Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Qupperneq 3
Mesti jöfnuður á Vík
Ef sveitarfélögin eru skoðuð út frá
Gini-stuðlinum, sker Seltjarnarnes
sig enn og aftur úr. Gini mælir jöfnuð
í samfélaginu og er á skalanum 0 til
1, þar sem 0 er fullkominn jöfnuður,
en 1 aftur á móti fullkominn ójöfnuð-
ur. Ásgeir Jónsson mældi Gini-stuð-
ulinnn í flestum þéttbýlissvæðum á
landinu og samkvæmt mælingu hans
er ójöfnuður mestur á Seltjarnarnesi.
Næstu þéttbýli þar sem ójöfnuður er
mestur eru Djúpivogur, Ólafsfjörð-
ur, Stöðvarfjörður og Grindavík. Í Vík
í Mýrdal mældist hins vegar mesti
jöfnuðurinn. Gini-stuðullinn hækk-
ar eftir því sem menn verða ríkir en
hann lækkar ekki eftir því sem menn
verða fátækir. Það er því í sjávarpláss-
um, þar sem sjávarútvegsfyrirtæki
eru starfandi, þar sem ójöfnuðirnn
er mestur. Í þéttbýli á borð við Vík og
Kópasker, hvar jöfnuðurinn er mest-
ur, er minna um sérhæft starfsfólk
sem er líklegra til að hafa háar tekjur.
Í skýrslu Ásgeirs segir að af þessu
megi skilja að aukinn jöfnuður sé
ekki alltaf eftirsóknarverður. Það
kynni til dæmis að vera að ef Efra-
Breiðholt væri sjálfstætt sveitarfé-
lag, líkt og Seltjarnarnes, að svigrúm
sveitarstjórnarinnar þar væri tak-
markað vegna lágra útsvarstekna.
Dýrt í leikskóla
Ef miðað er við samræmda gjald-
skrá leikskóla 1. september 2008,
miðað við að barn sé 9 tíma á leik-
skólanum, voru leikskólagjöld á þeim
tíma ódýrust í Kópavogi. Síðan í sept-
ember hafa leikskólagjöldin reynd-
ar hækkað víða um land. Reykjavík
reyndist vera með örlítið hærri leik-
skólagjöld eða 16.236 krónur á mán-
uði. Önnur sveitarfélög sem koma
vel út í þessum samanburði eru Ak-
ureyri, Reykjanesbær, Skagafjörður
og Hafnarfjörður sem voru öll með
leikskólagjöld undir 20 þúsund krón-
um á mánuði. Hæstu leiskólagjöldin
voru hins vegar í Garðabæ, á Ísafirði
og á Seltjarnarnesi. Leikskólagjöld-
in voru 28.800 krónur í Garðabæ 1.
september á síðasta ári, en 16.092
krónur í Kópavogi. Munurinn á leik-
skólagjöldum í þessum samliggjandi
bæjum var 55 prósent.
Helmingi meiri unglingavinna
Nú á tímum atvinnuleysis og sam-
dráttar, er það mælikvarði á sveitar-
félögin, hversu mikla vinnu þau geta
boðið sínu yngsta starfsfólki upp á í
sumar. Í Reykjavík hefur vinnutími
16 ára unglinga sem eru nýbúnir
með grunnskóla, verið skertur veru-
lega. Þannig fá þeir aðeins að vinna
í fjórar vikur í sjö klukkutíma á dag.
Í Garðabæ fá krakkarnir að vinna í 5
og hálfa klukkustund á dag í sjö vik-
ur í sumar. Jafnaldrar þeirra í Kópa-
vogi fá að vinna 4 daga vikunnar í sex
tíma á dag, alls í 6 vikur. Hefur ver-
ið brugðið á það ráð að bjóða aldrei
upp á vinnu á föstudögum í sumar í
sparnaðaskyni.
Á Seltjarnarnesi fá unglingarnir
að vinna 7 tíma á dag 4 daga vikunn-
ar í 7 vikur. Í Reykjanesbæ fá krakk-
arnir að vinna í 4 vikur frá 8 til 16,
nema á föstudögum þegar þau hætta
á hádegi.
Sveitarfélagið Árborg býður ungl-
ingum upp á hvað mesta vinnu í
sumar, þar geta þau unnið 8 klukku-
tíma á dag í sjö vikur, samkvæmt
upplýsingum af vefsíðu Vinnuskól-
ans þar. Í heildina stendur ungling-
um í Árborg helmingi meiri vinna til
boða í sumar heldur en jafnöldrum
þeirra í Reykjavík.
56 prósenta munur
á sundlaugum
Jafnvel þótt Árborg geri vel við
unglingana sína er ekki eins ódýrt
að fara í sund á Selfossi. Samkvæmt
verðsamanburði á sundlaugum er
Árborg með næsthæsta sundlauga-
gjaldið á landinu, eða 370 krónur.
Aðeins á Akureyri er dýrara í sund,
eða 410 krónur. Það vantar ekki heita
vatnið á Reykjanesið, enda kost-
ar ekki nema 250 krónur í sund í
Reykjanesbæ. Ódýrast er hins vegar
í sund í Garðabæ og á Akranesi eða
230 krónur. Verðmunurinn á þess-
um tveimur bæjum og svo Akureyri
er 56 prósent. Algengt er að verð sé
um 300 til 350 krónur annars staðar
á landinu.
fréttir 8. júlí 2009 MiÐViKUDAGUr 3
Guðjón Kristinsson og Þóra Guðný Æg-
isdóttir vilja hvergi annars staðar búa
en á Seltjarnarnesi.
Grótta Seltjarnarnes kemur mjög vel út
í samanburði sveitarfélaganna á flestum
sviðum.
Guðjón Kristinsson, fjölskyldu-
faðir á Seltjarnarnesinu, hefur búið
í bænum í 34 ár. Hann segir fjöl-
skylduna una hag sínum vel og
vilja hvergi annars staðar búa. „Ég
flutti á nesið fimm ára gamall og er
búinn að vera hér síðan þá. Það er
nokkuð ljóst að hér er gott að vera,“
segir Guðjón.
Aðspurður hvað honum líki best
við að búa á Seltjarnarnesi, seg-
ir Guðjón: „Það er þorpsfílingur í
nálægðinni, kyrrðin og þægind-
in. Það er einstaklega gott að alast
upp sem krakki og allar aðstæð-
ur fyrir krakkana hafa stórbatnað
undanfarin ár, það er mikið sam-
starf á milli íþróttafélagsins og skól-
anna. Krakkarnir fara beint úr skóla
á æfingu, þannig að skipulagið hjá
íþróttafélaginu og skólunum er lyk-
illinn.“
Bónus ofan á allt saman
Guðjón nefnir að í fáum tilfell-
um þurfi krakkar að fara yfir um-
ferðargötur, því skólinn, íþróttaliðið
og félagsstarfið sé allt í kílómetera
radíus. „Það er mikið af fólki sem
bjó á nesinu sem krakkar, sem býr
hérna enn. Sú upplifun að alast
hérna upp hjálpar fólki að velja stað
til að búa á.“ Guðjón segir að lægri
skattar og gjöld séu ekki forsenda
þess að fjölskyldan hafi ákveðið að
búa á Seltjarnarnesinu. „Ég hef lít-
ið pælt í þessari tölfræði, en það er
bónus ofan á allt saman og safnast
örugglega þegar saman þegar fólk
hefur búið í bænum í mörg ár.“
Guðjón og eiginkona hans eru
með þrjú börn á skólaaldri, sem
stunda íþróttir í bænum, og seg-
ir hann það helsta kost bæjarins,
hversu vel er haldið á spöðunum
í þeim efnum. „Aðstaðan fyrir all-
ar íþróttagreinar er til fyrirmyndar,
hvort sem það er fótbolti, handbolti
eða fimleikar. Það er ekkert mikið
sem lokkar krakkana í burtu, þetta
heldur stöðugleikanum í bænum.“
Gott að vita af þessu
Það stendur aðeins á svörum
hjá Guðjóni þegar hann er beðinn
að nefna helsta ókostinn við að búa
á Seltjarnarnesi en eftir nokkra um-
hugsun segir hann: „Það hefur vant-
að íbúðir fyrir barnafólk. Það getur
verið erfitt fyrir fólk að halda áfram
að búa eins lengi á nesinu og það
vill. Ég hef verið heppinn í því að
geta búið hér áfram.“ Það er greini-
legt á Guðjóni að það eru fyrst og
fremst aðrar ástæður en skattalegar
fyrir því hann vill búa á Seltjarnar-
nesi með fjölskylduna. „Lægra út-
svar og gjöld eru ekki forsenda þess
að ég bý á Seltjarnarnesinu, fyrir
fólk sem er með mjög háar tekjur
fer þetta virkilega að telja, en það er
gott að vita af þessu.“
„Ég hef lítið pælt í
þessari tölfræði, en
það er bónus ofan á
allt saman og safn-
ast örugglega þeg-
ar saman þegar fólk
hefur búið í bænum í
mörg ár.“
Búa ekki á
nesinu út af
lægra útsvari
Sátt á Seltjarnarnesi Guðjón Kristinsson og kona hans Þóra Guðný Ægisdóttir
með börn þeirra Agnar, Dag og Karen. Fjölskylduhundurinn Elvis er með á
myndinni. MynD RaKel
VeSTMannaeyJaR Lægsta fasteignaverð á sérbýli
SelTJaRnaRneS Lægsta útsvarið
ReyKJaneSBÆR Ódýrt í sund
ReyKJaVÍK Ódýrast í leikskóla 1. september 2008
ÁRBORG Mikil sumarvinna er í boði fyrir unglinga í Árborg