Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Blaðsíða 23
„Nei, en mig vantar hjálp. Ég myndi
alveg þiggja stuðning frá þeim ef þau
eru aflögufær.“
Atli RúnAR HeRmAnnsson
33 ára skemmtaNalögga
„Já, ég geri það. Ég borga í rauða
krossinn og ég er í amnesty.“
eRpuR eyvindARson
33 ára bíógagNrýNaNdi
„Já, ég er sjálfboðaliði. Hjá Unicef og
rauða krossi íslands.“
láRA HilmARsdóttiR
19 ára Nemi
„Já, samtök sem snúast um dýr.“
HelenA pálsdóttiR
19 ára Nemi
„Ég hef ekki gert það hingað til
allavega.“
Héðinn ÞóR ingólfsson
18 ára, atviNNUlaUs
Styður þú hjálparStofnanir?
ARon pálmARsson
var í vikunni valinn efnilegasti
leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í
handbolta. aron stóð sig frábærlega
með kiel á sínu fyrsta tímabili en liðið
bæði vann meistaradeildina og varð
Þýskalandsmeistari. aron getur ekki
gert upp á milli titlanna.
Eins og að gEra upp
á milli barnanna
Eftir fall krónunnar jafnt sem fjár-
málakerfisins alls haustið 2008 fór
það að gerast að flestar vörur fóru
að hækka, og er matarkarfan nú um
þriðjungi dýrari en hún var fyrir einu
og hálfu ári. Fæstir kipptu sér mikið
upp við þetta. Þar sem innflutning-
ur var allur orðinn dýrari hlaut var-
an að hækka. Er það ekki? Undan-
farið hefur krónan styrkst gríðarlega
mikið miðað við það sem var þegar
hún var sem lægst. Hversvegna fer
vöruverð þá ekki lækkandi?
Margir líta svo á að beint sam-
hengi sé á milli þess sem það kostar
að kaupa inn vöru eða framleiða
hana og þess sem hún síðan kostar
út í búð. En því miður er því svo farið
að almenningur er mun uppteknari
af sanngirnishugmyndum heldur
en kaupmenn eru. Þeirra hvati er
einfaldur, að reyna að græða sem
mest. Það er ekkert að því í sjálfu sér,
en einhvern veginn þarf að fylgjast
með því að gróðinn gangi ekki gegn
hagsmunum almennings.
Afsakanir kaupmanna
Þegar íslenskir kaupmenn eru
spurðir út í hversvegna allt sé svona
dýrt hérna kenna þeir iðulega
sköttum og álögum um. Samt er það
svo að þegar skattar eru lækkaðir
eða afnumdir lækkar varan sjaldn-
ast í kjölfarið. Þetta átti til dæmis
við um það þegar skattur var lækk-
aður á bíómiða, en þó hækkuðu
miðarnir í kjölfarið. Það sama gildir
um geisladiska og bækur.
Hin afsökun auðmanna er geng-
isbreytingar. Í góðærinu var krón-
an svo há að allur innflutningur
var í raun mjög ódýr. Samt skilaði
þessi styrkur krónunnar sér ekki
í lækkandi vöruverði. Hlutirnir
hækka í verði þegar gengi er óhag-
stætt, en lækka aldrei aftur. Hvernig
stendur á þessu?
Hvert eigum við að fara til að
versla?
Svarið er einfalt. Ef fólk hefur einu
sinni vanist því að borga meira fyrir
vöru, sérstaklega nauðsynjavöru
eins og matvöru, hefur kaupmaður-
inn lítinn hag af því að lækka hana
aftur. Lækkun skatta eða hagstæð-
ar gengisbreytingar fara því beint í
hans vasa. Sumstaðar kemur sam-
keppni reyndar í veg fyrir slíkt. Ef
varan er á miklu hærra verði úti í
búð en það kostar að flytja hana
inn eða framleiða hana sér einhver
annar sér hag í að selja vöruna, því
nógur er ágóðinn samt. Á Íslandi
er hinsvegar lítil sem engin sam-
keppni. Því er það ávallt svo að
vörur á Íslandi fara hækkandi þegar
gengið versnar, en lækka aldrei á ný
þegar það lagast. Það er ekki eins
og við getum bara verslað einhvers-
staðar annarsstaðar.
Þetta leiðir okkur að öðru vanda-
máli. Hvers vegna er almenningur
almennt svona illa upplýstur um
grunnhugmyndir hagfræðinnar?
Vissulega má segja að Hrunið hafi
verið einn allsherjar „crash kúrs“ í
hagfræði. En sú menntun hefði átt
að hefjast mun fyrr og á öðrum vett-
vangi. Sjálfur hef ég mjög gaman af
þeirri áherslu á klassísk fræði sem
er viðtekin í skólakerfinu, svo sem á
bókmenntir og sögu. En ef ég þyrfti
að velja myndi ég frekar vilja að all-
ir landsmenn fengju grunnkennslu
í hagfræði.
Hagfræði í heitu pottana
Menn skeggræða pólitík í heitu
pottunum og hafa allir sína skoð-
un, en sáralítið er fjallað um efna-
haginn sem öll pólitík byggir á. Þetta
var og eitt af helstu vandamálum
góðærisins, viðskiptamenn gátu
kjaftað alla í kaf með hugtökum sem
voru allt of flókin fyrir almenning
til að skilja. En samt varð sú heil-
brigða skynsemi sem flestir búa
yfir og allt gott byggir á útundan.
Hagfræðin er of mikilvæg til þess
að hag fræðingarnir einir verði látnir
um hana.
Að lokum legg ég til að lög verði
sett sem banna viðskiptabönkum,
þar sem almenningur leggur inn
sparifé sitt, og fjárfestingarbönkum,
sem eru fyrst og fremst spilavíti, að
vera eitt og hið sama.
Hvers vegna hækkar alltaf allt?
umræða 11. júní 2010 föStudagur 23
myndin
Hver er maðurinn? „aron Pálmarsson.“
Hvað drífur þig áfram? „markmiðin
draga mig áfram.“
Hvar ertu uppalinn? „two, twenty.“
áhugamál fyrir utan handbolta?
„kvikmyndir, músík og fótbolti.“
Hvernig líkar þér lífið í Þýskalandi?
„Frábærlega.“
Hvor titillinn var sætari, meistara-
deildin eða þýska deildin? „Þetta
er eins og að gera upp á milli barnanna
sinna. kannski 51% bundesligan.“
Hvernig er að spila á móti öllum
stjörnunum? „Það er bara frábært,
eðlilegt.“
eru einhverjir leikmenn öðru vísi á
velli en þú hafðir ímyndað þér eftir
að hafa séð þá í sjónvarpi? „Ég hélt
alltaf þegar ég var búinn að sjá vigga
svavars í sjónvarpi (vigni svavarsson,
leikmaður íslenska landsliðsins og
lemgo) að hann væri svo feitur. en svo er
hann bara ekkert feitur.“
Hvernig leið þér þegar þú varst
valinn efnilegasti leikmaðurinn?
„sælutilfinning. Þetta kom mér líka
skemmtilega á óvart því ég vissi ekki af
þessum titli og var því ekki að búast við
neinu.“
Hvað ætlar þú að gera í sumar? „í
sumar ætla ég að sleikja vonandi sólina á
íslandi, vera með vinum og fjölskyldu og
kíkja á 101-djammið.“
skeytin inn eða draumalínusend-
ing? „draumalínusending.“
maður dagsins
dómstóll götunnar
kjallari
Í röð og reglu áttundi valdamesti maður kína, He guoqiang, heimsótti framkvæmdasvæðið við tónlistarhúsið við höfnina, Hörpu, á fimmtudag. Fjölmargir kínverskir
verkamenn tóku á móti embættismanninum. Heimsóknin til íslands var í tengslum við undirritum gjaldeyrisskiptasamnings við seðlabanka íslands. mynd HöRðuR sveinsson
vAluR gunnARsson
rithöfundur skrifar
„Hlutirnir hækka í
verði þegar gengi
er óhagstætt, en
lækka aldrei aftur.
Hvernig stendur á
þessu?“