Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 14
14 föstudagur 11. júní 2010 fréttir
Ólga er innan Framsóknarflokks-
ins eftir niðurstöður sveitarstjórn-
arkosninganna þar sem flokkurinn
galt afhroð og þurrkaðist meðal ann-
ars út í Reykjavík. Innan flokksfélag-
anna er deilt á forystu flokksins fyrir
að hafa haft sig lítið í frammi í kosn-
ingabaráttunni og á Sigmund Dav-
íð Gunnlaugsson, formann flokks-
ins, fyrir að sýna flokksmönnum
ekki nægilegan samstarfsvilja. Inn-
an flokksins er rætt um að Sigmund-
ur Davíð hafi ekki verið nægilega
sýnilegur í aðdraganda kosninga og
vegna mjög erfiðrar fjárhagsstöðu
flokksins var aðeins rúmri einni
milljón króna varið í auglýsingar í
Reykjavík.
Einar Skúlason, oddviti listans í
Reykjavík, greindi frá því á dögun-
um að fólk sem verið hefur í trún-
aðarstörfum fyrir flokkinn hefði ekki
einu sinni kosið flokkinn. Af samtöl-
um við fólk í innsta hring í flokknum
að dæma er um að ræða hóp manna
í kringum Óskar Bergsson sem vann
að trúnaðarstörfum innan flokksins
en kaus engu að síður Sjálfstæðis-
flokkinn, frekar en að kjósa listann
undir forystu Einars Skúlasonar.
Óskar vann gegn framboðinu
Óskari Bergssyni var hafnað með
mjög afgerandi hætti í prófkjöri
Framsóknarflokksins síðasta haust
vegna óánægju flokksmanna með
hans mál og stjórnunarhætti hans,
sem hafa þótt mjög umdeildir, með-
al annars þegar hann skipaði Guð-
laug G. Sverrisson, trúnaðarvin
sinn, sem stjórnarformann Orku-
veitunnar. Fleiri bandamenn Óskars
komust til áhrifa í borgarstjórnar-
flokknum eftir að hann tók við völd-
um. Umræðan í kringum Óskar var
alla tíð fremur neikvæð en steininn
tók úr á síðasta ári þegar fólki fannst
hann fara yfir strikið með valds-
mannslegum tilburðum, eins og
einn flokksmaður orðaði það.
Óskar brást mjög illa við tapinu í
prófkjöri flokksins í Reykjavík. Hann
þáði ekki heiðurssæti á lista fram-
boðsins en vann þess í stað kerfis-
bundið gegn framboði flokksins í
Reykjavík, með því meðal annars að
neita að veita upplýsingar um það
sem flokkurinn hafði gert í borginni
á kjörtímabilinu. Vísaði Óskar þess
í stað á aðstoðarmann borgarstjóra
eða í fundargerðir. Trúnaðarmaður í
flokknum segir að þetta viðmót Ósk-
ars hafi gert það að verkum að Ein-
ar átti mun erfiðara með að setja sig
inn í mál í aðdraganda kosninganna
en ella.
Sárir út í Sigmund
Flokksmenn eru einnig sárir yfir því
að Sigmundur Davíð hafi ekki sýnt
Einari Skúlasyni nægilega mikinn
stuðning. Eftir sigur hans í prófkjör-
inu stóðu einhverjir í flokknum í
þeirri meiningu að Einar fengi álíka
stuðning og Björn Ingi Hrafnsson,
sem leiddi flokkinn í borginni árið
2006. Fjármuni og vilja hafi vantað
til að styðja Einar. Sjálfur hafi Ein-
ar reyndar valdið vonbrigðum með
því að vera ekki nægilega afgerandi
í kosningabaráttunni og vera með
fremur óljós kosningaloforð.
Sigmundur hafi virst vera á bandi
Óskars Bergssonar ef marka megi
ummæli hans eftir kosningarnar þar
sem hann neitaði því alfarið að for-
ysta flokksins bæri ábyrgð á hörmu-
legu gengi flokksins í Reykjavík og
varpaði þannig ábyrgðinni á forystu
flokksins í Reykjavík. Með því að
neita að taka ábyrgð og hjóla í Guð-
mund Steingrímsson, eftir ummæli
hans í Ríkissjónvarpinu, hafi for-
maðurinn brugðist hlutverki sínu.
Það séu ekki einstakir borgarfulltrú-
ar sem móti almenningsálitið held-
ur sé það forysta flokksins. Hún hafi
staðið fast á sínum málum, ekki ver-
ið tilbúin að miðla málum og hafi
það haft sitt að segja um hörmulega
útreið flokksins. Mjög skiptar skoð-
anir eru hins vegar um Sigmund
Davíð innan flokksins, því margir
styðja formanninn einnig heilshug-
ar.
117 milljóna mínus
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík
varði miklu lægri upphæð í auglýs-
ingar fyrir kosningarnar núna en til
dæmis Sjálfstæðisflokkur og Sam-
fylkingin. Auglýsingakostnaður
flokksins í Reykjavík mun hafa ver-
ið um 1,2 milljónir króna. Ákveðið
var að auglýsa á vefsíðum á borð við
Facebook í stað þess að fara í rán-
dýra baráttu með mörgum heilsíðu-
auglýsingum í fjölmiðlum.
Jafnvel þó að fjárhagur flokks-
félaganna sé aðskilinn frá fjárhagi
flokksins sjálfs, dylst engum að fjár-
hagsstaða flokksins er mjög erfið.
Samkvæmt ársreikningi frá árinu
2008 námu skuldir umfram eignir
um 117 milljónum króna í lok þess
árs. Fylgishrun flokksins hefur einn-
ig áhrif á styrki frá hinu opinbera til
hans sem gerir fjármögnun enn erf-
iðari. Flokkurinn á þó eignir á borð
við húsið við Hverfisgötu, en komi
til sölu þeirra gæti verið hægt að
grynnka á skuldunum.
Fylkingar takast á
Deilur innan Framsóknarflokks-
ins má að einhverju leyti skýra sem
deilur íhaldssamrar fylkingar, sem
Óskar er jafnan sagður tilheyra, og
frjálslyndari fylkingar Einars. Þing-
menn á borð við Guðmund Stein-
grímsson, Siv Friðleifsdóttur og
Birki Jón Jónsson eru taldir tilheyra
frjálslyndari armi flokksins. Hinn
armurinn er það sem einn flokks-
maður kallaði „hin harða Skaga-
fjarðarklíka“ en henni tilheyra
meðal annars Sigmundur Davíð,
Gunnar Bragi Sveinsson og Vigdís
Hauksdóttir. Sá hluti flokksmanna
sem vildi breytingar fylkti sér að
baki Einari.
Þessar deilur kristölluðust í
samskiptum Sigmundar Davíðs
og Guðmundar, þar sem formað-
urinn sagði gagnrýni Guðmundar
vera ósvífni. Ofan á það bætist að
samskiptin á milli þingflokksins og
borgarstjórnarflokksins hafa verið
betri en þau eru nú um stundir.
Í borgarstjórnarflokknum er
krafa um að setjast niður með
flokksforystunni til að hreinsa loftið
og ræða hreinskilnislega um stöð-
una, áframhald og stefnu flokks-
ins. Það verði gert utan fjölmiðla,
en slíkt fundarboð hefur ekki enn
komið frá forystunni. Sigmund-
ur Davíð hefur talað um mikilvægi
þess að í stjórnmálum vinni flokkar
saman, en innan flokksins er hann
gagnrýndur fyrir að fylgja ekki þeirri
stefnu sjálfur gagnvart flokksmönn-
um. Verði ekki boðað til fundar á
næstunni má hins vegar búast við
því að lykilfólk í Framsóknarflokkn-
um verði uggandi um framtíð sína
innan flokksins.
SKULDUM VAFINN
FLOKKUR Í SÁRUM
Framsóknarflokkurinn kemur út úr kosningunum með nær
ekkert fylgi í Reykjavík. Á sama tíma glímir flokkurinn við
mikinn skuldavanda. Óskar Bergsson vann gegn framboðinu
og fólk í kringum hann er sagt hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn.
Flokksmenn eru sárir út í Sigmund Davíð Gunnlaugsson fyrir
að sýna Einari Skúlasyni lítinn stuðning og fyrir að sýna flokks-
mönnum lítinn samstarfsvilja.
valGEir örn raGnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Vísaði Óskar þess í stað á aðstoðarmann borgarstjóra eða í fundargerðir.
afleit niðurstaða Framsóknarflokkurinn
missti sinn eina mann í borgarstjórn í síðustu
kosningum. Fyrrverandi oddviti listans vann
gegn eigin flokki og framsóknarmenn eru ósáttir
við að forystan vilji ekki taka á sig ábyrgð.