Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Side 4
4 mánudagur 23. nóvember 2009 fréttir
fyrrverandi
KÆraSTa
Kennir
SÉr UM
Lögreglumaðurinn Garðar Helgi
Magnússon sem ákærður hefur
verið fyrir líkamsárás í starfi er enn
við störf þrátt fyrir að mál hans sé
nú komið til kasta dómstóla. Fyrr-
verandi sambýliskona Garðars
Helga kærði hann á sínum tíma
fyrir líkamsárás en dró kæruna til
baka eftir að hann lofaði bót og
betrun.
„Þegar ég heyrði af þessu máli
leið mér eins og ég hefði brotið
gegn þessum dreng,“ segir sam-
býliskonan fyrrverandi. Henni
finnst hún að hluta til bera ábyrgð
á því máli sem upp er komið þar
sem hún féll frá kærunni á hendur
Garðari Helga.
Segist saklaus
Ríkissaksóknari lagði fram ákæru
á hendur Garðari Helga þar sem
honum er gefið að sök að hafa
sem stjórnandi lögregluaðgerðar
fyrirskipað öðrum lögreglumanni
að aka með handtekinn mann,
fæddan 1987, frá Austurstræti út á
Granda í Reykjavík þar sem hann
var skilinn eftir. Þá á Garðar Helgi
að hafa á leiðinni út á Granda
þrýst hné sínu á háls mannsins
þar sem hann lá handjárnaður í
tökum lögreglu á maganum á gólfi
lögreglubifreiðar þannig að mað-
urinn hlaut af áverka.
Málið var þingfest 22. október
og neitaði Garðar Helgi þá sök.
Það var síðan tekið fyrir hjá Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir rúmri
viku. Aðalmeðferð í málinu fer
fram 8. janúar.
Fékk „sjokk“
Fyrrverandi sambýliskona Garðars
Helga bjó með honum um nokk-
urra ára skeið. Eftir að ákæra ríkis-
lögreglustjóra var gefin út fékk DV
upplýsingar um að konan hefði lagt
fram kæru á hendur Garðari Helga
í nóvember 2007 vegna líkams-
árásar. Þegar blaðamaður hafði
samband við konuna vildi hún lít-
ið tjá sig um málið en gat staðfest
að hún tók aftur upp samband við
Garðar Helga eftir kærða árás þeg-
ar hann hafði lofað því að bæta ráð
sitt og fara í viðtalsmeðferð hjá sál-
fræðingi. „Hann bað mig þá um að
draga kæruna til baka því hann var
hræddur um að missa vinnuna. Í
sakleysi mínu gerði ég það,“ segir
hún en Garðar Helgi var þá þegar
orðinn lögreglumaður.
Nú hefur hún hins vegar sam-
viskubit yfir því að hafa ekki haldið
málinu til streitu og tekur fram að
bæði lögregla og saksóknari hafi
hvatt hana til að láta það ekki nið-
ur falla. „Ég fékk bara sjokk þegar
ég frétti af þessu nýja máli,“ segir
hún.
Við skýrslutöku hjá lögreglu
neitaði Garðar Helgi að hafa ráðist
á sambýliskonu sína fyrrverandi.
Óljósir málavextir
DV fjallaði um málið í síðasta
mánuði og var þá til skoðunar hjá
ríkislögreglustjóra hvort víkja ætti
Garðari Helga úr starfi á með-
an málaferlin standa yfir. Nú ligg-
ur hins vegar fyrir að hann fær að
starfa áfram eins og ekkert hafi í
skorist.
„Það var tekin ákvörðun um
það hjá embættinu að víkja hon-
um ekki heldur bíða niðurstöðu
dóms,“ segir Gísli Pálsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá ríkislög-
reglustjóra. „Meginskýringin er sú
að það er mat ríkislögreglustjóra
að málavextir séu mjög óljósir um
atriði sem kunna að varða ætl-
aða sök lögreglumannsins,“ segir
hann.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, er yfirmað-
ur Garðars Helga. Hann staðfestir
að Garðar Helgi hafi ekki heldur
verið færður til í starfi og sinnir því
sömu verkum og áður.
Garðar Helgi Magnússon er enn við störf sem lögreglumaður þrátt fyrir að ákæra gegn
honum vegna líkamsárásar sé fyrir dómstólum. Fyrrverandi sambýliskona Garðars
kærði hann fyrir líkamsárás fyrir tveimur árum. Þau náðu sáttum og hún dró kæruna
til baka. Nú hefur hún samviskubit yfir því að hafa ekki fylgt málinu eftir.
8 þriðjudagur 20. október 2009 fréttir
Garðar Helgi Magnússon lögreglu-
maður hefur verið ákærður fyrir lík-
amsárás í starfi og fyrir að hafa ekki
gætt lögmætra aðferða við hand-
töku. Garðar er enn við störf hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu en ríkislögreglustjóri hefur til
skoðunar hvort honum verði vikið
tímabundið úr starfi vegna málsins.
Búast má við niðurstöðu á næstu
dögum.
Ríkissaksóknari höfðar málið
gegn Garðari og verður það þing-
fest á fimmmtudag.
Áverkar eftir handtöku
Garðar Helgi er sakaður um að hafa
beitt pilt um tvítugt harðræði við
handtöku. Morgunblaðið greindi
frá málinu í ársbyrjun og ræddi við
móður piltsins. Hann var handtek-
inn eftir að hafa brúkað munn við
lögreglumenn fyrir utan skemmti-
stað í miðbæ Reykjavíkur.
„Hann lá á maganum á gólfi bílsins
og gat sig hvergi hreyft því lögreglu-
maður hélt honum niðri með því að
leggja þunga á höfuð hans og háls til
skiptis með hnjánum. Auk þess var
lögreglukylfa sett undir handjárnin
og lyft upp. Þannig kom mikil spenna
á axlir hans,“ sagði móðir hans í sam-
tali við Morgunblaðið í janúar.
Því næst hafi honum verið ekið út
á Granda þar sem hann var skilinn
eftir. Pilturinn var með áverka eftir
handtökuna, glóðarauga, sár í and-
liti og mar.
Beðið ákvörðunar
Hjá ríkislögreglustjóra fengust þær
upplýsingar að þegar málið kom
fyrst upp hefði verið tekin ákvörðun
um að halda Gunnari Helga í starfi
þar til ríkissaksóknari hefði lokið
sinni rannsókn. Þá yrði málið end-
urskoðað. Málið er nýlega komið aft-
ur inn á borð ríkislögreglustjóra þar
sem ákveðið verður á næstu dögum
hvort Gunnari Helga verður vikið frá
störfum á meðan málið er fyrir dóm-
stólum.
Lögreglan hefur heimild til vald-
beitingar en er skylt að beita ekki
meira valdi en aðstæður krefjast.
Slysaðist í lögguna
Garðar Helgi hefur starfað sem lög-
reglumaður í áratug. Hann var í við-
tali við DV nýverið þar sem hann lýsti
því hvernig dagur í lífi lögreglumanns
gengur fyrir sig. Þar sagðist hann eig-
inlega hafa slysast í starfið.
„Ég var í vinnu og átti erfiðan dag.
Ég vaknaði úrillur og fannst vinnan
leiðinleg og langaði að prófa eitthvað
nýtt. Svo heyrði ég að það vantaði í
lögguna þar sem ég var. Allt í einu var
ég bara kominn í lögguna. Bara upp á
djókið. Ég var ekki með neina löggu-
drauma þegar ég var krakki. Ég hafði
aldrei neinn áhuga á lögreglunni
og ætlaði ekki í lögregluna. En allt í
einu var ég kominn í lögguna og ég er
hérna enn þá,“ sagði Garðar.
Mætir vanvirðingu
Garðar Helgi sagði blaðamanni frá
því að honum og fjölskyldu hans
hefði verið hótað af því hann er lög-
reglumaður. Hann upplifir mikla
vanvirðingu í garð lögreglunnar.
„Að sjálfsögðu brá mér fyrst þeg-
ar ég byrjaði sem lögga. Hverjum
myndi ekki finnast það óeðlilegt að
vera kominn í vinnu og fólk drullar
yfir þig og segist ætla að lemja eða
drepa þig og fjölskylduna þína? Og
finnst það bara allt í lagi. Því þú ert
bara lögga,“ sagði hann í samtali við
DV.
„Ég fór í þessa vinnu og ég er í
þessari vinnu til að hjálpa fólki. Ég er
ekki að fá útrás fyrir einhverja valda-
fýsn,“ sagði Garðar.
Ekki náðist í Garðar Helga við
vinnslu fréttarinnar.
Lögreglan að störfum Handalögmál
við handtöku. Myndin tengist efni
fréttarinnar ekki beint. Mynd róBert reyniSSon
LÖGREGLUMAÐUR ÁKÆRÐ-
UR FYRIR LÍKAMSÁRÁS
„Ég er ekki að fá útrás
fyrir einhverja valda-
fýsn.“
erLa HLynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Garðari Helga
Magnússyni
Sleppt eftir yfir-
heyrslur í man-
salsmáli
Ekki verður krafist gæsluvarð-
halds yfir manni sem handtek-
inn var í fyrradag vegna rann-
sóknar á ætluðu mansali en
hann var yfirheyrður í gær og
látinn laus í kjölfarið. Yfirheyrsl-
ur fóru fram í málinu í gær og
ýmis gagnaöflun. Áfram er unn-
ið að rannsókninni af fullum
þunga en hún er á viðkvæmu
stigi og vill lögregla ekki tjá sig
frekar um hana að sinni.
Hrakinn hund-
ur á Holta-
vörðuheiði
Vegfarandi sem átti leið um
Holtavörðuheiðina kom
með Border Collie-hund á
lögreglustöðina á Ísafirði á
laugardag. Hundinn hafði
hann fundið uppi á Holta-
vörðuheiði, blautan og hrak-
inn. Hundurinn var ekki
með nein merki, þannig að
ekki er vitað um eiganda.
Lögreglan á Ísafirði lýsir eft-
ir eiganda hundsins og eru
þeir sem geta gefið einhverj-
ar upplýsingar um málið
beðnir um að hafa samband
við lögregluna á Vestfjörðum
í síma 450 3730.
Lamb í fundarsal
bæjarstjórnar
Lögreglan á Vestfjörðum fékk
heldur óvenjulegt mál inn á
borð til sín síðastliðinn þriðju-
dag. Einhver setti ómarkaða
lambgimbur inn í fundarsal
bæjarstjórnar Vesturbyggðar á
Patreksfirði. Ekki er vitað hver
var þar að verki, eða hver til-
gangurinn var. Greiðlega gekk
að handsama lambið og voru
gerðar viðeigandi ráðstafan-
ir þegar um ómarkað fé er að
ræða.
1200 sóttu um 50
flugfreyjustörf
Mikil ásókn er í störf flugfreyja
og -þjóna hjá Iceland Express. Í
tilkynningu frá félaginu kemur
fram að þegar hafi borist hátt
í 1.200 umsóknir en reiknað
er með að ráðið verði í 50 störf
vegna aukinna umsvifa. Um-
sóknarfresturinn átti að renna út
í dag en vegna mikillar ásóknar
hefur verið ákveðið að fram-
lengja frestinn til og með næsta
fimmtudegi.
Þrátt fyrir að skila mettapi sem stjórn-
arformaður Íslenska lífeyrissjóðs-
ins og vera settur af sem slíkur vegna
rannsóknar hjá sérstökum saksókn-
ara um meint lögbrot bauð Ingólfur
Guðmundsson viðskiptafræðingur sig
aftur fram til stjórnarsetu hjá sjóðn-
um. Hann var einn tuttugu og þriggja
umsækjenda sem kepptu um sex laus
stjórnarsæti og var í gærkvöld kjörinn
varamaður í stjórn til næstu tveggja
ára.
Á síðasta ári skilaði Íslenski lífeyr-
issjóðurinn, sem var þjónustaður af
Landsbankanum, afar neikvæðri rau-
návöxtun, eða tapi upp á rúm 30 pró-
sent. Útkoman er talsvert yfir meðal-
tapi annarra lífeyrissjóða og heimildir
DV herma að fjölda sjóðsfélaga mis-
bjóði framboð fyrrverandi stjórnarfor-
mannsins. Í kjölfar slæmrar afkomu
og grunsemda Fjármálaeftirlitsins um
lögbrot í starfsemi sjóðsins var Ingólfi
vísað úr starfi og sérstökum saksókn-
ara falið að rannsaka hvort hann hefði
brotið lög, í félagi við samstarfsmenn
sína í stjórninni. Sú rannsókn er enn
í gangi og niðurstöður liggja ekki fyrir.
Engu að síður bauð Ingólfur sig aftur
fram til stjórnarsetu.
Lára Júlíusdóttir, lögfræðingur og
tilsjónarmaður Íslenska lífeyrissjóðs-
ins, staðfestir að Ingólfi, ásamt allri
stjórn sjóðsins, hafi verið vikið úr starfi
vegna rannsóknar á hugsanlegum lög-
brotum. Aðspurð vill hún ekki tjá sig
um hvort framboð hans sé óeðlilegt og
bendir á að það sé sjóðsfélaga að velja
í stjórnina. „Ef þeir sjá að einhver hef-
ur tapað öllum þessum peningum er
það þeirra að velja og hafna. Þeir eiga
völina og kvölina. Maður skyldi ætla
að horft sé til þessarar afkomu,“ segir
Lára.
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, við-
urkennir að afkoma sjóðsins hafi ekki
verið góð í fyrra. Hann segir þó mikil-
vægt að skoða afkomuna til lengri tíma
litið. „Þetta er auðvitað afar slæm af-
koma og almennt hafa aðrar eins tölur
og í fyrra ekki sést. Við verðum að huga
að ávöxtun til lengri tíma litið því það
getur verið erfitt að skoða mjög þröngt
tímabil. Miðað við meðalávöxtun sjóð-
anna eru þetta hins vegar ekki glæsi-
legar tölur,“ segir Hrafn. trausti@dv.is
Bauð sig fram þrátt fyrir mettap
Lífís Íslenski lífeyrissjóðurinn var
þjónustaður af Landsbankanum
en síðar færður í hendur tilsjón-
armanns eftir mettap í fyrra.
Erla HlynSdÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Hann bað mig þá
um að draga kæruna
til baka því hann va
hræddur um að mi s
vinnuna.“
neitar sök Garðar Helgi
Magnússon neitaði sök
þegar hann mætti fyrir
dóm. Ríkissaksóknari
lagði fram ákæru gegn
honum og bíður málið
aðalmeðferðar.
Mynd rakEl ÓSk
20. október 2009
Maðurinn sem féll ofan í bygging-
argrunn á sumarbústaðalóð við
Flúðir í fyrrinótt með þeim afleið-
ingum að sjö steypustyrktarjárn
stungust í líkama hans er alvarlega
slasaður. Samkvæmt upplýsingum
frá vakthafandi lækni á gjörgæslu-
deild Landspítalans í gærkvöldi var
manninum haldið sofandi í öndun-
arvél. Hann fór í mikla aðgerð sem
lauk seinni hluta dags í gær.
Maðurinn, sem er á fertugsaldri,
var í sumarbústaðnum ásamt for-
eldrum sínum og systkinum þeg-
ar slysið varð. Fallið var rúmir fjór-
ir metrar, frá palli sumarhússins og
niður í byggingargrunninn.
Fjölmennt lið lögreglu- og
sjúkraflutningamanna kom á stað-
inn og þurfti að beita klippum
til losa manninn frá byggingar-
grunninum en ekki þótti ráðlegt
að fjarlægja styrktarjárnin fyrr en
á spítalann var komið. Samkvæmt
heimildum blaðsins var maður-
inn með meðvitund á meðan sag-
að var á vírana til að losa þá þannig
að hægt væri að flytja manninn á
sjúkrahús.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út og flutti manninn á Land-
spítalann um klukkan fjögur að-
faranótt sunnudags. Maðurinn fór
strax í aðgerð þegar á spítalann var
komið en henni lauk ekki fyrr en
um hálfum sólarhring síðar.
Sjö steypustyrktarjárn stungust í líkama manns sem féll ofan í byggingargrunn:
Haldið sofandi í öndunarvél
alvarlega slasaður
Maðurinn liggur þungt haldinn
á Landspítalanum. Fjölmennt
lið lögreglu- og sjúkraflutninga-
manna kom að því að klippa
hann lausan frá grunninum.
Jóhanna
styggir vG
Ummæli Jóhönnu Sigurðardótt-
ur um suðvesturlínu sem hún
lét falla í ræðu á flokkstjórnar-
fundi Samfylkingarinnar á laug-
ardag féllu í grýttan jarðveg hjá
þingmönnum vinstri grænna að
því er fram kom í kvöldfréttum
Stöðvar 2 í gær. Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra sagði
Jóhönnu verða útskýra ummæli
sín áður en hún tjái sig um þau.
Jóhanna sagðist í ræðunni vera
sannfærð um að öllum hindrun-
um í vegi suðvesturlínu, sem sé
forsenda fyrir þróun orkuháðs
iðnaðar á þessu svæði, verði rutt
úr vegi þannig að framkvæmd-
ir við hana geti hafist á næsta
sumri.
Bílvelta á Vest-
urlandsvegi
Ökumaður missti stjórn á bíl
sínum í hálku á Vesturlands-
vegi aðfaranótt sunnudags
með þeim afleiðingum að
bíllinn fór nokkrar veltur. Að
sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi var tilkynnt um slysið
klukkan hálf eitt í nótt og
slasaðist ökumaðurinn, sem
var einn í bílnum, nokkuð.
Bifreiðin skemmdist mikið.
Mikil hálka var á þjóðvegum
landsins þessa nótt. Annað
óhapp tengt hálku varð í um-
dæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi þegar bifreið skautaði út
af veginum skammt norð-
an við Borgarnes með þeim
afleiðingum að hann endaði
utan vegar. Engin slys urðu á
fólki en talsverðar skemmdir
urðu á bifreiðinni.
Össur á Spáni
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisáðherra hefur undanfarna
daga verið í vinnuheimsókn á
Spáni, þar sem hann fundaði
með spænskum ráðamönnum
og kynnti sér spænskan sjávar-
útveg. Spánverjar taka eins og
kunnugt er við formennsku í
Evrópusambandinu af Svíum nú
um áramót.
Þyrlan sótti
veikan skipverja
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
veikan skipverja á hollensku
flutningaskipi í nótt en skip-
ið var á leið til Vestmannaeyja
og var væntanlegt þangað um
fimmleytið í nótt. Skipverjinn
fékk alvarlegt botnlangakast og
óskaði áhöfn flutningaskipsins
eftir aðstoð Landhelgisgæsl-
unnar.