Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 14. janúar 2009 9Fréttir
Bankarnir eiga Bíla fyrir milljarð
asta Lexus-bílinn af öllum ríkisbönk-
unum en sá er af gerðinni LS600H og
var keyptur í enda árs 2007. Lexus-
inn kostar ekki nema rúmar tuttugu
milljónir króna. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur Landsbankinn ekki
reynt að selja neinn þessara bíla. DV
sendi fyrirspurnir á alla bankana um
bílaeign þeirra og hverjir nytu bíla-
fríðinda bankans og er beðið eftir
svari frá Landsbankanum.
Landsbankinn á fimmtíu og einn
bíl en þar af eru nokkrir bílar merkt-
ir Landsbankanum og þar af leiðandi
notaðir alfarið í starfsemi bankans.
Audi í uppáhaldi
Kaupþingsmenn voru í góðærinu
hrifnir af dýrustu jeppunum frá Audi
en bankinn á til að mynda þrjá Audi
Q7 jeppa en stykkið kostar þrettán
milljónir úr kassanum. Fyrirspurn
um bílaflota Kaupþings var svar-
að seinnipartinn í gær en Þórður
Pálsson, talsmaður bankans, tjáði
blaðamanni að hjá Nýja Kaupþingi
yrðu engin bifreiðahlunnindi eftir 1.
febrúar.
„Bílarnir verða seldir. Þeir starfs-
menn sem hafa hætt og höfðu afnot
af bíl hjá gamla bankanum hafa allir
skilað þeim,“ segir Þórður.
Ef litið er á kaupverð tuttugu
dýrustu lúxusbíla Kaupþings má
reikna út að bankinn hefði auðveld-
lega getað sparað í kringum hundrað
og þrjátíu milljónir en því miður voru
ódýrir bílar ekki í tísku í góðærinu.
Kaupþing á flesta bíla, eða fimm-
tíu og sjö, en þó ber að geta að nokkr-
ir þeirra eru, eins og hjá hinum
bönkunum, notaðir beint í starfsemi
bankans eins og til dæmis Volkswag-
en-bílar sem notaðir eru í ýmsa flutn-
inga.
Þamba bensín
Flestar þessar glæsikerrur eru þekktar
fyrir allt annað en að vera sparneytn-
ar en sumar þeirra „þamba“ bensín
eins og einn fróður bílaáhugamað-
ur sagði við blaðamann DV. Tölurnar
sem birtar eru í umfjölluninni eru því
aðeins áætlað kaupverð bílanna en
ekki rekstrarkostnaðurinn. Sá kostn-
aður getur hlaupið á tugum milljóna
enda þarf að tryggja bílana. Lands-
bankinn hefur ekki svarað fyrirspurn
DV um framtíð bílanna en á meðan
borgar almenningur bensínið.
Dýrt ævintýri Bankarnir spöruðu
hvergi í góðærinu og nú sitja
ríkisbankarnir uppi með glæsikerrur
af ýmsum stærðum og gerðum.
Glitnir
n BMW M5
Árgerð 2008
508 hestöfl
Verð: 20+ milljónir
n BMW 7
Verð: 20+ milljónir stykkið
n Porsche Cayenne
Verð: 15+ milljónir
n BMW X5
Verð: 12+ milljónir stykkið
n BMW 5
Verð: 10+ milljónir stykkið
n Aðrar tegundir: audi a4 - Ford Explorer -
Toyota Land Cruiser 100
- Toyota Land Cruiser 120 - Lexus rX350 -
Land rover discovery 3
n BMW X3
Verð: 10+ milljónir stykkið
landsbankinn kaupþinG
n Toyota Land Cruiser 200VX
Árgerð: 2008
289 hestöfl
Verð: 13+ milljónir
n Audi Q7
Verð: 13+ milljónir stykkið
n BMW X5
Verð: 12+ milljónir stykkið
n Land Rover Discovery 3
Verð: 12+ milljónir stykkið
n Aðrar tegundir: Mercedes Benz g -
Mitsubishi Outlander - Toyota Land Cruiser 100 -
Mitsubishi Pajero - Ford Expedition - dodge
ram 2500 - Chevrolet Suburban
n Toyota Land Cruiser 120
Verð: 7+ milljónir stykkið
n Porsche Cayenne Turbo S
Árgerð 2006
522 hestöfl
Verð: 20+ milljónir
n Audi Q7
Verð: 13+ milljónir stykkið
n Toyota Land Cruiser 200
Verð: 13+ milljónir stykkið
n Audi Q7
Verð: 13+ milljónir stykkið
n Aðrar tegundir:
Mercedes Benz 313Cdi - Mercedes Benz S
- Ford Explorer Sport Trac - nissan Pathfinder
- Toyota rav4 - Land rover discovery 3
- Land rover range rover
n Toyota Land Cruiser 120
Verð: 7+ milljónir stykkið
n Lexus LS600H
Verð: 20+ milljónir
n Mercedes Benz ML
Verð: 13+ milljónir stykkið
n Porsche Cayenne Turbo
Verð: 10+ milljónir stykkið
n Range Rover Sport
Verð: 10+ milljónir
n Lexus RX400H
Verð: 9+ milljónir stykkið
n Mercedes Benz ML
Verð: 12+ milljónir stykkið
Flottustu bílar bankanna