Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Qupperneq 20
20 föstudagur 11. júní 2010 fréttir
Verkamannaflokkurinn hefur stað-
fest nöfn þeirra sem bjóða sig fram
til formanns flokksins. Andy Burn-
ham, Ed Balls, bræðurnir David og
Ed Miliband og Diane Abbot hafa
öll náð þrjátíu og þriggja stuðnings-
manna lágmarki til að fá að taka
þátt í kosningunum. Diane Abbot er
eina konan í hópi frambjóðenda. Ef
Abbot nær kjöri verður hún þrjiðja
konan til að leiða flokkinn.
Flokksmenn Verkamannaflokks-
ins höfðu til hálf eitt á miðvikudag
til að skila inn stuðningsmanna-
yfirlýsingum. John McDonnell hafði
lýst því yfir að hann hygði á framboð
en dró það til baka á miðvikudags-
morgun. Sagði McDonnell að hann
drægi framboð sitt til baka í von um
að það gæti tryggt konu sæti á kjör-
seðlinum.
David Miliband lýsti í kjölfarið
yfir á Twitter-síðu sinni að fyrst
McDonnell hefði dregið sig til baka
hygðist hann setja nafn sitt á stuðn-
ingsmannalista Diane Abbot, mót-
frambjóðanda síns. Einnig hvatti
hann aðra til að gera slíkt hið sama. Í
tilkynningu á vefsíðu Verkamanna-
flokksins segir: „Næstu mánuði
munu milljónir manna sem láta sig
fram farir Bretlands varða hafa tæki-
færi á að hlusta og spyrja frambjóð-
endurna á frambjóðendafundum
um allt land.“
Gordon Brown, fyrrum leiðtogi
Verkamannaflokksins og fyrrver-
andi forsætisráðherra Breta, sagði
af sér formennsku í flokknum eftir
þingkosningarnar þar ytra í maí.
Verkamannaflokkurinn á erfitt verk
fyrir höndum, en flokkurinn galt af-
hroð í fyrrnefndum kosningum.
adalsteinn@dv.is
Fimm bjóða sig fram til formanns Verkamannaflokksins:
aðeins ein kona í framboði
Óþekktur fulltrúi
Alvin Greene náði óvænt kjöri sem
fulltrúi Demókrataflokksins til öld-
ungadeildarþings Bandaríkjanna.
Greene verður fulltrúi Demókrata í
Suður-Karólínu. Flestir íbúar ríkis-
ins virðast þó spyrja sig hver hann
sé. Greene er 32 ára fyrrverandi
hermaður, en er atvinnulaus í dag.
Greene segir að allur kostnaður
sem hlaust af framboðinu hafi
verið greiddur úr eigin vasa. For-
svarsmenn Demókrataflokksins í
Suður-Karólínu segja að hugsan-
legt sé að kjósendur sem ekki hafi
þekkt frambjóðandann hafi kosið
eftir stafrófsröð. Mótframbjóðandi
Greenes í forvalinu var fyrrverandi
dómarinn Vic Rawl. Greene segir í
samtali við Mother Jones vefmið-
ilinn: „Ég er ekki að hugsa um
hvernig ég var kosinn – það tilheyr-
ir sögunni. Ég er fulltrúi Demókrata
– við þurfum að tala um hvernig við
eigum að fá Ameríku til að vinna.“
Festist í steypu-
hrærivél
Kínverskur byggingaverktaki slapp á
ótrúlegan hátt eftir að hafa dottið ofan í
steypuhrærivél. Hinn tvítugi Xu var að
hella steypu ofan í hrærivélina þegar
steypupokinn festist í spaða í vélinni og
dró hann ofan í vélina. Til allrar lukku
heyrði vinnufélagi hans öskrin í hon-
um og náði að slökkva á vélinni áður
en illa fór. Þegar vélin hafði verið stöðv-
uð var Xu hins vegar fastur í henni og
þurfti aðstoð slökkviliðsmanna til að
ná honum upp úr vélinni.
Bannað að upp-
færa Twitter
Fyrrverandi ríkis-
stjóra Illinois-
ríkis í Banda-
ríkjunum, Rod
Blagojevich, hefur
verið bannað að
uppfæra Twitter-
síðu sína úr dómssal á meðan rétt-
að er yfir honum vegna spillingar.
Ríkis stjórinn fyrrverandi verður því
að sitja kyrr og hlusta. Fylgjendur
Blagojevich þurfa þar af leiðandi
einnig að sætta sig við að hafa ekki
aðgang að beinni lýsingu hans af
réttarhaldinu. Blago jevich er ákærð-
ur fyrir spillingu, en lögmaður hans
segir hann hafa ekki tekið við svo
miklu sem dollara frá óprúttnum
aðilum. Vandinn sé að hann hafi
treyst röngu fólki.
Aukin ánægja með
flugfélög
Ánægja viðskiptavina flugfélaga
hefur vaxið, í fyrsta skipti í þrjú ár.
Þetta kemur fram í nýlegum könn-
unum JD Power and Associates.
Heilt á litið hefur ánægja viðskipta-
vina flugfélaga í Norður-Ameríku
risið um 15 punka, á þúsund punkta
skala, segir í frétt Chicago Tribune.
Tíu af tólf flugfélögum í Bandaríkj-
unum hafa hækkað á skalanum.
Alaska- og Continental-flugfélög-
in voru með hæstu einkunn í rann-
sókninni. United Airlines og Ameri-
can Airlines voru þó hástökkvararnir
en flugfélögin tvö hoppuðu upp um
í kringum 25 stig. Þrátt fyrir hækkun-
ina á ánægjuskalanum hefur ekkert
flugfélag náð vinsældum ársins
2006, en þá var fyrsta könnun JD
Power og Associates gerð.
Gordon Brown Flokk-
urinn leitar nú að arftaka
Gordon Brown, sem sagði
af sér formennsku eftir að
flokkurinn goldið afhroð í
þingkosningum í maí.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
greiddi á miðvikudag atkvæði um
hvort herða ætti aðgerðir gegn Íran til
muna. Ályktunin var samþykkt með
tólf atkvæða meirihluta. Ályktunin
hefur verið rædd undan farna daga
og sagði utanríkis ráðherra Banda-
ríkjanna, Hillary Clinton, fyrir at-
kvæðagreiðsluna að ályktunin legði
til „þau ströngustu viðurlög sem Íran
hefur staðið frammi fyrir“. Þetta er í
fjórða sinn sem Öryggis ráðið sam-
þykkir þvinganir gegn Íran, og hafa
þvinganirnar aldrei verið samþykkt-
ar með jafn litlum meirihluta.
Mohammad Khazaee, fulltrúi
Írans á þingi Sameinuðu þjóðanna,
segir að ef til frekari þvingana af
hálfu Öryggisráðsins komi muni
írönsk stjórnvöld bregðast við með
því sem þau teldu viðeigandi hætti.
Khazaee segir að augljóst sé að
löndin í Öryggisráðinu skilji ekkert
nema beinar aðgerðir.
Vildu enn harðari aðgerðir
Í ályktuninni er lagt til að viðskipta-
bann á Íran verði hert, auk þess að
banna fjárfestingar Írans erlendis og
frystingu erlendra eigna landsins.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti
Írans, hefur hins vegar sagt að ef til
frekari þvingana komi muni það lík-
lega valda því að írönsk stjórnvöld
hætti viðræðum um kjarnorkueign
landsins. Viðræður þess efnis hafa
átt sér stað undanfarið.
Fulltrúar Bandaríkjanna, Bret-
lands og Frakklands hafa sagt að
þeir hefðu viljað sjá enn harðari að-
gerðir. Fulltrúar Rússlands og Kína
hafi hins vegar náð því fram að að-
gerðirnar yrðu mildari en upphaf-
lega til stóð.
Margþættar aðgerðir
Í ályktuninni er lagt til ferðabann
eins einstaklings. Sá einstaklingur,
Javad Rahiqi, er yfirmaður í írönsku
kjarnorkuveri.
Fjörutíu og einu fyrirtæki er líka
bannað að „ferðast“ í þeim skilningi
að fyrirtækin megi ekki hefja starf-
semi utan Írans. Öll þessi fyrirtæki
eru skilgreind sem líkleg til að styðja
við fjölgun og dreifingu kjarnavopna
á vegum íranskra stjórnvalda. Tveir
bankar eru meðal þeirra fyrirtækja.
Ályktunin leggur til heimildir til
að frysta eignir íranskra banka sem
starfa utan Írans, ef grunur kviknar
um að þeir styðji á einhvern hátt
kjarnavopnaframleiðslu íranskra
stjórnvalda.
Þrjátíu og fimm Íranar búa nú
þegar við skert ferðafrelsi. Er lagt til
í ályktuninni að þeir verði settir í al-
gert ferðabann.
Fækka kjarnavopnum
Aðgerðirnar eiga að vera liður í að-
gerðum Öryggisráðsins til að þrýsta
á stjórnvöld í Teheran að stöðva
framleiðslu kjarnavopna og eyða
þeim sem fyrir eru í landinu. Írönsk
stjórnvöld hafa staðfastlega neitað
því að þau búi yfir kjarnavopnum.
Telur Öryggisráðið það ógna heims-
friði að írönsk stjórnvöld búi yfir
slíkum vopnum.
Fimm lönd eiga fast sæti í
Öryggis ráði Sameinuðu Þjóðanna
og hafa öll þeirra kjarnavopn til
yfir ráða. Það eru Kína, Rússland,
Bandaríkin, Bretland og Frakkland.
Í ljósi ummæla Ahmadinejads,
forseta Írans, gætu þó aðgerðirnar
sem lagðar eru til í ályktuninni haft
þveröfug áhrif og ýtt undir ófrið.
ÓTTAST KJARNORKUSTEFNU ÍRANS
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti á miðvikudag hertar þvinganir
gegn Íran. Þvingununum er ætlað að koma
írönskum stjórnvöld til að hætta auðg-
un úrans. Íranskir fulltrúar hafa sagt að
stjórnvöld muni bregðast hart við frekari
aðgerðum gegn landinu. Forseti Írans segir
viðræðum um kjarnorkustefnu landsins
sjálfhætt ef til frekari þvingana komi.
aðalsteinn kjartansson
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
Mahmoud ahmadinejad
Forseti Írans segir viðræðum um
fækkun kjarnavopna sjálfhætt ef
til frekari þvingana komi.
Öryggisráðið Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna hyggst herða til
muna þvinganir gegn Íran.