Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 13
Miðvikudagur 14. janúar 2009 13Fréttir
Besta starf í heimi
Atvinnulausir gætu gert margt
verra en að hafa samband við
ferðamálaráð Ástralíu. Það leit-
ar nú að starfsmanni til að fóðra
skjaldbökur, fylgjast með hvölum
og halda utan um póst sem berst á
Hamilton-eyju.
Launin eru litlar ellefu milljónir
fyrir sex mánaða tímabil, en þess
ber að geta að vinna þarf tólf tíma
á mánuði. Áhugasamir geta sent
60 sekúndna langt myndband til
Tourism Queensland þar sem þeir
útskýra hví þeir ættu að hreppa
hnossið og er lofað að ekki fylgi
nokkur böggull skammrifi og ekk-
ert smátt letur. Umsóknarfrestur
rennur út 22. febrúar.
Át eigin augu
Dauðadæmdur morðingi, Andre
Thomas, er ekki aðgerðarlaus á
meðan hann bíður þess að dómn-
um verði fullnægt. Andre, sem er
bandarískur, plokkaði úr sér ann-
að augað og át það. Þess ber að
geta að áður en réttarhöldum yfir
honum lauk hafði hann plokkað
úr sér hitt augað og étið.
Andre Thomas gengur senni-
lega ekki alveg heill til skógar.
Fyrir fjórum árum myrti hann
fyrrverandi eiginkonu sína og
þrettán mánaða barn þeirra, en
það er ekki fyrr en nú sem hann
var sendur í meðferð vegna geð-
rænna vandamála. Betra er seint
en aldrei.
Prinsinn af Wales kallar asískan vin sinn umdeildu viðurnefni:
Fólk í Þýskalandi rak upp stór augu
þegar það las fyrirsagnir dagblaða
sem seld voru hjá blaðasölum í
gær og fyrradag, reyndar voru fyr-
irsagnirnar úreltar og hafa senni-
lega vakið upp misjöfn viðbrögð
almennings.
„Hitler kanslari Ríkisins“ var
forsíðufrétt Der Angriff og ef les-
endur velktust í vafa um mikilvægi
fréttarinnar gátu þeir lesið frekar
uppskrúfaða fréttaskýringu eftir
Jósef Göbbels.
Eftirprentun á dagblöðum nas-
istatímans í Þýskalandi er hug-
mynd bresks útgefanda og verða
blöðin til sölu um gervallt Þýska-
land. Vikuskammtur kostar tæp-
ar fjórar evrur og til að byrja með
verður upplagið þrjú hundruð
þúsund eintök. Samkvæmt upp-
lýsingum frá söluturnum í Berlín
hefur salan verið góð.
Áhrif kreppunnar
Í seinni tíð hefur orðið vart auk-
ins áhuga á bæklingum þjóðernis-
sósíalista í Þýskalandi. Daglegar
vangaveltur um að kreppan mikla
sé komin aftur hefur kveikt áhuga á
fjórða áratug síðustu aldar og ein-
læga forvitni á ástæðum þess að
eldri kynslóðir gleyptu við áróðri
nasista.
„Frá og með deginum í dag
færðu einstakt tækifæri til að kom-
ast að hvaða upplýsingar voru að-
gengilegar foreldrum þínum og
foreldrum þeirra,“ sagði Sandra
Paweronschitz, sagnfræðingur og
ritstjóri útgáfunnar.
Útgefandinn, Peter McGee, er
ekki alls ókunnugur verkefni af þess-
um toga, því hann ýtti úr vör með
svipað verkefni í Austurríki með góð-
um árangri. Að hans mati er útgáfan,
Zeitungszeugen, umræðuvettvangur
fyrir Þjóðverja. „Þetta ætti að lesast af
fólki sem myndi aldrei lesa bók um
samtímasögu, en kann eigi að síður
að meta greiningu upplýsinganna,“
sagði McGee.
Brotin bönn
Útgáfufyrirtæki Peters McGee, Al-
bertas sem staðsett er í Lundúnum,
nýtur aðstoðar og ráðgjafar leiðandi
þýskra sagnfræðinga og sérfræðinga
í sögu Þriðja ríkisins. Þeirra á meðal
er Wolfgang Benz, yfirmaður mið-
stöðvar fyrir rannsóknir á gyðinga-
andúð í Berlín. Miðstöðin er hluti tíu
aðila ráðgjafarnefndar sem sett var á
laggirnar til að koma í veg fyrir grun-
semdir um að endurprentun dag-
blaða nasistatímans sé runnin und-
an rifjum hægri öfgaafla.
Við fyrstu sýn má telja að endur-
prentunin höfði til þýsku þjóðarinn-
ar vegna þess að með henni eru brot-
in bönn sem hafa verið í gildi í yfir
sextíu ár.
Í hillum bókaverslana í landinu
eru bækur sem skarta hakakrossin-
um ekki vel séðar og fjarlægðar úr
hillunum, og kveðja að sið nasista er
með öllu bönnuð. Peter McGee hef-
ur fengið sérstaka undanþágu til að
endurútgefa áróður nasista ásamt
meðfylgjandi táknum sökum sögu-
legs gildis efnisins.
Róðurinn mun þyngjast
Ljóst er að útgáfan mun mælast
misjafnlega vel fyrir og útgáfan
sem blasti við þýskum almenningi
í fyrradag, var frá 30. janúar 1933,
þegar Adolf Hitler komst til valda.
Þrjú dagblöð eru endurútgefin; Der
Angriff (Árásin), dagblað nasista
stofnað af Jósef Göbbels, Deutsche
Allgemeine Zeitung, þjóðernis-
sinnað íhaldsblað, og Der Kämpfer
(Baráttumaðurinn), aðalmálgagn
þýska kommúnistaflokksins. Með
hverju blaði er fylgirit þar sem er að
finna umsögn og greiningu frá áður-
nefndri ráðgjafarnefnd.
Með þessum hætti hefur útgáfu-
fyrirtækið reynt að bægja frá sér
mögulegri gagnrýni um að ætlunin
sé að fylla nýjar kynslóðir nasista-
áróðri. Það kann að vera að útgef-
andi hafi erindi sem erfiði fyrst um
sinn, en róðurinn mun þyngjast
þegar fram í sækir.
Ætlunin er að endurprenta að
fullu 150 dagblöð allt til ársins 1945.
Þegar nær dregur 1945 verður erf-
itt að gæta innbyrðis jafnvægis því
nasistar ritskoðuðu grimmt allt rit-
að og talað orð og lokuðu dagblöð-
um andstöðunnar og andgyðingleg
napuryrði og gyðingahatur draup
af síðum dagblaða á borð við Der
Stürmer.
Slæm tímasetning
Ralph Giordano, rithöfundur og
einn þeirra sem átti því láni að
fagna að lifa af helförina, sagði við
blaðamann BBC að hann hefði efa-
semdir um áhrif þessarar útgáfu.
„Það sem ég get sagt er að Hitler,
og allt það sem hann stendur fyrir,
kann að hafa verið sigrað á vígvell-
inum, en ekki vitsmunalega,“ sagði
hann.
Háttsettur, ónafngreindur ein-
staklingur innan samfélags gyðinga
í Berlín var einnig bölsýnn vegna
góðrar sölu á dagblöðum nasista.
„Við erum öll eilítið taugaveikluð.
Ástandið á Gaza veldur því að þús-
undir streyma út á göturnar, hróp-
andi slagorð gegn Ísrael – þetta er
ekki góður tími til að auglýsa Jósef
Göbbels,“ sagði hann.
Eplið fellur ekki langt frá eplatrénu.
Í kjölfar upplýsinganna um orð-
bragð Harrys prins hefur komið
upp saga af svipuðum toga um föð-
ur Harrys, Karl prins, erfingja krún-
unnar.
Karl prins af Wales hefur kallað
asískan vin sinn Sótugan (e. Sooty)
um árabil og notar orðið sem „hlý-
legt viðurnefni“.
Það er mikið að gera hjá húsráð-
endum í Clarence House þessa dag-
ana vegna Harrys og þar á bæ hafa
menn neitað að tjá sig um fullyrð-
ingarnar varðandi Karl, en sögðu að
allar dylgjur um að Karl væri rasisti
væru „fullkomlega fáránlegar“.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um hefur Harry prins beðist velvirð-
ingar á þeim ummælum sem hann
viðhafði gagnvart félögum sínum í
hernum og ekki gert ráð fyrir því að
eftirmálar verði miklir.
Ónafngreindur meðlimur í Ciren-
cester-pólóklúbbnum í Glouchesterskíri
sem BBC ræddi við sagði að viðurnefnið
sem fest hefði við Kuldip Singh Dhillon
hefði ekki valdið neinu hugarangri. „Ég
veit að prinsinn kallar hann Sótugan.
Því hafa ekki fylgt nein vandræði,“ sagði
áðurnefndur meðlimur við BBC.
Talsmaður Clarence House hefur
sem fyrr segir neitað að tjá sig um mál-
ið. „Að gefa í skyn að prinsinn af Wales
sé rasisti er fullkomlega fáránlegt. Lítið á
vinnu hans hér heima og erlendis. Hann
hefur unnið að meira umburðarlyndi og
skilningi óslitið í þrjátíu ár,“ sagði tals-
maðurinn.
Talsmaður Cirencester-póló-
klúbbsins hefur líkt og húsráðendur í
Clarence House neitað að tjá sig um
málið.
Kallar vin sinn Sótugan
Der Stürmer gyðingahatur
draup af síðum dagblaðsins.
Jósef Göbbels Bækur voru
brenndar vegna ritskoðunar.
Nýtt dagBlað,
gömul frétt
Sitt sýnist hverjum í Þýskalandi og ekki hugnast öllum endurprentun dagblaða frá tíma nasism-
ans. Útgefandinn hefur fengið undanþágu vegna sögulegs gildis dagblaðanna og áhugi á fjórða
áratug síðustu aldar hefur aukist vegna kreppunnar nú. Svipuð útgáfa gekk vel í Austurríki og
útlit er fyrir að sú verði einnig raunin í Þýskalandi.
Áróður gegn gyðingum
„gyðingar eru ógæfa okkar“
stendur neðst á forsíðunni.
Prinsinn í póló
kallar pólófélaga
sinn og vin Sótugan.
Jósef Göbbels Bækur voru
brenndar vegna ritskoðunar.