Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Teppi á stigaganginn - nú er tækifærið ! Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðarlausu Eitt verð niðurkomið kr. 6.390 m2 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Íslenskir verkfræðingar hafa verið duglegir að ná sér í verk í Noregi og um hvítasunnuhelgina var tekinn í notkun nýr og afar fullkominn frjáls- íþróttavöllur, hannaður af VSÓ Ráðgjöf, í borg- inni Hamar. Um er að ræða fullbú- inn íþróttavöll með aðstöðu fyrir allar greinar frjálsra íþrótta, þar á meðal 8 hlaupabrautir, langstökksgryfj- ur, platta fyrir kúluvarp og sleggjukast og skauta- völl sem kláraður verður síðar. Áður óbyggt engi Nær 30 þúsund manns búa í Ham- ar sem er í austanverðum Noregi, um 100 km norðan við Ósló. Fyrir- tækið hefur annast mörg verkefni fyrir sveitarfélagið eftir að ramma- samningur var gerður við það árið 2011, íþróttavöllurinn er hins vegar verkefni sem fór í almennt útboð. VSÓ Ráðgjöf hefur talsverða reynslu af undirbúningi og hönnun frjálsíþróttavalla, hefur áður unnið slík verk bæði fyrir FH í Kaplakrika og fyrir Kópavogsbæ. Auk sjálfs vallarins og tengdra mannvirkja hannaði VSÓ Ráðgjöf einnig breytingar sem gera þurfti á fylkisvegi í nágrenninu og nýjan að- komuveg með bílastæðum. Vilhjálmur Árni Ásgeirsson, byggingaverkfræðingur og sviðs- stjóri Byggðatækni hjá VSÓ Ráð- gjöf, hafði umsjón með verkefninu. „Við byrjuðum á þessu verki í lok árs 2012 en meginþungi hönnunarinnar fór fram 2013 og byggingafram- kvæmdirnar stóðu síðan yfir allt árið 2014 og fram á þetta ár,“ segir Vil- hjálmur. Eftirlit og umsjón var í höndum sveitarfélagsins sem hafði sér til fulltingis norska verkfræði- stofu og segir Vilhjálmur eftirlitsað- ilana hafa verið mjög nákvæma. Völlurinn er á svæði þar sem áður var óbyggt engi. Leysa þurfti ýmis tæknileg vandamál, frostfrítt dýpi á þessum slóðum er 2,1 metri með þéttum botni. Því var mikilvægt að tryggja rétta undirbyggingu og góða ræsingu með drenlögnum og þá þurfti að færa háspennumöstur vegna vallargerðarinnar. Vilhjálmur segir verkið hafa verið unnið af starfsmönnum VSÓ Ráð- gjafar á Íslandi í samstarfi við skrif- stofur fyrirtækisins í Noregi. Helgina fyrir hvítasunnu hafi að- staðan verið prófuð með unglinga- móti í frjálsum íþróttum og almenn ánægja sé með hvernig til hafi tekist. Borgarprýði Nýi frjálsíþróttavöllurinn í Hamar, sem VSÓ Ráðgjöf hannaði fyrir borgina, uppfyllir kröfur Alþjóða- frjálsíþróttasambandsins fyrir öll mót. Hamar er um 100 km norðan við Ósló. Hönnuðu glæsilegan íþróttavöll í Noregi  VSÓ Ráðgjöf hefur annast mörg verkefni fyrir Hamar Fjölbreytt Fyrsta stórmótið á vellinum var um helgina. Hlaupabrautir eru átta. Aðstaða er fyrir allar frjálsíþróttir, síðar verður þar líka skautavöllur. Vilhjálmur Árni Ásgeirsson Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Við teljum að Ferðaþjónusta fatl- aðra sé komin í mun betra horf en fréttir hafa gefið til kynna að undan- förnu. Það var verið að rifja upp hve staðan var slæm á sínum tíma, en ferðaþjónustan hefur lagast,“ segir Þorkell Sigurlaugsson, formaður framkvæmdaráðs Ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdaráðinu er gert að útfæra tillögur sem neyðarstjórnin setti á sínum tíma en Ferðaþjónusta fatlaðra hefur fengið töluvert harða gagnrýni frá áramótum, nú síðast frá innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar. Þorkell segir að allir sem koma að ferðaþjónustunni rói í sömu átt og vilji koma málaflokknum á leiðarenda. Vantar að samnýta bíla „Strætó tók við verkefninu eftir að hafa sóst eftir því. Það var illa undirbúið, bæði af hálfu Strætó og af sveitarfélögunum, og úr varð þetta skelfilega ástand. Strætó hefur gert sitt besta og er með okkur að vinna úr þessum vandamálum og leysa þau. Við vinnum vel saman og það eru engin átök um verkefnið. Það stefna allir að því að komast á leið- arenda – helst á réttum tíma,“ segir Þorkell. Enn er töluvert um að bílar mæti of seint fyrir notendur þjónust- unnar. „Það er enn þannig að of margir eru fluttir hver í sínum bíln- um í staðinn fyrir að samnýta bíla, það vantar enn upp á stundvísina en það hefur margt áunnist í þjónust- unni. Það eru komin betri tök á tölvukerfinu, nýr hugbúnaður er að koma sem á að auðvelda rekstur á kerfinu og það er unnið að því að stilla kerfið af miðað við þarfir not- enda,“ segir Þorkell. Öryggismál orðin betri Hann bætir við að staðan hafi batnað en hún sé enn ekki nógu góð og þjónustan geti enn batnað. „Það er búið að bæta öryggis- málin, búið að skipuleggja betur að það séu ákveðnir aðilar sem sinna ákveðnum notendum í ákveðnum ferðum, búið að endurskipuleggja þjónustuhópinn, sem eru notendur, bílstjórar og fulltrúar Strætó, og raddir notenda heyrast því betur.“ Enn byrjunar- örðugleikar  Vantar ennþá upp á stundvísina hjá Ferðaþjónustu fatlaðra Morgunblaðið/Kristinn Erfitt Ferðaþjónustan glímir enn við byrjunarörðugleika. Ágúst Bjarni Garðarsson hefur verið ráðinn að- stoðarmaður Sig- urðar Inga Jó- hannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, og hóf- hann störf í gær. Ágúst hefur starfað sem stundakennari, verkefnisstjóri og nú síðast á skrifstofu utanríkisráð- herra. Hann lýkur meistaraprófi í verkefnastjórnun (MPM) frá Há- skólanum í Reykjavík í næsta mán- uði. Hann er í sambúð með Ás- laugu Maríu Jóhannsdóttur sálfræðinema og saman eiga þau dreng. Helga Sigurrós Valgeirsdóttir lét nýlega af störfum sem aðstoðar- maður ráðherra og hóf störf í sjávarútvegsteymi Arion-banka. Ráðinn að- stoðarmaður Ágúst Bjarni Garðarsson Nýlega auglýsti Strætó eftir nýjum sviðsstjóra yfir ferðaþjónustuna en sá sem gegndi starfinu fékk harða gagnrýni í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavík- urborgar. Bæði fyrir aðkomu sína að uppsögnum starfsmanna símaversins og upplýsingagjöf til hags- munasamtaka en rof kom í upplýsingaflæði til þeirra. Hans fyrsta verk árið 2013 sem sviðsstjóri hafi verið að kalla starfsmennina á fund, upplýsa að deildin yrði lögð niður og það þyrfti að segja öllum upp. Mörgum mánuðum síðar hefði uppsagnarbréfið svo loks komið. Þorkell Sigurlaugsson segir að miklar vonir séu bundnar við nýjan sviðsstjóra. „Við bindum vonir við að sá muni hafa alla þræði í hendi sér.“ Bindur vonir við nýjan tón NÝR SVIÐSSTJÓRI RÁÐINN YFIR FERÐAÞJÓNUSTU FATLAÐRA Þorkell Sigurlaugsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.