Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 14. janúar 20094 Fréttir
ritstjorn@dv.is
Innlendar FréttIr
Brutu eftirlits-
myndavélar
Tveir úr hópi mótmælenda sem
tók sér stöðu fyrir framan inn-
gang Alþingishússins í gær-
morgun voru handteknir fyrir
skemmdarverk. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglu voru tveir
handteknir fyrir að brjóta niður
eftirlitsmyndavélar við Alþing-
ishúsið. �ótmælendur reyndu
að varna ráðherrum inngöngu í
húsið í morgun. Geir H. Haarde
forsætisráðherra og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra komust ekki inn
nema með lögregluaðstoð.
Réttindalausir
undir stýri
Níu réttindalausir ökumenn
voru stöðvaðir í umdæmi lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina. Fimm þeirra
reyndust hafa verið sviptir öku-
leyfi og fjórir höfðu aldrei öðlast
ökuréttindi.
Á sama tímabili
voru fimmtíu um-
ferðaróhöpp tilkynnt
til lögreglunnar en
þrjú þeirra má
rekja til aksturs
undir áhrif-
um áfengis eða
fíkniefna. Flest
óhöppin voru
minniháttar en í
fáeinum tilvikum
þurfti þó að flytja
fólk á slysadeild. Í sjö
tilfellum stungu öku-
menn af frá vettvangi.
Skellti konu
í götuna
Ein líkamsárás var kærð til
lögreglunnar í Vestmannaeyj-
um í vikunni sem leið þar sem
karlmaður hafði lagt hendur á
konu fyrir utan veitingastaðinn
Lundann að morgni 10. janúar
síðastliðins. Við aðfarir manns-
ins féll konan aftur fyrir sig og
lenti með hnakkann í götunni.
Hlaut konan höfuðáverka við
höggið og var flutt til Reykjavík-
ur þar sem hún var lögð inn á
sjúkrahús. Hún mun ekki vera
alvarlega slösuð.
Funda með Wade
Fulltrúum forsætisráðuneytis-
ins og viðskiptaráðuneytisins
hefur hugsanlega fundist mikið
til ræðu hagfræðiprófessorsins
Roberts Wade á borgarafundi í
Háskólabíói á mánudagskvöldið
koma. Í það minnsta munu full-
trúar ráðuneytanna hitta Wade í
dag. Wade hefur skrifað margar
greinar um ástandið í efnahags-
málum hér á landi. Í máli sínu á
mánudagskvöldið í Háskólabíói
sagði Wade meðal annars að
eitt fyrsta verk ríkis-
stjórnarinnar ætti
að vera að reka
Davíð Oddsson
seðlabanka-
stjóra. Næsta
væri að gera
hann að
sendiherra
langt,
langt í
burtu.
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þriggja barna föður:
Hnífakastari dreginn fyrir dóm
Ákæra hefur verið gefin
út, vegna meintra brota á
hegningar- og barnavernd-
arlögum, á hendur föður
þriggja barna sem grunað-
ur er um að hafa beitt þau
hrottalegu ofbeldi. �eðal
annars er talið að maður-
inn hafi notað elsta barn
sitt sem skotskífu í hnífa-
kasti á heimili sínu þar sem
hann bjó með börnunum
þremur.
DV hefur fengið þetta
staðfest hjá ríkissaksókn-
ara en fjölskylda barnanna
hafði ekki heyrt af þeirri
ætlun fyrr en blaðamað-
ur hafði samband og sagði
þeim fréttirnar í gær.
„Þetta eru góðar fréttir,“ segir ætt-
ingi barnanna í samtali við DV en
hann var í óðaönn að undirbúa af-
mælisveislu fyrir eitt barnið þegar
blaðamaður hafði samband. „Ég var
síðast að velta því fyr-
ir mér um helgina hve-
nær eitthvað færi að
gerast í þessu máli,“
segir hann ánægður
með að ákæra hafi loks
verið gefin út.
Ríkissaksóknari
hefur vísað málinu til
lögreglustjórans á höf-
uðborgarsvæðinu en
ákærudeild embættis-
ins fer með sókn máls-
ins fyrir héraðsdómi.
Ekki fengust nein-
ar frekari upplýsing-
ar um ákærurnar hjá
ríkissaksóknara en tal-
ið er að þinghald verði
lokað.
Börnin hafa búið hjá afa sínum og
ömmu síðan í febrúar í fyrra en eft-
ir að grunur um ofbeldið kom upp
voru þau tekin af föður sínum. Nokk-
uð er síðan hann sleit samvistum við
móður barnanna sem hefur verið í
mikilli óreglu.
Ríkissaksóknari hefur tilkynnt
réttargæslumanni barnanna og lög-
manni þeirra um útgáfu ákærunnar
en þeir aðilar höfðu ekki haft sam-
band við fjölskylduna þegar DV náði
tali af fjölskyldumeðlim í gær. Verj-
anda ákærða hefur sömuleiðis verið
tilkynnt um ákæruna en hann svaraði
ekki fyrirspurn DV í gær. Blaðamaður
náði heldur ekki tali af ákærða og því
ekki vitað hvort búið er að birta hon-
um ákæruna.
Í samtali við DV í september sagði
ákærði að ekkert væri hæft í þeim
ásökunum sem haldið væri fram á
hendur honum.
erla@dv.is
þriðjudagur 23. september 2008
4
FréttirInnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Wathne
fyrir dóm
Réttarhöld í máli Gunnars Stef-áns Wathne munu halda áfram í Kaliforníu á fimmtudaginn. Áætl-að er að verjendur Gunnars Stef-áns muni flytja mál sitt í dómsal á fimmtudaginn. Gunnar Stefán á yfir höfði sér langa fangelsisvist verði hann fundinn sekur um pen-ingaþvætti upp á hundruð millj-óna króna, sem hann er ákærður fyrir. Gunnar Stefán neitar allri sök í málinu. Samkvæmt heimild-um DV mun málsvörn verjenda Gunnars Stefáns að nokkru leyti snúast um að fyrrverandi skólafé-lagi hans í Harvard hafi komið á hann sök í málinu.
Leiðrétting
Vegna mistaka birtist röng mynd á Fókussíðu DV í gær þar sem átti að vera mynd úr dönsku kvikmyndinni Hræði-leg hamingja. Hlutaðeig-
andi eru beðnir velvirðingar á þessu myndabrengli. Rétt mynd er hér að ofan.
Leiðrétting
Í nærmynd af Björgólfi Guðmundssyni í helgar-
blaði DV sagði á einum stað að hann hefði litið við í KR-heimilinu eftir að hann hafði afplánað fangavist sína. Hið rétta er að þetta gerðist þegar hann var laus úr margra mán-aða gæsluvarðhaldi sem hann var hnepptur í á meðan á rannsókn málsins stóð. Hann þurfti ekki að afplána fang-elsisdóm eftir að endanlegur dómur var kveðinn upp.
Yfirvofandi uppreisn í MÍ?Mikil óánægja hefur ríkt með störf skólastjóra Menntaskólans á Ísafirði á meðal nemenda Menntaskólans und-anfarið. Busavígslan árið 2007 fór eitt-hvað fyrir brjóstið á Jóni Reyni Sigur-vinssyni skólastjóra og ákvað hann því að taka fyrir áralangar hefðir og banna busun í því formi sem hún hefur ver-ið í undanfarna áratugi. Það sem fyllti mælinn var svo þegar Jón Reynir bann-aði óvissuferð einungis tveimur dög-um fyrir brottför en hann hafði vitað af undirbúningi ferðarinnar í meira en viku.
Nokkrir nemendur tóku sig saman í kjölfarið og stofnuðu Facebook-síðu þar sem því er lýst yfir að Jón Reynir skólastjóri eigi að segja af sér. Sumir nemendanna hafa einnig talað um að fara í verkfall og hætta að mæta í skól-
ann þar til Jón Reynir sýni meiri vilja til samvinnu við nemendur.
DV ræddi við frammámann í nem-endafélagi skólans sem sagði marga nemendur vera mjög óánægða. Hann tekur fram að óánægjan snúist einna helst um vinnubrögð Jóns Reynis sem hafi tekið fyrir óvissuferðina með allt of stuttum fyrirvara. Brynjólfur Óli Árnason, formaður nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði, segir lausn í sjónmáli og að verið sé að skipuleggja aðra ferð með breyttu sniði, sem farið verður í síðar. Hann segir margt gott vera að gerast í Menntaskólanum og segir ólíklegt að þessi mál muni leiða til verkfalls nemenda.
„Busavígslunni var breytt í haust úr því að vera ofbeldisfullar innvígsluat-hafnir eins og hafði tíðkast í áratugi og
fór versnandi með ári hverju og í það að vera hófstillt athöfn þar sem nýnemar eru boðnir velkomnir í skólann með já-kvæðum hætti,“ segir Jón Reynir við DV. Hann segist ekki skilja fólk sem verð-ur reitt fái það ekki að beita aðra and-lega eða líkamlegu ofbeldi, en þannig
hafi busavígslurnar verið orðnar. Varð-andi gagnrýni þess efnis að hann hafi látið vita of seint að ekki gæti orðið af óvissuferðinni segir hann: „Eftir á að hyggja hefði ég átt að tilkynna fyrir ári að óvissuferðir nemenda í nafni skól-ans yrðu ekki farnar aftur.“
Óánægja margir nemendur í menntaskólanum á Ísafirði eru ekki sáttir við störf skólastjórans og hafa nemendur stofnað Facebook-síðu til að lýsa óánægju sinni.
10-11 löggan
neitar sök
Lögreglumaðurinn sem ákærður er fyrir að hafa tekið ungan dreng kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ í maí, neitar sök í málinu. Ákæra gegn lögreglu-manninum var þingfest í Héraðs-dómi Reykjavíkur í gær. Atvikið sem lögreglumaðurinn er ákærð-ur fyrir náðist á myndband og var hlaðið inn á YouTube-vefsvæð-ið. Hann var leystur frá störf-um tímabundið en kom aftur til starfa hjá lögreglunni í sumar.
Líkfundur
í Fossvogi
Lögreglan á höfuðborgar-svæðinu rannsakar nú andlát manns sem fannst í fjörunni í Fossvogi í fyrradag. Gangandi vegfarendur fundu líkið um klukkan tíu um morguninn. Talið er að maðurinn hafi látist um nóttina eða fyrr um morg-uninn. Friðrik Smári Björg-vinsson, yfirmaður rannsókn-ardeildar lögreglunnar, segir að ekki leiki grunur á að neitt saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við lát mannsins. Því er talið líklegt að hann hafi lát-ist af slysförum en það fæst þó ekki staðfest fyrr en niðurstöð-ur krufningar liggja fyrir.
„Þetta er svo mikil hörmung og hryllingssaga að það hefur eng-inn gott af því að lesa hana,“ seg-ir viðmælandi DV sem þekkir vel til mannsins sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrotta-legu ofbeldi. Mikill uggur er með-al barna í hverfi mannsins og segja nágrannar börn sín lengi hafa tal-ið hann ógnvekjandi án þess þó að hann hafi nokkurn tímann gert þeim neitt. Fregnir af þeirri lög-reglurannsókn sem nú stendur yfir hafa hins vegar gefið óttanum byr undir báða vængi.
Þegar viðmælandi blaðsins er spurður hvort hann telji manninn hafa gert börnum sínum það sem hann er sakaður um, er svarið: „Ég trúi öllu upp á hann.“
Heillaður af heimsstyrjöldinniMaðurinn hefur lengi haldið úti bloggsíðu þar sem hann segir frá áhugamálum sínum. Sagnfræði ber þar hæst og einna helst allt sem tengist seinni heimsstyrjöldinni. Adolf Hitler er að hans mati ekki sá sem ber höfuðábyrgð á þeirri styrj-öld heldur var hún óhjákvæmileg afleiðing hatrammra deilna á milli Frakka og Þjóðverja. Prescott Bush, afi núverandi Bandaríkjaforseta, bar þarna öllu meiri ábyrgð enda hafi hann komið Hitler til valda með gífurlegum fjármunum sín-um.
Morðið á John F. Kennedy er manninum einnig hugleikið og er hann sannfærður um að frammá-menn í bandarískum fjármála-heimi á þeim tíma hafi staðið á bak við ódæðið. Ástæðuna megi rekja til þess að Kennedy ætlaði að af-nema einkaleyfi seðlabankans á prentun dollaraseðla.
Síðan er hann sannfærður um að múslimar hafi ekki staðið á bak við árásina á Tvíburaturnana þann 11. september 2001 heldur sjálfur forsetinn, George W. Bush.
Algjör fjarstæða
Börn mannsins hafa undanfarin ár búið hjá honum einum eftir að slitnaði upp úr sambandi hans við móður þeirra sem er langt leiddur fíkniefnaneytandi. Frá því að lög-reglan hóf að rannsaka meint of-beldi á hendur börnunum hafa þau dvalist hjá ömmu sinni og afa. Í samtali við DV í fyrradag sagði maðurinn ásakanir um ofbeldi á heimilinu vera komnar frá móður-fjölskyldunni. Samkvæmt traustum heimildum blaðsins er það hins vegar fjarstæða og leið mannsins til að draga athyglina frá sér sjálfum. Eftir því sem blaðamaður kemst næst var eitt barnanna vissulega með áverka eftir eggvopn og leik-
ur grunur á að maðurinn hafi veitt barninu þá. Sárin eru nú að mestu gróin. Lögreglan hefur hins vegar ekki viljað staðfesta þetta.
Við vinnslu fréttarinnar náðist ekki tal af þeim grunaða.
ErlA HlynsdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
George W. Bush
„Ég trúi öllu
upp á hann“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ársins
Ásdís RÁn vaR þRemuR
tímum fRÁ dauðanum
mánudagur 22. september 2008 dagblaðið vísir 174. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
sakaður um að nota barnið sitt sem skotskífu:
„fjölskyldan mín er vön að fá fregnir af mér í lífsháska“
Kennir ættingjum barnsmóður
sinnar um ásakanir um ofbeldi
Bókstafstrúarmaður sem
vitnar gjarnan í Biblíuna
vildi láta fangelsa barnsmóðurina
fRéttiR „eg er
tekinn
af lifi“
séRa GunnaR laGði út af helGi
hjónaBandsins „hann gerði þetta ljómandi vel,“ segir brúðguminn
fRéttiR
aftuRviRK
hæKKun
BaRa fyRiR útvalda
fRéttiR
gagn-
rýnir
samning
við ljós-
mæður
maKasKipti
haGstæðust
BENjamíN þór vill Bætur út af kompásþætti:
seGist hafa
veRið GinntuR
út í ofBeldi
spoRt
neytenduR
fhÁ
ennþÁ
séns
fRéttiR
„Þetta er svo mikil hörmung og hryllingssaga að það hefur eng-inn gott af því að lesa hana.“
Áhugamaður um sagnfræði maðurinn sem grunaður er um alvarlegt ofbeldi gegn þremur börnum sínum hefur sérstakan áhuga á seinni heimsstyrjöldinni.
22. septemb r 2008
F r j á l s t , ó h á
ð d a g b l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaða
mennska ársins
Ásdís RÁn vaR þRemuR
tímum fRÁ dauðanum
mánudagur 22. septembe
r 2008 dagblaðið vísir 17
4. tbl. – 98. árg. – verð kr
. 295
sakaður um að nota barnið sitt se
m skotskífu:
„fjölskyldan mín er vön að fá
fregnir af mér í lífsháska“
Kennir ættingjum barnsmóðu
r
sinnar um ásakanir um ofbeld
i
Bókstafstrúarmaður sem
vitnar gjarnan í Biblíuna
vildi láta fangelsa barnsmóðu
rina
fRéttiR „eg er
tekinn
af lifi“
séRa GunnaR laGði út af h
elGi
hjónaBandsins
„hann gerði þetta ljómandi
vel,“ segir brúðguminn
fRéttiR
aftuRviRK
hæKKun
BaRa fyRiR útvalda
fRéttiR
gagn-
rýnir
samning
við ljós-
mæður
maKasKipti
haGstæðust
BENjamíN þór vill Bætur ú
t af kompásþætti:
seGist hafa
veRið GinntuR
út í ofBeldi
spoRt
neytenduR
fhÁ
ennþÁ
séns
fRéttiR 22. september 2008.
23. september 2008.
„Ég er veiðimaður. Ég held að það sé
góður eiginleiki í rannsóknarhlut-
verkinu,“ segir Ólafur Þór Hauksson,
sýslumaður á Akranesi. Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra skipaði Ólaf
í gær til að gegna embætti sérstaks
saksóknara vegna rannsóknar á
bankahruninu. Í frítíma sínum legg-
ur Ólafur helst stund á veiðar. „Ég
veiði á stöng og upp á síðkastið hef
ég prófað að stunda skytterí. Síðan
hef ég gaman af fluguhnýtingum og
útfæri stangveiðidelluna með því að
hnýta flugur á veturna,“ segir hann.
Hvergi banginn
Ólafur er fæddur árið 1969 og er upp-
alinn í austurbæ Reykjavíkur. Hann
kláraði lögfræðipróf 1989 og hefur
síðan starfað innan sýslumannsgeir-
ans. Ólafur var fulltrúi sýslumanns
í sjö ár og hefur nú verið sýslumað-
ur í á þrettánda ár. Í upphafi starfaði
hann á höfuðborgarsvæðinu, fluttist
síðan til Hólmavíkur og loks til Akra-
ness þar sem hann býr nú ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Sigurður Líndal lagaprófessor er
meðal þeirra sem hafa talað um að
embætti sérstaks saksóknara sé ekki
vænlegt til vinsælda og að sá sem
embættinu sinnir eigi væntanlega
eftir að sæta gagnrýni hvernig sem
hann stendur sig í starfi. Ólafur er þó
hvergi banginn. „Þetta er starf ákær-
anda í hnotskurn. Ákærandi sem fell-
ir niður mikið af málum og sækir þau
ekki af krafti er sakaður um að draga
taum brotamanna en ef hann beitir
sér um of er hann sagður kaldrifjað-
ur. Það sem skiptir máli fyrir mann
í þessari stöðu er að vera sjálfum
sér samkvæmur og láta eitt yfir alla
ganga,“ segir hann.
Litlaus í pólitík
Ólafur segist aldrei hafa verið virkur í
stjórnmálum svo heitið geti. „Ég held
að pólitískt séð sé ég ansi litlaus. Ég
hef ekki verið flokksbundinn og er
ekki skráður í neinn stjórnmálaflokk
eftir því sem ég best veit,“ segir hann
og telur að stjórnmálaþátttaka fari
illa saman við starf sýslumanns sem
hann hefur sinnt í þrettán ár.
Í auglýsingu um starf sérstaks sak-
sóknara er honum gert að birta opin-
berlega upplýsingar um hlutabréfa-
eign sína í fjármálafyrirtækjum, sem
og starfstengsl hans, maka og náinna
skyldmenna. Upplýsingar miðast við
síðastliðin fimm ár og fjárhæðir yfir
fimm milljónum króna.
Spurður um hlutabréfaeign sína
segir Ólafur: „Hún er bara eitt stórt
núll. Nei, ég á nú einhverjar tvö eða
þrjú hundruð krónur í bréfum sem
ég fékk gefins varnarlaus við skírn. Ég
held að þau séu í Eimskip. En ég hef
ekki fjárfest í hlutabréfum eða setið
í stjórnun fjármálastofnana eða fyr-
irtækja tengdum þeim,“ segir Ólafur
og tekur fram að hið sama eigi við um
maka og skyldmenni.
Sótti um embætti
ríkissaksóknara
Upplýsingaskortur til almennings í
kjölfar bankahrunsins hefur
verið harðlega gagn-
rýndur en Ólafur seg-
ist leggja mikið upp
úr samskiptum við
fjölmiðla. „Reynsla okkar sem höfum
starfað við opinber mál er sú að þeg-
ar slík staða kemur upp reyna fjöl-
miðlar að fylla upp í eyðurn-
ar með því sem þeir telja
réttast og þá er hætta á
að í loftið fari misskiln-
ingur. Það er bæði
slæmt fyrir fjölmið-
ilinn og þann sem
þarf að vinda ofan
af rangfærslum,“
segir hann.
Þegar embætti
sérstaks saksókn-
ara var fyrst aug-
lýst til umsóknar
sótti enginn um.
Eftir hvatningu
ákvað Ólafur þó
að slá til. „Ég sótti
um embætti rík-
issaksóknara þeg-
ar það var auglýst
þannig að ég hef
alveg viljað taka
að mér breið verk-
efni og gefið það
til kynna með þeim
hætti,“ segir hann.
Ólafur tekur við
embættinu 1. febrú-
ar og fer þá í tíma-
bundið leyfi
frá störfum sínum sem sýslumaður.
Hann segir þó erfitt að segja til um
hversu langur tími fari í verkefnið.
„Það má segja að verið sé að byrja frá
grunni,“ segir Ólafur sem vonast til
þess að stuðningur verði við starfið
þar sem kallað hefur verið eftir ítar-
legri rannsókn á bankahruninu.
Ólafur Þór Hauksson hefur verið skipaður sérstakur saksóknari til að rannsaka
tildrög bankahrunsins. Ólafur hefur starfað sem sýslumaður í þrettán ár og sótti
áður um embætti ríkissaksóknara. Hann er óhræddur við þær áskoranir sem felast
í starfinu og leggur áherslu á gott samstarf við fjölmiðla.
„ÉG ER VEIÐIMAÐUR“
„Það sem skiptir máli fyrir mann í þessari stöðu
er að vera sjálfum sér samkvæmur og láta eitt yfir
alla ganga.“
ErLa HLynSdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Miklar væntingar
Frá bankahruninu hefur fjöldi fólks
safnast saman á austurvelli og
krafist þess að þeir sem eru ábyrgir
axli ábyrgð sína. Miklar væntingar
eru því í garð Ólafs Þórs Haukssonar.
Mynd: rakEL ÓSk
Hlutabréf í skírnargjöf
Ólafur Þór Hauksson segist ekki eiga
hlutabréf ef frá eru taldar nokkur
hundruð krónur í bréfum í Eimskip
sem hann fékk gefins við skírn.