Morgunblaðið - 23.06.2015, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
Sumarskór í úrvali
Verð 6.995
stærðir 36-41 - Leður
5.995
stærðir 36-41
Verð 6.995
stærðir 36-41
Verð 5.995
stærðir 36-41
Verð
Undirtitill þessarar athyglisverðu
esseyju Oddnýjar Eirar er „Í leit að
kátu sæði“. Og höfundur útskýrir
strax í byrjun, í kafla sem nefnist
„Ég reyndi“, hvert umfjöllunarefnið
er:
Ég ímynda
mér að á dánar-
beðinum, þegar
eftirsjáin hrjáir
geð, þá sé fróun í
að rifja upp að
maður hafi reynt
allt.
Reynt hvað?
Að eignast barn.
En af hverju að eignast barn? Ég
veit það ekki. Finn bara þrá í brjósti.
Ég reyndi kannski ekki allt,
kannski of lítið. Kannski of mikið …
(7)
Höfundurinn gengst strax við því
að hún viti ekki af hverju þráin staf-
ar en lesandinn fær að kynnast því í
opinskárri frásögninni hvernig þörf-
in sífellt eykst, eftir því sem eggj-
unum fækkar, að finna líf kvikna í
kviðnum og að öðlast þá reynslu að
ganga með og fæða barn.
Oddný Eir er einn okkar athyglis-
verðustu höfunda í dag og hefur á
undanförnum árum skrifað og gefið
út persónuleg verk, þar sem hún iðu-
lega fetar sig eftir illskilgreinan-
legum mörkum sjálfsævisögu, dag-
bókar, heimspeki og skáldskapar.
Ástarmeistarinn, hennar hefð-
bundnasta skáldsaga til þessa, kom
út í fyrra, en forvitnilegt er að sjá
hvernig þessi nýja esseyja, Blátt
blóð, tengist henni á ýmsar hátt, í
umfjöllunarefni, hugmyndum og af-
stöðu. Það sýnir enn og aftur hve
höfundarverk hennar er allt saman-
reyrt.
Þetta er afskaplega heiðarleg frá-
sögn um ástir, sambönd og slit sam-
banda, þar sem reynt er á þanþol
ástarinnar og reynt á líf án frjóvg-
unar, þar sem sú þörf verður að sí-
vaxandi spennu í sjálfum kjarna lífs-
ins og tilverunnar að fá að eignast
barn. Við lestur á Bændablaðinu ein-
mana heima eitt kvöld les hún til að
mynda auglýsingu um þreskivél og
Þrá eftir kátu
sæði – og barni
Esseyja
Blátt blóð bbbbn
Eftir Oddnýju Eiri Ævarsdóttur.
Bjartur, 2015. Kilja, 108 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
TÓNLIST
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Síðasta degi tónlistarhátíða svipar
oft til bjórmagna hátíðargesta; út-
þynntur og illa þefjandi. Slíkt virtist
þó ekki ætla að verða raunin þegar
sunnudagurinn rann upp á Secret
Solstice-hátíðinni í Laugardalnum
og sólargeislarnir mættu fyrstu
gestum hátíðarinnar sem skriðu upp
úr holum sínum um hádegi. Von var
á stærstu nöfnum hátíðarinnar um
kvöldið og eftirvæntingin lá í loftinu.
Einhverjir hátíðargestir, sem höfðu
orðið fyrir barðinu á lélegu skipulagi
hátíðarinnar, voru þó flognir heim
og kenndu því um hversu seint dag-
skrá hátíðarinnar barst gestum –
sem og raunar þeim listamönnum
sem tróðu upp á hátíðinni. Dag-
skráin barst nefnilega skammarlega
seint og listamenn vissu sumir
hverjir ekki sjálfir hvenær þeir ættu
að stíga á svið fyrr en á allra síðustu
stundu.
Misgóðar stundir til tónleika
Hvað sem því leið var hátíðin
hafin þennan daginn og sem fyrr
hófu plötusnúðar að þeyta skífum
sínum í hádeginu. Rafpönksveitin
Kælan mikla steig á sviðið Gimli
klukkan þrjú og spilaði fyrir nokkr-
ar hræður sem safnast höfðu saman
á víðáttumiklu svæðinu fyrir framan
sviðið. Vissulega þarf einhver að
fylla þessa tímarauf í dagskránni en
úthlutunin verður seint talin öfunds-
verð – helmingur hátíðargesta á nið-
urtúr og hinn helmingurinn þunnur.
Kælan stóð sig hins vegar prýðilega
og pönkið vel útfært. Eldri slagarar
á borð við „Mánadans“ voru teknir
áður en sveitin hóf að leika nýrri lög
á borð við „Kalt“ sem útfærð eru
með trommuheilum og hljóðgervlum
í stað hefðbundins trommusláttar.
Breytingin kom mjög vel út og tríóið
greinilega að þróast í rétta átt.
Ýmis dægradvöl var í boði á
svæðinu að tónlistinni undanskilinni
og mátti þar meðal annars sjá
mennskt fúsbal, kræsingar og fall-
turn – sem var langtum skárri en
heiti potturinn sem komið hafði ver-
ið fyrir á miðju svæðinu. Stöku sinn-
um sást til tilgerðarlegra strípalinga
Wu-Tang Clan er fyrir börnin
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Heillandi Breska söngkonan FKA twigs var einkar seiðandi á sviðinu í Laugardalnum þegar hún tók lög á borð við „Water Me“ og „Two Weeks“.
sem fannst þeir sigra heiminn með
því að sýna öðrum hátíðargestum
rassinn á sér áður en þeir settust
flissandi í pottinn aftur. Þarna sátu
gestirnir svo lengi í heitum pottinum
með bjórinn í annarri og virðinguna í
hinni þar til hvort tveggja var þrotið.
Seiðandi FKA twigs
Aðalsviðið, Valhöll, var þétt
skipað þetta kvöldið og byrjaði
gleðin á Charles Bradley og The
Wailers. Stemningin í lundinum fyr-
ir framan sviðið var einkar góð og
veðrið lék við hátíðargesti. Heilu
hóparnir lágu makindalega í grasinu
á meðan beðið var eftir næsta lista-
manni til að stíga á svið og allt virtist
nokkuð friðsamlegt – annað en það
sem gengið hafði á daginn áður á
milli misvel gefinna listamanna há-
tíðarinnar. Gestir kunnu vel að meta
elektrópopptónlist Danans MØ sem
sprangaði því næst um sviðið íklædd
íþróttafötum.
Tónlistarbetrungur MØ, breska
söngkonan FKA twigs, átti þó sviðið
á eftir henni. Tilraunakennd R&B-
tónlist listamannsins hefur notið
mikilla vinsælda að undanförnu enda
hluti af uppgangi tónlistarmanna
» Taktarnir semFKA twigs smíðar
eru þó nokkuð sérstakir,
fremur brotnir og
óreglulegir, og ég gæti
trúað að þeir sem ekki
hafa hlustað á hana áður
hafi ekki meðtekið feg-
urðina sem býr í tón-
smíðum hennar.
Gleði Skemmtunin var talsvert þyngri byrði fyrir suma en aðra.