Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Síða 4
4 föstudagur 11. júní 2010 fréttir
davíð eineltir
n Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra og formaður Samfylkingar-
innar, hefur undanfarið verið í
kröppum dansi vegna ofurlauna Más
Guðmundssonar
seðlabankastjóra.
En ætla má að
stuðningsmenn
hennar hafi and-
að léttar þegar
þeir lásu í Morg-
unblaði Davíðs
Odds sonar að
málið væri álíka
alvarlegt og
Watergate-hneykslið. Aulabrandari
um ,,Másgeit“ fékk svo að fljóta með.
Svo langt var skot Davíðs yfir
markið að Jóhanna virðist sleppa með
skrekkinn eftir allt saman. Allflestir
fallast á að málið hafi tekið á sig þá
mynd að vera einelti Morgunblaðsins
í garð Jóhönnu. Hún geti því andað
léttar og allt eins hugsanlegt að Davíð
hafi lengt í pólitísku lífi hennar.
styrkir sigurðar
kára í myrkri
n Meðal þeirra sem hafa verið harð-
orðastir í garð Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra er Sigurður
Kári Kristjánsson, alþingismaður
Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann hefur
meðal annars
lýst yfir því að
Jóhanna sé allt
í senn lygin og
spillt. Jóhanna
sparaði ekki stóru
orðin á dögunum
og hraunaði yfir
þingmanninn
í einu tilviki og taldi hann ekki
hafa efni á munnsöfnuðinum með
alla sína leynistyrki. Þetta fannst
þingmanninum vera ógurleg og
mjög svo ósvífin smjörklípa úr
hörðustu átt. Styrkir til Sigurðar Kára
Kristjánssonar eru í myrkri fortíðar
og hefur hann engan vilja sýnt til að
ljóstra upp um þá.
vinalaus
með áróður
n Það vakti töluverða athygli á
sjómannadaginn að Guðmundur
Kristjánsson, forstjóri og aðaleigandi
Brims, notaði
tækifærið til að
kynna rekstur
sinn. Guðmundur
sló tvær flugur
í einu höggi
því hann rak
jafnframt áróður
gegn fyrningar-
leiðinni sem
stjórnarflokkarn-
ir hafa boðað. Guðmundi skaut upp á
stjörnuhimin sjávarútvegsins þegar
hann lagði undir sig útgerðarrisann
Básafell á Vestfjörðum. Guðmundur
limaði útgerðina í sundur og skildi
eftir byggðarlög á Vestfjörðum eftir
í sárum. Þá fékk hann viðurnefnið
Guðmundur vinalausi.
sægreifar vilja
fyrningu
n Ekki virðast allir sægreifar
vera andvígir því að farin verði
svokölluð fyrningarleið til þess að
skila þjóðinni
aftur fiskveiði-
heimildunum.
Þannig heyrist
að meðal stórra
eigenda Granda
séu menn afar
jákvæðir fyrir
þessari leið. Að
vísu eru menn
andvígir því að fyrning gangi
jafnt yfir alla. Aftur á móti er vilji
til þess að mæla með því að við
gjaldþrot sjávarútvegsfyrirtækja
verði kvóti þeirra þjóðnýttur og
hann svo leigður út. Víst er að
miðað við skuldsetningu sumra
sjávar útvegsrisanna mun stór hluti
kvótans skila sér á næstu misserum.
Hermt er að Friðrik J. Arngrímssyni,
framkvæmdastjóra LíÚ, sé langt frá
því að vera skemmt yfir hugmynd-
inni.
sandkorn
Það var ekki fyrr en ferðafélagi Sig-
urjóns Sigurðssonar fór að athuga
stöðuna á flugi sínu til Friedrichs-
hafen í Þýskalandi að í ljós kom
að Iceland Express var búið að
fella niður flugið. Flugið var bók-
að fyrir þremur mánuðum og að-
eins eru um tvær vikur í fyrirhug-
aða brottför. „Mér finnst þetta svo
léleg framkoma. Að það skuli ekki
nokkur maður frá þessu fyrirtæki
láta okkur vita,“ segir Sigurjón í
samtali við DV. Á sama tíma var
bókuð hótelgisting og bílaleigubíll.
Þegar þetta kom í ljós höfðu ferða-
félagarnir samband við Iceland Ex-
press. Ekki tókst að ná í fyrirtækið
í síma, og það var ekki fyrr en full-
trúi hópsins mætti á skrifstofu flug-
félagsins að þau fengu svör um
málið. Þjónustufulltrúi félagsins
sagði rétt að flugið hefði verið fellt
niður, og vegna sumarleyfa starfs-
manna væri ekki búið að láta þau
vita. Fyrsta lausn flugfélagsins var
að bjóða ferðalöngunum annað
flug, til Bern í Sviss. Önnur lausnin
var að flýta fluginu um viku. Þriðja
lausnin, sem ferðafélagarnir sam-
þykktu, var að færa flugið aftur um
tvo daga. Flugfarið, tveimur dög-
um síðar en áætlað var, reyndist
svo vera 44 þúsund krónum dýrara
og bauðst flugfélagið til að endur-
greiða mismuninn inn á debetkort
viðkomandi, en það hefur ekki enn
verið gert.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,
náðist ekki í þjónustufulltrúa, eða
forsvarsmenn, Iceland Express við
vinnslu fréttarinnar.
adalsteinn@dv.is
Iceland Express gagnrýnt fyrir að fella niður flug:
Aflýstu flugi en létu ekki vita
Létu ekki vita Iceland Express var ekki
búið að láta farþega flugfélagsins vita að
ferð þeirra hefði verið felld niður.
Stjórnendur Heilsustofnunarinnar
í Hveragerði óttast að þurfa að loka
hjá sér, komi til þess niðurskurðar
sem Álfheiður Ingadóttir heilbrigð-
isráðherra hefur boðað. Nemur nið-
urskurðurinn hátt í helmingi alls
rekstrar fjár stofnunarinnar, eða sem
nemur 250 milljónum á ári.
Íslenska ríkið er með gildandi
þjónustusamning við Heilsustofnun-
ina í Hveragerði, sem starfar undir
merkjum Náttúrulækningafélags Ís-
lands, NFLÍ, upp á 550 milljónir ár-
lega en sá samningur rennur út í lok
næsta árs. Álfheiður tilkynnti stjórn-
endum stofnunarinnar gífurlegan
niðurskurð til framtíðar. Málið er
enn í vinnslu hjá ráðuneytinu en
stjórnendur hælisins óttast að þurfa
að loka.
Síðustu mínúturnar?
Ólafur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri heilsustofnunarinnar, stað-
festir að gífurlegur niðurskurður hafi
verið boðaður af hálfu heilbrigðis-
ráðherra. Hann bíður nú frekari stað-
festingar frá ráðherra hvort af verði
eður ei. „Við fengum af þessu fréttir
og bíðum nú eftir því að fá þetta á
hreint frá ráðherra. Við erum reiðu-
búin undir niðurskurð í líkingu við
alla hina. Nú sit ég og bíð, eins og
ungmey í festum, eftir frekari frétt-
um, vonandi í þá veru að af þessu
verði ekki,“ segir Ólafur.
„Það er á hreinu að við lendum
í niðurskurði eins og allir. En við
getum ekki fengið á okkur þennan
svakalega skell sem ýjað er að. Þá
horfum við fram á algjört hrun og
síðustu mínútur þessarar stofnunar
hér. Þetta er niðurskurður um nærri
helming rekstrarfjár og þá verðum
við bara að loka.“
Algjört reiðarslag
Ásmundur Friðriksson, for maður
Hollvinasamtaka heilsustofnunar-
innar, sem stofnuð voru á fimm-
tugsafmæli heilsuhælisins, hefur
áhyggjur af boðuðum niðurskurði
til stofnunarinnar og fylgist grannt
með framvindu málsins. Aðspurð-
ur ætlar hann með formlegum hætti
að setja sig í samband við ráðherra
vegna málsins. „Heilsuhælið er best
varðveitta leyndarmál heilbrigðis-
kerfisins og jafnframt ódýr leið til að
uppherða fólk eftir veikindi, slys eða
áfall. Það hef ég reynt á eigin skinni.
Ég er því ekki ánægður með fyrirhug-
aðan niðurskurð og að fá þessi tíð-
indi var algjört reiðarslag,“ segir Ás-
mundur.
Stór biti
„Þetta er alveg hræðilegt. Eiginlega
trúi ég því ekki fyrr en ég tek á því
að þetta verði niðurstaða ráðherra.
Það getur ekki verið og það hlýtur
að vera bakkað með þetta. Bitinn er
hreinlega of stór fyrir þennan góða
stað. Við munum að minnsta kosti
gera það sem við getum til að berjast
gegn þessu og við munum láta í okk-
ur heyra,“ segir Ásmundur.
Álfheiður ráðherra bendir á að
rekstaraðilar heilsuhælisins séu með
samning út næsta ár og að þeir hafi af
fyrra bragði leitað til sín um endur-
skoðun samstarfssamningsins. Hún
viðurkennir að til framtíðar komi rík-
ið til með að kaupa þjónustu af hæl-
inu fyrir talsvert minni fjárhæðir en
nú er. „Ég nefndi við þá að ef við ætt-
um að draga saman kaup ríkisins í
kjarna til lengri tíma þá verði það
fyrir talsvert lægri fjárhæð en í dag.
Þeir óskuðu eftir endurskoðun, það
var ekki af frumkvæði ráðuneytisins,
en ég gerði þeim ljóst að ekki yrði
framlengt til lengri tíma miðað við
sömu kaup og eru núna. Á þessu
ári var skorið niður um 6,7 prósent
af öllum, líka Náttúrlækningafélag-
inu. Það liggur ekkert fyrir hvernig
samningurinn verður endurnýjaður
en upphlaup þeirra er að mínu viti
óskiljanlegt,“ segir Álf-
heiður.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur boðað nærri helmings niðurskurð á
framlögum til Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði. Ólafur Sigurðsson framkvæmda-
stjóri óttast að til lokunar komi og vonast til að ráðherra sjái að sér. Álfheiður segir
ljóst að ríkið muni versla í framtíðinni fyrir mun lægri fjárhæðir en nú er.
Óttast lokun
heilsuhælisins
trAuSti hAFSteinSSOn
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Við getum ekki fengið á okkur
þennan svakalega skell
sem ýjað er að. Þá horf-
um við fram á algjört
hrun og síðustu mínútur
þessarar stofnunar hér.
Falin perla Ásmundur hollvinur segir heilsustofnunina í
Hveragerði best varðveitta leyndarmál heilbrigðiskerfisins. Hér
sést Ólafur framkvæmdastjóri hræra í leirbaði hælisins.
Boðar niður-
skurð Álfheiður
heilbrigðisráðherra
tilkynnti stjórnendum
heilsustofnunar-
innar um mikinn
niðurskurð.
Þeir bíða nú
formlegs úr-
skurðar frá
ráðherra.