Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Síða 10
10 miðvikudagur 8. júlí 2009 fréttir Litlar breytingar voru gerðar á yfirstjórn Íslandsbanka við bankahrunið. Þar starfa enn stjórnendur sem fengu milljarða kúlulán til hlutabréfakaupa í bankanum. Lárus Welding er með 60 milljóna króna trygg- ingarbréf á húsi sínu. Ingibjörg Þórðardóttir segir að með því að gefa út tryggingarbréf sé hægt að leyna lánakjörum við fasteignakaup. Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, færði báðar fasteignir sínar yfir á eiginkonu sína í maí. Tryggingarbréf noTuð Til að fela lánakjör Hjá Íslandsbanka eru ennþá starf- andi flestir af sömu stjórnendum og voru þar fyrir bankahrunið. DV hefur undanfarið fjallað um lánabók Kaup- þings frá árinu 2006 og greint frá 23,5 milljarða króna lánum til stjórnenda bankans til hlutabréfakaupa. Þeir stjórnendur sem störfuðu hjá Kaup- þingi hafa nánast allir látið af störf- um hjá bankanum. Fasteignir yfir á konuna Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða (áður FL Group) og áður stjórnarmaður í Glitni, á fasteignir á Unnarbraut 17 og 19 á Seltjarnarnesi. Hann færði báðar fasteignirnar yfir á Björgu Fenger 6. maí 2009. Jón hugðist rífa Unnarbraut 19 og byggja þar nýtt hús. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi árið 2008 úr gildi ákvörðun Seltjarnarnesbæjar um að leyfa Jóni að rífa húsið. Ekkert er áhvílandi á húsnæðinu á Unnar- braut 19 en hina eignina keyptu Jón og Björg árið 2004. Lárus með 60 milljóna tryggingarbréf Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, á fasteign í Blönduhlíð 8 í Reykjavík. Á fasteigninni er 60 millj- óna króna tryggingarbréf. Því er ekki vitað hvaða lánakjör Lárus hefur fengið. Viðmælandi sem DV ræddi við sagði að það hefðu verið mistök hjá Sigurjóni Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, að láta þinglýsa 70 milljóna króna lánunum sem hann fékk hjá eigin lífeyrissjóði. Ef hann hefði fengið tryggingarbréf líkt og Lárus fékk hefði hann ekki þurft að þinglýsa lánakjörum sínum og hefði sparað sér 700 þúsund krón- ur í stimpilgjöld. Í samtali við DV segir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fast- eignasala, að ódýrara sé að þing- lýsa tryggingarbréfum heldur en venjulegum skuldabréfum. „Stimp- ilgjöld af tryggingarbréfum eru 0,5 prósent en 1,5 prósent af venjuleg- um skuldabréfum.“ Hún segir marga hafa ákveðið að nýta sér að þinglýsa tryggingarbréfum í stað hefðbund- inna skuldabréfa á undanförnum árum. „Það á ekki að skipta bankann máli svo fremi sem tryggingin er ríf- leg umfram höfuðstól lánsins sem tryggingarbréfið stendur fyrir,“ seg- ir Ingibjörg. Að sögn hennar býður Íbúðalánasjóður ekki upp á trygg- ingarbréf. Það hafi bankarnir hins vegar gert. Segir hún að tryggingar- bréf séu vísitölutryggð. Þau beri hins vegar ekki vexti. „Það geta verið alls konar lán að baki tryggingarbréfi. Þar á meðal kúlulán,“ segir Ingibjörg. Stórskuldugir stjórnendur Í lok mars greindi DV frá því að fjór- ir af núverandi framkvæmdastjórum Íslandsbanka hafi í maí 2008 feng- ið samtals 2,6 milljarða króna kúlu- lán til hlutabréfakaupa í bankanum. Rósant Már Torfason, núverandi framkvæmdastjóri áhættustýringar, lánaeftirlits og lögfræðisviðs, fékk 800 milljóna króna lán í gegnum félag sitt Strandatún. Jóhannes Baldursson, núverandi framkvæmdastjóri fjár- stýringar og markaðsviðskipta, fékk 800 milljóna króna lán í gegnum félag sitt Gnóma. Vilhelm Már Þorsteins- son, núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, fékk 800 milljóna króna lán í gegnum félag sitt AB 154. Stefán Sigurðsson, núverandi fram- kvæmdastjóri eignastýringar, fékk 170 milljóna króna lán í gegnum fé- lag sitt AB 135. Vilhelm Már og Eggert Þór Krist- ófersson, fyrrverandi framkvæmda- stjóri eignastýringar Glitnis, eru báð- ir með tryggingarbréf á fasteignum sínum. Vilhelm Már er með 15 millj- óna króna tryggingarbréf og Eggert Þór er með 25 milljóna króna trygg- ingarbréf. Eru þau gefin út af Íslands- banka. Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs Glitnis, er með 40 millj- óna króna tryggingarbréf frá Lands- bankanum. Forstjóri Skeljungs fékk kúlulán Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjaráð- gjafar Íslandsbanka og núverandi forstjóri Skeljungs, stofnaði félagið Einarsmel 18 ehf. 15. maí 2008. Dag- inn áður var tilkynnt um nýja fram- kvæmdastjórn bankans. Þrír úr þeirri framkvæmdastjórn fengu samtals 2,4 millarða kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni á þeim tíma. Það voru þeir Rósant Már, Vilhelm Már og Jóhann- es sem nefndir voru hér að ofan. Ekki liggur ljóst fyrir hvað Einar Örn fékk hátt kúlulán. Hann er með tvö trygg- ingarbréf á fasteign sínni. Annað upp á 10,5 milljónir króna og hitt upp á tíu milljónir króna. Lánakjör Birnu Birna Einarsdóttir, núverandi banka- stjóri Íslandsbanka, fékk sem kunn- ugt er 185 milljóna króna kúlulán í mars árið 2007 til að kaupa hlutabréf í Glitni. Birna komst síðan ekki að því fyrr en árið eftir að hún hafði aldrei keypt hlutabréfin. Fréttaveitan Eyjan fjallaði á mánudag um að Birna hefði fengið greiðslujöfnun á erlendu láni sem hvílir á fasteign hennar á Laufás- vegi 48a í Reykjavík. Fullyrti Eyjan að Birna hefði notið betri lánakjara en almennir lántakendur Íslandsbanka. Birna sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem hún leiðrétti þessar fullyrð- ingar. Á húsnæði Birnu eru tvö lán. Ann- að þeirra er 15 milljóna króna íslenskt verðtryggt lán til 40 ára með 6,35 pró- sent vöxtum gefið út árið 2008. Hitt er erlent lán sem upphaflega nam 12 milljónum króna en eftirstöðvar þess í lok árs 2007 voru 10,4 milljónir króna. Birna samdi við Glitni um þetta lán. Engar afskriftir Hjá Íslandsbanka starfa sjö í fram- kvæmdastjórn. Fimm þeirra fengu samtals 2,8 milljarða króna kúlulán. Öll lánin voru veitt til eignarhaldsfé- laga sem voru í eigu framkvæmda- stjóranna. Samkvæmt árshlutareikn- ingi Glitnis fyrir annan ársfjórðung 2008 jukust lán bankans til stjórn- enda úr 1.800 milljónum árið 2007 í níu milljarða árið 2008. Í samtali við DV segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: „Stjórn bankans lýsti því yfir í nóv- ember að lán til stjórnenda bankans vegna hlutabréfakaupa þeirra í Glitni færu í eðlilegt innheimtuferli. Ekkert hefur breyst í þeim efnum. Stjórnin hefur þessi mál áfram til meðferðar. Þau lán sem um ræðir eru ekki komin á gjalddaga.“ Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, á fasteign á Laufásvegi 48a í Reykjavík. Birna var með 2,6 milljónir í laun á mánuði árið 2007. Hún fékk kúlulán upp á 185 milljónir króna fyrir hlutabréfakaupum en kaupin gengu aldrei í gegn. Hún er með tvö lán á fasteigninni. Annað er 15 milljóna króna íslenskt verðtryggt lán. Hitt er erlent lán sem hún fékk greiðslujöfnun á í apríl. Það stóð í 10,4 milljónum króna í lok árs 2007. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, á fasteign í Blönduhlíð 8 í Reykja- vík. Lárus var með 26, 5 milljónir í tekjur árið 2007. Hann fékk 300 milljónir króna fyrir að hefja störf hjá Glitni. Samkvæmt heimildum Pressunnar stundar Lárus nú meistaranám í hagfræði við Harvard- háskóla í Boston í Bandaríkjunum. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group og fyrrverandi stjórnarmaður í Glitni, á fasteignir á Unnarbraut 17 og 19 á Seltjarnarnesi. Hann færði báðar fasteignirnar yfir á Björgu Fenger 6. maí 2009. Jón hugðist rífa Unnarbraut 19 og byggja þar nýtt hús. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi árið 2008 úr gildi ákvörðun Seltjarnarnesbæj- ar um að leyfa Jóni að rífa húsið. Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrir- tækjasviðs Glitnis, á fasteign á Klettási 6 í Garðabæ. Áhvílandi á þessari eign er tryggingarbréf frá Landsbankanum upp á 40 milljónir króna sem var útgefið árið 2007. Magnús var með 5,5 milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2007. Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka og núverandi forstjóri Skeljungs, á fasteign á Einimel 18. Hann stofnaði félagið Einarsmel 18 ehf. 15. maí 2008. Daginn áður var tilkynnt um nýja framkvæmdastjórn bankans. Þrír úr þeirri framkvæmdastjórn fengu samtals 2,4 milljarða kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni á þeim tíma. Hann er með tvö tryggingarbréf á fasteign sínni. Vilhelm Már Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslands- banka, á hús í Fróðaþingi 34 . Á húsi hans er 16 milljóna króna tryggingar- bréf frá Íslandsbanka. Auk þess eru tvö lán upp á samtals 25 milljónir króna frá Almenna lífeyrissjóðnum.. Vilhelm fékk 800 milljóna króna kúlulán í gegnum félag sitt AB 154 ehf. í maí árið 2008 til að kaupa hlutabréf í Glitni. Stefán Sigurðsson, núverandi framkvæmdastjóri eignastýringar Íslandsbanka, á fasteign á Grenimel 24 í Reykjavík. Stefán fékk 170 milljóna króna kúlulán í gegnum félag sitt AB 135 ehf. í maí árið 2008 til að kaupa hlutabréf í Glitni. Stefán er með tíu milljóna króna íslenskt verðtryggt lán frá Íbúðalána- sjóði. Jóhannes Baldursson, núverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar og mark- aðsviðskipta, á fasteign á Reynimel 84 í Reykjavík. Jóhannes fékk 800 milljóna króna kúlulán í gegnum félag sitt Gnóma ehf. í maí árið 2008 til að kaupa hlutabréf í Glitni. Jóhannes var með 5,9 milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2007. Rósant Már Torfason, núverandi framkvæmdastjóri áhættustýringar, lánaeftirlits og lögfræðisviðs Íslands- banka, á fasteign í Daltúni 19 í Kópavogi. Ekkert er áhvílandi á fasteign hans. Rósant fékk 800 milljóna króna kúlulán í gegnum félag sitt Strandatún ehf. í maí árið 2008. Rósant var með 4,7 milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2007. Eggert Þór Kristófersson, fyrrverandi framkvæmdastjóri eignastýringar Glitnis, á fasteign á Hólahjalla 5 í Kópa- vogi. Hann sat líka í stjórn Glitnissjóða. Eggert var með 2,8 milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2007. Á húsi Eggerts er 25 milljóna króna trygg- ingarbréf frá Íslandsbanka. AnnAS SigMundSSon blaðamaður skrifar: as@dv.is Hugsanlega kúlulán Ingibjörg Þórð- ardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir alls konar lán að baki tryggingar- bréfi. Þar á meðal kúlulán. Hjá Íslandsbanka starfa sjö í fram- kvæmdastjórn. Fimm þeirra fengu samtals 2,8 milljarða króna kúlulán.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.