Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 21
fréttir 11. júní 2010 föstudagur 21 Kveikt var í fimmtíu bílum sem fluttu vistir og gögn fyrir hermenn vestrænna ríkja í Afganistan á mið- vikudag. Árásin var gerð þegar bíla- lestin staðnæmdist í Pakistan. Talið er að tíu hafi látið lífið. Grunur leik- ur á að Talibanar hafi kveikt í bíl- unum. Bílarnir voru allir á vegum NATO. Aldrei áður hefur sambæri- leg árás verið gerð á bíla á vegum NATO. Einungis hafa slíkar árásir verið gerðar á hergagnaflutninga á vegum Bandaríkjahers. Í það minnsta tíu menn, vopn- aðir byssum, komu akandi á mót- orhjólum og litlum pallbílum að bílalestinni þar sem hún hafði stað- næmst. Bílstjórar bílanna voru all- ir drepnir, auk starfsmanna sem tóku þátt í flutningunum. Árásar- mennirnir komust allir undan og skildu bílana fimmtíu eftir í ljós- um logum. Bílarnir fluttu eldsneyti, mat og aðrar birgðir til Afganistan. Ekki er venjan að slíkir bílar flytji vopn. Leiðin sem bílalestin ók er mjög mikilvægur hlekkur í að flytja vistir til hermanna í Afganistan. Um sjötíu og fimm prósent af vist- um Bandaríkjahers fara til dæmis um þessa leið. Talat Masood, fyrr- um yfirmaður í bandaríska her- num, segir það koma sér á óvart að svo margir árásarmenn hafi getað gert árás svo nálægt Islamabad og komist undan. „Það sýnir að það eru alvarlegir öryggisgallar.“ Árásin undirstrikar vaxandi spennu í Pak- istan, þar sem Talibanar hafa kom- ið af stað bylgju af árásum á erlend- ar hersveitir. adalsteinn@dv.is Kveikt var í fimmtíu bílum sem fluttu vistir fyrir hermenn: Íkveikja kostaði tíu mannslíf Skatturinn fær ekki neitt Dauði milljarðamæringsins Dan Duncan gæti ekki hafa komið á verri tíma fyrir skattstofuna í Bandaríkj- unum. Þannig vill til að í ár er eins árs undanþága frá erfðaskatti í gildi í landinu. Erfingjar milljarðamærings- ins munu þar af leiðandi erfa allan auðinn sem Duncan skilur eftir sig, og skatturinn fær ekki neitt. Dánar- búið er metið á níu milljarða Banda- ríkjadala. Það gerir um það bil ellefu hundruð milljarða íslenskra króna. Tvö ár í símaklefa Kínverskur maður hefur búið í síma- klefa undanfarin tvö ár. Maðurinn, sem neitar að segja til nafns, býr í símaklefa í borginni Dalian í Lia- oning-héraði í Kína. Hann sefur á daginn, en kemur út á næturna til að betla mat, segir í frétt Badao Morn- ing Post. Maðurinn sefur einungis á kodda og hefur gert tilraunir til að gera símaklefann heimilislegri. Við hlið hans er snyrtilega raðaður turn af matarílátum og vatnsflöskum, og hanga fötin hans snyrtilega úr loftinu. „Okkur langar að finna fjöl- skylduna hans og senda hann heim. En hann talar ekki við neinn. Það er erfitt fyrir okkur að vita hvernig við getum hjálpað honum,“ segir borgar starfsmaður. Nei við Móður Teresu Eigendur Empire State-byggingar- innar í New York sögðu já við Mar- iuh Carey, hundasýningum, krabba- meinsgóðgerðarsjóðum og meira að segja 60 ára afmæli Kína. Hins vegar segja þeir nei við Móður Teresu. Óskað var eftir því að byggingin yrði flóðlýst í tilefni af afmæli Móðir Ter- esu 26. ágúst. Beiðninni var hafnað án skýringa. Tveir borgarfulltrúar í New York hafa opinberlega hvatt til þess að eigendur byggingarinnar endurskoði ákvörðun sína. Móðir Teresa var handhafi Friðarverðlauna Nóbels. Engar bætur Forsvarsmenn kínversku verksmiðj- unnar Foxconn hafa tilkynnt að fyrirtækið hyggist hætta að greiða skaðabætur vegna sjálfsmorða. Mikið hefur verið um sjálfsmorð meðal starfsmanna í fyrirtækinu undan farið. Hefur fyrirtækið greitt aðstandendum þeirra sem fremja sjálfsmorð sem nemur tíu árslaun- um almennra starfsmanna í verk- smiðjunni. Það samsvarar tæplega tveimur milljónum króna á hvern. Íkveikja Kveikt var í fimmtíu bílum á vegum NATO sem keyrðu með vistir og gögn í gegnum Pakistan á leið sinni til Afganistan. ÓTTAST KJARNORKUSTEFNU ÍRANS Öryggisráðið krefst þess einnig að eftirlitsmenn Alþjóða kjarn- orkumálastofnunarinnar fái að- gang að landinu. Eftirlitsmönnun- um er ætlað að sjá til þess að írönsk stjórnvöld standi við samþykktir Sameinuðu þjóðanna um kjarna- vopn. Þarf níu atkvæði Ekkert af stóru löndunum fimm sem hafa neitunarvald í Öryggis- ráðinu, hafnaði ályktuninni. Eins og áður segir var ályktunin sam- þykkt með tólf atkvæða meirihluta en öryggis ráðið samanstendur af fimmtán þjóðum. Þurfti því aðeins níu atkvæði til að ályktunin yrði samþykkt. Fulltrúar Tyrklands og Brasilíu fengu til lestrar brot úr skýrslu kjarnorkueftirlitsmanna frá Sam- einuðu þjóðunum frá því í októb- er. Þar var því lýst að stjórnvöld í Teheran hygðust losa sig við tólf hundruð kíló af auðguðu úrani. Fulltrúar landanna tveggja sögðust styðja þær fyrirætlanir og því myndu þeir ekki taka þátt í undirbúningi ályktunarinnar. Fulltrúar ríkjanna greiddu svo atkvæði gegn ályktun- inni. Fulltrúi Líbanons sat hjá. Írönsk stjórnvöld segjast ennþá vera tilbúin að standa við þær fyrir- ætlanir, og að þar með verði deilan um kjarnorkueign Írana afgreidd. Fulltrúar stóru ríkjanna fimm voru ekki tilbúnir að samþykkja þær mála- lyktir. Segja fulltrúarnir Íran hafa í það minnsta auðgað tvöfalt meira úran en til var í landinu í október. Þau ströngustu viðurlög sem Íran hefur staðið frammi fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.