Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 14. janúar 200912 Fréttir Ungar víkja fyrir eldri Brasilía er að vaxa úr grasi. Æska og fegurð hafa löngum verið þær tvær stoðir sem alþýðumenning þar í landi hefur hvílt á. En nú kveður við nýjan tón og lýðnum er að verða ljóst að konur á vissum aldri geta borið af í fegurð. Nú vinna lands- menn hörðum höndum að því að undirbúa kjötkveðjuhátíðina í næsta mánuði og hafa tveir frægustu sambaskólar Ríó vakið verðskuld- aða athygli. Í stað þess að velja ungar blómarósir í hlutverk sinna drottn- inga á komandi kjötkveðjuhátíð hafa konur á fimmtugsaldri hreppt hnossið. Hlutverk drottninga hefur hingað til verið frátekið fyrir konur af yngri kynslóðinni. Fólk í Þýskalandi rak upp stór augu þegar það las fyrirsagnir dagblaða sem seld voru hjá blaðasölum í gær og fyrradag, reyndar voru fyr- irsagnirnar úreltar og hafa senni- lega vakið upp misjöfn viðbrögð almennings. „Hitler kanslari Ríkisins“ var forsíðufrétt Der Angriff og ef les- endur velktust í vafa um mikilvægi fréttarinnar gátu þeir lesið frekar uppskrúfaða fréttaskýringu eftir Jósef Göbbels. Eftirprentun á dagblöðum nas- istatímans í Þýskalandi er hug- mynd bresks útgefanda og verða blöðin til sölu um gervallt Þýska- land. Vikuskammtur kostar tæp- ar fjórar evrur og til að byrja með verður upplagið þrjú hundruð þúsund eintök. Samkvæmt upp- lýsingum frá söluturnum í Berlín hefur salan verið góð. Áhrif kreppunnar Í seinni tíð hefur orðið vart auk- ins áhuga á bæklingum þjóðernis- sósíalista í Þýskalandi. Daglegar vangaveltur um að kreppan mikla sé komin aftur hefur kveikt áhuga á fjórða áratug síðustu aldar og ein- læga forvitni á ástæðum þess að eldri kynslóðir gleyptu við áróðri nasista. „Frá og með deginum í dag færðu einstakt tækifæri til að kom- ast að hvaða upplýsingar voru að- gengilegar foreldrum þínum og foreldrum þeirra,“ sagði Sandra Paweronschitz, sagnfræðingur og ritstjóri útgáfunnar. Útgefandinn, Peter McGee, er ekki alls ókunnugur verkefni af þess- um toga, því hann ýtti úr vör með svipað verkefni í Austurríki með góð- um árangri. Að hans mati er útgáfan, Zeitungszeugen, umræðuvettvangur fyrir Þjóðverja. „Þetta ætti að lesast af fólki sem myndi aldrei lesa bók um samtímasögu, en kann eigi að síður að meta greiningu upplýsinganna,“ sagði McGee. Brotin bönn Útgáfufyrirtæki Peters McGee, Al- bertas sem staðsett er í Lundúnum, nýtur aðstoðar og ráðgjafar leiðandi þýskra sagnfræðinga og sérfræðinga í sögu Þriðja ríkisins. Þeirra á meðal er Wolfgang Benz, yfirmaður mið- stöðvar fyrir rannsóknir á gyðinga- andúð í Berlín. Miðstöðin er hluti tíu aðila ráðgjafarnefndar sem sett var á laggirnar til að koma í veg fyrir grun- semdir um að endurprentun dag- blaða nasistatímans sé runnin und- an rifjum hægri öfgaafla. Við fyrstu sýn má telja að endur- prentunin höfði til þýsku þjóðarinn- ar vegna þess að með henni eru brot- in bönn sem hafa verið í gildi í yfir sextíu ár. Í hillum bókaverslana í landinu eru bækur sem skarta hakakrossin- um ekki vel séðar og fjarlægðar úr hillunum, og kveðja að sið nasista er með öllu bönnuð. Peter McGee hef- ur fengið sérstaka undanþágu til að endurútgefa áróður nasista ásamt meðfylgjandi táknum sökum sögu- legs gildis efnisins. Róðurinn mun þyngjast Ljóst er að útgáfan mun mælast misjafnlega vel fyrir og útgáfan sem blasti við þýskum almenningi í fyrradag, var frá 30. janúar 1933, þegar Adolf Hitler komst til valda. Þrjú dagblöð eru endurútgefin; Der Angriff (Árásin), dagblað nasista stofnað af Jósef Göbbels, Deutsche Allgemeine Zeitung, þjóðernis- sinnað íhaldsblað, og Der Kämpfer (Baráttumaðurinn), aðalmálgagn þýska kommúnistaflokksins. Með hverju blaði er fylgirit þar sem er að finna umsögn og greiningu frá áður- nefndri ráðgjafarnefnd. Með þessum hætti hefur útgáfu- fyrirtækið reynt að bægja frá sér mögulegri gagnrýni um að ætlunin sé að fylla nýjar kynslóðir nasista- áróðri. Það kann að vera að útgef- andi hafi erindi sem erfiði fyrst um sinn, en róðurinn mun þyngjast þegar fram í sækir. Ætlunin er að endurprenta að fullu 150 dagblöð allt til ársins 1945. Þegar nær dregur 1945 verður erf- itt að gæta innbyrðis jafnvægis því nasistar ritskoðuðu grimmt allt rit- að og talað orð og lokuðu dagblöð- um andstöðunnar og andgyðingleg napuryrði og gyðingahatur draup af síðum dagblaða á borð við Der Stürmer. Slæm tímasetning Ralph Giordano, rithöfundur og einn þeirra sem átti því láni að fagna að lifa af helförina, sagði við blaðamann BBC að hann hefði efa- semdir um áhrif þessarar útgáfu. „Það sem ég get sagt er að Hitler, og allt það sem hann stendur fyrir, kann að hafa verið sigrað á vígvell- inum, en ekki vitsmunalega,“ sagði hann. Háttsettur, ónafngreindur ein- staklingur innan samfélags gyðinga í Berlín var einnig bölsýnn vegna góðrar sölu á dagblöðum nasista. „Við erum öll eilítið taugaveikluð. Ástandið á Gaza veldur því að þús- undir streyma út á göturnar, hróp- andi slagorð gegn Ísrael – þetta er ekki góður tími til að auglýsa Jósef Göbbels,“ sagði hann. Kínversku konunni Wang Guiying, sem er eitt hundrað og sjö ára, hefur loks tekist að safna kjarki til að gera það sem hún hefur óttast mestalla sína ævi. Guiying sem hefur alla tíð verið hrædd við að ganga í það heilaga ákvað á dögunum að fara að skima eftir vænlegu mannsefni og vonast til að finna einhvern á tíræðisaldri svo þau hjónakornin hafi eitthvað um að tala í ellinni. Um þetta skrifar kín- verska dagblaðið Chongqing Comm- ercial Times. En það kemur fleira til því Wang Guiying hefur af því áhyggjur að hún sé orðin helst til mikil byrði á frænk- um sínum og frændum, enda yngj- ast þau ekki, því hún varð fyrir því óhappi þegar hún var eitt hundrað og tveggja ára að fótbrotna. Síðan þá hefur hún ekki getað sinnt húsverk- um sem skyldi, til dæmis að þvo fatn- aðinn sinn. „Ég er nú þegar eitt hundrað og sjö ára og hef aldrei gifst,“ hafði Chongqing Commercial Times eftir henni. „Hvað mun verða ef ég haska mér ekki og finn mér eiginmann?“ Það er ekki að ástæðulausu að Wang hefur ekki gifst. Hún er dótt- ir saltkaupmanns og ólst upp í Guiz- hou-héraði. Á uppvaxtarárum sínum horfði hún upp á frændur sína og aðra karlmenn atyrða og lemja eiginkonur sínar og kom iðulega að frænku sinni þar sem hún grét sáran í eldiviðar- geymslunni vegna barsmíðanna. „Allt gift fólk lifði þannig á þeim slóðum. Að giftast var ógnvekjandi,“ sagði Wang um þann tíma þegar kín- verskar konur nutu lítilla réttinda og voru ekki hátt skrifaðar í samfélaginu. Eftir að foreldrar og eldri systir hennar létust forðaðist hún hjóna- band eins og heitan eldinn. Hún flutti út í sveit og dró fram lífið sem bóndi þar til hún varð 74 ára og skorti afl til að vinna á ökrunum. Frændi hennar sem búsettur er í Chongqing tók hana að sér, en nú er svo komið að breytinga er þörf að hennar mati. Embættismenn í borg- inni eru allir af vilja gerðir til að að- stoða hana í leit að aldargömlum eiginmanni og telja að leit á elliheim- ilum gefi besta raun. Það er aldrei of seint fyrir ást og hjónaband: 107 ára leitar eiginmanns Unnið á ökrunum Wang guiying kaus vinnu á ökrunum fram yfir hjónaband. KolBeinn þoRSteinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Nýtt dagblað, gömUl frétt Við fyrstu sýn má telja að endurprent- unin höfði til þýsku þjóðarinnar vegna þess að með henni eru brotin bönn sem hafa verið í gildi í yfir sextíu ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.