Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 36
36 föstudagur 11. júní 2010 viðtal Ég er náttúrulega æðislegur“ segir Siggi Hlö og skellir upp úr. „Nei, í al-vöru þá finnst mér alltaf jafn fynd-ið þegar konur hringja inn og garga að ég sé kynæsandi. Þá bara hlæ ég og spyr hvort þær hafi séð mig,“ segir Siggi Hlö sem stjórnar samkvæmt könnunum vinsælasta útvarpsþætti landsins, Veistu hver ég ég var? Siggi er skemmtanaglöðum Íslendingum vel kunnugur eftir áratugastarf í útvarpi og sem plötusnúður. Hann hefur verið vinsæll meðal kvenþjóðarinnar sem er í miklum meirihluta meðal þeirra sem hringja inn í þáttinn hans. Hann telur sig þó ekki vera kvennagull enda ástfanginn upp fyrir haus. Líf hans hefur þó ekki verið gleði út í gegn því ungur að árum varð hann fyrir nokkr- um áföllum sem mörkuðu líf hans. Á örfáum árum missti hann föður sinn, frænda og mág, alla fyrir aldur fram. Fyrsti plötusnúður seljaskóla Siggi fæddist í miðbænum en flutti ungur að árum í Seljahverfið í Breiðholti. Hverfið var þá að byrja að byggjast upp. „Þetta byrjaði allt í Seljahverfinu. Þar byrjaði ég feril minn sem plötusnúður. Þar byrjaði stuðið. Ég var fyrsti plötusnúður Seljaskóla,“ segir Siggi kátur í bragði. „Þannig var það að ég átti svo mikið af plötum því pabbi minn var í millilandasigl- ingum og kom alltaf með nýjustu plöturn- ar handa mér.“ Á þessum árum voru nýjustu plöturnar oft lengi á leiðinni til landsins. Þar sem faðir Sigga var í siglingum var hann yfir- leitt kominn með nýjustu plöturnar nokkrum vikum áður en þær komu í plötubúðir lands- ins. „Svo átti að fara að halda fyrsta unglinga- ballið í skólanum en þá voru góð ráð dýr því það þurfti að finna einhvern sem átti tónlist. Það endaði með því að unglingarnir þurftu að fara niður í barnadeild að ná í mig, 12 ára guttann, til að spila á ballinu. Ég var náttúru- lega mjög ánægður með það og tók með mér nesti á ballið. Ritzkex og rækjusalat og spilaði í skúringakompu. Síðan var eiginlega ekki aftur snúið,“ segir Siggi sem er enn í dag, 30 árum síðar, einn vinsælasti plötusnúður landsins. „Já, þarna byrjaði þetta og ég er enn að. Ég hafði bara svo gaman af þessu. Ég var náttúru- lega aðalspaðinn í Seljaskóla með plöturnar mínar.“ stoFnaði Ferðadiskó Siggi hefur alla tíð haft mikið að gera og byrj- aði snemma að spila í hinum ýmsu veislum. „Rétt áður en ég fékk bílpróf stofnuðum ég og félagi minn ferðadiskótekið Biggi og Bói sf. Við fengum alls konar gigg og spiluðum með- al annars fyrir starfsfólk Samvinnubankans og Arnarflugs. Við notuðum fermingargræjurnar í þetta, hann kom með sínar og ég mínar og þannig gátum við spilað. Þarna byrjaði maður að uppgötva þetta og þetta er alveg jafn gaman í dag. Ég segi stundum að ef ég væri dópisti þá væri þetta dópið mitt. Að koma inn í sal fullan af fólki, til dæmis fallegt brúðkaup þar sem all- ir sitja ægilega fínir. Svo kannski hálftíma eftir að ég byrja að spila eru karlarnir orðnir berir að ofan með bindið bundið um hausinn. Það er kikkið mitt,“ segir Siggi sem er bókaður sem plötusnúður nánast allar helgar fram í mars 2011. „Það er ekki bara Páll Óskar sem er full- bókaður,“ segir Siggi og glottir við tönn. Byrjaði ungur í útvarpi Auk þess að vera plötusnúður um helgar stjórnar Siggi vinsælasta útvarpsþætti lands- ins, Veistu hver ég var? á laugardögum á Bylgj- unni. Hann hefur verið viðloðandi útvarp síð- an hann var unglingur. „Ég byrjaði í útvarpi 1986 og hef verið meira og minna í tengslum við útvarp síðan þá.“ Hann hóf útvarpsferil sinn hjá Útrás, út- varpi framhaldsskólanema, þá 16 ára gamall. Þar gegndi hann starfi útvarpsstjóra en staldr- aði stutt við því hann var rekinn. „Ég gerði þau mistök að panta snittur upp á mitt einsdæmi, fyrir formlega opnun stöðvarinnar, án þess að ráðfæra mig við hina í stjórninni. Mér fannst bara að það þyrftu að vera snittur þar sem þá- verandi borgarstjóri, Birgir Ísleifur Gunnars- son, var væntanlegur á opnunina. En ég var rekinn og lærði mikið af því,“ segir Siggi alvar- legur en þó skynjar maður að húmorinn er ekki langt undan. „Eftir Útrás fór ég svo að vinna á nætur- vöktum uppi á Rás 2. Þar var ég í því að taka saman óskalög og lesa inn kveðjur sem bárust á næturnar. Þorsteinn G. Gunnarsson var út- varpsmaðurinn og ég var bara svona á kantin- um hjá honum.“ vanur útvarpsmaður aF rás 2 En Sigga dreymdi um stærri sigra í útvarpi. „Árið 1987 byrjaði Stjarnan og þegar hún hafði verið starfandi í einhverja tvo mánuði manaði ég mig loksins upp í það að hringja niður á Stjörnu og spyrja þá hvort þá vantaði ekki van- an útvarpsmann af Rás 2. Þeir tóku nú aldeil- is vel í það. Ég man að ég hringdi á mánudegi og var kominn í loftið á þriðjudagskvöldi,“ seg- ir Siggi og hlær að minningunni um vana út- varpsmanninn sem hafði þó bara verið að- stoðarmaður á næturvöktum. „Síðan þá hef ég verið meira og minna viðloðandi fjölmiðla.“ Út frá starfi hans við útvarp byrjaði hann smám saman að taka að sér auglýsingaverk- efni. „Það loðir við útvarpsbransann að hjálpa auglýsendum við auglýsingar. Ég vann mik- ið með auglýsendum við að búa til herferð- ir og ýmislegt annað. Svo jókst þetta og jókst og var orðið þannig á endanum að við Valli (Valli sport, innsk. blaðamanns) vorum farnir að vera öll kvöld og allar helgar að vinna bæk- linga og ýmsar auglýsingar. Þá stakk Valli upp á því að við gerðum einhverja alvöru úr þessu og við stofnum auglýsingastofuna Hausverk.“ Í dag reka þeir félagar auglýsingastofuna Pip- ar/TBWA. stripp, dóp, Bjór og hjálpartæki ástarlíFsins Margir muna eftir sjónvarpsþættinum sem Siggi stjórnaði ásamt vini sínum, fyrrnefndum Valla sport, fyrir um það bil áratug og hét því skemmtilega nafni Með hausverk um helgar. „Við bjuggum eiginlega til nafn í kringum aug- lýsingadæmið með þessum þætti. Það vissi enginn hvað auglýsingastofan okkar var en allir þekktu þáttinn.“ Siggi segir þá hafa ver- ið frumkvöðla í þess konar þáttargerð í sjón- varpi. „Við gerðum hluti sem enginn hafði vogað sér að gera áður. Við vorum með stripp, fólk að drekka bjór, fólk að ramba inn og kynn- ingar á hjálpartækjum ástarlífsins, allt í beinni útsendingu.“ Þátturinn var umdeildur og vakti hneyksl- un margra. „Þetta fór í taugarnar á eldra fólk- inu en yngra fólkið dýrkaði þetta.“ Hann telur þá hafa rutt leiðina fyrir aðra sjónvarpsmenn. „Eftir að við vorum hættir byrjuðu 70 mín- útur, svo Strákarnir. Við vorum með hjálpar- tæki ástarlífsins og allt brjálað en svo komu strákarnir og pissuðu á sig og það þótti æðis- legt. Ef við hefðum gert það þá hefði allt orðið brjálað,“ segir Siggi brosandi og bætir við: „Við ruddum veginn fyrir ákveðnar breytingar. En þetta var ekki bara grín. Við fjölluðum um allt það sem okkur þótti áhugavert. Við töluðum til dæmis við menn sem stjórnuðu glæpahóp- um og voru með þjófa á sínum snærum sem brutust inn fyrir þá. Við vorum líka með við- tal við mann sem var dreifingaraðili á fíkni- efnum, efsti maður í keðjunni. Hann lýsti fyr- ir okkur hvernig þetta gengi allt fyrir sig. Svo stóð fíkniefnalögreglan yfir okkur meðan við sendum þáttinn út og reyndi að fá okkur til að tala. Við áttum margoft fyrstu frétt á Stöð 2, við nýttum okkur það að við gátum komist að fólki í innsta hring.“ ekkert kvennagull Eins og áður sagði stjórnar Siggi vinsælasta útvarpsþætti landsins í dag. Í þættinum leggur hann mikla áherslu á að spila fjör- uga tónlist sem höfðar til sem flestra með sérstakri áherslu á tónlist níunda áratugar- ins. Hlustendur hringja inn og panta óskalög. Þátturinn er gífurlega vinsæll og hefur nokkra mánuði í röð mælst með mesta hlustun útvarps- þátta á landinu. „Ég er rosalega ánægð- ur með það hvað þáttur- inn hefur slegið í gegn. Ég vil meina að þetta byggist á fólkinu sem hlustar á mig. Ég fæ rosalega skemmtilegt fólk á línuna, gargandi stelpur úr sumarbústöðum. Það er mjög mikið um að konur hringi inn,“ segir Siggi sem vill ekki meina að hann njóti mikillar kvenhylli. „Ég er ekkert kvennagull.“ Siggi segist umfram allt reyna að vera jákvæður og hress og það skili sér út til hlustenda hans: „Ég hef alltaf lifað lífinu lifandi, ég reyni að vakna skellihlæjandi og fara hlæjandi að sofa.“ Hann sér um að koma fólki í stuð fyrir kvöld- ið með hressandi tónlist. „Fólk spyr mig stundum hvort það hringi bara fullt fólk inn, en það er ekki alveg málið. Oft hringir samt inn fólk sem er aðeins búið að fá sér og það er skemmtilegra að spila þau símtöl en kannski frá þeim sem eru bláedrú. Ég vil samt taka það fram að þetta er enginn fyllerísþáttur,“ segir hann og hlær. „gírar“ Fólk upp „Ég held að ég sé svolítið í því að gíra fólk upp fyrir kvöldið. Fólk er að hafa það gaman á fal- legum laugardegi, er að undirbúa kvöldið, opnar sér kannski „öllara“ og hringir í Sigga og biður um eitt óskalag og gargar í símann. Eða bara er að dúlla sér í eldhúsinu og hlustar á fólk garga í útvarpinu.“ Siggi er einn í stúdíóinu meðan á þættin- um stendur. Hann sér því um alla tæknivinnu sjálfur. „Ég er yfirleitt eins og eftir eróbikktíma klukkan hálf sjö þegar þátturinn er búinn. Al- veg búinn á því.“ Hann segist alltaf hafa jafn gaman af því að vera í útvarpi „Mér finnst bara æðislegt þegar ég fæ ein- hvern á línuna sem er skemmtilegur. Það er líka kannski partur af velgengni þáttarins að það er bannað að minnast á Icesave, kreppu, mótmæli, pólitík eða eitthvað leiðinlegt þessa tvo og hálfa tíma sem ég er í loftinu,“ segir Siggi sem hefur það að takmarki í lífinu að hafa það gaman. Þar sem þátturinn hefur notið gífur- legra vinsælda er ekki auðvelt fyrir hann að skreppa í frí: „Ég hef þurft að sleppa úr svona þremur til fimm laugardögum á ári og þá verður allt vitlaust. Facebook logar og SMS- in streyma inn,“ segir hann en vill þó ekki meina að skemmtanalíf Íslendinga stöð- vist á meðan. „En það kannski hægist að- eins á því.“ missti Föður sinn á jóladag En þó að aðalsmerki Sigga sé hress- leiki og gleði þá hefur lífið ekki allt- af verið dans á rósum hjá þessum jákvæða manni. Hann missti föð- ur sinn ungur að árum og seg- ir það hafa haft töluverð áhrif á sig. „Ég missti pabba minn í sjóslysi á jóladag þegar ég var 18 ára. Jólin eru oft mjög skrýtin hjá manni. Þegar all- ir eru í svaka gleði þá hugsar maður um pabba sinn sem er ekki lengur hjá manni.“ Pabbi hans, Hlöðver Ein- arsson, fórst ásamt fjór- um öðrum með Suðurlandinu árið 1986. Sex menn björguðust. „Þeir fóru út á Þorláks- messu, frá Grindavík. Við vorum svo heppin að við fórum og gistum í skipinu áður en hann fór því það voru jólin. Við náðum að kveðja hann. Svo heyrðum við í honum á aðfangadagskvöld þegar við vorum búin að opna pakkana. Síð- an bara um nóttina fór skipið niður,“ segir Siggi og augljóst er að það tekur á hann að tala um þetta. „Fyrstu fréttirnar af slysinu voru þannig að skipið hefði sokkið en það væru allir heilir á húfi. Svo fóru fréttirnar að breyt- ast þeg- ar líða fór á dag- inn. Við „É er ekkert erfiður föðurmissir Siggi Hlö segir föðurmissinn hafa sett mark sitt á líf hans. myndir róBert reynisson vinsælasti útvarpsmaður landsins „Maður má ekki hætta meðan þetta er svona vinsælt.” lífsglaður „Ég hef alltaf lifað lífinu lifandi, ég reyni að vakna skellihlæj- andi og fara hlæjandi að sofa.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.