Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Síða 8
Framtíð sjö ráðherra í ríkisstjórn Ís-
lands er óljós. Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra kynnti á mið-
vikudag frumvarp sem gerir ráð fyrir
því að ráðuneytum verði fækkað um
þrjú, úr tólf í níu. Með frumvarpinu
verða sex ráðuneyti sameinuð í þrjú.
Í fyrsta stað verði til nýtt innanríkis-
ráðuneyti við sameiningu dóms-
mála- og mannréttindaráðuneytis
og samgönguráðuneytis. Í annan
stað verði til velferðarráðuneyti með
sameiningu félagsmálaráðuneytisins
og heilbrigðisráðuneytis. Loks verði
til nýtt atvinnuvega og nýsköpunar-
ráðuneyti þegar iðnaðarráðuneyti
og sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti verði sameinuð.
Framtíð fimm ráðherra er talin
vera örugg samkvæmt þessum
áformuðu breytingum. Þetta eru þau
Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur
J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir,
Svandís Svavarsdóttir og Össur
Skarphéðinsson. Þau eru öll í fram-
varðarsveit eigin flokka en auk þess
hefur frumvarpið engin áhrif á starf-
semi þeirra eigin ráðuneyta.
Styður utanþingsráðherra
Helsti óvissuþátturinn snýr að
utanþingsráðherrunum Gylfa
Magnússyni og Rögnu Árnadóttur.
Þó liggur fyrir að margir þingmenn
styðja þau áfram í starfi. Valgerður
Bjarnadóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, vill að þeim tveimur
verði haldið eftir. Hún vill samt sem
áður ekki spá í spilin um hverjir
verða í ríkisstjórn nái breytingarnar
fram að ganga. Hún segist ekki vilja
hugsa um ráðuneyti eftir persón-
um. Eftir sem áður er ljóst að haldi
utanþingsráðherrarnir sætum sín-
um verði að fækka um tvo ráðherra
úr stjórnarflokkunum.
Ögmundur vill inn á ný
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri-grænna, bankar á dyrnar á
stjórnarráðinu og vill komast inn.
Það sé hinsvegar annarra að ákveða
hvort hann eigi þangað afturkvæmt.
„Ég hef aldrei farið í neinar graf götur
um það að ég vilji vera í stjórnar-
ráðinu og sitja í ríkisstjórn. Ég fór út
úr ríkisstjórn vegna þess að ég var
ósamstíga ríkisstjórninni í Icesave-
málinu. Mér var sagt að ríkisstjórnin
myndi springa ef ég héldi fast við
mitt sjónarmið. Þess vegna fór ég
út úr ríkisstjórn. Vegna þess að ég
vildi ekki láta af sannfæringu minni
í málinu. En það var ekki vegna þess
að ég vildi fara út úr ríkis stjórninni,“
segir Ögmundur, sem segist ekki
geta svarað til um það hvort þessar
forsendur hafi breyst.
Jón er andvígur breytingum
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur lýst sig
andsnúinn frumvarpinu, en líklegt
er að hann verði settur út í kuld-
ann nái frumvarpið fram að ganga.
Hann hefur verið sérstaklega mót-
fallinn því að ráðuneytið sem hann
er í forsvari fyrir verði fellt saman
við iðnaðarráðuneytið. Jón hefur ef-
ast um að sameiningarnar feli í sér
einhvers konar hagræði.
Fjármálaráðuneytið áætlar að
starfsmönnum geti fækkað um
tuttugu við breytingarnar og að
launakostnaður stjórnarráðsins
lækki um 300 milljónir króna þegar
þær verði að fullu komnar fram. Í
frumvarpinu er miðað við að ráðu-
neytin sameinist árið 2011.
8 föstudagur 11. júní 2010 fréttir
uppsögn rúnars
afturkölluð
n Leikarinn Rúnar Freyr Gíslason er
orðinn einhleypur eftir skilnað hans
og Selmu Björnsdóttur, leikara og
leikstjóra, sem
Séð og Heyrt
greindi frá í
síðustu viku.
Selma er farin
til Bretlands til
náms en upphaf-
lega var áformað
að hjónin færu
bæði. Var Rúnar
búinn að tilkynna
Borgarleikhúsinu
um að hann vildi losna frá samningi
sínum. Eftir að skilnaðurinn kom upp
gekk uppsögnin til baka og Rúnar
Freyr mun eftir sem áður gleðja
áhorfendur með leik sínum á sviðum
Borgarleikhússins.
Hringekja
náHirðar
n Þeir sem fylgjast með umræðum á
netinu hafa tekið eftir hringekju sem
fer af stað ef fjallað er um ritstjórann
Davíð Oddsson.
Fyrst kemur
blogg, annað
hvort frá Hannesi
Hólmsteini
Gissurarsyni á
Pressunni eða
Skafta nokkrum
Harðarsyni á Eyj-
unni. Síðan takast
á flug smáfuglar
amx.is sem leggja
út af bloggunum. Það er trú margra
að Hannes Hólmsteinn skrifi megnið
af þessu sjálfur og krossvitni þannig í
sjálfan sig. Þetta sé eins konar hring-
ekja náhirðar Sjálfstæðisflokksins.
Hannes gefur hinsvegar lítið fyrir það
og hefur þrætt fyrir það eins og kemur
fram í sandkorninu hér að neðan.
tryggur skafti
n Hannes Hólmsteinn Gissurarson
hefur þrætt fyrir það á athugasemda-
kerfi DV.is að skrifa í nafni smáfugla
á amx.is. Sú
neitun er sem
fyrr segir þvert
á álit þeirra sem
rýna í stíl og sjá
augljós líkindi
með textanum á
bloggi Hannesar
og fuglahvísl-
inu. Þá er
og þekkt að
Friðbjörn Ketilsson, ritstjóri AMX, er
á mörkum þess að vera ,,sendibréfs-
fær“ en Hannes er aftur á móti einkar
snjall í meðferð á texta og skiptir
þar minnstu hvort hann er sjálfur
frumhöfundur. Eyjubloggarinn
Skafti Harðarsson þykir sömuleiðis
sýna ótrúlega stílfimi á köflum. Skafti
er gamall undirsáti Hannesar úr
Frjálshyggjufélaginu og hefur verið
honum undirgefinn og dyggur síðan.
sandkorn
• Svart
• Hvítt
• Krem
• Brúnt
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Virka daga frá kl. 10-18
Laugardag frá kl. 11-17
Serta aftur á Íslandi !!
Yankee Candle, hin einu sönnu.
Yfi r 40 mismunandi ilmkerti !
Kynningarafsláttur
15%
Chiro 600 heilsurúm
Stærð cm. Tilboð kr.
90x200 90.900,-
100x200 95.900,-
120x200 98.000,-
140x200 119.900,-
160x200 149.900,-
180x200 159.900,-
RáðheRRakapall
í undiRbúningi
Ráðherrum ríkisstjórnarinnar fækkar um þrjá nái frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra fram að ganga. Óvíst er með framtíð utanþingsráðherranna Rögnu
Árnadóttur og Gylfa Magnússonar. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna,
hitar upp á hliðarlínunni.
Sparnaðaráform Fjármála-
ráðuneytið áætlar að sameining
ráðuneyta geti lækkað launakostnað
um þrjú hundruð milljónir króna.
RóBeRt HlynuR BalDuRSSOn
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Staða ráðherra ríkisstjórnarinnar
óörugg
Örugg Vill inn
Ragna
Árnadóttir
Kristján l.
Möller
Árni Páll
Árnason
Álfheiður
Ingadóttir
Jón
Bjarnason
Katrín
Júlíusdóttir
Gylfi
Magnússon
Jóhanna
Sigurðardóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Katrín
Jakobsdóttir
Svandís
Svavarsdóttir
Össur Skarp-
héðinsson
Ögmundur
Jónasson