Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Síða 14
Miðvikudagur 8. júlí 200914 tóMstundir Hundafimi er íþrótt sem hefur verið að hasla sér völl á Íslandi á undan-förnum árum. Íþrótt- in kom fyrst fram á sjónarsviðið á Crufts-hundasýningunni fyrir rúm- um þrjátíu árum og gerð að fyrir- mynd hindrunarstökksbrauta fyr- ir hesta. Hundaeigendur heilluðust gjörsamlega og brátt var fyrsta mótið í hundafimi haldið á Englandi. Í hundafimi læra hundar að leysa ýmsar þrautir, svo sem að skríða í gegnum göng, gera jafnvægisæf- ingar á brú og ganga yfir vegasalt. Þeir keppa síðan á braut þar sem þeir þurfa að fara yfir hindranir og reyna að komast brautina á enda á sem skemmstum tíma. Eigandi fylg- ir hundinum hvert fótmál og byggist gott gengi í hundafimi á traustu sam- bandi þeirra. Líka fyrir bLendinga Hallgerður Kata Óðinsdóttir kynntist hundafimi fyrst fyrir átta árum. Hún átti þá blendingshund og komst að raun um að þó blendingum stæði ekki þátttaka í margs konar mót- um til boða voru þeir velkomnir í hundafimina. Eftir þetta var ekki aftur snúið hjá Kötu. „Fyrst og fremst skap- ar hundafimin sterk tengsl á milli stjórnanda og hundsins,“ segir Kata. Undanfarin tvö ár hefur hún starfað sem þjálfari í hundafimi hjá íþróttadeild Hundaræktunarfé- lags Íslands. Í frístundum æfir hún hundafimi með hundinum sínum honum Móra sem er sextán mánaða gamall ástralskur fjárhundur. Hund- ar þurfa að vera orðnir árs gamlir til að taka þátt í hundafiminni en ann- ars eru allir velkomnir sem hafa lok- ið viðurkenndu grunnnámskeiði í hlýðni og lyndir vel við aðra hunda. agaðir og ánægðir Hundarnir fá mikla útrás í hundafiminni því auk þess að hreyfa sig þurfa þeir á allri sinni einbeit- ingu að halda til að leysa þrautirnar. Útkoman er því oftar en ekki agaðri og ánægðari hundur. Ef hundurinn gerir mistök má ekki skamma hann heldur er honum leiðbeint til betri vegar. Hundafimin getur því byggt upp sjálfstraust hundsins að sögn Kötu. Sérstakir unglingatímar í hundafimi standa til boða hjá HRFÍ og segir Kata þar greinilegt hversu góð áhrif æfingarnar hafi á tengsl- in innan fjölskyldunnar. „Við höfum fengið athugasemdir frá foreldrum um að þetta hafi alveg bjargað heim- ilishaldinu því hundurinn hafi verið byrjaður að troða sér upp virðingar- röðina. Þegar unglingarnir læra að stjórna hundunum mynda þau sér- stök tengsl og hundurinn fer að bera meiri virðingu fyrir þeim,“ segir hún. Hundar keppa Hvert námskeið í hundafimi stend- ur yfir í átta vikur og eru hundar þá taldir hafa náð grunnfærni. Kata segist sjálf æfa með Móra sínum minnst einu sinni í viku en til að ná framförum þurfi að æfa oftar með hundinum. HRFÍ stendur reglulega fyrir mótum þar sem hundarnir keppa sín á milli í nokkrum flokkum þar sem barist er um Íslandsmeistara- titilinn í hundafimi. Hvorki er hins vegar nauðsyn né krafa að keppa í hundafiminni enda láta margir sér nægja að stunda hana einungis ánægjunnar vegna. erla@dv.is Hundar af öllum stærðum og gerðum leysa hinar ýmsu þrautir undir dyggri stjórn eiganda síns í hundafimi sem nýtur vaxandi vinsælda hér á landi. Hallgerður Kata Óðinsdóttir kynntist hundafiminni fyrir átta árum og varð strax heilluð. Hún segir æfingarnar styrkja tengslin milli eiganda og hunds. ÞrauTakÓngur í hundafimi Hugrakkur Ástralski fjárhundurinn Móri er þegar orðinn lunkinn í hundafiminni þótt hann sé aðeins sextán mánaða gamall. Hér hefur hann sig til stökks. Á vegasaltinu Hallgerður Kata Óðinsdóttir og ástralski fjárhundurinn Móri æfa hundafimi hvenær sem tími gefst og hafa bæði reglulega gaman af. Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is Fjarstýrðir bensínbílar í miklu úrvali. KOMDU Í ÁSKRIFTHringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.