Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Side 24
Hinrik Bjarnason fyrrv. dagskrárstjóri Hinrik fæddist í Ranakoti á Stokks- eyri. Hann stundaði nám við Leik- skóla Lárusar Pálssonar 1952- 54, lauk kennaraprófi frá KÍ 1954, stundaði nám í félagsfræði í Dan- mörku og Svíþjóð 1958-59 og í Bandaríkjunum með Fulbrightstyrk 1959-60, sótti námskeið í upptöku- stjórn kvikmynda og sjónvarps- þátta hjá sænska sjónvarpinu 1968 og hefur sótt fjölda námskeiða í uppeldis- og kennslufræði, tóm- stunda- og æskulýðsstarfi, kvik- myndagerð og sjónvarpsstörfum. Hinrik var starfsmaður á Kefla- víkurflugvelli 1953-56, skólastjóri Vistheimilisins í Breiðuvík 1956- 58, kennari við Breiðagerðisskóla 1960-63 og Réttarholtsskóla 1963- 71, framkvæmdastjóri Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur 1971-79, stundaði þáttagerð við Sjónvarpið 1966-75, var fyrsti umsjónarmaður Stund- arinnar okkar, starfaði hjá Norð- urlandasambandi sjónvarpsstöðva við gerð norrænna barna- og ungl- ingaþátta 1969 og 1970, var deildar- og dagskrárstjóri lista- og skemmti- deildar Sjónvarps 1979-85 og var deildarstjóri innkaupa- og mark- aðsdeildar Sjónvarps frá 1985-2000 er hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Hinrik sat í stjórn Bandalags ís- lenskra listamanna 1972-76, í fram- kvæmdanefnd alþjóðaárs barns- ins 1979, í stjórn Kvikmyndasjóðs í nokkur ár frá stofnun 1979, auk þess sem hann hefur gegnt ýms- um trúnaðarstörfum í stéttarfélög- um kennara, borgarstarfsmanna og fyrir Félag kvikmyndagerðar- manna. Komið hafa út jólasöngtextar eftir Hinrik 1969 og 1987, auk þess sem hann er handritshöfundur að ýmsum leiknum sjónvarpsþáttum. Hann hefur starfað ötullega innan Rotary-hreyfingarinnar á Íslandi og var m.a. íslenskur ritstjóri Rot- ary Norden 2006-2009. Fjölskylda Hinrik kvæntist 23.3. 1963 Kol- finnu Bjarnadóttur, f. 30.5. 1937, kennara. Hún er dóttir Bjarna Jón- assonar, bónda og fræðimanns í Blöndudalshólum, og Önnu Sigur- jónsdóttur húsfreyju. Börn Hinriks og Kolfinnu eru Bjarni, f. 6.9. 1963, myndlistarmað- ur og tölvugrafíker og er sonur hans og Dönu Fisarova Jónsson, Breki Bjarnason, f. 12.1. 1994; Anna, f. 9.6. 1965, fjölmiðlafræðingur og menningarmiðlari, verkefnastjóri við hugvísindadeild HÍ. Systkini Hinriks: Valgerður, f. 7.8. 1936, húsmóðir í Reykjavík; Kristín Sigrún, f. 26.5. 1938, hús- móðir í Reykjavík; Sigurður, f. 10.11. 1940, tannlæknir í Reykjavík; Guð- jón, f. 10.11. 1940, fyrrv. húsvörður, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Hinriks: Bjarni Sig- urðsson, f. 6.8. 1893, d. 16.11. 1954, bóndi og formaður í Ranakoti á Stokkseyri, og k. h., Þuríður Guð- jónsdóttir, f. 19.4. 1900, d. 10.4. 1963, húsfreyja. Ætt Bjarni var sonur Sigurðar, for- manns í Ranakoti, bróður Valgerð- ar, ömmu Bjarna Guðnasonar próf- essors. Sigurður var sonur Hinriks, b. í Hallskoti Jónssonar, bróður Þorkels, langafa Salome Þorkels- dóttur, fyrrv. alþingisforseta. Móð- ir Hinriks var Ólöf Þorkelsdóttir, systir Símonar, langafa Jóhanns í Mundakoti, afa Ragnars í Smára, föður Jóns, fyrrv. sjónvarpsstjóra. Móðir Ólafar var Valgerður Ara- dóttir, b. í Neistakoti Jónssonar, á Eystri-Roðarhól Bergssonar, ætt- föður Bergsættar Sturlaugssonar. Móðir Sigurðar var Guðríður, syst- ir Jóns, langafa Brynju Benedikts- dóttur leikstjóra, móður Benedikts Erlingssonar, leikara og leikstjóra. Móðir Bjarna var Kristín, syst- ir Þuríðar, móður Páls Ísólfssonar tónskálds. Kristín var dóttir Bjarna, formanns í Símonarhúsum Jóns- sonar, þar Bjarnasonar. Móðir Jóns var Valgerður Bjarnadóttir. Móðir Valgerðar var Guðrún Guðmunds- dóttir, ættföður Kópsvatnsættar- innar Þorsteinssonar. Þuríður var dóttir Guðjóns, b. á Haugi Þorkelssonar, og Valgerð- ar Gestsdóttur, b. í Forsæti Guðna- sonar, b. í Syðri-Gróf Jónssonar, í Seljatungu Guðnasonar. Móðir Jóns var Valgerður Guðmundsdótt- ir, systir Brynjólfs, langafa Þuríð- ar, móður Þorsteins Erlingssonar skálds. Móðir Valgerðar var Þuríð- ur Gamalíelsdóttir, b. á Gafli í Flóa Gestssonar, b. á Hæli Gamalíels- sonar, bróður Gísla á Hæli, langafa Eiríks alþm., Gests, föður Steinþórs alþm. á Hæli, og Ingigerðar, ömmu Ingimundar Sveinssonar arkitekts. Systir Þuríðar var Valgerður Gam- alíelsdóttir, langamma Guðbergs Bergssonar rithöfundar. Guðrún fæddist á Akranesi en ólst upp í Veiðilæk í Þverárhlíð. Hún var í barnaskóla í Þverár- hlíð. Hún flutti til Reykjavíkur 1941, var þar í vist og starfaði í Vinnufatagerðinni um skeið. Síðan tóku við heimilisstörf og barnauppeldi. Guðrún starfaði hjá Mæðra- styrksnefnd í tíu ár og sat þar í stjórn. Hún er einn af stofnend- um Fjölskylduhjálpar Íslands, hefur setið í stjórn félagsins frá stofnun og er þar nú varafor- maður. Fjölskylda Guðrún giftist 22.5. 1948 Garð- ari Óskarssyni, f. 27.7. 1927, d. 30.1. 1990, vél- stjóra. Dóttir Guð- rúnar er Hafdís Björk Hannes- dóttir, f. 12.7. 1943, húsmóðir í Reykjavík. Börn Guðrúnar og Garðars eru Magnús Óskar Garðarsson, f. 8.3. 1946, d. 31.5. 1994, sjómaður í Reykjavík; Sigurborg Elísabet Garðarsdóttir, f. 27.8. 1947, bú- sett í Bandaríkjunum; Ásdís Est- er Garðarsdóttir, f. 8.8. 1948, d. 10.5. 2004, húsmóðir í Grundar- firði; Hafsteinn Þór Garðarsson, f. 3.7. 1952, verslunarmaður í Garðabæ; Bryndís Erna Garð- arsdóttir, f. 14.1. 1960, d. 23.5. 2000, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Guðrúnar voru Magnús Finnsson, bóndi í Stapa- seli í Stafholtstungum, og Sigríð- ur Guðmundsdóttir, frá Hvols- stöðum í Hvítársíðu, húsfreyja. Guðrún Magnúsdóttir varaformaður fjölskylduhjálpar Íslands Anna Helga Sigfúsdóttir sem er leikskólakennari í Reykjavík er þrí- tug í dag. Maður hennar er Jón Bjarni Björnsson tölvunarfræð- ingur og eiga þau fjögurra mánaða gamlan son auk þess sem Anna Helga á eina stjúpdóttur. Anna Helga vissi nákvæmlega hvernig hún ætlar að haga afmæl- ishaldinu þegar DV ræddi við hana í gær og var augljóslega búin að sjá fyrir öllu: „Já já, ég er búin að ákveða þetta allt saman. Ég verð með pinnamat og léttar veitingar fyrir vinkonurn- ar og vinnufélagana heima hjá mér að kvöldi afmælisdagsins og býð svo fjölskyldunni í matarmikla súpu með góðu brauði um helgina. Það er alltaf heimilislegt að vera með góða súpu og brauð. Það er líka óneitanlega hagkvæmt þegar um er að ræða stór- an hóp eins og í mínu tilfelli. Þetta verður því tvíheilagt afmæli ef svo má segja. Svo getur auðvitað vel verið að við hjónin skreppum út að borða - við sjáum til.‘‘ Áttu þér eftirminnilegt afmæli ef þú lítur um öxl? ,,Já, það er tvímælalaust fyrsta afmælið mitt eftir að við byrjuðum saman, ég og maðurinn minn. Hann lagði hart að mér að gera engar ráð- stafanir á sjálfan afmælisdaginn, kom síðan með stórt rósabúnt og morgun- mat í rúmið, síðan var farið í Bláa lón- ið og svo endað með því að fara út að borða á glæsilegan stað um kvöldið. Þetta var afar rómantískur dagur og auðvitað alveg ógleymanlegur.‘‘ 85 ára í dag Anna Helga þrítug: tvÍheilagt hjá önnu 30 ára n Ewa Reszel Víkurbraut 9, Sandgerði n Ásdís Fjóla Gunnarsdóttir Bergvegi 14, Reykja- nesbæ n Þorsteinn Tandri Helgason Vallakór 3, Kópavogi n Guðjón Ólafur Guðbjörnsson Engihjalla 13, Kópavogi n Friðný Rut Haraldsdóttir Skottugili 1, Akureyri n Guðrún Inga Benediktsdóttir Nýlendugötu 20, Reykjavík n Margrét Halldóra Ásgeirsdóttir Hólmvaði 60, Reykjavík n Sigurkarl Bjartur Rúnarsson Flókagötu 60, Reykjavík 40 ára n Brynhildur Jónsdóttir Grundartjörn 4, Selfossi n Guðmundur G Grétarsson Sléttahrauni 29, Hafnarfirði n Júlíus Kristján Thomassen Fjarðarstræti 9, Ísafirði n Björn B Ingimundarson Vaðlaseli 1, Reykjavík n Magnús Eiríkur Sigurðsson Skeiðarvogi 119, Reykjavík n Inga Lóa Guðjónsdóttir Víðihvammi 9, Kópavogi n Soffía Reynisdóttir Lindarbrekku, Mosfellsbæ n Aðalsteinn Bjarnason Flúðaseli 8, Reykjavík n Svanborg Bergmannsdóttir Presthúsabraut 34, Akranesi n Björn Sæberg Sæmundsson Ránargötu 20, Akureyri 50 ára n Bryndís Margrét Sigurðardóttir Fiskakvísl 30, Reykjavík n Rut Brynjarsdóttir Stuðlabergi 20, Hafnarfirði n Guðmundur I Björgvinsson Brautarholti 4, Reykjavík n Agnes Margrét Garðarsdóttir Fífumóa 10, Reykjanesbæ n Brandur Matthíasson Huldulandi 5, Reykjavík n Sigríður Sigurðardóttir Flókagötu 39, Reykjavík n Kristján Lúðvík Möller Heiðarvegi 49, Vestmanna- eyjum n Bryndís Vilbergsdóttir Framnesvegi 8a, Reykjavík n Erla Ásgrímsdóttir Sólvallagötu 12, Reykjanesbæ n Sigríður Hallgrímsdóttir Krókatúni 12, Akranesi 60 ára n Romualda Kowalczyk Reykjabyggð 20, Mosfellsbæ n Kjartan Ólafsson Rekagranda 4, Reykjavík n Jón G Guðmundsson Hafnargötu 20, Vogum n Kristín Pétursdóttir Dalbraut 27, Bíldudal n Steinn Pétursson Austurvegi 8, Hrísey n Bjarni Sigurðsson Frostafold 25, Reykjavík n Sigríður Ágústsdóttir Laugateigi 9, Reykjavík n Kolbrún Óskarsdóttir Galtalind 15, Kópavogi n Björgólfur Björnsson Berjarima 28, Reykjavík n Halldór Matthíasson Gullteigi 12, Reykjavík 70 ára n Georg Jón Jónsson Kjörseyri 2, Stað n Erna Elíasdóttir Vallarbraut 2, Akranesi n Gunnar Vilhelmsson Hólagötu 3, Sandgerði n Valdimar Lúðvík Gíslason Völusteinsstræti 22, Bolungarvík 75 ára n Anna Margrét Sigurðardóttir Saurbæ, Reykjavík n Sigrún Runólfsdóttir Ásbrandsstöðum, Vopnafirði n Vigfús Jónsson Hlynsölum 5, Kópavogi n Sigríður Axelsdóttir Víkurbraut 30, Höfn í Horna- firði n Jónas Hólmsteinsson Álftamýri 56, Reykjavík 80 ára n Karólína Jónsdóttir Ærlækjarseli 1, Kópaskeri n Stefán Ólafsson Hjallabraut 33, Hafnarfirði 85 ára n Halla Eiríksdóttir Hraunbæ 86, Reykjavík Til hamingju með afmælið! 75 ára í dag 30 ára n Rati Rohini Srivastava Þórunnarstræti 91, Ak- ureyri n Stanislav Kralik Hamraborg 7, Kópavogi n Marcin Mariusz Stefanowicz Löngufit 8, Garðabæ n Michelle Banalo Gancina Gullengi 37, Reykjavík n Sigrún Guðnadóttir Háaleitisbraut 109, Reykjavík n Pétur Marel Gestsson Eskivöllum 1, Hafnarfirði n Sigurður Fannar Þórsson Brekkukoti, Selfossi n Jón Þorgeir Guðbjörnsson Drekavöllum 26, Hafnarfirði n Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir Garðastræti 2, Reykjavík n Jörundur Ragnarsson Brávallagötu 24, Reykjavík n Berglind Helga Jónsdóttir Hagamel 53, Reykjavík n Dagbjört Rós Hermundsdóttir Víðigrund 14, Sauðárkróki n Hlynur Gauti Sigurðsson Einbúablá 20b, Egils- stöðum n Harpa Júlía Sævarsdóttir Brávallagötu 18, Reykjavík n Sif Gunnarsdóttir Bjallavaði 15, Reykjavík n Steinunn Garðarsdóttir Gunnarssundi 6, Hafn- arfirði 40 ára n Wojciech Stefan Wiater Hafnarbraut 11, Kópavogi n Ólafur Geirsson Hverfisgötu 50, Reykjavík n Alida Jakobsdóttir Þverási 23, Reykjavík n Össur Hafþórsson Kríuási 33, Hafnarfirði n Silja Stefánsdóttir Álfholti 56b, Hafnarfirði n Dagbjört Ingólfsdóttir Kvisthaga 16, Reykjavík n Heiðrún Jónsdóttir Ásbúð 21, Garðabæ 50 ára n Malgorzata Jolanta Wypych Heiðarholti 36, Reykjanesbæ n Magnús Hermannsson Úthaga 13, Selfossi n Tryggvi Harðarson Dísarási 3, Reykjavík n Gísli Bachmann Stuðlabergi 58, Hafnarfirði n Björgvin Sævar Matthíasson Jaðarsbraut 23, Akranesi n Þorgerður Hanna Hannesdóttir Baldursgötu 21, Reykjavík n Jens Ágúst Jóhannesson Lindasmára 37, Kópa- vogi n Guðmunda Ingimundardóttir Hjallabrekku 33, Kópavogi n Alda Ólöf Vernharðsdóttir Fífulind 4, Kópavogi n Bjarni Hávarðsson Hlíðarendavegi 5a, Eskifirði n Eygló Kristinsdóttir Áshamri 60, Vestmannaeyjum n Vilhjálmur Jón Valtýsson Birkimel, Húsavík 60 ára n Jón Kristjánsson Gilsárteigi 1, Egilsstöðum n Sólveig Jónsdóttir Breiðvangi 75, Hafnarfirði n Berglind Einarsdóttir Grenigrund 2, Selfossi n Þórður B Bachmann Berugötu 30, Borgarnesi n Signý Bjarnadóttir Reiðvaði 1, Reykjavík n Sigurður Þór Vilhjálmsson Hlíðargötu 26, Nes- kaupstað n Hjördís Matthíasdóttir Garðabyggð 8, Blönduósi n Jón Baldvin Pálsson Víðigrund 9, Kópavogi n Sigrún Aðalbjarnardóttir Hvassaleiti 89, Reykja- vík 70 ára n Ása Jónsdóttir Austurgerði 3, Kópavogi n Sverrir Jónsson Hlíðarvegi 61, Kópavogi n Ásta Sveinbjörnsdóttir Flyðrugranda 4, Reykjavík 75 ára n Sigríður Jóna Árnadóttir Háhæð 7, Garðabæ 80 ára n Erla Tryggvadóttir Bakkavör 40, Seltjarnarnesi n Þórður Baldur Sigurðsson Klapparhlíð 3, Mos- fellsbæ n Kristján Garðarsson Skaftahlíð 10, Reykjavík n Ingveldur L Gröndal Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík 85 ára n Jóna Helgadóttir Hraunvangi 3, Hafnarfirði n Ólafur Gunnar Jónsson Brekkugötu 15, Vogum n Baldur Guðmundsson Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík n Ásmundur Guðlaugsson Kirkjusandi 3, Reykjavík 90 ára n Jón Jónsson Árskógum 8, Reykjavík Til hamingju með afmælið! 8. júlÍ 9. júlÍ 24 miðvikudagur 8. júlí 2009 ættfræði auglýsingasíminn er 512 70 50 Anna Helga Sigfúsdóttir Ég verð með pinnamat og léttar veitingar fyrir vinkonurnar og vinnufélagana heima hjá mér að kvöldi afmælisdagsins .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.