreyfingunni, samstarfs-
aðilum og opinberum aðilum.
Þá má ekki gleyma ómetanlegu
framlagi sjálfboðaliða.
Heildarvelta Smáþjóðaleikanna
er því umtalsvert hærri en 600
millj. kr. því einnig koma til land-
sins á eigin vegum margir full-
trúar íþróttahreyfinga viðkom-
andi þátttökuþjóða, fjölskyldu-
meðlimir íþróttamanna,
blaðamenn og þjóðhöfðingj-
ar. Þessir aðilar kaupa m.a.
flugfargjöld, hótelgistingu, mat,
akstur og skoðunarferðir.
Framlag Reykjavíkurborgar
er í formi leigukostnaðar og
endurnýjunar/viðhalds á búnaði
í íþróttamannvirkjum. Framlag
ríkisins vegna Smáþjóðaleik-
anna á fjárlögum 2014 og
2015 er alls 100 m.kr. Fulltrúar
mennta- og menningarmála-
ráðuneytis og Reykjavíkur-
borgar sitja í skipulagsnefnd
Smáþjóðaleikanna og hafa þeir
komið að undirbúningi leikanna
með virkum hætti.
Samstarfsaðilar
Verðlaun og verðlaunatafla
Setningarhátíð Smáþjóðaleik-
anna 2015 fer fram í Laugar-
dalshöll kl. 19.30 þann 1. júní.
Setningarhátíðin er aðeins fyrir
þátttakendur á leikunum og
boðsgesti, en sýnt verður frá
henni á RÚV í beinni útsend-
ingu.
Lokahátíð Smáþjóðaleikanna
2015 fer fram í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Laugardal
kl. 20.00 þann 6. júní. Loka-
hátíðin er fyrir alla þátttakendur,
sjálfboðaliða og gesti. Boðið
verður upp á grillmat og
skemmtidagskrá.
Lokahátíð stendur í um þrjár
klst. og er fyrir alla þátttak-
endur, sjálfboðaliða og gesti.
Boðið verður í grill og
skemmtidagskrá.
Setningar- og
lokahátíð
Gullsamstarfsaðilar Smáþjóða-
leikanna 2015 eru tíu talsins;
Advania, Askja, Bílaleiga
Akureyrar Europcar, Bláa Lónið,
Eimskip, Icelandair Group,
Íslandsbanki, Vífilfell, Vodafone
og ZO•ON.
Stuðningur samstarfsaðila,
fyrirtækja og opinberra aðila,
skiptir sköpum fyrir framkvæmd
leikanna. Án þeirra væri ekki
hægt að halda leikana.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Lárus L. Blöndal
forseti ÍSÍ og Illugi Gunnarsson mennta- og menninga-
málaráðherra skrifuðu undir samstarfssamning Reykja-
víkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins
og ÍSÍ í febrúar.
Gullsamstarfsaðilar Smáþjóðaleikanna 2015 ásamt
Blossa lukkudýri Smáþjóðaleikanna 2015.
Gullsamstarfsaðilar komu saman til þess að fara yfir
hugmyndir um útlit mannvirkja á meðan á leikunum
stendur.
Gullsamstarfsaðilar Smáþjóðaleikanna 2015
Þann 30. apríl var nýtt frímerki gefið út hjá Íslandspósti. Á
frímerkinu eru þær íþróttagreinar sem keppt verður í á Smáþjóða-
leikunum 1.–6. júní 2015. Frímerkið er gefið út af því tilefni að
Smáþjóðaleikarnir eru haldnir á Íslandi í ár. Hönnuður frímerkisins
er Elsa Nielsen grafískur hönnuður og hluti af hönnunarteymi
Smáþjóðaleikanna 2015.
Frímerki Smá-
þjóðaleika 2015
Hér má sjá skiptingu verðlauna frá upphafi leikanna.
Bein útsending verður sýnd á
RÚV frá fjórum íþróttagreinum.
1. júní: Setningarhátíð
2. júní: Frjálsíþróttir
4. júní: Sund
5. júní: Blak
6. júní: Körfuknattleikur
Auk þess verða sýndir saman-
tektarþættir á RÚV strax að
loknum tíufréttum alla keppnis-
dagana, 2.–6. júní.
Beinar útsendingar
Það verður mikið um að vera
í Laugardalnum dagana 1.–6.
júní. Keppni í íþróttagreinum fer
fram 2.–6. júní. Skemmtilegt er
að skoða eldstæði leikanna þar
sem eldur mun loga frá 1. júní
og Blossi verður á svæðinu alla
daga.
Kíktu í dalinn