Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Qupperneq 2
Símtal lýSir Svindli HreiðarS n Símtal á milli Halldórs Bjarkars Lúðvígs- sonar, fyrrverandi starfsmanns fyrirtækja- sviðs Kaupþings, og Lilju Stein- þórsdóttur, í innri endurskoðun bankans, í ársbyrjun 2009 varpar ljósi á Al Thani-málið. Aðild Ól- afs Ólafssonar að málinu þurfti að fela og Al Thani þurfti aldrei að leggja út neina peninga vegna kaupa á 5 prósenta hlut í Kaupþingi. Hann fékk hins vegar 50 milljónir dollara eða um 6,5 millj- arða króna fyrir að lána nafn sitt í fléttuna. „Strákarnir í Lúx“ réðu ferðinni í viðskipta- fléttunni sem átti að auka tiltrú og verðgildi Kaupþings á síðustu stundu. Hún gekk út á að lána sjeiknum Al Thani 13 milljarða króna. Í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Halldóri Bjarkari, sem DV birti á mánudag, er baksviði viðskiptaflétt- unnar lýst. Fékk milljónir Frá þeim Sem vildu orkuna n Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins, birti fyrir helgi lista yfir þá sem lögðu honum til um 16 milljónir króna á árunum 2005 til 2007. Listi Guðlaugs er ekki tæmandi og skýrir hann það svo að ekki hafi fengist leyfi frá hálf- um öðrum tug styrkveitenda til birtingar upplýsinga um 9 milljóna króna styrki af nær 25 milljónum sem hann hefur talið fram. Af um 16 milljónum króna, sem Guðlaugur Þór hefur gert fulla grein fyrir, fékk hann á árunum 2005 til 2007 alls 8 til 9 milljónir króna frá fyrirtækjum sem gerðu tilraunir til þess að efna til sam- starfs við orkufyrirtæki í almannaeigu eða stofna útrásarfyrirtæki með þeim. Guðlaugur Þór var stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur fram til vorsins 2007. Mánuðina þar á undan hafði Orkuveita Reykjavíkur stofnað Reykjavík Energy Invest sem síðar átti að verða eign Geysis Green Energy. FjármálaStjórinn Fékk Benz n Orkuveita Reykjavíkur festi kaup á Benz-glæsijeppa fyrir tæpum mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni kostaði bifreiðin 7 milljónir króna. Benz-jepp- inn er keyptur fyrir Önnu Skúladóttur, framkvæmda- stjóra fjármála Orkuveitu Reykjavíkur. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, upplýsir DV um að Anna njóti bílafríðinda samkvæmt ráðningar- samningi. Skráð gangverð er 7,9 milljónir króna en nýr kostar jeppinn 13,7 milljón- ir króna. „Mér finnst þetta hið furðuleg- asta mál sem þarf að kanna betur. Ég hef ekki haft tækifæri til að líta á þetta og get ekki tjáð mig frekar um þetta að sinni,“ sagði Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam- fylkingarinnar í Reykjavíkurborg og verðandi formaður borgarráðs, þegar DV bar málið undir hann. 3 1 MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 7. – 8. JÚNÍ 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 64. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395AL-THANI-PLOTTIÐ Í KAUPÞINGI:SÍMTAL LÝSIR SVINDLI HREIÐARS n SJEIKINN LÁNAÐI NAFNIÐ SITT OG FÉKK MILLJARÐA n DV BIRTIR SÍMTAL YFIRMANNS LÁNASVIÐS KAUPÞINGS VIÐ INNRI ENDURSKOÐANDA BANKANS n „MAGGI OG HREIÐAR VORU AÐ SEMJA ÞETTA ALLT SAMAN“ n „ÞETTA ER RAUNVERULEGA TIL ÞESS AÐ FELA ÞAÐ AÐ ÓLI ÁTTI HELMINGINN“ n „ÞETTA KEMUR BARA ALLT FLÆÐANDI FRÁ LÚX“ FÉKK NÍU MILLJÓNIR FRÁ ÞEIM SEM VILDU ORKUNA n GUÐLAUGUR ÞÓR VAR STJÓRNARFORMAÐUR OR BESTI GERIR BÍÓMYND n KOSNINGARNAR TEKNAR UPP FRÉTTIR FRÉTTIR RA NN SÓ KN MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR 9. – 10. JÚNÍ 2010 dagblaðið vísir 65. tbl. 100. árg. – verð kr. 395 orkuveitan í fjárhagsvanda: fjármála- stjórinn „DraUmUr OKKar BEGGja rÆtist“ — seGIR KæRAsTInn ótrÚlEGar framfarir VAlA GRAnD oRÐIn KonA: fÆr BEnz n RAFMAGnIÐ HæKKAR UM 27% n HeITA VATnIÐ HæKKAR UM 37% n sKUlDIRnAR oRÐnAR 220 MIllJARÐAR n JÓn GnARR: „VIÐ eIGUM AÐ GæTA HÓFs“ n næR séR eFTIR bílslysIÐ í ReyKJAnesbæ við verðum ekki stöðvaðir Forseti íslenskra vítisengla: FRéTTIR FÓlK 2 fréttir 7. júní 2010 mánu dagur 7 Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður og fyrrverandi ráðherra Sjálf- stæðisflokksins, birti fyrir helgi lista yfir þá sem lögðu honum til um 16 milljónir króna á árunum 2005 til 2007. Listi Guðlaugs er ekki tæmandi og skýrir hann það svo að ekki hafi fengist leyfi frá hálfum öðrum tug styrkveitenda til birtingar upplýs- inga um 9 milljóna króna af nær 25 milljónum sem hann hefur talið fram. Af um 16 milljónum króna, sem Guðlaugur Þór hefur gert fulla grein fyrir, fékk hann á árunum 2005 til 2007 alls 8 til 9 milljónir króna frá fyrirtækjum sem gerðu tilraunir til þess að efna til samstarfs við orku- fyrrtæki í almannaeigu eða stofna útrásarfyrirtæki með þeim. Guð- laugur Þór var stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur fram til vors- ins 2007. Mánuðina þar á undan hafði Orkuveita Reykjavíkur stofn- að Reykjavík Energy Invest sem síð- ar átti að verða eign Geysis Green Energy. Um svipað leyti, í ársbyrjun 2007, hafði Landsbankinn stofnað Hydro- kraft Invest í samvinnu við Lands- virkjun. Skömmu fyrir þingkosningarnar í fyrravor var upplýst um mikla styrki FL Group og Landsbankans til Sjálf- stæðisflokksins, samtals 55 milljón- ir króna. Jafnframt var upplýst að Guðlaugur Þór hafði komið nálægt umræddri fjáröflun ásamt Þorsteini M. Jónssyni hjá Vífilfelli sem sat þá í stjórn FL Group. Styrkjakóngurinn Guðlaugur Þór Þórðarson ber höfuð og herðar yfir aðra varðandi styrki til einstakra frambjóðenda og nema þeir samtals tæplega 25 milljónum króna árin 2005 til ársloka 2006. Þess má geta að Guðlaugur Þór háði dýrt prófkjör við Björn Bjarna- son, þáverandi dómsmálaráðherra, um annað sæti á framboðslista sjálf- stæðismanna í Reykjavík fyrir þing- kosningarnar vorið 2007. Prófkjörið fór fram í lok október 2006. Fjand- skapur ríkti milli Björns og Baugs- feðga á þessum tíma en þá hafði Baugsmálið verið misserum saman í réttarsölum dómskerfisins. Samtals fékk Guðlaugur Þór 7,5 milljónir króna í styrki á árunum 2005 til loka árs 2006 frá Baugi og viðskiptafélögum Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar. Baugur, FL Group og Fons réttu Guðlaugi Þór 2 milljónir króna hvert fyrirtæki. Austursel ehf., í eigu Hreins Loftssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Baugs, lagði hon- um til 1,5 milljónir króna að auki. Þegar bætt er við framlögum frá tveimur öðrum fyrirtækjum, sem sóttust eftir ítökum í orkulindum og orkuútrás, verður ljóst að sam- tals fékk Guðlaugur Þór 10 milljón- ir króna frá fyrirtækjum sem beint eða óbeint vildu hasla sér völl á orkusviðinu. Hann fékk 1,5 milljón- ir króna frá Landsbankanum og 1 milljón króna frá Atorku sem átti 41 prósents hlut í Geysi Green Energy. Segir ekki af sér Guðlaugur Þór hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að segja af sér þing- mennsku vegna styrkjamálsins. Það hefur hins vegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Samfylkingunni, gert með þeim orðum að vangaveltur um eðli kosningabaráttu hennar á þessum tíma hafi yfirgnæft öll henn- ar störf á þingi og geri henni ókleift að rækja skyldur  sínar. Samtals voru styrkir hennar um 13 milljónir króna, þar af 7,5 milljónir króna frá framangreindum fyrirtækjum sem hugðu á landvinninga í orkugeiran- um. Alls fékk hún 3,5 milljónir króna frá Landsbankanum sem er hæsti styrkur fyrirtækis til einstaks fram- bjóðanda. Í yfirlýsingu sinni fyrir helgi end- urtók Guðlaugur Þór fyrri afsökun- arbeiðni sína til þjóðarinnar. „Einn- ig hef ég lýst því yfir að það hafi verið mjög óheppilegt að löggjafinn eða við sjálfstæðismenn skyldum ekki setja reglur um prófkjör... Að gefnu tilefni vil ég endurtaka þá afsökun- arbeiðni mína.“ Guðlaugur Þór vitnar í yfirlýs- ingunni til orða í fyrirlestri sem dr. Hulda Þórisdóttir flutti nýverið um afleiðingar efnahagshrunsins. Hulda sagði meðal annars að ekki síst þyrfti þjóðin að varast að falla í þann fúla pytt að nota eftiráskýr- ingar með „heilagri“ vandlætingu. „Hegðun sem í dag virkar ef til vill augljóslega vafasöm eða röng, var ekki svo augljóslega röng þá og oftar en ekki algjörlega samþykkt á þeim tíma... það er mjög hættulegt að gefa sér þekkingu sem maður hefur í dag til þess að skýra það sem gerðist fyrir 3 árum.“ Stjórnvöld margoft vöruð við En tómlæti stjórnvalda gagnvart spillingu var fyrir hendi löngu fyr- ir bankahrun eins og fram kom í skýrslu GRECO um Ísland þegar árið 2001. GRECO er nefnd á veg- um ríkja Evrópuráðsins sem fylgist með og rannsakar spillingu í aðild- arlöndunum og eru höfuðstöðvar hennar í Strassborg. Í skýrslunni frá 2001 segir meðal annars: „Smæð þjóðarinnar getur stuðlað að auknu gagnsæi en einnig kynt undir hags- munaárekstra og aukið hættu á spillingu. Sendinefndin staldrar sér- staklega við skort á reglum um fjár- mál og fjáröflun stjórnmálaflokka... Augljóslega hafa tilraunir til úrbóta á árum áður runnið út í sandinn. Sendinefndin telur því æskilegt að setja fjármál stjórnmálaflokkanna á dagskrá Alþingis.“ Í skýrslu GRECO segir jafnframt að þótt mútur og mútuþægni telj- ist glæpsamlegt athæfi hafi nefnd- in ekki séð nein merki tilrauna á Íslandi til þess að auka vitund við- skiptalífsins um slíkt refsivert hátta- lag. „Greinilegt er að í samfélagi sem sannfært er um að það sé nokkurn veginn laust við spillingu, er erfitt að efla vitund manna um hætturnar eða grípa til fyrirbyggjandi aðgerða gegn spillingu.“ Í umræddri skýrslu er brýnt fyr- ir íslenskum stjórnvöldum að grípa til aðgerða gegn spilingu og með- al annars minnst á möguleikann á að skylda embættismenn til að gera viðvart um spillingu. Í umræddri skýrslu GRECO og annarri frá árinu 2003 er varað sér- staklega við hættu á spillingu og mútubrotum á tímum mikillar einkavæðingar þar sem gráa svæðið milli hins opinbera og einkageirans stækki til muna við slíkar aðstæður. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sýndi ábendingum GRECO tómlæti árum saman og það var ekki fyrr en í lok árs 2006 sem stjórnvöld kynntu hertar reglur og lög um fjármál stjórnmálaflokkanna. Landsfundur og umbætur Miklar líkur eru á að styrkjamálin verði gerð upp á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins sem haldinn verður dagana 25. og 26. júní næstkomandi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur sagt af sér varaformennsku í flokknum og vikið af þingi meðan mál hennar og eiginmannsins eru til rannsóknar. Drjúgur aflamað- ur framboðsstyrkja, Illugi Gunnars- son, hefur einnig vikið af þingi tíma- bundið vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á sjóði 9 í Glitni. Á landsfundinum blasir við að velja nýjan varaformann í stað Þor- gerðar Katrínar. Með degi hverjum aukast líkur á mótframboði gegn Bjarna Benediktssyni, formanni flokksins, samkvæmt heimildum DV og er nafn Kristjáns Þórs Júlí- ussonar oft nefnt í því sambandi. Kristján Þór hlaut liðlega 40 prósent atkvæða gegn Bjarna á landsfund flokksins í lok mars í fyrra. Flokkurinn er í erfiðri stöðu og hefur hvorki meirihlutavald á þingi og í ríkisstjórn né í Reykjavíkurborg um þessar mundir. Þá hefur hann einnig misst sterka stöðu sína á Ak- ureyri og víðar. Styrkjamálið er Guðlaugi Þór skeinuhætt þótt hann hafi afráðið að segja sig ekki af sér þingmennsku. Rétt eins og landsfundur Sjálfstæð- isflokksins ræður úrslitum um end- urnýjun í forystu flokksins kann framtíð Guðlaugs Þórs einnig að ráðast á fundinum eftir tæpar þrjár vikur. Vaxandi Vandi styrkjakóngs Strangt til tekið fékk Guðlaugur Þór Þórðarson 10 milljónir króna til kosningabaráttu sinnar árin 2005 til 2007 frá fyrirtækjum sem sáu hagnaðarvon í samstarfi við orkufyrirtæki í almannaeigu. Sjálfur atti hann kappi við Björn Bjarnason dómsmálaráðherra um hylli sjálfstæðismanna í höfuðborg- inni á þessum árum og var stjórn- arformaður Orkuveitu Reykjavíkur til vorsins 2007. Hvorugt hefur varla dregið úr vilja Baugsmanna og viðskiptafélaga þeirra til þess að leggja honum til ríflega styrki. Að gefnu tilefni vil ég endurtaka þá afsökunarbeiðni mína. jóhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Fór úr böndunum Guðlaugur Þór viðurkennir að styrkirnir hafi farið úr böndunum og endurtekur afsökunarbeiðni sína til þjóðarinnar. Tók skellinn Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, kvaðst í fyrra bera ábyrgð á móttöku stóru styrkjanna til flokksins í árslok 2006. Viðskiptajöfurinn Jón Ásgeir Jóhannesson og viðskiptafélagar hans réttu Guðlaugi Þór samstals 7,5 milljónir króna á árunum 2005 til 2007. 2 föstudagur 11. júní 2010 fréttir Þessar fréttir bar hæst í vikunni þetta helst Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, á von á því að loka aðgangi nemenda að vefsvæðinu Chat Roulette, samskiptaleik á netinu þar sem hætta er á að á hinum endanum leynist klæðalítill eða nakinn viðmælandi. Hann segir skóla- stjórnendur ekki vilja að nemendur stundi þannig leiki. hitt málið Verzlingar skoða nektarrúllettu Skólastjórnendur Verzlunarskóla Ís- lands hyggjast fylgjast með heim- sóknum nemenda skólans á erlend vefsvæði og þá sérstaklega heimsókn- um á vefsvæðið Chat Roulette. Sam- kvæmt heimildum DV hefur verið nokkuð um það í vetur að nemendur heimsæki vefsíðuna, bæði í kennslu- stundum og í frímínútum, þar sem þeir geta átt von á að fá upp á skjá- inn nektarmyndir af einstaklingum erlendis. Um er að ræða erlenda sam- skiptasíðu sem í raun má segja að sé nokkurs konar leikur, þú veist aldrei á hverju þú átt von. Í gegnum vef- myndavél flakkar þátttakandi um ver- öldina og hittir tilviljanakennt við- mælendur víða um veröld. Vandinn er sá að færst hefur í vöxt að erlend- ir viðmælendur nýti sér leikinn með því að vera klæðalitlir eða naktir en við því er engin vörn því þátttakend- ur sjá ekki fyrir fram hvern þeir hitta næst. Á sjálfri síðunni eru þátttakend- ur varaðir við því að hinum megin gæti leynst eitthvað sem viðkvæmir þoli illa og sem er ekki við hæfi barna. Pungar skapa vandræði Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunar- skóla Íslands, kannast aðspurður ekki við þetta ákveðna vefsvæði en ætlar að fylgjast betur með heimsóknum nemenda sinna. Á sama tíma viður- kennir hann að færst hafi í vöxt að nemendur heimsæki vefsvæði sem þeir ættu síður að gera. „Í fyrstu lít- ur þetta sakleysislega út en það fær- ist í aukana að menn ytra hræðist að þetta vefsvæði færist inn á þá slóð að menn misnoti þetta í annarlegum til- gangi. Þá getur þetta líka orðið til þess að einstaklingar upplifi það ítrekað að þeim sé hafnað á netinu. Krakkarnir nota fartölvurnar í þetta og þá náum við ekki alltaf að fylgjast með, einkum eftir að netpungarnir komu til sög- unnar,“ segir Ingi. „Við erum alltaf vakandi yfir þess- um hlutum og munum vera það áfram yfir þessu. Í raun hafa nem- endur verið mjög ósáttir við hversu miklar hömlur við setjum á netnotk- un þeirra. Því miður er endalaust af svona vefsvæðum sem dúkka upp og að sjálfsögðu ætlum við að skoða þetta sérstaklega. Bæði sem skóla- stjórnandi og foreldri hef ég áhyggjur af allri misnotkun á netinu sem hefur aukist alveg gríðarlega.“ Varar við „Það er ekkert sniðugt við svona rúll- ettu að geta lent allt í einu inni hjá einhverjum nöktum einstaklingi úti í heimi. Við höfum ekki minnsta áhuga á að nemendur fari inn á svona síð- ur. Skólinn lokar aðgangi að öllum hæpnum síðum og því verður lokað á þetta,“ bætir Ingi við. Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, kannast við vef- svæðið Chat Roulette og varar við því að ungmenni noti það. Hún hvet- ur foreldra og forráðamenn til að vera ávallt vel vakandi yfir netnotk- un barna. „Ég hef heyrt um þetta og hjá mér hringja strax viðvörunarbjöll- ur. Í fyrstu lítur þetta út sem leikur en þarna leynast ýmsar hættur. Foreldr- ar verða að fylgjast með börnum sín- um á netinu og það strax á leikskóla- aldri. Á svona svæði veistu aldrei hver hinn ókunnugi er og ég bið fólk um að fara varlega, til að mynda varðandi persónuupplýsingar í gegnum netið,“ segir Sjöfn. Bjöllur hringja Sjöfn bendir á að þó að Chat Roulette líti út fyrir að vera leikur í fyrstu kunni þar að leynast ýmsar hættur. Hún biður foreldra um að fylgjast vel með netnotkun barna sinna. Alls konar Á vefsíðunni Chat Roulette getur þú átt von á því að hitta á ýmsa kynlega kvisti víða í veröldinni. Þar færist í vöxt að á hinum endanum mæti þér nakinn einstaklingur. Það er ekkert sniðugt við svona rúllettu að geta lent allt í einu inni hjá einhverj- um nöktum einstaklingi úti í heimi. Við höfum ekki minnsta áhuga á að nemendur fari inn á svona síður. trAustI hAfsteInsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Er slakandi og bætir svefn • Notkun 10-20 mínútur í senn • Gefur þér aukna orku og vellíðan Verð: 9.750 kr. Nálastungudýnan Opið virka daga frá kl. 9 -18 Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.