Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Qupperneq 32
32 11. júní 2010 Föstudagur
Fyrsta keppnin í ÚrÚgvæ
HM var fyrst haldið árið 1930 í
Úrúgvæ. Heimamenn báru sigurorð
af Argentínu, 4-2, í úrslitum og urðu
fyrstir þjóða til að verða heimsmeist-
ari í knattspyrnu.
Brassar Bestir
Engin þjóð hefur
unnið HM oftar en
Brasilía. Í Þýskalandi
árið 2002 unnu Brassar
sinn fimmta heimsmeistaratitil en
þeir höfðu einnig unnið 1958, 1962,
1970 og 1994.
UnnU ekki heima Alls hafa
sjö þjóðir unnið HM og hvort sem
þær hafa unnið þær einu sinni
eða fjórum sinnum hafa þær allar
hampað titlinum á heimavelli að
minnsta kosti einu sinni. Það er að
segja allir nema Brasilíumenn. Á HM
í Brasilíu árið 1950 töpuðu Brassar
fyrir Úrúgvæ í úrslitum og misstu af
styttunni á heimavelli.
silFUr-Þjóðverjar Þjóðverjar
státa af þremur heimsmeistaratitlum
en þeim mistókst að taka þann
fjórða í Japan og Suður-Kóreu
árið 2002. Titlar Þjóðverja gætu
svo sannarlega verið
fleiri en engin þjóð
hefur tapað jafnoft í
úrslitum, alls fjórum
sinnum. Árin 1966,
1982, 1986 og 2002.
Fyrsta gUla í mexíkó Það var
ekki fyrr en í heimsmeistarakeppn-
inni í Mexíkó árið 1970 sem fyrst
var notast við gul og rauð spjöld
og einnig varamenn. Fyrsta rauða
spjaldið fór þó ekki á loft fyrr en
í keppninni árið 1974. Það hlaut
Síle-maðurinn Carlos Caszely á 67.
mínútu í leik gegn Vestur-Þýska-
landi.
ÞrjÚ gUl á simUnic Aðeins
einum leikmanni í sögu HM hefur
tekist að fá þrjú gul í
sama leiknum. Josip
Simunic, varnar-
maður Króata, hlaut
þann mikla heiður í
keppninni árið 2006.
Fyrst fékk hann gult
fyrir brot á Harry Kewell en leikið var
gegn Ástralíu. Annað gula fékk hann
svo fyrir ljóta tæklingu en enski
dómarinn Graham Poll fattaði ekki
að reka hann út af. Simunic var ekki
hættur og eftir leikinn fékk hann svo
þriðja gula spjaldið fyrir að ýta við
dómaranum. Þá fékk hann loks rautt
spjald.
Fyrir og eFtir stríð Svíinn
Erik Nilsson og Svisslendingurinn
Alfred Bickel eru einu mennirnir
sem spilaðu á HM fyrir og eftir síðari
heimsstyrjöldina.
allra manna yngstUr
Fyrrverandi leikmaður Manchester
United, Norman Whiteside, er
yngsti maðurinn til þess að spila á
HM. Hann var aðeins 17 ára og 41
dags gamall þegar hann lék með
Norður-Írum gegn Júgóslövum á
HM 1982.
Flestir í BrasilíU Aldrei hafa
fleiri séð úrslitaleik en á HM árið
1950 þegar Brasilía tapaði á heima-
velli gegn Úrúgvæ. Alls voru 199.854
á hinum magnaða Maracana-velli í
Rio í Brasilíu.
aldrei í Úrslita-
keppnina Skotar
voru alltaf nokkuð
duglegir að komast
á lokakeppni HM þó
að þeir hafi ekki sést
síðan 1998. Þeim tókst
þó aldrei að komast upp úr riðli
og á Skotland vafasamt met tengt
því. Engu öðru liði hefur mistekist
að komast upp úr riðlunum á átta
mótum í röð. Það mistókst Skotlandi
í keppnunum árin 1954, 1958, 1974,
1978, 1982, 1986, 1990 og 1998.
hvað var hann
að gera Þar?
Eitt skrítnasta rauða
spjald HM-sögunnar
á Ramon Quiroga,
fyrrverandi markvörður
Perú. Það skal endurtekið að hann
var markvörður. Quiroga fékk
rauða spjaldið á HM 1978 fyrir brot
á vallarhelmingi andstæðingsins.
Þannig að eðlilega hlýtur maður að
spyrja: Hvað var hann að gera þar?
HMstaÐrEYNdir
Ferskir
og Flottir
til aÐ FYlgjast mEÐ
Í hverri heimsmeistarakeppni eru margir áhugaverðir ungir leikmenn sem vert er að
fylgjast með. Hér er smá brot af ungu strákunum sem ættu að gleðja augað í Suður-Afríku.
Gamlir og góðir
stépHane
Mbia
kamErúN
aldur: 24 ára. staða: Miðvörður/miðjumað-
ur. Félagslið: Marseille. landsleikir: 12 (3).
n Kamerún er þekkt fyrir að ala af sér
sterka fótboltamenn sem maður heldur
stundum að geti hlaupið í gegnum
steinvegg. Einn þeirra er hinn 24 ára
gamli Stéphane Mbia sem leikur með
Frakklandsmeisturum Marseille. Hann
getur bæði spilað sem miðvörður og
sem djúpur miðjumaður. Mbia átti
flott tímabil í Frakklandi og fer fullur
sjálfstrausts til Suður-Afríku. Hann
veit vel að góð frammistaða þar getur
komið honum lengra og skal enginn
veðja gegn því að hann verði kominn í
stærra félagslið eftir keppnina í júlí.
angel Di
María
argENtíNa
aldur: 22 ára. staða: Kantmaður.
Fél agslið: Benfica. landsleikir: 8 (1 mark).
n Eitt verst geymda leyndarmálið
í alþjóðlegum fótbolta er hversu
hæfileikaríkur Argentínumaðurinn
Angel Di María er. Hann sló í gegn bæði
með Rosario í heimalandinu og svo
með argentínska U20 ára landsliðinu og
var í kjölfarið keyptur til Benfica á átta
milljónir evra. Hann er alveg frábær,
hraður vinstri kantmaður með góðan
fót sem skapar mikinn usla í föstum
leikatriðum. Það hafa ekki margir hér
heima fengið að sjá hvað hann getur en
hann mun væntanlega sýna á HM hvers
vegna öll stórliðin eru með hann efstan
á blaði.
alexis
sancHez
CHilE
aldur: 21 árs. staða: Framherji. Félagslið:
Udinese. landsleikir: 28 (11 mörk).
n „Hinn chileski Messi“ eða „Undra-
drengurinn“ er hinn 21 árs gamli Alexis
Sanchez kallaður, klárlega einn af þeim
ungu mönnum sem fólk ætti að fylgjast
með á HM í sumar. Sanchez færði
sig frá argentínska stórveldinu River
Plate til Udinese fyrir tveimur árum
og hefur gert það gott á Ítalíu. Hann
hefur nú þegar skorað ellefu mörk fyrir
landsliðið, þar af þrjú í undankeppninni
þar sem Chile endaði í 2. sæti á eftir
Brasilíu. Styrkleiki hans er staðan einn
á móti manni en það má hver einasti
varnarmaður búast við hreinni martröð
þurfi hann að mæta Sanchez án hjálpar.
Marek
HaMsik
slóvakía
aldur: 22 ára. staða: Miðjumaður. Félags-
lið: Napolí. landsleikir: 30 (8 mörk).
n Heltattúveraður töffari og langbesti
leikmaður sinnar þjóðar aðeins 22
ára. Hann er frábær miðjumaður með
næmt auga fyrir spili og svo skorar
hann líka. Hamsik setti tólf mörk á
frábæru tímabili sínu með Napoli á
Ítalíu í vetur og önnur tíu tímabilið
þar á undan. Slóvakíska liðið er svo
sannarlega ekki það mest spennandi á
HM og enginn býst við neinu af því. Þó
er búist við miklu af Marik Hamsik. Stór
lið í Evrópu gætu hafa gert stór mistök
að kaupa hann ekki áður en HM byrjaði
því nú gæti verðmiðinn rokið upp úr
öllu valdi.
Það eru ekki bara ungu mennirnir sem fá að láta ljós sitt skína á HM. Fyrir marga er þetta
síðasta keppnin sem þeir munu taka þátt í og hér er litið á nokkra jaxla sem verða liðum
sínum mikilvægir þrátt fyrir aldur sinn.
daNmörk
aldur: 33 ára. staða: Framherji.
landsleikir: 110 (51 mark).
n Það er kannski um of fyrir Danina
að treysta um of á hinn 33 ára gamla,
stóra, sterka og íslenskættaða fram-
herja, Jon Dahl Tomasson. Sérstaklega
ekki þar sem hann hefur nú ekki skor-
að í tólf landsleikjum í röð. Markaskor
hans með landsliðinu útskýrir samt
alveg hví þeir treysta svona á hann.
Hann er ekki sá teknískasti í heimi en
hann böðlast þetta áfram á hörkunni
og er frábær að slútta. Áður en hann
datt í markaþurrðina í landsliðsbún-
ingnum var hann með ríflega mark í
öðrum hverjum leik. En það var þá og
þetta er núna. Jon Dahl er samt alltaf
lykilmaður hjá Dönum.
argENtíNa
aldur: 35 ára. staða: Miðjumaður.
landsleikir: 70 (9 mörk).
n Þrátt fyrir háan aldur er hinn magn-
aði leikstjórnandi Juan „Seba“ Veron
lykilmaður í argentínska landsliðinu.
Maradona þjálfari trúir á að spila með
leikstjórnanda og í því hlutverki eru
fáir betri en Veron. Hann er kominn
heim til Argentínu þar sem hann spilar
með uppeldisfélagi sínu Estudiantes.
Þar gerði hann sér lítið fyrir og
leiddi liðið til sigurs í Meistaradeild
Suður-Ameríku, hinni víðfrægu Copa
Libertadores. Það er tæpt að Veron spili
allar níutíu mínúturnar alla leikina en
ljóst er að hann mun gleðja augað með
hárnákvæmum sendingum. Og ef ekki
þá er bandið sem hann ber alltaf um
hnéð klassík.
kamErúN
aldur: 33 ára. staða: Miðvörður.
landsleikir: 133 (5 mörk).
n Það voru mikil vonbrigði fyrir
Rigobert Song að Kamerún komst
ekki á HM 2006. Þá væri hann að leika
á hvorki meira né minna en sinni
fimmtu keppni, sem aðeins fáir menn
hafa getað státað af. Rigobert Song er
gleðigjafi. Hann er kannski ekki besti
varnarmaður í heimi en hann hefur
verið nokkuð stöðugur í tyrknesku
deildinni síðastliðin ár. Það sem má
bóka er að Song gefur sig allan í leikinn
af lífi og sál og mun drífa kamerúnska
liðið áfram. Hann er einn af þessum
leikmönnum sem heimsmeistara-
keppnin snýst um.
ítalía
aldur: 36 ára. staða: Miðvörður.
landsleikir: 133 (2 mörk).
n Maðurinn sem lyfti bikarnum fyrir
fjórum árum og var í kjölfarið valinn
besti leikmaður heims. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan þá og eftir
vond tímabil með Real Madrid og ekk-
ert sérstakt hjá Juventus er Cannavaro
nú búinn að semja við Al-Ahli Dubai
og hefur þar leik í haust. Það er vægast
sagt athyglisvert að landsliðsfyrirliði
heimsmeistara Ítala mæti á HM
samningsbundinn liði í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Cannavaro
er þó vanalega traustur sem eik um leið
og hann klæðir sig í bláa búninginn.
Cannavaro er svo sannarlega maður
sem þarf að fylgjast með, hvort sem
það verður af slæmu eða góðu.
juan verón jon DaHl
toMasson
rigobert
song
Fabio
cannavaro