Morgunblaðið - 27.05.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 27.05.2015, Síða 23
Skipulagsnefnd Smáþjóða- leika skipa Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður nefndarinnar, Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ, Líney Rut Hall- dórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, Óskar Örn Guðbrandsson verkefnastjóri Smáþjóðaleika 2015, Óskar Þór Ármannsson sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Steinþór Einarsson skrifstofu- stjóri ÍTR, Ómar Einarsson framkvæmdastjóri ÍTR, Ingvar Sverrisson formaður ÍBR, Frímann Ari Ferdinandsson framkvæmdastjóri ÍBR, Eva Einarsdóttir varaformaður ÍTR, Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ. Heiðursnefnd Smáþjóðaleika 2015 skipa mennta- og menningarmálaráðherra, borgarstjóri, forseti ÍSÍ, vara- forseti, gjaldkeri, ritari og fram- kvæmdastjóri ÍSÍ. Heiðurs- nefndin endurspeglar samstarf ÍSÍ, Reykjavíkurborgar og mennta- og menningarmála- ráðuneytis um framkvæmd Smáþjóðaleika. Undirbúningur leikanna hefur gengið samkvæmt áætlun hjá skipuleggjendum. Skipu- lagsnefnd leikanna hóf störf í febrúar 2013 undir forystu Helgu Steinunnar Guðmunds- dóttur varaforseta ÍSÍ. Skipu- lagið skiptist í íþróttahluta, þjónustuhluta og rekstrarhluta. Innan hvers hluta starfa hinar ýmsu nefndir. Skipulagsnefnd og heiðursnefnd Samfélagsmiðlar Hægt er að lesa sér meira til um Smáþjóðaleikana á heimasíðu leikanna www.iceland2015.is og á fésbókarsíðu leikanna Smáþjóðaleikar 2015. #gsse2015 #blossi Búist er við fjölda fólks í dalinn. Á meðan á leikunum stendur mun Engjavegur vera lokaður fyrir almenna umferð. Þeir sem eiga erindi í Íþróttamiðstöðina komast sinnar leiðar. Aðgengi að Fjölskyldu- og hús- dýragarði verður frá gatna- mótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Ekki verður hægt að komast frá Reykjavegi. Athugið! Lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015 var kynnt til sögunnar 1. desember 2014, þegar sex mánuðir voru til leika. Það ber sterk einkenni íslenskrar náttú- ru og þann náttúrulega kraft sem einkennir land og þjóð. Lukkudýrið fékk nafnið sitt þann 21. febrúar sl. þegar 100 dagar voru til leika, eftir nafnasam- keppni í 4.–7. bekkjum í grunnskólum landsins. Nafnið Blossi var valið úr þeim 140 tillögum sem bárust. Tveir bekkir, 6. bekkur Vesturbæjar- skóla og 5.H.G. í Njarðvíkurskóla, sendu inn tillögu með sigurnafninu og því varð að draga um vinningshafann sem reyndist vera Njarðvíkurskóli. Lukkudýrið Blossi heimsótti báða skólana í mars og þá fengu allir nemend- ur viðkomandi bekkja lítinn Blossa til eignar. Njarðvíkurskóli fékk einnig í verðlaun tölvubúnað frá Advania að verðmæti 100.000 kr. Blossi hefur verið duglegur að mæta á ýmsa viðburði tengdum undirbúningi Smáþjóðaleikanna og hefur hvarvetna vakið athygli fyrir líflega framkomu. Myndband frá því hvernig Blossi varð til má sjá á heima- síðu leikanna undir „Náttúru- legur kraftur”. Blossi, lukkudýr leikanna Blossi fékk nafnið sitt. Blossi í Njarðvíkurskóla. Blossi í Bláa lóninu. Blossi með hönnunarteymi leikanna. Þann 3. október 2014 var formlega opnað fyrir skráning- ar sjálfboðaliða á heimasíðu Smáþjóðaleikanna. Slagorð sjálfboðaliðaverkefnisins er „Býr kraftur í þér?“ Störf sjálfboðaliða skipa mikil- vægan sess í verkefni af þeirri stærð sem Smáþjóðaleikar eru. Sjálfboðaliðastörfin eru fjöl- breytt og reyna á mismunandi hæfileika og kunnáttu, en þau felast meðal annars í því að aðstoða við viðburði eins og setningar- og lokahátíð og ýmsa þjónustuþætti í tengslum við íþróttagreinarnar. ÍSÍ út- vegar sjálfboðaliðum glæsi- legan fatnað frá ZO•ON sem þeir klæðast við störf sín á Smáþjóðaleikunum og fá síðan til eignar. Skráningarkerfi sjálf- boðaliða lokaði formlega þann 25. febrúar og höfðu þá um 1.100 sjálfboðaliðar skráð sig til leiks. Þeir sjálfboðaliðar sem áttu þess kost hófu síðan stuttu síðar störf. Það hefur myndast Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Broddi Kristjánsson eru sjálfboðaliðar á leikunum. Sjálfboðaliðaverkefnið „Býr kraftur í þér?“ virkilega skemmtileg stemning í húsakynnum ÍSÍ síðustu vikur- nar. Sjálfboðaliðar komu saman til þess að fara yfir verðlauna- peninga og aðstoða við fata- mátun, raða gjöfum í gjafapoka ásamt ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum. Það má með sanni segja að án aðstoðar sjálfboðaliða væri ekki hægt að halda Smáþjóðaleika. Hönnunarteymi Smáþjóða- leikanna, Elsa Nielsen og Logi Jes Kristjánsson, hönnuðu merki Smáþjóðaleika 2015. Merkið hefur víðtæka skírskot- un í náttúru Íslands og um- hverfisvæna stefnu leikanna. Í lagskiptum litum íþróttanna má sjá eldfjall, hálendissanda, grænan gróður, haf og ís. Formin eru hörð og óregluleg eins og lagskipting náttúrunnar. Merki Smáþjóðaleika 2015 Íslenskt íþróttafólk verður áberandi á Smáþjóðaleikunum, en Ísland teflir fram öflugum keppendum í öllum íþrótta- greinum. 166 íslenskir kepp- endur munu keppa við hinar þjóðirnar um þau verðlaun sem í boði eru á leikunum. Ísland hefur náð í 1029 verðlaun frá upphafi leikanna árið 1985. Aðeins Kýpur á fleiri verðlaun frá leikunum, 1084. Spennandi verður að fylgjast með íslensku íþróttafólki á heimavelli. Garðar Svansson úr fram- kvæmdastjórn ÍSÍ er fararstjóri íslenska hópsins á leikunum. Ásamt honum eru þeir Guð- mundur Ágúst Ingvarsson, einnig úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, og Örvar Ólafsson starfsmaður ÍSÍ. Þeim til halds og trausts hafa öll sérsambönd sem keppendur eiga á leikunum tilnefnt flokksstjóra sem verða málsvarar sinnar greinar og þátttakenda. Íslenskir þátttakendur munu hafa aðsetur í Íþróttamiðstöð- inni í Laugardal meðan á leikunum stendur. Þar geta þátttakendur slakað á milli keppnisgreina og nýtt sér ýmsa þjónustu. Íslenskir keppendur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.