Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 27
11. júní 2010 föstudagur 27
Langdregin tískusýning
föstudagur
n Fótbolti og Steindi
Þar sem HM í fótbolta er að hefjast
ætlar Prikið að sýna opnunarleikinn
Suður-Afríka - Mexíkó klukkan 14.00
og einnig Úrúgvæ - Frakkland klukkan
18.20. Klukkan 21.20 verður svo sýndur
næstsíðasti þátturinn af Steindanum
okkar en þar beint á eftir stíga Kristó og
Franz á stokk.
n Útgáfuhóf Nóru
Hljómsveitin Nóra fagnar útgáfu fyrstu
plötu sinnar á Íslenska barnum við
Austurvöll klukkan 17.00 á föstudag.
Platan heitir Er einhver að hlusta. Veigar
eru fríar meðan birgðir endast og platan
verður á sérstöku tilboðsverði.
n Efnilegt tónlistarfólk á Venue
Hljómsveitirnar Of Monsters and Men,
Pascal Pinon og Klassart halda tónleika á
staðnum Venue í Tryggvagötu. Upprenn-
andi hljómsveitir í íslensku tónlistarlífi
en Of Monsters and Men var sigurvegari
síðustu Músíktilrauna.
laugardagur
n Froðupartí á Selfossi
Þessu tvö orð hljóma líkt og þau hafi
aldrei verið sögð hvort í sínu lagi. 800
bar og Agent.is standa fyrir heljarinnar
froðupartíi þar sem aldurstakmark er 16
ár. Miðinn kostar 2.000 krónur en þetta
er annað árið í röð sem froðan flæðir um
800 bar.
n Hunang á Spot
Hljómsveitin Hunang með Karl
Örvarsson í broddi fylkingar tryllir
mannskapinn á laugardagskvöldið eins
og henni einni er lagið. Sveitin leikur hin
ýmsu tökulög og er þekkt fyrir fjölbreytt
lagaval. Allir ættu því að finna eitthvað
við sitt hæfi.
n Playboy-partí á Venue
Sérstakt Playboy-partí fer þannig fram
að 20 Playboy-stúlkur taka á móti þeim
fyrstu með drykkjum. Allar stelpur eru
hvattar til þess að mæta með vörumerk-
ið fræga á klæðnaði sínum en flottasti
og kynþokkafyllsti búningurinn verða
sérstaklega verðlaunaðir. Húsið verður
opnað á miðnætti og miðaverð er 999
krónur.
n Ljótu hálfvitarnir í Ýdölum í Aðaldal
Ljótu hálfvitarnir fagna útgáfu þriðju
hljómplötu sinnar með tónleikum að
Ýdölum í Aðaldal í S-Þingeyjarsýslu.Plat-
an ber, eins og fyrri plötur þeirra, nafnið
Ljótu hálfvitarnir. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21.00 og verður efni af nýju
plötunni uppistaðan í efnisskránni en þó
verður lætt inn vinsælum slögurum af
eldri plötum.
Hvað er að
GERAST?
Þegar ég heyrði af nýrri mynd með
stelpunum í Sex and the City þá
varð ég himinlifandi. Ég er mik-
ill aðdáandi þáttanna og hef fylgst
með þeim vinkonum í gegnum súrt
og sætt. Þess vegna fylgdi því mikil
tilhlökkun að fara á nýjustu mynd-
ina um þær. Ég var búin að heyra
utan að mér að myndin væri ekki
góð en ég ákvað að láta ekki svart-
sýnisraddir á mig fá og fara með op-
inn huga á myndina.
Ég hefði þó betur hlustað.
Myndin er misheppnuð frá upp-
hafi til enda. Hún er hæg, leiðinleg,
langdregin, yfirborðskennd, væm-
in og umfram allt; fjallar ekki um
neitt. Ég er hrædd um að aðstand-
endur myndarinnar hafi ætlað sér
að toppa fyrri myndina með mik-
ilfenglegri búningum, meiri íburði
og glæsilegra setti en einhvers stað-
ar þarna á leiðinni gleymdist að
gera ráð fyrir söguþræði. Myndin
er mjög hæg, það gerist allt á hraða
snigilsins. Ef það koma upp ein-
hver vandamál, sem eru í algjöru
lágmarki þar sem allt er svo full-
komið hjá þeim, þá er þau mjög
auðleyst. Þetta var eins og tveggja
og hálfs tíma væmin og löng tísku-
sýning, og fötin voru ekki einu
sinni það flott. Þær stöllur höfðu
allar tapað þeim persónueinkenn-
um sem gerðu þær skemmtilegar
og eftir sat innihaldslaus tískusýn-
ing. Ég beið alla myndina eftir að
eitthvað myndi gerast en því mið-
ur þá gerist nánast ekkert í þess-
ari mynd. Ljósu punktarnir eru
örfá atriði með Samönthu þar sem
maður gat hlegið en þau voru bara
alltof fá.
Ég mæli með að fólk noti pen-
ingana sína og tíma í eitthvað gáfu-
legra en þessa mynd. Ég gef mynd-
inni 1 og 1/2 stjörnu og það fær
hún fyrir að skarta Lizu Minelli í
byrjun myndar og örfá atriði sem
komu í veg fyrir að ég geispaði gol-
unni í miðjum bíósalnum.
Viktoría Hermannsdóttir
...myndinni
Youth In
revolt
Klassa gam-
anmynd sem
allir ættu að hafa
gaman af.
...tölvu-
leiknum
red dead
redemtion
Frábær og
öðruvísi
skemmtun.
...bókinni Missi
eftir guðberg
Bergsson
Sönn, sorgleg og
fyndin lýsing á
ellinni og áhrifum
hennar.
...myndinni
Centurion
Arfaslök mynd
sem gagn-
rýnandi líkir
við Hallmark-
furðufataball.
...myndinni
snabba Cash
Mjög góð
glæpamynd með
sterka raunveru-
leikatengingu
...myndinni
Prince of
Persia: the
sands of
time
Hálfgerður
Pappírs-Persi.
frIðsöM BYltIng teMPlaranna
fjarðar og settist þar að var vandinn
sá að það vantaði leikrit. Á þessum
tíma var svo afskaplega lítið til af
þeim. Af íslenskum leikritum voru
einungis til Útilegumennirnir, eða
Skugga-Sveinn, Nýársnóttin og leik-
rit Sigurðar Péturssonar.
„Þorsteinn skrifar því tvö leikrit
og gefur út, Útsvarið og Prestskosn-
inguna,“ segir Jón. „Í þeim er svolít-
ið tekið á félagsmálum samtímans.
Í Prestskosningunni eru til dæmis
teknar til meðferðar spurningar um
þá meinbugi sem geta verið á fram-
kvæmd lýðræðisins, hætturnar við
að einstakir menn noti það sér til
framdráttar í krafti auðs og valda.“
Góðtemplararnir fóru snemma
með gestaleiki til Reykjavíkur, til
dæmis settu þeir Skugga-Svein upp í
Iðnó um aldamótin 1900. Jón Trausti
rithöfundur skrifaði um þá upp-
færslu mjög harðan leikdóm. „Þar
spurði hann hvað þessir „viðvaning-
ar“ væru að leika Skugga-Svein, það
væri ekki nokkur mynd á þessu hjá
þeim, og velti hann fyrir sér hvað
þeir væru að koma með þetta í höf-
uðstaðinn,“ segir Jón Viðar og hlær.
Síðbúið leikfélag
Leikfélag Hafnarfjarðar var stofnað
árið 1936. Þrátt fyrir að fimmtíu ár
hafi liðið frá því Gúttó var vígt og þar
til leikfélagið var stofnað var eflaust
meira og minna óslitin leikstarfsemi
í húsinu, telur Jón, þótt það hafi verið
misjafnt eftir árum.
„Málið var að leiksýningar voru
ákveðin tekjulind fyrir stúkurnar,
ungmennafélögin, kvenfélögin og
jafnvel verkalýðsfélög og fleiri félög.
Menn voru því ekkert alltaf hrifnir af
því að einhverjir væru að stofna sér-
stök leikfélög. Svo var líka talsvert
um það að leiksýningar væru haldn-
ar til styrktar fátækum eða sjúkum.
Þess vegna var ákveðin andstaða
sums staðar, en ég veit ekki alveg
hvernig það var hér í Hafnarfirði. Ég
hef alla vega engar sérstakar spurn-
ir af því. En ég get nefnt sem dæmi
að Eyþór Stefánsson, sem var aðal-
burðarás leikstarfs á Sauðárkróki og
stofnaði þar leikfélag, sagði mér að
hann hefði mætt talsverðri andstöðu
við það innan stúkunnar þar í bæ.“
Almannarómur eftir Stein Sig-
urðsson var fyrsta sýning Leikfélags
Hafnarfjarðar eftir stofnunina upp
úr miðjum fjórða áratugnum. Leik-
félagið lék í nokkur ár, dofnaði fljót-
lega en svo lifnaði aftur yfir því 1943
og starfaði það með miklum krafti
langt fram á sjöunda áratuginn. Árið
1945 flutti LH starfsemi sína úr Gúttó
í hið nýja bíóhús bæjarins og starf-
aði þar á meðan það var við lýði. Þó
að sviðið í Bæjarbíói væri ekki stórt
þóttu aðstæður til leiksýninga þar
skárri en í gamla Gúttó. Frá sjónar-
hóli húsaverndar var brottflutningur
LH úr Gúttó mikið happ því um leið
minnkaði ágangur á húsinu og svið-
inu, þó að enn færi þar fram ýmis
starfsemi, þar á meðal danskennsla.
Jón Viðar segir áhersluna í verk-
efnavali leikhússins í gegnum tíð-
ina hafa verið á gamanleiki. „Verk-
efnavalið sór sig þannig í ætt við það
sem löngum tíðkaðist hjá leikfélög-
um landsbyggðarinnar. Gamanleik-
ir, flestir af erlendum uppruna, voru
algengir og voru sumir afar vinsæl-
ir. Þótt verkefnin hafi fyrst og fremst
verið afþreyingarkyns þá er greini-
legt að það var metnaður í þessu fé-
lagi. Langalgengast var til dæmis að
þau fengju leikstjóra frá Reykjavík til
að setja upp,“ segir Jón og nefnir þar
menn eins og Ævar Kvaran, Klemens
Jónsson, Einar Pálsson, Rúrik Har-
aldsson og fleiri. Stjörnur úr borginni
komu líka stundum til þess að leika,
eins og Haraldur Á. Sigurðsson, sem
var vinsælasti gamanleikarinn á
þessum tíma ásamt Alfreð Alfreðs-
syni, og Emilía Jónsdóttir.
Á meðal hafnfirsku áhugaleikar-
anna og -leikkvennanna sem léku
að staðaldri hjá LH má nefna Eyjólf
Illugason járnsmið, sem var einnig
meðal framámanna Góðtemplara og
lék hlutverk Skugga-Sveins hvenær
sem leikurinn var settur upp á um
þrjátíu ára tímabili, og Huldu Run-
ólfsdóttur.
„Hún var kennari hér og var mjög
hæfileikarík. Hún var enda mik-
il stjarna á þessum tíma,“ segir Jón
en þess má geta að Hulda er móðir
Hjálmars Sveinssonar útvarpsmanns
og nú varaborgarfulltrúa Samfylk-
ingar. Jón nefnir einnig Guðfinnu
Breiðfjörð, Herdísi Þorvaldsdóttur
auk þess sem Kristbjörg Kjeld tók sín
fyrstu spor á sviði í Hafnarfirði árið
1950. Marga fleiri mætti svo nefna.
Endurreisn leikfélags
Starfsemi LH lognaðist út af um
miðjan sjöunda áratuginn. Jón seg-
ir að verið geti að samkeppnin við
leikhúsin í Reykjavík hafi spilað þar
eitthvað inn í. Þetta var líka rétt áður
en sjónvarpið kom þannig að þetta
voru erfiðir tímar. Leikfélagið var
hins vegar endurvakið 1983 og hefur
síðan þá haldið uppi mjög kröftugu
starfi.
„Það er svolítið gaman að því að
endurreisnin byrjar í Flensborgar-
skólanum sem sýnir þetta samspil
á milli skólanna og leiklistarlífs-
ins. Árni Ibsen heitinn fer að starfa
sem kennari í Flensborg árið 1976
og hann setur af stað mikla leiklist-
arhreyfingu þar. Þau setja þar upp
stóra söngleiki og mjög metnaðar-
full verkefni, til dæmis Ó, þetta er in-
dælt stríð, sem var frægur söngleikur,
Indíána eftir Arthur Kopit, Eftirlits-
mann Gogols og fleira. Þarna varð
til svolítið sterkur kjarni sem raun-
verulega endurreisir svo leikfélag-
ið. Atvinnuleikhús varð svo til hér
með stofnun Hafnarfjarðarleikhúss-
ins, Hermóðs og Hávarar, árið 1995.
Það er auðvitað einn kaflinn í þess-
ari sögu líka, að hér verður til metn-
aðarfullt atvinnuleikhús sem nær að
stimpla sig á kortið.“
Starfsemin í Gúttó er ekki mikil
eins og stendur. Byggðasafn Hafn-
arfjarðar annast rekstur hússins.
Hugmyndin er hins vegar að húsið
verði sýningarhús, að sögn Jóns. Vilji
manna standi til þess að þar verði
sýningarhald í bland við samkomu-
hald einhvers konar.
Jón bætir við að lokum að virki-
lega ánægjulegt sé fyrir Leikminja-
safn að standa fyrir svona sýningu,
en fyrir fjórum árum stóð safnið fyr-
ir sýningu í líkingu við þessa á Ak-
ureyri. „Það er líka gaman að því að
hafa fengið tækifæri til að gera þetta
vegna þess að Leikminjasafnið er
þjóðarsafn. Við erum því ekkert síður
að safna gögnum um áhugamanna-
starfið í íslenskri leiklistarsögu en
starfsemi atvinnuleikhúsfólks. Ef
menn til dæmis á litlum stöðum úti
á landi eru með einhverja hluti sem
þeim finnst ástæða til að varðveita
þá þiggjum við þá með þökkum.“
Sýningin í Gúttó er opin laugar-
daga og sunnudaga klukkan 11-17.
kristjanh@dv.is
Jón Viðar Jónsson Segir
sögu leikstarfs í Hafnarfirði
afar merka og skemmtilega
sögu. MYND Hörður SVEiNSSoN
sex and the city 2
Leikstjóri: Michael Patrick King
Aðalhlutverk: Sarah Jessica Parker,
Kristin Davis, Cynthia Nixon, Kim Cattrall
kvikmyndir
Sex and the City 2 Misheppnuð
frá upphafi til enda