Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 14. janúar 200916 Ættfræði 40 ára í dag 30 ára n Afrim Haxholli Engihjalla 19, Kópavogur n Fatmir Hajdari Iðnbúð 1, Garðabær n Makhmura Khaligova Lundargötu 9, Akureyri n Susanna Kristiina Omori Aðalbraut 1, Dalvík n Merle Pajus Spítalavegi 21, Akureyri n Milena Sylwia Jaromin Öldugötu 35, Hafnar- fjörður Melgerði 11, Reyðarfjörður n Guðlaug Birna Steinarsdóttir Gvendargeisla 21, Reykjavík n Karlotta Ósk Jónsdóttir Háaleitisbraut 41, Reykjavík n Emelía Ósk Sveinsdóttir Valsheiði 28, Hveragerði n Aldís Bjarnadóttir Eyravegi 48, Selfoss n Jón Auðunn Sigurbergsson Tröllakór 10, Kópavogur 40 ára n Hata Mesetovic Silfurbraut 4, Höfn n Rósa Jósefsdóttir Dynsölum 16, Kópavogur n Bryndís Ingvarsdóttir Úthlíð 10, Reykjavík n Hrafn Aðalsteinn Ágústsson Strandvegi 9, Garðabær n Helga Eyja Hrafnkelsdóttir Háteigsvegi 15, Reykjavík n Kjartan Viðar Arnbjörnsson Skipasundi 37, Reykjavík n Jónheiður Gunnbjörnsdóttir Þrastarási 12, Hafnarfjörður n Aðalbjörg Þórólfsdóttir Hraunsmúla, Borgarnes n Bjarni Gunnarsson Blönduhlíð 27, Reykjavík n Rakel Jónsdóttir Fannafold 176, Reykjavík n Linda Angelique Elizondo Melbraut 25, Garður 50 ára n Sveinn Kragh Fannafold 77, Reykjavík n Sigurður Karl Linnet Grænuhlíð 5, Reykjavík n Guðmundur Bárðarson Hljóðalind 2, Kópavogur n Ragnheiður Gunnarsdóttir Hamrabakka 8, Seyðisfjörður n Hrefna Sigurjónsdóttir Fífuvöllum 22, Hafnar- fjörður n Hafdís Sigrún Roysdóttir Svínafelli 1 Nýjatúni, Fagurhólsmýri n Guðríður Blanche Rail Löngumýri 43, Garðabær n Ryszard Czeslaw Sychowski Arnarholti, Reykjavík n Birgir Ævarsson Skipasundi 88, Reykjavík n Björgvin Þórðarson Lautasmára 12, Kópavogur n Björn Bragi Mikkaelsson Markarflöt 53, Garðabær 60 ára n Snæbjörn Kristjánsson Flókagötu 10, Reykjavík n Svanhvít Ásta Jósefsdóttir Rjúpnasölum 2, Kópavogur n Jón B Björgvinsson Hólabraut 17, Hafnarfjörður n Jónas Sveinsson Sævangi 6, Hafnarfjörður n Gísli Sigurgeirsson Tónatröð 11, Akureyri n Valdimar Lárusson Grundartúni 10, Akranes n Björgvin Bjarnason Hjallastræti 14, Bolungarvík n Símon Páll Steinsson Sunnubraut 3, Dalvík 70 ára n Gígja Friðgeirsdóttir Lindatungu, Selfoss n Jón Helgason Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík n Helgi Oddsson Karlagötu 6, Reykjavík n Vilborg Sigurðardóttir Háaleitisbraut 17, Reykjavík n Steinn Erlingsson Stekkjargötu 9, Njarðvík 75 ára n Ingibjörg Guðmundsdóttir Staðarhvammi 1, Hafnarfjörður 80 ára n Guðlaug Arngrímsdóttir Litlu-Gröf, Sauðárkrókur n Sigurður Hafsteinn Konráðsson Sólheimum 32, Reykjavík 85 ára n Jónas Björnsson Núpasíðu 4g, Akureyri n Ingibjörg Markúsdóttir Sóltúni 2, Reykjavík n Petrína Grímsdóttir Höfðavegi 20, Húsavík Kári Steinar LútherSSon sjálfstætt starfandi ráðgjafi Kári fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Blesugrófinni. Hann var í Fossvogsskóla og Réttarholtsskóla, stundaði nám við Verzlunarskóla Ís- lands og lauk þaðan stúdentsprófi 1988. Hann stundaði síðar nám við Tækniskóla Íslands (síðar Tæknihá- skólann áður en hann sameinaðist HR) og lauk þaðan BSc-prófi í við- skiptafræði 2003. Kári var verslunarmaður við verslunina Þingholt við Grundar- stíginn í Reykjavík á verslunarskóla- árunum, starfaði síðan hjá BM-Vallá á árunum 1991-2001. Hann starfaði með námi hjá Hugviti, var sölustjóri fyrirtækjasölu hjá Vodafone 2004- 2006, var framkvæmdastjóri véla- sviðs hjá Mest 2006-2007 og er nú sjálfstæður ráðgjafi. Kári sat í stjórn nemendafélags Tækniháskólans og hefur starfað með JCI um árabil og verið þar m.a. forseti JCI Borgar. Fjölskylda Eiginkona Kára er Berglind Dögg Jónsdóttir, f. 28.8. 1967, húsmóðir. Sonur Kára og Berglindar Daggar er Sindri Már Kárason, f. 6.2. 1989, nemi við Borgarholtsskóla. Alsystkini Kára eru Sigurjón Lúthersson, f. 23.3. 1971, starfsmað- ur Dell í Bretlandi; Hildur Helga Lúthersdóttir, f. 30.3. 1975, starfs- maður Intrum í Reykjavík. Hálfsystkini Kára eru Anna Dóra Lúthersdóttir, f. 8.4. 1956, starfs- maður IGS, búsett í Reykjanesbæ; Torfi Lúthersson, f. 8.4. 1958, búsett- ur í Reykjavík; Margrét Lára Lúth- ersdóttir, búsett í Bandaríkjunum. Foreldrar Kára eru Lúther Stein- ar Kristjánsson, f. 12.10. 1934, húsa- smíðameistari og síðar starfsmað- ur hjá SKÝRR, og Elín Káradóttir, f. 19.11. 1942, leikskólakennari. Ætt Lúther Steinar er sonur Kristjáns, sjómanns í Grindavík Halldórsson- ar Guðmundar, útvegsb. í Kothrauni í Helgafellssveit Péturssonar. Móðir Kristjáns var Guðmunda Kristjana Guðmundsdóttir. Móðir Lúthers var Anna Vil- mundardóttir, b. í Löndum í Stað- arhverfi í Grindavík Árnasonar, og Guðrúnar Jónsdóttur, b. í Hlíð í Grafningi, bróður Kolbeins, föð- ur Arinbjörns læknis. Jón var son- ur Guðmundar, b. í Hlíð í Grafningi Jónssonar. Móðir Guðmundar var Solveig, systir Jóns, langafa Hall- dórs Laxness. Solveig var systir Ein- ars, langafa Vals leikara og Garðars Gíslasona, föður Guðmundar, fyrrv. alþm. Solveig var dóttir Þórðar, b. á Vötnum í Ölfusi Jónssonar og Ing- veldar, systur Gísla, langafa Vilborg- ar, ömmu Vigdísar Finnbogadóttur. Bróðir Ingveldar var Guðmundur, langafi Ólafs, afa Ólafs Ólafssonar, fyrrv. landlæknis. Guðmundur var einnig langafi Lilju, ömmu Karls Kvaran listmálara. Bróðir Ingveld- ar var einnig Jón, langafi Konráðs, langafa Júlíusar Hafstein sendi- herra. Ingveldur var dóttir Guðna, b. í Reykjakoti í Ölfusi og ættföður Reykjakotsættar Jónssonar. Elín er dóttir Kára, prentara á Ak- ureyri Sigurjónssonar, verkamanns á Akureyri Jóhannessonar. Móð- ir Kára var Elín Sigríður Valdimars- dóttir. Móðir Elínar var María Lára Hall- dórsdóttir, söðlasmiðs á Akureyri Halldórssonar, og Rósfríðar Guð- mundsdóttur. Til hamingju með afmælið! Haraldur fæddist á Ak- ureyri og ólst þar upp. Hann var í Lundaskóla og Gagnfræðaskóla Akureyr- ar, stundaði síðar nám við Hótel- og veitingaskólann í Kópavogi og útskrifaðist þaðan sem matreiðslu- maður árið 2007. Haraldur var til sjós um skeið á togara frá Hrísey og einnig á bát frá Neskaupstað, starfaði við að reisa stálgrindahús og sinnti ýmsum störfum á unglings- og námsárun- um. Hann hóf störf við matreiðslu á Grillhúsinu á Akureyri, vann sveinstímann á Greifanum á Akur- eyri, á Hótel KEA og útskrifaðist frá Argentínu Steikhúsi í Reykjavík. Að námi loknu flutti hann aftur norð- ur og hóf síðan aftur störf við Hótel KEA í ársbyrjun 2008 þar sem hann hef- ur verið matreiðslumað- ur síðan. Fjölskylda Eiginkona Haralds er Silja Einarsdóttir, f. 17.4. 1980, nemi við HA. Börn Haralds og Silju eru Úrsula Nótt Siljudótt- ir, f. 23.5. 2003; Illugi Dagur Har- aldsson, f. 22.8. 2007. Systir Haralds er Fanney Péturs- dóttir, f. 22.6. 1977, skrifstofumað- ur á Akureyri. Foreldrar Haralds eru Pétur Haraldsson, f. 14.8. 1948, bifreiða- stjóri á Akureyri, og Hjördís Pálma- dóttir, f. 26.1. 1955, húsmóðir. Elisabet fæddist í Reykjavík en ólst upp á Blönduósi. Hún var í Grunnskólanum á Blönduósi og Nesskóla í Neskaupstað og stund- aði nám við Fjölbraut í Ár- múla. Elísabet vann við loðnufrystingu á Reyðar- firði á menntaskólaárun- um, starfaði hjá Bílheim- um, Ingvari Helgasyni, í fjögur ár og síðan í önnur fjögur ár á verkfræði- stofunni Hönnun. Hún hóf störf hjá Alcoa - Fjarðaáli 2007 og hefur starf- að þar síðan. Elísabet stundar mikið hlaup og skíðaferðir. Þá kennir hún líkams- rækt á Reyðarfirði. Fjölskylda Dætur Elísabetar eru Bryndís Steinþórsdóttir, f. 2000; Bergdís Steinþórs- dóttir, f. 2005. Systur Elísabetar eru Þórey Kristín Sveinsdótt- ir, f. 1980, matráður á Reyðarfirði; Silvía Dröfn Sveinsdóttir, f. 1985, starfs- maður við Alcoa - Fjarða- ál, búsett í Neskaupstað; Snædís Hulda Sveinsdóttir, f. 1989, framhaldsskólanemi í Neskaupstað; Svanhvít Helen Sveinsdóttir, f. 1992, framhaldsskólanemi í Neskaupstað; Natalý Huld Sveinsdóttir, f. 2004. Foreldrar Elísabetar eru Sveinn Jónsson, f. 13.1. 1961, kokkur í Nes- kaupstað, og Svanhvít Halldórs- dóttir, f. 29.5. 1961, matráður í Nes- kaupstað. haraldur Már Pétursson MatreiðsluMaður á Hótel kea elísabet esther Sveinsdóttir starfsMaður alcoa - fjarðaáls „Maður er svo ungur í anda,“ segir Jón Auðunn Sigurbergsson sem fagn- ar þeim stóráfanga að verða þrítugur í dag. Tímamótin leggjast vel í hann og óttast hann ekki aldurinn. Jón er búsettur í Kópavogi en starfar í Reykjavík. Hann vinnur hjá hugbúnaðarfyrirtæki sem heyrir undir Nýherja. Umfangið á hátíðarhöldum í kringum stórafmælið verður ekki mikið. „Mér finnst þetta dáldið svona dagur sem er eins og hver annar dag- ur,“ segir Jón. Hann ætlar þó ekki alveg að sleppa því heldur fagna smávægilega með fjölskyldu og vin- um. „Það er nú mest lítið. Verð með smá heima bara,“ segir Jón en hann hyggst hafa smá afmæli heima hjá sér á sjálfan afmælisdaginn. Þegar blaðamaður spyr hvort það hafi áhrif að eiga afmæli svona rétt eftir jólin tekur hann undir að svo geti verið. „Maður er svo sem rétt að jafna sig ennþá eftir jólin.“ Hann langar eiginlega ekki í neitt sérstakt í afmælisgjöf. Ef hægt væri að vera stórtækur og óska sér alls segir hann að það væri kannski helst lánið á íbúðinni sem gott væri að losna við. Að öðru leyti er hann afar nægjusam- ur á afmælisgjöfina sem hann mun jafnvel koma til með að fá. Síðasta stórafmæli hélt Jón upp á eins og eflaust flestir á þeim aldri. „Það var ágætisveisla. Þá var maður bara heima og hélt gott partí,“ segir Jón sem nú er kominn á fertugsaldurinn og virðist ekkert kippa sér upp við að heyra það orð. „Það hefur allavega ekki kikkað inn ennþá. Kannski gerist það eftir af- mælisdaginn,“ segir Jón en DV ósk- ar honum innilega til hamingju með daginn. asdisbjorg@dv.is 30 ára í dag 30 ára í dag Jón Auðunn Sigurbergsson er þrítugur: UngUr í anda NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Jón Auðunn vill losna við lánið í afmælisgjöf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.