Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2009, Qupperneq 27
Ólátabelgurinn Kelly Os-bourne er alltaf að fríkka en stúlkan hugsar meira og
meira um útlit sitt. Kelly hefur verið
þekkt fyrir frekar þungt og druslu-
legt útlit í gegnum tíðina en það hef-
ur breyst mjög mikið. Núna stundar
hún ræktina af krafti, er komin með
ljóst hár og hefur grennst heilan
helling.
Ekki nóg með það heldur er
Kelly nýtt andlit brúnkulínu breska
fyrirtækisins St. Tropez. Hún segir á
Twitter-síðu sinni: „Hver hefði trú-
að því að ég yrði einhvern tímann
andlit fyrir brúnkukrem?“
Kelly Osbourne hugsar um útlitið:
SÆTARI OG
SÆTARI
Þá og nú Kelly
hefur breyst mikið.
SVIÐSLJÓS 21. desember 2009 MÁNUDAGUR 27
Jamie Jungers er ein þeirra kvenna sem hafa obinberlega viðurkennt að hafa haldið við golfarann Tiger
Woods. Jungers sagði nýlega frá kynn-
um sínum af Tiger og sagði að þótt
hún elskaði hann enn ætti hann skil-
ið það sem hann fengi yfir sig þessa
dagana.
„Þegar ég spurði hann: Hvernig
líður konunni þinni? svaraði hann:
Vel. Hún er í Svíþjóð að heimsækja
tvíburasystur sína, eins og honum
væri alveg sama.“ Þá segir Jungers að
hún og Tiger hafi aldrei notað getn-
aðarvarnir þegar þau stunduðu kyn-
líf. „Þetta var svo mikið í hita leiksins.“
Jungers segist sjálf hafa slitið sam-
bandi sínu við Tiger og að þótt hún
elski hann enn myndi hún ekki taka
við kylfingnum aftur. „Ég gæti ekki
treyst honum aftur. Ég held að hann
eigi þetta skilið.“
Hjákona Tigers, Jamie Jungers,
segir sína sögu.
TIGER ÁTTI
ÞETTA SKILIÐ
BRITTANY
MURPHY
Bandaríska leikkonan Brittany Murphy lést í síðdegis í gær eftir að hafa fengið hjartaáfall. Það var móðir leik-konunnar sem kom að henni meðvitundarlausri í sturt-
unni á heimili eiginmanns hennar, Simons Monjacks. Murphy
var flutt á Cedars-Sinai sjúkrahúsið í Los Angeles í gærmorgun
að bandarískum tíma en þar var hún úrskurðuð látin. Hún var
32 ára.
Murphy var ein ástsælasta leikkona Bandaríkjanna en hún
sló fyrst í gegn í myndinni Clueless árið 1995. Síðan lék hún í
fleiri stórmyndum á borð við Sin City og 8 Mile ásamt rappar-
anum Eminem.
Ekki liggur fyrir hvað olli því að Murphy fékk hjartaáfall en
lögreglan í Los Angeles gaf það út í gærkvöldi að rannsókn
muni fara fram á dauða leikkonunnar.
LÁTIN
Látin Brittany Murphy
lést í gær, 32 ára gömul.
Stórstjarna Murphy
lék meðal annars í
myndinni Sin City.
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Nike 150 Eau De Toilette For Man
Spray 150 ml, 3 gerðir
kr. 4.298,-
GOSH Gjafakassi
Maskari, Augnblýantur og gerviaugnhár