Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 4
Miðvikudagur 14. janúar 20094 Fréttir ritstjorn@dv.is Innlendar FréttIr Brutu eftirlits- myndavélar Tveir úr hópi mótmælenda sem tók sér stöðu fyrir framan inn- gang Alþingishússins í gær- morgun voru handteknir fyrir skemmdarverk. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu voru tveir handteknir fyrir að brjóta niður eftirlitsmyndavélar við Alþing- ishúsið. �ótmælendur reyndu að varna ráðherrum inngöngu í húsið í morgun. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra komust ekki inn nema með lögregluaðstoð. Réttindalausir undir stýri Níu réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi lög- reglunnar á höfuðborgarsvæð- inu um helgina. Fimm þeirra reyndust hafa verið sviptir öku- leyfi og fjórir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Á sama tímabili voru fimmtíu um- ferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en þrjú þeirra má rekja til aksturs undir áhrif- um áfengis eða fíkniefna. Flest óhöppin voru minniháttar en í fáeinum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Í sjö tilfellum stungu öku- menn af frá vettvangi. Skellti konu í götuna Ein líkamsárás var kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyj- um í vikunni sem leið þar sem karlmaður hafði lagt hendur á konu fyrir utan veitingastaðinn Lundann að morgni 10. janúar síðastliðins. Við aðfarir manns- ins féll konan aftur fyrir sig og lenti með hnakkann í götunni. Hlaut konan höfuðáverka við höggið og var flutt til Reykjavík- ur þar sem hún var lögð inn á sjúkrahús. Hún mun ekki vera alvarlega slösuð. Funda með Wade Fulltrúum forsætisráðuneytis- ins og viðskiptaráðuneytisins hefur hugsanlega fundist mikið til ræðu hagfræðiprófessorsins Roberts Wade á borgarafundi í Háskólabíói á mánudagskvöldið koma. Í það minnsta munu full- trúar ráðuneytanna hitta Wade í dag. Wade hefur skrifað margar greinar um ástandið í efnahags- málum hér á landi. Í máli sínu á mánudagskvöldið í Háskólabíói sagði Wade meðal annars að eitt fyrsta verk ríkis- stjórnarinnar ætti að vera að reka Davíð Oddsson seðlabanka- stjóra. Næsta væri að gera hann að sendiherra langt, langt í burtu. Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þriggja barna föður: Hnífakastari dreginn fyrir dóm Ákæra hefur verið gefin út, vegna meintra brota á hegningar- og barnavernd- arlögum, á hendur föður þriggja barna sem grunað- ur er um að hafa beitt þau hrottalegu ofbeldi. �eðal annars er talið að maður- inn hafi notað elsta barn sitt sem skotskífu í hnífa- kasti á heimili sínu þar sem hann bjó með börnunum þremur. DV hefur fengið þetta staðfest hjá ríkissaksókn- ara en fjölskylda barnanna hafði ekki heyrt af þeirri ætlun fyrr en blaðamað- ur hafði samband og sagði þeim fréttirnar í gær. „Þetta eru góðar fréttir,“ segir ætt- ingi barnanna í samtali við DV en hann var í óðaönn að undirbúa af- mælisveislu fyrir eitt barnið þegar blaðamaður hafði samband. „Ég var síðast að velta því fyr- ir mér um helgina hve- nær eitthvað færi að gerast í þessu máli,“ segir hann ánægður með að ákæra hafi loks verið gefin út. Ríkissaksóknari hefur vísað málinu til lögreglustjórans á höf- uðborgarsvæðinu en ákærudeild embættis- ins fer með sókn máls- ins fyrir héraðsdómi. Ekki fengust nein- ar frekari upplýsing- ar um ákærurnar hjá ríkissaksóknara en tal- ið er að þinghald verði lokað. Börnin hafa búið hjá afa sínum og ömmu síðan í febrúar í fyrra en eft- ir að grunur um ofbeldið kom upp voru þau tekin af föður sínum. Nokk- uð er síðan hann sleit samvistum við móður barnanna sem hefur verið í mikilli óreglu. Ríkissaksóknari hefur tilkynnt réttargæslumanni barnanna og lög- manni þeirra um útgáfu ákærunnar en þeir aðilar höfðu ekki haft sam- band við fjölskylduna þegar DV náði tali af fjölskyldumeðlim í gær. Verj- anda ákærða hefur sömuleiðis verið tilkynnt um ákæruna en hann svaraði ekki fyrirspurn DV í gær. Blaðamaður náði heldur ekki tali af ákærða og því ekki vitað hvort búið er að birta hon- um ákæruna. Í samtali við DV í september sagði ákærði að ekkert væri hæft í þeim ásökunum sem haldið væri fram á hendur honum. erla@dv.is þriðjudagur 23. september 2008 4 FréttirInnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Wathne fyrir dóm Réttarhöld í máli Gunnars Stef-áns Wathne munu halda áfram í Kaliforníu á fimmtudaginn. Áætl-að er að verjendur Gunnars Stef-áns muni flytja mál sitt í dómsal á fimmtudaginn. Gunnar Stefán á yfir höfði sér langa fangelsisvist verði hann fundinn sekur um pen-ingaþvætti upp á hundruð millj-óna króna, sem hann er ákærður fyrir. Gunnar Stefán neitar allri sök í málinu. Samkvæmt heimild-um DV mun málsvörn verjenda Gunnars Stefáns að nokkru leyti snúast um að fyrrverandi skólafé-lagi hans í Harvard hafi komið á hann sök í málinu. Leiðrétting Vegna mistaka birtist röng mynd á Fókussíðu DV í gær þar sem átti að vera mynd úr dönsku kvikmyndinni Hræði-leg hamingja. Hlutaðeig- andi eru beðnir velvirðingar á þessu myndabrengli. Rétt mynd er hér að ofan. Leiðrétting Í nærmynd af Björgólfi Guðmundssyni í helgar- blaði DV sagði á einum stað að hann hefði litið við í KR-heimilinu eftir að hann hafði afplánað fangavist sína. Hið rétta er að þetta gerðist þegar hann var laus úr margra mán-aða gæsluvarðhaldi sem hann var hnepptur í á meðan á rannsókn málsins stóð. Hann þurfti ekki að afplána fang-elsisdóm eftir að endanlegur dómur var kveðinn upp. Yfirvofandi uppreisn í MÍ?Mikil óánægja hefur ríkt með störf skólastjóra Menntaskólans á Ísafirði á meðal nemenda Menntaskólans und-anfarið. Busavígslan árið 2007 fór eitt-hvað fyrir brjóstið á Jóni Reyni Sigur-vinssyni skólastjóra og ákvað hann því að taka fyrir áralangar hefðir og banna busun í því formi sem hún hefur ver-ið í undanfarna áratugi. Það sem fyllti mælinn var svo þegar Jón Reynir bann-aði óvissuferð einungis tveimur dög-um fyrir brottför en hann hafði vitað af undirbúningi ferðarinnar í meira en viku. Nokkrir nemendur tóku sig saman í kjölfarið og stofnuðu Facebook-síðu þar sem því er lýst yfir að Jón Reynir skólastjóri eigi að segja af sér. Sumir nemendanna hafa einnig talað um að fara í verkfall og hætta að mæta í skól- ann þar til Jón Reynir sýni meiri vilja til samvinnu við nemendur. DV ræddi við frammámann í nem-endafélagi skólans sem sagði marga nemendur vera mjög óánægða. Hann tekur fram að óánægjan snúist einna helst um vinnubrögð Jóns Reynis sem hafi tekið fyrir óvissuferðina með allt of stuttum fyrirvara. Brynjólfur Óli Árnason, formaður nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði, segir lausn í sjónmáli og að verið sé að skipuleggja aðra ferð með breyttu sniði, sem farið verður í síðar. Hann segir margt gott vera að gerast í Menntaskólanum og segir ólíklegt að þessi mál muni leiða til verkfalls nemenda. „Busavígslunni var breytt í haust úr því að vera ofbeldisfullar innvígsluat-hafnir eins og hafði tíðkast í áratugi og fór versnandi með ári hverju og í það að vera hófstillt athöfn þar sem nýnemar eru boðnir velkomnir í skólann með já-kvæðum hætti,“ segir Jón Reynir við DV. Hann segist ekki skilja fólk sem verð-ur reitt fái það ekki að beita aðra and-lega eða líkamlegu ofbeldi, en þannig hafi busavígslurnar verið orðnar. Varð-andi gagnrýni þess efnis að hann hafi látið vita of seint að ekki gæti orðið af óvissuferðinni segir hann: „Eftir á að hyggja hefði ég átt að tilkynna fyrir ári að óvissuferðir nemenda í nafni skól-ans yrðu ekki farnar aftur.“ Óánægja margir nemendur í menntaskólanum á Ísafirði eru ekki sáttir við störf skólastjórans og hafa nemendur stofnað Facebook-síðu til að lýsa óánægju sinni. 10-11 löggan neitar sök Lögreglumaðurinn sem ákærður er fyrir að hafa tekið ungan dreng kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ í maí, neitar sök í málinu. Ákæra gegn lögreglu-manninum var þingfest í Héraðs-dómi Reykjavíkur í gær. Atvikið sem lögreglumaðurinn er ákærð-ur fyrir náðist á myndband og var hlaðið inn á YouTube-vefsvæð-ið. Hann var leystur frá störf-um tímabundið en kom aftur til starfa hjá lögreglunni í sumar. Líkfundur í Fossvogi Lögreglan á höfuðborgar-svæðinu rannsakar nú andlát manns sem fannst í fjörunni í Fossvogi í fyrradag. Gangandi vegfarendur fundu líkið um klukkan tíu um morguninn. Talið er að maðurinn hafi látist um nóttina eða fyrr um morg-uninn. Friðrik Smári Björg-vinsson, yfirmaður rannsókn-ardeildar lögreglunnar, segir að ekki leiki grunur á að neitt saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við lát mannsins. Því er talið líklegt að hann hafi lát-ist af slysförum en það fæst þó ekki staðfest fyrr en niðurstöð-ur krufningar liggja fyrir. „Þetta er svo mikil hörmung og hryllingssaga að það hefur eng-inn gott af því að lesa hana,“ seg-ir viðmælandi DV sem þekkir vel til mannsins sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrotta-legu ofbeldi. Mikill uggur er með-al barna í hverfi mannsins og segja nágrannar börn sín lengi hafa tal-ið hann ógnvekjandi án þess þó að hann hafi nokkurn tímann gert þeim neitt. Fregnir af þeirri lög-reglurannsókn sem nú stendur yfir hafa hins vegar gefið óttanum byr undir báða vængi. Þegar viðmælandi blaðsins er spurður hvort hann telji manninn hafa gert börnum sínum það sem hann er sakaður um, er svarið: „Ég trúi öllu upp á hann.“ Heillaður af heimsstyrjöldinniMaðurinn hefur lengi haldið úti bloggsíðu þar sem hann segir frá áhugamálum sínum. Sagnfræði ber þar hæst og einna helst allt sem tengist seinni heimsstyrjöldinni. Adolf Hitler er að hans mati ekki sá sem ber höfuðábyrgð á þeirri styrj-öld heldur var hún óhjákvæmileg afleiðing hatrammra deilna á milli Frakka og Þjóðverja. Prescott Bush, afi núverandi Bandaríkjaforseta, bar þarna öllu meiri ábyrgð enda hafi hann komið Hitler til valda með gífurlegum fjármunum sín-um. Morðið á John F. Kennedy er manninum einnig hugleikið og er hann sannfærður um að frammá-menn í bandarískum fjármála-heimi á þeim tíma hafi staðið á bak við ódæðið. Ástæðuna megi rekja til þess að Kennedy ætlaði að af-nema einkaleyfi seðlabankans á prentun dollaraseðla. Síðan er hann sannfærður um að múslimar hafi ekki staðið á bak við árásina á Tvíburaturnana þann 11. september 2001 heldur sjálfur forsetinn, George W. Bush. Algjör fjarstæða Börn mannsins hafa undanfarin ár búið hjá honum einum eftir að slitnaði upp úr sambandi hans við móður þeirra sem er langt leiddur fíkniefnaneytandi. Frá því að lög-reglan hóf að rannsaka meint of-beldi á hendur börnunum hafa þau dvalist hjá ömmu sinni og afa. Í samtali við DV í fyrradag sagði maðurinn ásakanir um ofbeldi á heimilinu vera komnar frá móður-fjölskyldunni. Samkvæmt traustum heimildum blaðsins er það hins vegar fjarstæða og leið mannsins til að draga athyglina frá sér sjálfum. Eftir því sem blaðamaður kemst næst var eitt barnanna vissulega með áverka eftir eggvopn og leik- ur grunur á að maðurinn hafi veitt barninu þá. Sárin eru nú að mestu gróin. Lögreglan hefur hins vegar ekki viljað staðfesta þetta. Við vinnslu fréttarinnar náðist ekki tal af þeim grunaða. ErlA HlynsdÓttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is George W. Bush „Ég trúi öllu upp á hann“ F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ársins Ásdís RÁn vaR þRemuR tímum fRÁ dauðanum mánudagur 22. september 2008 dagblaðið vísir 174. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 sakaður um að nota barnið sitt sem skotskífu: „fjölskyldan mín er vön að fá fregnir af mér í lífsháska“ Kennir ættingjum barnsmóður sinnar um ásakanir um ofbeldi Bókstafstrúarmaður sem vitnar gjarnan í Biblíuna vildi láta fangelsa barnsmóðurina fRéttiR „eg er tekinn af lifi“ séRa GunnaR laGði út af helGi hjónaBandsins „hann gerði þetta ljómandi vel,“ segir brúðguminn fRéttiR aftuRviRK hæKKun BaRa fyRiR útvalda fRéttiR gagn- rýnir samning við ljós- mæður maKasKipti haGstæðust BENjamíN þór vill Bætur út af kompásþætti: seGist hafa veRið GinntuR út í ofBeldi spoRt neytenduR fhÁ ennþÁ séns fRéttiR „Þetta er svo mikil hörmung og hryllingssaga að það hefur eng-inn gott af því að lesa hana.“ Áhugamaður um sagnfræði maðurinn sem grunaður er um alvarlegt ofbeldi gegn þremur börnum sínum hefur sérstakan áhuga á seinni heimsstyrjöldinni. 22. septemb r 2008 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaða mennska ársins Ásdís RÁn vaR þRemuR tímum fRÁ dauðanum mánudagur 22. septembe r 2008 dagblaðið vísir 17 4. tbl. – 98. árg. – verð kr . 295 sakaður um að nota barnið sitt se m skotskífu: „fjölskyldan mín er vön að fá fregnir af mér í lífsháska“ Kennir ættingjum barnsmóðu r sinnar um ásakanir um ofbeld i Bókstafstrúarmaður sem vitnar gjarnan í Biblíuna vildi láta fangelsa barnsmóðu rina fRéttiR „eg er tekinn af lifi“ séRa GunnaR laGði út af h elGi hjónaBandsins „hann gerði þetta ljómandi vel,“ segir brúðguminn fRéttiR aftuRviRK hæKKun BaRa fyRiR útvalda fRéttiR gagn- rýnir samning við ljós- mæður maKasKipti haGstæðust BENjamíN þór vill Bætur ú t af kompásþætti: seGist hafa veRið GinntuR út í ofBeldi spoRt neytenduR fhÁ ennþÁ séns fRéttiR 22. september 2008. 23. september 2008. „Ég er veiðimaður. Ég held að það sé góður eiginleiki í rannsóknarhlut- verkinu,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi. Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra skipaði Ólaf í gær til að gegna embætti sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á bankahruninu. Í frítíma sínum legg- ur Ólafur helst stund á veiðar. „Ég veiði á stöng og upp á síðkastið hef ég prófað að stunda skytterí. Síðan hef ég gaman af fluguhnýtingum og útfæri stangveiðidelluna með því að hnýta flugur á veturna,“ segir hann. Hvergi banginn Ólafur er fæddur árið 1969 og er upp- alinn í austurbæ Reykjavíkur. Hann kláraði lögfræðipróf 1989 og hefur síðan starfað innan sýslumannsgeir- ans. Ólafur var fulltrúi sýslumanns í sjö ár og hefur nú verið sýslumað- ur í á þrettánda ár. Í upphafi starfaði hann á höfuðborgarsvæðinu, fluttist síðan til Hólmavíkur og loks til Akra- ness þar sem hann býr nú ásamt fjöl- skyldu sinni. Sigurður Líndal lagaprófessor er meðal þeirra sem hafa talað um að embætti sérstaks saksóknara sé ekki vænlegt til vinsælda og að sá sem embættinu sinnir eigi væntanlega eftir að sæta gagnrýni hvernig sem hann stendur sig í starfi. Ólafur er þó hvergi banginn. „Þetta er starf ákær- anda í hnotskurn. Ákærandi sem fell- ir niður mikið af málum og sækir þau ekki af krafti er sakaður um að draga taum brotamanna en ef hann beitir sér um of er hann sagður kaldrifjað- ur. Það sem skiptir máli fyrir mann í þessari stöðu er að vera sjálfum sér samkvæmur og láta eitt yfir alla ganga,“ segir hann. Litlaus í pólitík Ólafur segist aldrei hafa verið virkur í stjórnmálum svo heitið geti. „Ég held að pólitískt séð sé ég ansi litlaus. Ég hef ekki verið flokksbundinn og er ekki skráður í neinn stjórnmálaflokk eftir því sem ég best veit,“ segir hann og telur að stjórnmálaþátttaka fari illa saman við starf sýslumanns sem hann hefur sinnt í þrettán ár. Í auglýsingu um starf sérstaks sak- sóknara er honum gert að birta opin- berlega upplýsingar um hlutabréfa- eign sína í fjármálafyrirtækjum, sem og starfstengsl hans, maka og náinna skyldmenna. Upplýsingar miðast við síðastliðin fimm ár og fjárhæðir yfir fimm milljónum króna. Spurður um hlutabréfaeign sína segir Ólafur: „Hún er bara eitt stórt núll. Nei, ég á nú einhverjar tvö eða þrjú hundruð krónur í bréfum sem ég fékk gefins varnarlaus við skírn. Ég held að þau séu í Eimskip. En ég hef ekki fjárfest í hlutabréfum eða setið í stjórnun fjármálastofnana eða fyr- irtækja tengdum þeim,“ segir Ólafur og tekur fram að hið sama eigi við um maka og skyldmenni. Sótti um embætti ríkissaksóknara Upplýsingaskortur til almennings í kjölfar bankahrunsins hefur verið harðlega gagn- rýndur en Ólafur seg- ist leggja mikið upp úr samskiptum við fjölmiðla. „Reynsla okkar sem höfum starfað við opinber mál er sú að þeg- ar slík staða kemur upp reyna fjöl- miðlar að fylla upp í eyðurn- ar með því sem þeir telja réttast og þá er hætta á að í loftið fari misskiln- ingur. Það er bæði slæmt fyrir fjölmið- ilinn og þann sem þarf að vinda ofan af rangfærslum,“ segir hann. Þegar embætti sérstaks saksókn- ara var fyrst aug- lýst til umsóknar sótti enginn um. Eftir hvatningu ákvað Ólafur þó að slá til. „Ég sótti um embætti rík- issaksóknara þeg- ar það var auglýst þannig að ég hef alveg viljað taka að mér breið verk- efni og gefið það til kynna með þeim hætti,“ segir hann. Ólafur tekur við embættinu 1. febrú- ar og fer þá í tíma- bundið leyfi frá störfum sínum sem sýslumaður. Hann segir þó erfitt að segja til um hversu langur tími fari í verkefnið. „Það má segja að verið sé að byrja frá grunni,“ segir Ólafur sem vonast til þess að stuðningur verði við starfið þar sem kallað hefur verið eftir ítar- legri rannsókn á bankahruninu. Ólafur Þór Hauksson hefur verið skipaður sérstakur saksóknari til að rannsaka tildrög bankahrunsins. Ólafur hefur starfað sem sýslumaður í þrettán ár og sótti áður um embætti ríkissaksóknara. Hann er óhræddur við þær áskoranir sem felast í starfinu og leggur áherslu á gott samstarf við fjölmiðla. „ÉG ER VEIÐIMAÐUR“ „Það sem skiptir máli fyrir mann í þessari stöðu er að vera sjálfum sér samkvæmur og láta eitt yfir alla ganga.“ ErLa HLynSdÓttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Miklar væntingar Frá bankahruninu hefur fjöldi fólks safnast saman á austurvelli og krafist þess að þeir sem eru ábyrgir axli ábyrgð sína. Miklar væntingar eru því í garð Ólafs Þórs Haukssonar. Mynd: rakEL ÓSk Hlutabréf í skírnargjöf Ólafur Þór Hauksson segist ekki eiga hlutabréf ef frá eru taldar nokkur hundruð krónur í bréfum í Eimskip sem hann fékk gefins við skírn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.