Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 4
4 miðvikudagur 9. september 2009 fréttir
„Ísland verður blessað með alþjóðleg-
um mótorhjólaklúbbi,“ segja forsvars-
menn Hells Angels í Noregi aðspurð-
ir hvort það að Vítisenglar nái fótfestu
á Íslandi muni breyta einhverju hér á
landi. Blaðamaður DV sendi klúbbn-
um skriflega fyrirspurn með nokkrum
spurningum og barst svar frá klúbbn-
um í heild, ekki einum tilteknum aðila
innan hans.
Hvorki játa né neita
Norski klúbburinn skilur ekkert í því
af hverju íslensk stjórnvöld vilja banna
klúbbinn.
„Á hverju er það byggt? Hefur Hells
Angels MC framið einhverja glæpi á Ís-
landi sem gefur stjórnvöldum ástæðu
til að banna klúbbinn?“
Norsku Vítisenglarnir segjast skil-
greina Hells Angels MC sem alþjóðleg-
an mótorhjólaklúbb. Aðspurðir hvern-
ig þeir svara þeim ásökunum lögreglu
og yfirvalda að samtökin séu alþjóðleg
glæpasamtök sem stuðli að alvarlegum
glæpum eins og fíkniefnasölu og morð-
um hvorki neita þeir þeim né játa.
„Réttað hefur verið í slíkum málum
í öllum þremur dómstigunum í Nor-
egi oft og mörgum sinnum og niður-
stöðurnar hafa alltaf verið þær sömu.
Dómsmálayfirvöld hafa alltaf vísað
þessum málum frá.“
Rétt ákvörðun
Norsku Vítisenglarnir þurfa ekki að
hugsa sig tvisvar um þegar þeir eru
spurðir hvort þeir myndu hjálpa
klúbbnum á Íslandi að berjast við ís-
lensk stjórnvöld ef þau banna Hells
Angels.
„Já,“ segja þeir. Þeir segja það
hafa afskaplega góða þýðingu fyr-
ir klúbbinn á Íslandi að hafa stöðu
væntanlegra félaga.
„Það er staðfesting fyrir þá að
þeir hafi tekið rétta ákvörðun fyrir
klúbbinn sinn um ókomin ár.“
Samfélagsógn
Vélhjólaklúbburinn Fáfnir MC var
lagður niður fyrir stuttu og hefur
klúbburinn nú stöðu væntanlegra
félaga í Hells Angels. Samkvæmt
upplýsingum frá embætti lögreglu-
stjóra fær klúbburinn fulla aðild að
Hells Angels seinnipart næsta árs.
Ríkislögreglustjóri hefur skil-
greint Vítisengla sem alþjóðleg
glæpasamtök og ógn við samfé-
lagið. Sérstakur stýrihópur hefur
verið starfræktur innan embættis-
ins um árabil og hefur þeim mögu-
leika verið varpað fram að lögum
yrði breytt til að banna Hells Ang-
els og önnur slík samtök.
Engir skátar
Meðlimir Vítisengla vísa ásökun-
um um glæpastarfsemi iðulega á
bug og segja meðlimi klúbbsins
meinlausa fjölskyldufeður með
áhuga á mótorhjólum.
Í helgarblaði DV var viðtal við
íslenskan mann sem var meðlimur
í skandinavískum klúbbi sem sótt-
ist eftir inngöngu í Hells Angels.
Hann sagði allt slæmt sem sagt er
um Vítisengla rétt.
„Meðlimir Vítisengla vinna
skítverkin oftast ekki sjálfir. Þeir
sem fremja fyrir þá glæpi, til dæm-
is morð, sitja inni og á meðan er
hugsað um fjölskyldu þeirra. Þetta
eru ekki skátarnir. [...] Það eru
framdir glæpir innan samtakanna,
til dæmis sala á eiturlyfjum. Að fá
Hells Angels hingað til Íslands er
eins og að fá Glæpir hf. útgáfuna
af MacDonalds, bara miklu alvar-
legra.“
Vélahjólaklúbburinn sem áður hét Fáfnir MC fær líklega inngöngu í Hells Angels-
samtökin á næsta ári. Forsvarsmenn Hells Angels í Noregi segja að staða þeirra sem
væntanlegra félaga sé staðfesting á því að þeir hafi tekið rétta ákvörðun fyrir klúbb-
inn. Þeir segja ekkert sannað um að Hells Angels séu glæpasamtök.
BLESSUN AÐ FÁ
HELLS ANGELS
„Það er staðfesting fyrir þá að þeir hafi tekið rétta
ákvörðun fyrir klúbbinn sinn um ókomin ár.“
lilja KatRín gunnaRSdóttiR
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Hells angels blessi ísland Forsvarsmenn
Hells Angels í Noregi segja það rétta
ákvörðun hjá Fáfni að sækjast eftir aðild að
Vítisenglum. MYnd HEllS-angElS.no
Vítisenglar bannaðir Embætti ríkis-
lögreglustjóra vill ná fram lagabreytingu
til að banna samtök eins og Vítisengla.
Ný síða stofnuð til stuðnings Borghildi guðmundsdóttur:
Skrifar bók um ferlið
Borghildur Guðmundsdóttir, eða
Bogga eins og hún er oftast kölluð,
dvelur nú í Bandaríkjunum og bíð-
ur eftir að réttað verði í forsjármáli
hennar 15. október. Hún á tvo syni
með bandarískum manni, Richard
Colby Busching. Hæstiréttur á Ís-
landi komst að þeirri niðurstöðu
fyrir stuttu að hún skyldi fara aft-
ur til Bandaríkjanna með drengina
eftir að hafa verið á landinu síðan í
janúar árið 2008.
Nú hefur verið stofnuð ný síða
til stuðnings Boggu á Facebook
sem heitir Hjálparsíða Boggu. Fyrir
var til stuðningssíða þar sem safn-
að var pening fyrir Boggu. Á nýju
síðuna mun systir hennar, Sig-
rún Guðfinna Björnsdóttir, kölluð
Ninna, setja inn allt sem hún hef-
ur lært af máli systur sinnar, bæði
gott og vont. Þá getur fólk einn-
ig miðlað reynslu sinni á síðunni,
undir nafni eða nafnlaust.
Þá skrifar Ninna á síðuna að
þær systur hafi verið að tala um
að skrifa bók um „... allt þetta ferli
sem hún [Bogga] hefur gengið í
gegnum og á eftir að ganga í gegn-
um.“ Ninna biður um hjálp ein-
hvers sem þekkir inn á starfsemi
bókaforlaganna.
„Ætli það sé ekki hægt að selja
bókaforlagi hugmyndina með alla
vega hluta af greiðslunni fyrirfram
og fá svo rithöfund eða blaða-
mann/konu til að hjálpa okkur að
skrifa bókina. Blaðamaðurinn eða
rithöfundurinn gæti fengið tæki-
færi til að fylgjast náið með rest-
inni af ferlinu og kynnast Boggu
og börnunum. Þetta gæti virkilega
hjálpað með fjármálin líka,“ skrif-
ar Ninna.
Í helgarviðtali við DV fyrir stuttu
sagði Bogga að ekki væri mikið eftir
af peningunum sem söfnuðust fyrir
ferðina þar sem lögfræðikostnaður
vestan hafs væri mjög hár.
„Ég held í vonina að mér verði
veitt aðstoð heima. Ég get bara von-
að að fólk geti séð af nokkrum krón-
um og lagt okkur lið. Það hljómar
kannski skringilega en ég bara get
ekki gefist upp þó útlitið sé svart
fjárhagslega.“
Á Íslandi er hægt að styðja Borg-
hildi með því að leggja inn á reikn-
inginn 0323-26-004436, kt. 290976-
4219. Í Danmörku er reikningurinn
í Danske Bank reg. nr. 3627 og kont-
onr. 3617161532. liljakatrin@dv.is
Berst fyrir börnunum Bogga á tvo
drengi með bandarískum manni, Brian
sem er níu ára og Andy sem er fjögurra ára.
Eldur í sófa
Slökkvilið Reykjavíkur slökkti
eld í íbúð á þriðju hæð í fjölbýli
að Álfaborgum í Grafarvogi á
sjötta tímanum í gær. Töluverð-
ur eldur var í sófa er slökkvilið
kom á staðinn en aðeins tók um
tíu mínútur að ráða niðurlögum
eldsins. Enginn var í íbúðinni en
töluverðar reykskemmdir eru á
henni og innbúi hennar.
Brunaði ölvuð
á salerni
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði
í fyrrakvöld ökumann bifreið-
ar sem mældist á 159 kílómetra
hraða. Ökumaðurinn, sem var
erlend kona, stöðvaði hins vegar
ekki strax eða ekki fyrr en hún
var komin á leiðarenda við Hótel
Rangá. Tvennt var í bifreiðinni,
karl og kona. Var um að ræða
erlenda ferðamenn á bílaleigu-
bíl og þegar konan var beðin um
að útskýra hraðaksturinn sagð-
ist hún hafa verið að drífa sig á
salernið.
Vill þjóðarsátt
um grunngildi
Sigmundur Ernir Rúnarsson al-
þingismaður segir að það skuli
aldrei verða svo að niðurskurður
komandi tíma bitni hlutfallslega
mest á þeim sem minnst hafa
borið úr býtum á síðustu árum.
„Það er út af fyrir sig óþolandi
að góðæri síðustu ára hafi ekki
verið notað til að treysta innviði
velferðarkerfisins.“ Sigmundur
segir á bloggsíðu sinni að það
verði ekki létt verk fyrir þing-
menn að skera samneysluna inn
að beini. Menn verði hins vegar
að þora að skera niður óþarf-
ann en láta hitt í friði sem varðar
mannréttindi.
Sparkað í höfuð
manns
Ein líkamsárás var kærð eftir
skemmtanahald helgarinnar í
Vestmanneyjum. Árásin átti sér
stað á Strembugötu aðfaranótt
sunnudagsins. Þar höfðu orðið
átök milli tveggja manna sem
voru á leið heim eftir að hafa
verið að skemmta sér í Höllinni.
Annar mannanna fékk spark í
höfuðið og var árásarmaðurinn
handtekinn í kjölfarið og fékk
að gista í fangageymslu lögreglu.
Kona, sem var í fylgd með árás-
armanninum, var einnig hand-
tekinn fyrir að hindra lögreglu
að störfum og fyrir að veitast að
lögreglu.