Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Qupperneq 22
Bæjarstjóri og
varaformaður
n Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins verður haldinn 25. og 26. júní.
Ólöf Norðdal alþingismaður er eini
frambjóðandinn
til varaformann-
sembættisins
sem losnaði þegar
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
hrökklaðist úr
stóli. Nýtt nafn
heyrist nú æ oftar
nefnt í tengslum
við varaformannsembættið. Það er
nafn Aldísar Hafsteinsdóttur, bæjar-
stjóra í Hveragerði. Enginn frambjóð-
andi vann stærri sigur en Aldís með
64,4 prósentum atkvæða í Hveragerði
og bætti flokkurinn við sig bæjarfull-
trúa í nýafstöðnum kosningum.
stórtap Bjargar
formanni
n Sjálfstæðismenn eru margir hverjir
hugsi vegna árangurs Besta flokks-
ins í Reykjavík og L-listans á Akur-
eyri. Ljóst er að
mikil stemning
er fyrir því meðal
almennings að
skipta um og fá
nýtt fólk í forystu.
Bjarni Benedikts-
son gæti verið
valtur ef einhver
þyrði að bjóða sig
fram gegn honum. Það bjargar Bjarna
að vísu að hann hefur fram að þessu
lifað af þrátt fyrir þátttöku hans í út-
rásarbraski með Wernersbræðrum.
Helst var talið að Kristján Þór Júlíus-
son þingmaður gæti orðið honum
skeinuhættur. Stórtap á Akureyri
hefur aftur á móti veikt stöðu hans.
óskhyggja
vinstrimanna
n Guðmundur Ólafsson hagfræðing-
ur nefndi það á Rás 2 að hann teldi
öruggt að Davíð Oddsson, ritstjóri
Moggans, væri
að undirbúa
formannsfram-
boð í Sjálfstæðis-
flokknum. Þessu
til stuðnings
nefndi hann að
Páll Vilhjálms-
son, bloggari
og deildarstjóri
Rannís, hefði hraunað yfir Bjarna
Benediktsson á bloggi sínu. Þetta
taldi Guðmundur vera að undirlagi
Davíðs. Meðal sjálfstæðismanna er
kenningin talin fráleit og að í henni
felist óskhyggja vinstrimanna um að
Davíð komi til baka og rústi Sjálf-
stæðisflokkinn eins og Seðlabankann
og Morgunblaðið.
sagði nei takk
nEins og greint var frá í Sandkorn-
um DV höfðu stjórnendur Stöðvar
2 mikinn áhuga á því að fá Þórhall
Gunnarsson, fyrrverandi dagskrár-
stjóra RÚV, til liðs við sig. Þar kom
til greina að hann yrði eins konar
forstöðumaður fréttasviðs. Ráðning
Þórhalls þótti sérlega heillavænleg í
ímyndarlegum skilningi. En nú mun
draumurinn vera úti. Þórhallur er
sagður hafa afþakkað. Ástæðan mun
vera aðaleigandinn, Jón Ásgeir Jó-
hannesson. Þetta er í annað skiptið
sem Þórhallur hafnar Jóni Ásgeiri,
sem á sínum tíma bauð honum 200
milljónir fyrir að færa sig.
Eftir að útrásarvíkingarnir hrökkluðust flestir úr landi hefur eftirspurn aukist eftir þotuliði innanlands. Opinber
fyrirtæki hafa lagt sig í framkróka um
að efla hag starfsmanna sinna og gera
þeim kleift að vera í samfélaginu með
reisn. Lög Jóhönnu
Sigurðardóttur í þá
veru að enginn
megi hafa hærri
laun en forsætis-
ráðherra hafa
kallað á hjáleiðir
þar sem laun
mikilvægra starfs-
manna eru annars
vegar.
Allt hófst þetta daginn sem launaþakið var samþykkt. Sama ráðuneyti og samdi lögin lenti í þeirri erfiðu
aðstöðu að þurfa að finna leið til að
borga nýjum seðlabankastjóra þau
laun sem hann setti upp. Auðvitað var
það þannig að staðan var auglýst, sem
út af fyrir sig er framför hjá Jóhönnu,
en það var jafn borðleggjandi að ekki
stóð til að ráða einhvern skussa til
starfans. Því var ákvörðun um að ráða
Má fyrir liggjandi áður en nauðsynleg
auglýsing birtist. Og það er þannig
þegar fólki er boðin vinna að það þarf
einnig að bjóða því ásættan leg laun.
Það varð því úr að forsætisráðuneytið
fór á bak við forsætisráðherrann og bjó
til hjáleið. Már fékk sérstaka greiðslu
fyrir að vakna á morgnana. Síðan fékk
hann borgað fyrir að mæta í vinnuna.
Loks fékk hann borgað fyrir að
fara heim á kvöldin. Þetta var
allt fyrir utan föstu launin
sem vissulega voru lægri en laun for-
sætisráðherrans.
Hjá Orkuveitu Reykjavíkur er svipaður háttur hafður á varðandi laun. Veitan sér um að koma sínu fólki til og
frá vinnu en fæstir eru á hærri grunn-
launum en forsætisráðherra. Orkuveit-
an er illa stödd fjárhagslega og því nauð-
synlegt að spara þar til hægt er að hækka
reikninga á almenning. Þess vegna er
farin sú leið að kaupa notaða bíla fyrir
millistjórnendur. Fjármálastjórinn þarf
að sætta sig við bifreið sem kostar aðeins
átta milljónir króna. Svona Benz fyrir
blanka. Aðrir yfirmenn Okurveitunnar
fá síðan bifreiðir á verðbilinu 20 millj-
ónir og niður í fimm. Þetta er ákaflega
virðingarvert í kreppunni. Opinbert
fyrirtæki axlar ábyrgð og rifar seglin.
Svarthöfða hlýnar svo um hjartarætur
að hitareikningur hans mun snarlækka
um næstu mánaðamót.
Benz fyrir Blanka „Það er sama hvað verður
reynt, þá verðum við ekki
stöðvaðir.“
n Einar Ingi Marteinsson, Forseti mótor-
hjólasamtakanna MC Iceland, sem eru á barmi
þess að verða fullgildur meðlimur í Hells Angels.
Hann segir ekkert stöðva það að samtökin verði
innlimuð í Hells Angels. - DV
„Draumur okkar beggja
að rætast.“
n Baldvin Vigfússon kærasti Völu Grand en
Vala gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð á
Landspítalanum í Fossvogi á sunnudag. - DV
„Þetta er uppáhalds
orðrómurinn minn.“
n Gaukur Úlfarsson, fjölmiðlafulltrúi Besta
flokksins. Þrálátur orðrómur hefur verið á sveimi
um að tónlistarstjarnan Björk Guðmundsdóttir
hafi styrkt framboðið um allt að 30 milljónir.
Gaukur segir ekkert til í því. - DV
„Þessir einstaklingar hafa
ekkert fengið neina
syndaaflausn.“
n Björn L. Bergsson, settur ríkissaksóknari í
málum tengdum bankahruninu, sem komst að
þeirri niðurstöðu að ekki ætti að hefja
sakarannsókn á þætti þriggja fyrrverandi
seðlabankastjóra í hruninu. - DV
„Þetta er pólitísk hýðing.“
n Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segir að Jóhanna
Sigurðardóttir, forsætisráðherra, láti
athugasemdir Jóns Bjarnasonar varðandi
væntanlegt frumvarp um sameiningu
ráðuneyta sig ekkert varða. - visir.is
Lygi bankanna lifir
Bankarnir eru aftur komnir á fullt. Þeir græddu 51 milljarð króna á síðasta ári. Og fjölmiðlar fyllast af auglýsingum
um að þeir hugsi fyrst og fremst um þinn hag
og lausnir handa þér.
Enginn efast um ábyrgð bankanna á því
hvernig komið er fyrir almenningi á Íslandi.
Engu að síður axla þeir ekki þessa ábyrgð,
þótt þeir geti það. Þeir leiðrétta ekki sligandi
skuldir sem þeir bera ábyrgð á að hafa hækk-
að.
Siðleysi bankanna, þrátt fyrir fallegar aug-
lýsingar, byggist á eðli þeirra og misskilningi
okkar. Við gerum ráð fyrir því að bankarnir
hafi siðlega vídd, en þeir hafa hana ekki.
Bankar eru óháðir siðferði, nema upp að
því marki að ef almenningsálitið versnar
er hætt við því að færri skipti við þá og þeir
tapi peningum. Hins vegar hafa „viðskipta-
vinirnir“, sem bankarnir traðka mest á,
litla möguleika á því að nýta valfrelsi sitt og
hafna bankanum, líkt og öðrum þjónustu-
fyrirtækjum. Lánin hafa hækkað svo mikið
að margir geta ekki flutt sig um banka –
nema mögulega gegn því að vextir lánanna
verði stórhækkaðir. Margir geta ekki hafnað
bankanum og látið leggja launin sín inn á
annan banka – því skilmálar húsnæðislána
voru þeir að nýta yrði visst marga þjónustu-
þætti hjá sama banka, annars snarhækkuðu
vextirnir.
Bankarnir eru handan markaðslögmála,
því viðskiptavinir þeirra hafa verið sviptir
valfrelsinu. Viðskiptavinirnir eru þrælar
þeirra. Bankarnir hafa kverkatak á fólkinu
sem þeir sjálfir felldu. Einn viðskiptavinur
bankanna lýsir því í samtali við helgarblað
DV hvernig honum varð við þegar Lands-
bankinn hirti ævistarfið af honum og fjöl-
skyldu hans: „Handrukkari er hreinni og
beinni en bankakerfið á Íslandi. Þú veist þó
allavega að hann ætlar að koma og berja þig
en þú veist ekkert með bankann, hann bara
blóðmjólkar þig.“
Líkt og meðvituð blóðsuga hugsar bank-
inn ekki hvort fólk eigi að borga, heldur
hversu mikið það geti borgað án þess að það
örmagnist og borgi ekki meir. Þetta virðist
reyndar samrýmast stefnu ríkisstjórnar-
innar hugmyndafræðilega; þeir borgi sem
geti, hvort sem þeir eigi að gera það eða ekki.
Ólíkt bönkunum reynir ríkisstjórnin hins
vegar að færa fé frá þeim sem geta borgað til
þeirra sem þurfa á því að halda til að lifa af.
Enginn ætti að búast við siðlegri breytni
af bankanum. Hann mun í besta falli leika
eftir siðlega breytni í tilraun sinni til að
græða meira á þér. Hann mun alltaf segja
það sem hann heldur að þú viljir að hann
segi, svo þú gerir það sem hann hagnast mest
á. Ef reglurnar eru svo rúmar að hann megi
halda kverkataki á þér og nærast á þér mun
hann gera það, en með bros á vör og klappa
þér á kinnina. Og það mun koma þér á óvart,
því hann hefur eytt miklum fjármunum í að
telja þér trú um að hann sé mannlegur og að
hann hafi þína hagsmuni að leiðarljósi.
Banki er hvorki mannleg né siðleg vera. Það
eru hins vegar Jóhanna Sigurðardóttir og
félagar hennar í ríkisstjórninni. Þau hafa
tækifæri til að breyta reglunum og banna að
bankar eignist fólk.
jón trausti reynisson ritstjóri skrifar. Bankarnir eru handan markaðslögmála, því viðskiptavinir þeirra hafa verið sviptir valfrelsinu.
22 föstudagur 11. júní 2010 umræða
sandkorn
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja skaftadóttir
framkvæmdaStjóri:
Bogi Örn emilsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
dv á netinu: Dv.Is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
leiðari
svarthöfði
bókstaflega
Glötuð tækifæri
Svona ykkur að segja, kæru lesend-
ur, þá er ég að verða frekar leiður
á því að verja störf ríkisstjórnar Jó-
hönnu og Steingríms J. og þá einkan-
lega vegna þess að þau eru svo mörg
óunnin handtökin hjá þeim skötuhjú-
um. Mér er eiginlega farið að gremjast
eitt og annað í þeim seinagangi sem
þau hjúin hampa nánast undantekn-
ingalaust. Þau hafa nefnilega notið
þeirra forréttinda að hafa í stjórnar-
sáttmála nokkur loforð sem svo auð-
veldlega hefði mátt efna. Loforðin þau
arna hefðu getað orðið okkur öllum
til framdráttar og hefðu svo hæglega
getað aukið vinsældir stjórnarinnar í
leiðinni.
Það hefði svo sannarlega getað
orðið hinn einfaldasti hægðarleikur
að eyða kvótakerfinu. Skjaldborgin
um heimilin í landinu hefði svo aug-
ljóslega getað orðið sýnileg í faðmi
döngunar og vilja til góðra verka.
Stjórnlagaþingi var lofað en ekkert
hefur komið fram sem segir okkur að
það loforð verði efnt.
Reyndar hefur fátt komið fram
sem bendir til þess að ætlun hafi verið
að efna þau loforð sem tíunduð eru
hér að framan.
Auðvitað er það svo að kjörin tæki-
færi vilja renna mönnum úr greipum.
Einkum þau sem hugsanlega geta
leitt til góðra verka og ásættan legrar
niðurstöðu fyrir þjóðina alla, því það
virðist einfaldlega vera regla frekar
en undantekning, að stjórnmála-
menn hugsi fyrst og fremst um hag fá-
mennra hagsmunahópa, en leyfi svo
hagsmunum heildarinnar að mæta
afgangi, þ.e.a.s. ef þeir hagsmunir fá
þá að mæta einhverju öðru en eilífri
glötun.
Hér má minnast á það, að þeir
aumu delar sem núna tilheyra hinni
svokölluðu stjórnarandstöðu hefðu
getað nýtt aðstöðu sína til góðverka.
Reyndar er hér um að ræða hóp sið-
spilltra dusilmenna sem eru á móti
öllum góðum gjörningum og sjá, af
þeim sökum, ekki tilgang í fallega
hugsuðum framkvæmdum. Fram-
sóknarmenn hafa nánast misst af
gullnu tækifæri til að leggja flokkinn
niður áður en hann eyðir sér sjálfur og
hverfur fullkomlega. Sjálfstæðismenn
hafa nánast misst af því góða tækifæri
að sýna örlítinn heiðarleika. En það
hefðu þeir t.d. getað gert með því að
láta mútuþega í þingliðinu segja af sér
og hverfa af sviði. Enn einn kjáninn
og Sigmundur Davíð Oddsson, eða
hvað hann nú heitir sá ágæti maður,
hefðu getað sameinast um það, að tjá
sig ekki um heiðarleg vinnubrögð og
vilja til góðra verka, því um slík mál
geta þeir hvorki talað af reynslu né
þekkingu.
Ef þig mæðir gaman grátt
er glópar kjaftinn þenja
þá skaltu bera höfuð hátt
og hættu svo að grenja.
KristJÁN HreiNssON
skáld skrifar
„Framsóknarmenn
hafa nánast misst
af gullnu tækifæri
til að leggja
flokkinn niður.“
skáldið skrifar