Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Page 13
Tveggja
Turna Tal
neyTendur 23. nóvember 2009 mánudagur 13
guðbjörg maTThíasdóTTir, lögfræðingur Húseigendafélgsins, svarar fyrirspurnum.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
Fyrirspurn:
Ég bý í tvíbýli í sátt og samlyndi við
meðeiganda minn. Nú er hins vegar
svo komið að viðhald er aðkallandi
og meðeigandi minn er mjög tví-
stígandi og það er alveg sama hvað
búið er að ræða málin það næst
aldrei nein niðurstaða þannig að
það sé hægt að byrja. Einnig erum
við ekki klár á því hvað þarf að gera
í raun. Ég á meirihluta í eigninni en
vil ekki þvinga meðeiganda minn í
neitt enda veit ég að hann vill líka
fara í framkvæmdir. Hvað get ég
gert til þess að fá endanlega ákvörð-
un í viðhaldsmálum sem bindur
okkur bæði?
Svar:
Af frásögn þinni er ljóst að óform-
legir fundir hafa verið haldnir. Ein-
hver mynd hlýtur því að vera kom-
in á þá stefnu sem þið viljið taka. Oft
á tíðum er fengin úttekt á ástandi
húsa þegar óljóst er hvað gera þarf
í viðhaldsmálum. Viðkomandi út-
tektaraðili er þá einnig fenginn til að
setja upp verklýsingu og eftir atvik-
um forgangsraða verkum eftir mik-
ilvægi þannig að hægt sé að gera við
húsið í áföngum. Verkfræðistofur
bjóða slíka þjónustu ásamt eftirliti
með verkum. Húseigendafélagið er
einnig með á skrá óháða matsmenn
sem eru sjálfstætt starfandi og taka
að sér úttektir. Einnig er hægt að
fara þá leið að fá verktaka beint á
staðinn, án úttektar, og láta viðkom-
andi meta ástandið og koma með
tillögur og tilboð.
Þegar verklýsing liggur fyrir og
tilboð henni til samræmis er hægt
að taka nokkuð endanlega ákvörð-
un og hefjast handa. Ef ráða á úttekt-
araðila til að taka út ástand hússins
þurfið þið að halda fund um kostn-
aðinn því samfara. Þegar ástands-
skýrsla og verklýsing liggur fyrir
ásamt tilboðum er haldinn annar
fundur þar sem tekin er ákvörðun
um að ganga til samninga við til-
tekna verktaka. Í sumum tilfellum
eru haldnir fleiri fundir, þ.e. frá því
að úttekt liggur fyrir og þar til tilboð
eru samþykkt. Hér sannast mik-
ilvægi fundargerða þar sem fram
kemur að tiltekin ákvörðun hafi
verið tekin. Til þess að þetta nái allt
fram að ganga verður annað ykkar
í það minnsta að gangast í það að
boða til formlegs fundar samkvæmt
reglum laga um fjöleignarhús og sjá
til þess að ákvörðun verði tekin um
úttekt.
Að úttekt lokinni þarf einnig að
sjá til þess að tilboða verði leitað
og að fundur verði haldinn þar sem
ákvörðun er tekin um þau. Þegar
um ræðir tvíbýli hefur meirihluta-
eigandi nokkuð mikið vald til að
taka ákvarðanir um almennt við-
hald, jafnvel gegn neitun minni-
hlutans, að því gefnu að reglum laga
um fjöleignarhús hafi verið fylgt.
Meirihlutavaldi er hér sjaldan beitt
þar sem meðeigendur koma sér al-
mennt saman um ákveðnar leiðir
sem báðir eru sáttir við. Óháð því
hvort sátt ríki milli meðeigenda um
framkvæmdir skiptir sköpum að
báðir aðilar geri sér glögga grein fyr-
ir því hvers efnis ákvarðanir eru sem
teknar hafa verið.
Algengt er að meðeigendur ræði
saman í dyragættum, á bílaplönum
eða úti í garði og hvor aðili gengur
síðan til náða með ólíka mynd af
því sem koma skal. Slíkt er ávísun
á ágreining í framtíðinni, einkum
þegar um ræðir stærri framkvæmd-
ir. Þegar meðeigendur í tvíbýli fara
af stað í stórar framkvæmdir er vel
þekkt að ráðinn sé utanaðkomandi
aðili til að rita fundargerð og sjá um
fundarstjórnun. Húseigendafélagið
býður slíka þjónustu, jafnt fyrir fé-
lagsmenn sem utanfélagsmenn. Í
slíkum tilvikum fer fundarhald fram
undir leiðsögn og stjórn sérfræðinga
auk þess sem skýr fundargerð liggur
fyrir þannig að ekki verði hægt að
vefengja það sem fram fór.
Spurning:
Dóttir mín býr í félagslegri íbúð á
vegum Reykjavíkurborgar og er lát-
in greiða í hússjóð. Ber ekki íbúð-
areigandanum að greiða þetta, þ.e.
Reykjavíkurborg, en ekki henni?
Svar:
Félagsbústaðir eru með staðlaða
húsaleigusamninga um íbúðarhús-
næði. Í þeim kemur fram að leigj-
anda beri að greiða kostnað vegna
notkunar vatns, rafmagns og rekstr-
arkostnað húsfélags. Hafi dóttir þín
skrifað undir slíkan samning er ekk-
ert óeðlilegt við það að hún greiði
hússjóðsgjöld að því marki sem þau
eru innheimt til að standa straum af
almennum rekstri. Nefnd ákvæði í
hinum stöðluðu leigusamningum
eru í samræmi við húsaleigulög.
Hér er því ekkert óeðlilegt á ferð-
inni. Hins vegar gildir að leigjend-
ur sem greiða hússjóð samkvæmt
leigusamningi eiga rétt á sundur-
liðun á þeim kostnaðarþáttum sem
húsgjald byggist á.
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
KöKublað GestGjafans
uppselt hjá útgefanda