Morgunblaðið - 23.06.2015, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er búið að vera algjört ævintýri og eitt
það skemmtilegasta sem ég hef gert um æv-
ina,“ segir Einar Erlendsson ljósmyndafræð-
ingur, sem er stofnandi og
eigandi Focus on Nature,
um samstarf sitt við banda-
ríska ljósmyndarann Feo-
dor Pitcairn. Um komandi
mánaðamót verður opnuð
stór ljósmyndasýning um
Ísland í National Museum
of Natural History í Smit-
hsonian Institute í Wash-
ington sem nefnist Pri-
mordial landscapes –
Iceland revealed. Þar getur
að líta ljósmyndir Feodors
Pitcairn og texta Ara
Trausta Guðmundssonar,
en samhliða sýningunni
kemur út samnefnd bók hjá
powerHouse-útgáfunni,
sem fljótlega verður fáan-
leg hérlendis.
„Sýningin verður opnuð
almenningi 2. júlí og stend-
ur til aprílloka 2017,“ segir
Einar og tekur fram að
áætlað sé að a.m.k. ein og hálf milljón gesta
muni sjá sýninguna á þessum tíma. „Þetta er
því ótrúlega góð landkynning,“ segir Einar og
tekur fram að stór hluti sýningargesta verði
skólafólk og áhugafólk um náttúruvísindi.
„Samhliða myndunum heyra gestir nátt-
úruhljóð frá Íslandi. Markmið mynda Feodors
er að sýna hvernig orka náttúrunnar mótar
landslagið. Þær sýna hvernig vindur, vatn, eld-
ur og ís hefur sorfið og skapað yfirborð lands-
ins,“ segir Einar, sem m.a. fékk leyfi til að
fljúga með Pitcairn út í Surtsey auk þess sem
þeir voru með þeim fyrstu til að fara í þyrlu að
Holuhrauni þegar gos hófst þar.
„Feo, sem er um áttrætt, er í Bandaríkj-
unum aðallega þekktur fyrir neðansjávar-
myndir sínar, bæði kvikmyndir og ljósmyndir.
En myndirnar hefur hann verið að vinna fyrir
Smithsonian,“ segir Ari Trausti Guðmunds-
son, jarðfræðingur og ljóðskáld. „Feo kom alls
átta sinnum til landsins til að mynda fyrir bók-
ina og fór með Einari um land allt,“ segir Ari
Trausti og rifjar upp að Einar hafi átt hug-
myndina að því að hann skrifaði við myndir
Pitcairns. „Við vorum nokkuð lengi að finna
rétta formið en niðurstaðan varð sú að ég orti
ljóð á ensku við hverja mynd,“ segir Ari
Trausti, en alls eru um 120 myndir í bókinni og
um 50 af þeim á sýningunni.
Engar sykurmyndir
„Ég samdi líka upplýsingatexta um hverja
mynd með upplýsingum um staðhætti, jarð-
fræði og sögu viðkomandi staða,“ segir Ari
Trausti. Sá texti verður áberandi á sýning-
unni, en er prentaður aftast í bókinni ásamt Ís-
landskorti með merkingum um hvar mynd-
irnar eru teknar. Í ljósmyndabókinni stendur
hins vegar ein mynd og eitt ljóð á hverri opnu.
„Markmiðið er að bókin sé algjört augnayndi.
Það á að vera eins og sælgæti fyrir augun að
fletta þessari bók og því má ekki drekkja síð-
unum með of miklum texta,“ segir Einar og
bendir á að það sé ástæða þess að fræðitextinn
og jarðfræðiskýringarnar séu aftast í bókinni
með litlum myndum.
„Feo hefur mjög sérstakt auga og forðast al-
farið klisjurnar. Hann tekur m.a. myndir af
þúfum og snjósköflum, sem maður sér venju-
lega ekki í ljósmyndabókum frá Íslandi. Það
sem vakti fyrir honum var að sýna Ísland hratt
og eins og það er, en ekki taka sykurmyndir.“
Aðspurður segist Ari Trausti hafa reynslu af
því að yrkja á þýsku og norsku en minna hafa
gert af því að yrkja á ensku, en eftir hann
liggja sjö ljóðabækur. „Ljóðin komu til mín í
kippum. Það tók marga mánuði að semja
þetta, en það er engin ein aðferð til. Sum
ljóðanna urðu til við tölvuna en önnur á fjöll-
um.“
Að sögn Ara Trausta er þegar byrjað að
skoða möguleika þess að sýningunni verði
breytt í farandsýningu sem fari um Bandarík-
in þegar sýningatímanum í Smithsonian ljúki
árið 2017.
„Búið að vera algjört ævintýri“
Ljósmynd/Feodor Pitcairn
Mótar „Markmið mynda Feodors er að sýna hvernig orka náttúrunnar mótar landslagið.“
Primordial landscapes – Iceland revealed nefnist ljósmyndasýning sem senn verður opnuð í Smith-
sonian Ljósmyndir Feodors Pitcairn í samspili við ljóð og fræðitexta Ara Trausta Guðmundssonar
Einar
Erlendsson
Ari Trausti
Guðmundsson
Eremitten eftir danska rithöfund-
inn Thomas Rydahl hlýtur Glerlyk-
ilinn í ár sem besta norræna glæpa-
sagan. Bækurnar sem voru til-
nefndar í ár eru, auk Eremitten,
Mustamäki eftir Timo Sandberg frá
Finnlandi, Grimmd eftir Stefán
Mána, Helvetesilden eftir Karin
Fossum frá Noregi og Låt mig ta
din hand eftir Tove Alsterdals frá
Svíþjóð. Verðlaunabókin heitir
Einbúinn á íslensku, sögusvið henn-
ar er Kanaríeyjar og aðalsöguhetj-
an rúmlega miðaldra danskur
leigubílstjóri sem býr nálægt
Corralejo á Fuerteventura og flæk-
ist í skuggalega atburði, eins og
segir í tilkynningu. Dómnefndir
fyrir Glerlykilinn voru skipaðar
fyrir hvert land fyrir sig og í þeirri
íslensku eru Inga Magnea Skúla-
dóttir, formaður, Kristján Jóhann
Jónsson og Kristín S. Árnadóttir.
Danski rithöfundurinn Thomas Rydahl
hlaut Glerlykilinn fyrir Einbúann
Verðlaunahafi Thomas Rydahl.
Myndband við „Risalagið“ úr leik-
sýningunni Litla gula hænan með
Leikhópnum Lottu kom út í fyrra-
dag og er það í anda þungarokks-
sveitarinnar HAM, samið af Baldri
Ragnarssyni, gítarleikara og eins
söngvara Skálmaldar sem leikur í
sýningunni. Sigurjón Kjartansson,
hinn hávaxni gítarleikari og söngv-
ari HAM, syngur fyrir risann í lag-
inu en risinn kemur við sögu í leik-
sýningunni. Í myndbandinu má sjá
risann og aðrar persónur leiksýning-
arinnar og þá m.a. litlu gulu hænuna
sem tekur lagið með risanum en með
hlutverk hennar fer Sigursteinn Sig-
urbergsson. Höfundur Litlu gulu
hænunnar er Anna Bergljót Thor-
arensen og eru lagatextar sýning-
arinnar eftir Baldur sem samdi lögin
með Rósu Ásgeirsdóttur og Birni
Thorarensen. Myndbandið má finna
á YouTube með því að slá „Risalag-
ið“ inn í leitarglugga.
Þungarokkarar Sigurjón og Baldur. Sigurjón er fyrsti gestasöngvarinn
sem Leikhópurinn Lotta fær til að syngja fyrir sig inn á plötu.
HAM-arinn Sigurjón ris-
inn í lagi Skálmeldings
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
POWERSÝNING
KL. 10:35
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND MEÐ
OWEN WILSON, IMOGEN POOTS
OG JENNIFER ANISTON
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstil
boð
Þriðjudagstil
boð
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus