Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 6
6 föstudagur 11. júní 2010 fréttir Hvað varð um klíkuna? n Guðmundur Magnússon fyrrver- andi eyjuritstjóri lýsti því eftir kjör Bjarna Benediktssonar í formanns- stól Sjálfstæðis- flokksins að nú myndi harðsnúin fjórmenninga- klíka stýra flokkn- um. Bjarni færi þar fyrir en hann var þá nýbúinn að ráða Jónmund Guðmarsson framkvæmdastjóra flokksins og Sigurður Kári Kristjánsson var orðinn aðstoðarmaður formannsins. Auk heldur var nefndur Illugi Gunnarsson þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokksins. Nú sækir Bjarni á brattann fyrir landsfundinn sem fram undan er, Jónmundur var nánast strikaður út í heiðurssæti listans á Seltjarnarnesi í kosningum á dögunum og Illugi er horfinn af þingi. Enginn veit svo hvort Sigurður Kári þiggur enn laun sem aðstoðarmaður Bjarna. „tHen we take Berlin“ n Uppi varð fótur og fit meðal sjálf- stæðismanna þegar Guðmundur Ól- afsson hagfræðiprófessor kastaði því fram á Rás 2 í vikunni sem haldbærum sannindum að Davíð Oddsson hygði á framboð gegn Bjarna á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins í lok mánaðarins. Kenningin þykir góð að því leyti, að Davíð er senni- lega eini maðurinn í landinu sem sérhagsmunagæsluliðið í Flokknum óttast og hlýðir. Sögur fara einnig af því að Styrmir Gunnarsson, forveri Davíðs á ritstjórastóli Moggans, gangi nú milli manna og reyni að vinna hugmyndinni fylgi. Innan flokksins ku margir brosa að hugmyndinni og líta á hana sem fjarstæðu. En sá hlær best sem síðast hlær. Bagalegur seinagangur n Æ fleiri fjölskyldur horfa vonleysis- augum til framtíðarinnar eftir því sem seigdrepandi innheimtuaðgerðir færa þær nær fjárnámi og gjaldþroti. Með lögum reyndi ríkisvaldið að lina þjáningarnar, meðal annars með lögum um greiðsluaðlögun. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að tillögur um greiðsluaðlögun þurfa að fara fyrir héraðsdómara og geta endað fyrir Hæstarétti. Þetta er vitanlega bagalegt þegar dómstólar leggja nánast niður störf í júlí og ágúst og afgreiða aðeins gæsluvarðhaldsúrskurði og eitthvað fleira. Helgi I. Jónsson, dómsstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur ,segir að biðtími greiðsluaðlögunarmála lengist með þessu. Á meðan slíta sýslumenn og aðir innheimtumenn neglurnar af almúganum í næði. sandkorn Heilsuræktin Nordica Spa á Hilton- hótelinu í Reykjavík er á leið í gjald- þrot. Sú beiðni hefur þegar verið lögð inn til dómstóla og eru líkur á að sömu eigendur hefji rekstur inn undir nýju félagi, í samstarfi við hóteleigendur. Farið hefur verið fram á gjaldþrota- beiðni fyrirtæksins, Nordica Spa ehf., þar sem skuldir þess nema á annað hundrað milljónir króna þar sem Arion banki er stærsti kröfuhafinn. Lúxusheilsuræktin var opnuð 2003 en eftir bankahrunið stóð fyrirtæk- ið eftir skuldugt eftir óhagstæðar lán- tökur og minnkandi viðskipti. Nú er svo komið að rekstur stöðvarinnar fer tíma bundið undir Flugleiðahótel, eig- enda Hilton hótelsins, en stjórnendur þar hafa óskað eftir því að hluti fyrri eigenda komi áfram að rekstrinum. Hugsar um kúnnana Lárus Blöndal, lögmaður og stjórn- arformaður Nordica Spa, staðfestir að líkamsræktin sé á leið í gjaldþrot eftir lána- og rekstrarvanda síðustu ára. Hann útilokar ekki að einhverjir fyrri eigenda komi áfram að rekstr- inum. „Við héldum nú að okkur tæk- ist að bjarga þessu en skuldirnar voru það háar að fyrirtækið ber það ekki. Stöðin er byggð upp á tíma góðæris og er hugsuð sem lúxus í líkamsrækt. Því miður hefur hún ekki séð til sólar eftir bankahrunið,“ segir Lárus. „Hótelið á náttúrlega húsnæðið og það er undir því komið hvert fram- haldið verður. Þeir hafa sýnt því áhuga að halda þessu áfram sjálfir og hafa tekið við keflinu. Eigendur hótelsins þekkja reksturinn ekki neitt. Hótelið hefur rætt það við okkur hvort við séum tilbúnir að koma að þessu áfram og við höfum ekkert útilokað það.“ Bjargað í bili Ingólfur Haraldsson, hótelstjóri Hilton -hótelsins, staðfestir að rætt hafi verið við einhverja af fyrri eigendum um að halda áfram rekstr- inum en vonir standi til að fleiri finnist til að bjarga málunum. „Við komum að þessu sem húseigendur og viljum úr því sem komið er lágmarka tjónið fyrir iðkendur og hótelgesti. Hvort sem okkur líkaði það betur eða verr fengum við þetta í fangið og við viljum halda húsinu opnu. Annars þarf að loka og þá sitja margir eftir með sárt ennið,“ segir Ingólfur. Lárus tekur í sama streng og leggur áherslu á að áframhaldandi rekstur þurfi að tryggja með hag starfsfólks og viðskiptavina í huga. Hann bendir á að enn hafi ekki tekist samningar við Arion banka um framhaldið. „Það er mikilvægt að koma málefnum starfs- manna í lag. Ef við höldum rekstrin- um áfram þá þarf að gera það með öðrum hætti. Mig grunar að það þurfi fleiri að koma að þessu heldur en við. Þarna er fjöldi iðkenda og með kúnna- hópinn í huga viljum við halda áfram,“ segir Lárus. Úti í kuldanum Stærstu eigendur hinnar gjaldþrota heilsuræktar eru fyrirtækið Laugaból ehf. og Ragnheiður Birgis dóttir, fram- kvæmdastjóri Nordica Spa. Meðal hluthafa í Laugabóli eru viðskipta- mennirnir Aðalsteinn Karlsson, Egg- ert Gíslason, Guðmundur Birgis son, Lárus lögmaður Blöndal og Margeir Pétursson. Útlit er hins vegar fyrir að Ragnheiður sé nú úti í kuldanum þar sem hún er ekki inni í þeim hópi sem hótelið hefur rætt við um að koma áfram að rekstrinum. „Menn telja að breyta þurfi til svo von sé að þetta geti borið sig og mér heyrist ekki að Ragn- heiður sé inni í þeirri mynd. Það er út- frá viðskiptalegum forsendum og með nýju fólki koma nýjar hugmyndir og breyttur stíll,“ segir Lárus. Ragnheiður Birgisdóttir, fram- kvæmdastjóri Nordica Spa, vildi ekki tjá sig um málið. LÚXUSRÆKT GJALDÞROTA Farið hefur verið fram á gjaldþrotaskipti Nordica Spa heilsuræktarinnar á Hilton- hótelinu. Skuldir fyrirtækisins eru á annað hundrað milljónir króna og útlit fyrir að reksturinn haldi þó áfram hjá sömu eigendum. trauStI HafSteInSSOn blaðamaður skrifar: trausti@dv.is einn eigenda Guðmundur Birgisson fjárfestir var einn eigenda í Nordica Spa en eftir því sem DV kemst næst er hann ekki í hópi þeirra sem hugsanlega halda áfram rekstrinum. Átti hlut Margeir Pétursson bankastjóri átti líka hlut í Nordica Spa en er ekki í hópi fyrri eigenda sem Hilton hótelið hefur rætt við um að halda rekstrinum áfram. Hótelið hefur rætt það við okkur hvort við séum tilbúnir að koma að þessu áfram og við höf- um ekkert útilokað það. Gjaldþrot fram undan Nordica Spa er á leið í gjaldþrot vegna mikilla skulda. Flugleiðahótel mun líklega taka við rekstrinum til bráðabirgða en fyrirtækið hefur beðið fyrri eigendur um að halda rekstrinum áfram. Segir eðlilegt að fangar greiði fyrir leigu og mat: „Erfitt að vera fangi“ Þráinn Bj. Farestveit, framkvæmda- stjóri Verndar, segir að endurhæfinga- starf áfangaheimilisins gangi út á að íbúarnir læri að standa á eigin fótum. Því sé til að mynda eðlilegt að fangarn- ir þar greiði fyrir húsaleigu og mat. Hlynur Ingi Bragason refsifangi hafði ekki efni á vistunargjöldum Verndar fyrsta mánuðinn eftir að hann kom þangað og þurfti að fá hjálp hjá móður sinni fyrir vikið. í samtali við DV kvartar hún undan stuðningi við fanga og hefur ritað fjölda ráðherra ríkisstjórnarinnar bréf þar sem hún lýsir áhyggjum sínum. Hlynur Ingi bendir sjálfur á að fái ekki aðstoð þar sem hann sé fangi sem búsettur er í Reykjavík. Þráinn bendir á að lífið geti verið erfitt, sér í lagi fyrir fanga, en nauð- synlegt sé fyrir þá að aðlagast sem best lífinu eftir afplánun. „Hann á að geta gengið í það að greiða vistunargjaldið eins og aðrir. Viðkomandi fær ekki að koma inn á Vernd fyrr en lagðar hafa verið línur í endurhæfingu, þetta er afskaplega skýrt. Starfið okkar gengur út á endurhæfingu og hluti þess að að menn aðlagist eðlilegum hlutum eins og að greiða fyrir leigu og mat. Eigi menn ekki fyrir því geta þeir þurft að leita aðstoða ástvina, eins og hver ann- ar,“ segir Þráinn. „Þetta er hinn eðlilegasti hlutur, svona er lífið en auðvitað er stutt við bakið á öllum. Það er erfitt að vera fangi. Ég skil vel að hann kvarti yfir þeim fjárhagsstuðningi sem hann er að fá en það er misjafnt eftir sveitar- félögum hver stuðningurinn er. En þetta veit hann allt áður en hann kemur til okkar.“ Við vinnslu fréttarinnar var leitað viðbragða hjá Stellu Víðisdóttur, svið- stjóra velferðarsviðs Reykjavíkur- borgar, en án árangurs. trausti@dv.is Borga fyrir vistun Fangar á áfangaheim- ili Verndar greiða fyrir húsaleigu og fæði. Vesturvör 30c, Sími 575-1500 Frá Sviss... Besta súkkulaðið? Bestu úrin og klukkurnar? Bestu hnífarnir? og... , gæðadekkin. ...á austurlensku verði. Ferð á Kársnesið borgar sig! www.kvikkfix.issko ðaðu!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.