Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 18
18 föstudagur 11. júní 2010 fréttir Már Guðmundsson hagfræðingur hafði búið í fimm ár í Basel í Sviss þegar hann var skipaður seðlabanka- stjóri haustið 2009. Hann missti því af dramatískasta tímabili íslenskrar samtímasögu – bólu, útrás og hruni – sem endaði meðal annars með gjaldþroti Seðlabankans. Már átti að vera fyrstur í nýrri röð seðlabanka- stjóra sem samkvæmt táknmynd hins Nýja Íslands eiga að vera skip- aðir á faglegum forsendum og ekki vegna klíkuskapar og flokkadrátta. Eftir brotthvarf Davíðs Oddsson- ar úr Svörtuloftum, þegar efnahag- ur Íslands var í kaldakolum, kallaði almenningur eftir vel menntuðum hagfræðingi í starfið. Fannst mörg- um kjörið að Már tæki við starf- inu úr hendi setts seðlabankastjóra, Sveins Haralds Øygard. Á síðustu misserum hafa þó nei- kvæðir straumar loðað við ráðningu Más Guðmundssonar. Deilt hefur verið um launakjör hans, sem þykja óhófleg í ljósi niðurskurðar og nýrra áherslna í launamálum hins opin- bera. Skrifuðu sumir að Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra hefði samið við Má á bak við tjöldin og hún ætti því að segja af sér. En hver er þessi gamli meðlimur hins róttæka trotskíistaflokks Fylk- ingarinnar sem nú þykir einn fram- bærilegasti hagfræðingur landsins? Sósíalískt æskuheimili Már Guðmundsson er fæddur árið 1954 og bjó frá 12 ára aldri að Klepps- veginum í Reykjavík. Hann tók lands- próf í Vogaskóla og fór svo í Mennta- skólann við Tjörnina. Foreldrar hans eru Margrét Tómasdóttir skrifstofu- maður og Guðmundur Magnússon verkfræðingur sem lést árið 1987. Pétur Tyrfingsson sálfræðingur var eiginmaður Svövu, systur Más, sem lést langt fyrir aldur fram árið 1987. „Við þrefuðum iðulega við Guðmund. Við urðum mjög stæltir af þeim umræðum, lærðum heilmik- ið. Guðmundur hafði risið úr alþýðu- stétt og brotist til mennta. Hann hafði verið í Sósíalistaflokknum og Æsku- lýðsfylkingunni á æskuárum. Á með- an vorum við snaróðir byltingarsinn- ar og trotskíistar. Þarna rákumst við á þokkalega vel menntaðan mann sem vissi gríðarlega mikið um sögu og annað í þeim dúr og var ekki sam- mála okkur um allt. Heimili þeirra á Kleppsveginum var mikill æfinga- völlur,“ rifjar Pétur Tyrfingsson upp. Hinn landsþekkti jarðeðlisfræð- ingur Magnús Tumi Guðmundsson er yngri bróðir Más. Hann man vel eftir umræðunum á Kleppsvegi. „Það var heilmikið rætt á mínu æskuheimili. Már, Pétur Tyrfings- son og Svava heitin systir mín ræddu sósíalísku fræðin fram og aftur. Ég var það mikið yngri að ég var frekar áhorfandi en þátttakandi.“ Drykkjufélagið Græna bokkan Pétur er einn nánasti vinur Más en þeir voru skólabræður í Menntaskól- anum við Tjörnina og bandamenn í Fylkingunni - baráttusamtökum sósí- alista. „Við kynntumst fyrst þegar við vorum saman í ritnefnd skólablaðs- ins. Ritnefndarfundirnir voru mörg- um sinnum í viku og þar var rætt um pólitík langt fram á nótt og við mátt- um varla vera að því að koma út blað- inu,“ segir Pétur. „Á þessum árum var mikil pólitík og mikið djamm. Við stofnuðum drykkjufélagið Grænu bokkuna og það var klíkan sem hitt- ist fyrir skólaböll og slíkt. Meðlimir Grænu bokkunnar voru, ásamt okk- ur, ýmsir sem nú eru þjóðþekktir menn, til dæmis Sigurður Valgeirs- son [fjölmiðlafulltrúi Fjármálaeftir- litsins] og Óskar Magnússon [útgef- andi Morgunblaðsins],“ segir Pétur og bætir við að Már sé örlátur mað- ur. „Það var hægt að reykja upp úr pakkanum hans endalaust, og hann var búinn með sígaretturnar sínar áður en hann vissi af. En hann hætti reyndar sem betur fer snemma að reykja. Og þú gast drukkið frá honum vínið. Ef hann átti pening, þá eyddi hann honum.“ Trotskíistinn Már Már og Pétur gengu í Fylkinguna árið 1973. Í Fylkingunni mættist ungt fólk sem vildi bæta heiminn og trúði á kenningar Trotskís og hafnaði Sov- étleiðinni. „Við vorum trotskíistar, á móti maóistum og stalínistum,“ seg- ir Pétur. „Már var á æskuárum róttækur og þjálfaðist mjög í ýmiss konar þrætu- bókarlist og samræðutækni. Hann gaukaði stundum að mér lesefni um róttæk mál,“ segir Magnús Tumi. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son er af sömu kynslóð og Már. Þeir voru hvor á sínum vængnum í stjórn- málunum en Hannes var meðlimur í Heimdalli. „Ég man vel eftir Má, þeg- ar hann var í Fylkingunni og við átt- um í kappræðum í framhaldsskólum úti á landi, líklega veturinn 1977 til 1978. Hann var ekki besti ræðumað- urinn, sem Fylkingin átti þá. Hann beitti röddinni ekki rétt í ræðustól og talaði dálítið yfir fólk í stað þess að tala við það. Már naut sín betur í fárra manna tali. En á kappræðufundun- um í gamla daga var Már ósköp vin- gjarnlegur og kurteis persónulega. Það þarf ekki að spyrja að því, að hann var þá hvínandi ofstækismað- ur, þótt hann hækkaði síður róminn en skoðanabræður hans. Fylking- armenn voru um þær mundir trot- skíistar. Þeir vildu blóðuga byltingu, en voru ekki reiðubúnir til að verja stjórnarfar Stalíns í Ráðstjórnarríkj- unum. Þeir sögðu: „Við viljum ekki stærri sneið af kökunni. Við viljum allt helvítis bakaríið!“ segir Hannes Hólmsteinn. Fylkingin blómaskeið Más Einar Már Guðmundsson rithöfund- ur var meðlimur í Fylkingunni. „Már var einn af leiðtogunum í Fylking- unni. Á tíma Más breyttist Fylking- in úr lausbeisluðum stjórnleysingja- samtökum í agaðan flokk. Hann var talsmaður aga og stefnu. Á þessum árum var Már strax orðinn spreng- lærður hagfræðingur af sjálfsdáðum. Hann var mjög vel lesinn, rökfastur og ótrúlega fljótur að átta sig á hlut- unum. Eins og ég horfi á málin var á þessum árum ákveðið blómaskeið í hausnum á Má. Honum hefur nú ekkert hrakað síðan, en hann beit- ir hagfræðinni allt öðruvísi, hugsar hana eins og embættismaður,“ segir Einar Már. Hafði lítið fyrir náminu Már lærði til BA-prófs í Essex á Eng- landi og hlaut meistaragráðu frá Cambridge-háskóla í hagfræði árið 1980. Pétur Tyrfingsson segir að Már sé vel gefinn maður. „Már fékk fljótt áhuga á vísindunum, og hagfræðiá- huginn kom mjög snemma. Það var mjög ljóst á meðan hann var ennþá í menntaskóla að hann færi í hag- fræði. Hann þurfti lítið að hafa fyr- ir því að læra og hann fékk yfirleitt prýðiseinkunnir. Hann lokaði sig af rétt fyrir próf og virtist geta einbeitt sér hundrað prósent á meðan. Hann hefur komist þangað sem hann hefur ætlað sér, þessi maður,“ segir Pétur. Magnús Tumi á góðar minning- ar frá námsárunum. „Már er kátur í gleðskap og það er mikið fjör í kring- um hann. Þegar við vorum báðir í framhaldsnámi í Bretlandi bjó ég í London og hann í Cambridge og það voru haldin mjög skemmtileg partí þegar hann kom í heimsókn.“ Sagði risaeðlunum fyrir verkum Við heimkomuna frá Bretlandi fékk Már starf hjá Seðlabanka Íslands, þar sem hann hefur starfað með hlé- um síðan. „Már fór að vinna í Seðla- bankanum á meðan hann var enn í Fylkingunni. Síðan flosnaði upp úr hreyfingunni. Ástæðan var að þetta var hreyfing menntafólks og það var lítil verkalýðshreyfing sem fylgdi. Það lýsir Má vel að þrátt fyrir að hann hafi verið í Fylkingunni og verið þessi byltingarmaður, þá byrjuðu menn að leita ráða til hans úr pólitíska vinstri- vængnum á Alþingi. Menn komust fljótlega að því að sama hver pólitísk afstaða hans var þá þetta alveg helvíti klár maður,“ segir Pétur Tyrfingsson. Árið 1988 var Már ráðinn sem efnahagsráðgjafi  Ólafs Ragnars Grímssonar, sem þá var fjármálaráð- herra. Að sögn kunnugra vakti hann mikla eftirtekt og þótti sýna mikla hæfileika. Sérstaklega þótti hann sýna klærnar í samskiptum ráðu- neytisins við Seðlabankann, sem þá var að mörgum fannst yfirlætis- full stofnun og ósamstarfsfús. Pétur Tyrfingsson segir að fyrsti fundur- inn sem Ólafur Ragnar og Már héldu með Seðlabankanum hafi verið at- hyglisverður. „Venjan var sú að Jó- hannes Nordal seðlabankastjóri og félagar sátu þarna og töluðu niður til pólitíkusanna, því þeir áttu ekki að vita neitt. En núna allt í einu á þess- um fundi var einhver strákur mætt- ur með fjármálaráðherranum sem sagði gömlu mönnunum fyrir verk- um, vísaði þeim til sætis eins og sá sem valdið hafði. Þarna var Már að passa upp á að fjármálaráðherrann yrði ekki ósjálfstæður og yrði ekki undir í glímu við seðlabankastjór- ana,“ segir Pétur. Mikill fræðimaður Árið 1994 var Már Guðmundsson skipaður aðalhagfræðingur Seðla- bankans og starfaði sem slíkur til ársins 2004 þegar hann var ráðinn til Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss.  Birgir Ísleifur Gunnarsson var þá seðlabankastjóri og yfirmaður Más. „Mér þótti hann góður og þægi- legur í samstarfi. Við söknuðum hans þegar hann fór til Sviss en skildum vel að hann vildi fara, þar sem hann fékk starf hjá virtri alþjóðastofnun. Ég gaf honum mín bestu meðmæli og sendi til forráðamanna Alþjóða- greiðslubankans. Már er skemmti- legur maður. Hann er svolítill besser- wisser, eins og sagt er. En Már er mjög duglegur og vinnusamur. Hann er góður hagfræðingur og mikill fræði- maður, hefur skrifað ágætar fræði- ritgerðir um peningapólitík og skyld efni,“ segir Birgir Ísleifur. Hann seg- ist ekki hafa þurft að kljást við Má að neinu ráði, þó að þeir kæmu hvor af sínum stjórnmálavængnum. „Það er nú merkilegt með marga þessa hag- fræðinga af vinstri vængnum að þeir eru mjög miklir markaðshyggju- menn. Og það er Már líka. Þannig að það varð ekki mikill ágreiningur á milli okkar um stefnu í peningamál- um eða þess háttar, og hafi það verið, þá leystist það yfirleitt,“ segir seðla- bankastjórinn fyrrverandi. Fljótur að hugsa Hannes Hólmsteinn sat í bankaráði Seðlabankans á þessum árum og starfaði náið með Má. „Ég hef ekkert nema gott um þau samskipti að segja. Már er auðvitað drjúgur með sig, satt að segja rígmontinn, en hann er vel gefinn og vel að sér. Skoðanir okk- ar fóru mjög oft saman. Hann skilur vel eðli peningamála. Þess má raun- ar geta, að Már skrifaði lokaritgerð sína í Cambridge-háskóla um meðal annars túlkanir Keynes og Hayeks á heimskreppunni, svo að hann veit að- eins meira um austurríska skólann í hagfræði en gengur og gerist um sósí- alista. Þegar Már var aðalhagfræðing- ur Seðlabankans og sat á bankaráðs- fundum, má hann eiga að hann var fljótur að hugsa og snöggur að skilja aðalatriði frá aukaatriðum,“ segir Hannes. Már Guðmundsson fluttist heim frá Basel í Sviss til að gerast seðlabankastjóri. Margir fögnuðu því að loksins væri hagfræðingur í brúnni. En undanfarið hafa launamál hans verið vandræðaleg fyrir ríkisstjórnina og hann hefur verið sakaður um græðgi. DV ræddi við fjölskyldu, vini, samstarfsmenn og gamla andstæðinga hagfræðingsins sem endur fyrir löngu var leiðtogi trotskíistahreyfingarinnar Fylkingarinnar. SóSíaliStinn í Seðlabankanum HelGi HraFn GuðMunDSSon blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Már er auðvitað drjúgur með sig, satt að segja rígmont- inn, en hann er vel gef- inn og vel að sér. Blómaskeið Más „Eins og ég horfi á málin var á Fylkingarárunum ákveðið blómaskeið í hausnum á Má. Honum hefur nú ekkert hrakað síðan, en hann beitir hagfræðinni allt öðruvísi, hugsar hana eins og embættismaður,“ segir Einar Már Guðmundsson rithöfundur. MYnD Karl PeTerSSon ljúflingur „Menn horfa á Má í sjónvarpinu og halda að þetta sé einhver sperrtur embættismaður, sem hann auðvitað er, en á bakvið hann er afskaplega mikill ljúflingur,“ segir Pétur Tyrfingsson. MYnD Karl PeTerSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.