Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 2
BYGG ÁTTI LEYNIHLUTINN Í KLÆÐNINGU Miðvikudagur 14. janúar 20092 Fréttir Sigþór Ari Sigþórsson, núverandi framkvæmdastjóri og einn af eig- endum verktakafyrirtækisins Klæðn- ingar, segir að sömu eigendur og eigi BYGG hafi átt fjórðungshlutinn í Klæðningu sem var í vörslu Kaup- þings banka í Lúxemborg. Um var að ræða fjórðungshlut í fyrirtækinu sem metinn var á 15 milljónir króna að nafnvirði. Gunnar Þorláksson, ann- ar eigandi BYGG, sagði í DV í gær að fyrirtækið hefði ekki átt hlutinn. Sigþór segist hins vegar ekki vita betur en að BYGG hafi átt hlutinn. „Gunnar Þorláksson presenteraði hlutinn í fyrirtækinu að minnsta kosti en hann er eigandi BYGG. Ég var alltaf í sambandi við Gunnar út af hlutnum. Ég hef hins vegar aldrei séð neitt skjalfest um hver eigi þennan hlut en það kæmi mér á óvart ef það var einhver annar,“ segir Sigþór. Staðfest af Lómasölum Samkvæmt heimildum DV seldi BYGG hlutinn til nýs hluthafa í Klæðningu, Lómasala ehf., þegar eigendaskipti urðu á fyrirtækinu á seinni hluta síðasta árs. Sigurður Sigurgeirsson hjá Lóma- sölum staðfestir þetta því hann segir að fyrirtækið hafi á seinni hluta síð- asta árs keypt eignarhluta í Klæðn- ingu sem áður hafi verið í eigu BYGG. Hann segir að Lómasalir hafi keypt hlutinn af þriðja aðila en að hann viti ekki betur en að hluturinn hafi verið kominn frá BYGG sem átt hafi hlut í Klæðningu. Kaupþing þegir Halldór Þorleifs Stefánsson, starfs- maður Kaupþings banka í Lúxem- borg, segist ekki vita hvort eignar- hluturinn í Klæðningu hafi verið færður úr vörslu bankans og yfir til nýrra eigenda á liðnum mánuð- um. „Ég bara veit það ekki, satt að segja,“ segir Halldór. Hann dregur svo í land og segist hvorki geta, mega né vilja greina frá því hvort hlutur- inn í Klæðningu hafi verið færður frá bankanum nýlega vegna eigenda- skiptanna. Við eigendaskiptin í lok árs 2008 lét Guðmundur Ingi Karlsson af störfum sem stjórnarformaður í fyr- irtækinu og Bjarni Már Bjarnason tók við, samkvæmt upplýsingum frá hlutafélagaskrá. Guðmundur Ingi er mágur Gunnars Birgissonar, bæjar- stjóra Kópavogs. Veit ekki hver átti hlutinn Samkvæmt heimildum DV sat Guð- mundur Ingi Karlsson, fráfarandi stjórnarformaður Klæðningar, í stjórn fyrirtækisins fyrir hönd BYGG. Guðmundur Ingi segist hins vegar ekki vita hver átti leynihlutinn í fyr- irtækinu sem Kaupþing banki sá um. „Ég hef ekki hugmynd um það og hef ekkert um málið að segja,“ segir Guð- mundur. Hann segist ekki vita hvort eða til hvers leynihluturinn í Lúxem- borg hafi verið seldur þegar hann lét af stjórnarformennsku í fyrirtækinu. Spurður hvort það sé ekki ótrú- verðugt að hann sem stjórnarfor- maður í Klæðningu hafi ekki vitað hver átti fjórðungshlut í fyrirtækinu, segir Guðmundur hlutinn hafa verið í vörslu Kaupþings og „hann hafi ekki hugmynd um hver hafi átt hann.“ Borgaði BYGG fyrir hlutinn? Í skjölum frá Klæðningu sem DV hefur undir höndum kemur nokkr- um sinnum fram að BYGG hafi lagt fram 15 milljónir króna sem fóru í 60 milljóna króna endurfjármögn- un fyrirtækisins árið 2003. Upphæð- in er jafnhá og nafnvirði eignarhlut- ans sem geymdur var í Lúxemborg og eigendur BYGG áttu. BYGG var hins vegar ekki skráð fyrir hlutnum í Lúxemborg né sem einn af hluthöf- unum í Klæðningu í tilkynningu frá fyrirtækinu til Hagstofu Íslands um hlutafjáraukninguna árið 2003. Hlutafjáraukningin sem var til- kynnt til Hagstofu Íslands er sú sama og á minnisblöðunum nema að ekki er minnst á frá hvaða fyrirtækjum féð er komið. Öll fyrirtækin, nema BYGG, sem á minnisblöðunum frá Klæðningu eru sögð leggja hluta- fé í fyrirtækið urðu síðar hluthafar í því samkvæmt skjali yfir hluthafa Klæðningar. Hugmynd Gunnars Birgissonar Nafn BYGG er hvergi tekið fram á op- inberum pappírum frá Klæðningu en í vinnuskjölunum frá fyrirtæk- inu frá árinu 2003 er nokkrum sinn- um gert ráð fyrir að það leggi fram 15 milljónir til endurfjármögnunarinn- ar og er sú hugmynd sögð vera kom- in frá Gunnari Birgissyni, núverandi bæjarstjóra Kópavogs. Gunnar Birgisson var á þeim tíma bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, framkvæmdastjóri Klæðn- ingar og einn af eigendum fyrirtæk- isins. Klæðning hefur alla tíð unnið mikið fyrir Kópavogsbæ. Fyrirtækið stóð afar illa fjárhagslega árið 2003 og þurfti að endurfjármagna það. Skuldir fyrirtækisins voru á þeim tíma um 270 milljónir. Í fundargerð- um frá fyrirtækinu kemur fram að um 60 milljóna króna hlutafjáraukn- ingu hafi þurft til að ná skuldum fyr- irtækisins niður í um 70 milljónir því verkefnastaða fyrirtækisins hafi ver- ið góð. Við endurfjármögnunina árið 2003 seldi Gunnar hlut sinn í fyrir- tækinu og lét af störfum sem fram- kvæmdastjóri. En við endurfjár- mögnunina varð leynihlutur BYGG í fyrirtækinu jafnframt til og hefur alla tíð hvílt yfir því mikil leynd hver átti hann. „Gunnar Þorláksson presenteraði hlutinn í fyrirtækinu að minnsta kosti en hann er eigandi BYGG.“ Framkvæmdastjóri Klæðningar segir að byggingafélagið BYGG hafi átt leynihlutinn í fyrirtækinu sem Kaupþing í Lúxemborg hafði í vörslu sinni. Eigandi BYGG neitar því að fyrirtækið hafi átt hlutinn. Leynihluturinn var seldur í lok síðasta árs. Gunnar Birgisson átti hugmyndina að því að BYGG kæmi inn í rekstur Klæðningar með 15 milljóna króna hlutafjáraukningu. InGI F. VILHjáLmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Höfuðstöðvar Klæðningar Byggingafélagið BYgg átti fjórð- ungshlutinn í verktakafyrirtækinu. Hluturinn var seldur í lok síðasta árs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.