Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 38
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is Helgi Hallgrímsson náttúrufræðingur á Egilsstöðum Helgi fæddist í Holti í Fella- hreppi í Norður-Múlasýslu en ólst upp á Arnheiðarstöðum og Droplaugarstöðum í Fljóts- dal. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1955, stundaði nám í líf- fræði, með grasafræði sem aðal- grein, við háskólann í Göttingen í Þýskalandi 1955-57, 1958-59 og 1960-61 og við háskólann í Hamborg 1963. Helgi lauk fyrri- hlutaprófi í Hamborg. Helgi var kennari við Alþýðu- skólann á Eiðum 1957-58 og Menntaskólann á Akureyri 1959- 60, 1961-62 og 1963-69, var safn- vörður við Náttúrugripasafnið á Akureyri frá 1963 og forstöðu- maður þess 1963-73 og 1977-87 og forstöðumaður Rannsóknar- stöðvarinnar Kötlu á Víkurbakka á Árskógsströnd 1971-76. Helgi var formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, frá stofnun 1969- 80 og forseti Vísindafélags Norð- lendinga frá stofnun 1971-87, að fáum árum undanskildum. Helgi, sem hefur skrifað fjölda greina og ritgerða, fékk viður- kenningu Hagþenkis, félags höf- unda fræðirita og kennslugagna, árið 1987 fyrir fræðiritgerðir. Helgi hefur verið búsettur á Egilsstöðum frá 1987. Hann samdi ritið Lagarfljót – Mesta vatnsfall Íslands, sem kom út hjá Skruddu 2005. Fjölskylda Helgi kvæntist 23.4. 1958 Krist- björgu Gestsdóttur, f. 19.10. 1932, d. 1.1. 2008, húsfreyju. Foreldrar hennar: Gestur Kristj- ánsson, f. 10.11. 1906, d. 9.8. 1990, bóndi í Múla í Aðaldal og síðar á Húsavík, og k.h., Guðný Árnadóttir, f. 6.3. 1904, d. 3.11. 1933, húsfreyja. Börn Helga og Kristbjarg- ar: Hallgrímur, f. 12.8. 1958, BA í ensku, búsettur í Reykja- vík; Gestur, f. 14.5. 1960, verk- stjóri á Fosshóli í Ljósavatns- hreppi; Heiðveig Agnes, f. 23.10. 1970, búsett að Setbergi á Hér- aði, en maður hennar er Helgi Bragason; Björk Þorgrímsdóttir (stjúpdóttir Helga), f. 29.5. 1953, sjúkraliði á Akureyri. Systkin Helga: Ólafur Þór, f. 18.9. 1938, fyrrv. sóknar prestur á Mælifelli í Skagafirði; Agnar, f. 20.6. 1940, íslensku fræðingur, nú búsettur á Akureyri; Guð- steinn, f. 7.3. 1945, bóndi á Teigabóli á Héraði; Guðrún Mar- grét, f. 27.5. 1948, d. 15.5. 2003, ritari hjá Byggðastofnun á Akur- eyri; Bergljót, f. 1.3. 1952, hús- freyja og ferðaþjónustubóndi í Haga í Aðaldal. Foreldrar Helga voru Hall- grímur Helgason, f. 29.9. 1909, d. 30.12. 1993, bóndi á Drop- laugarstöðum í Fljótsdal, og k.h., Laufey Ólafsdóttir, f. 31.5. 1912, d. 11.8. 2003, húsfreyja, síðast búsett á Egilsstöðum. Ætt Hallgrímur var sonur Helga, b. á Refsmýri í Fellum Hall gríms sonar, b. á Birnufelli, bróður Gísla, föður Benedikts frá Hofteigi og Sigurðar, pr. á Sönd- um. Hallgrímur var sonur Helga, b. á Geirúlfs stöðum, bróður Guð- rúnar, ömmu Gunnars Gunn- arssonar rit höfundar. Helgi var sonur Hallgríms, skálds á Stóra- Sandfelli Ásmundssonar, bróð- ur Indriða, afa skáldanna Jóns og Páls Ólafssona. Móðir Hallgríms á Birnufelli var Margrét Sigurð- ardóttir, b. á Mýrum í Skriðdal Eiríkssonar, af Njarðvíkurætt, og Ólafar Sigurðardóttur, af Pamfíl- sætt. Móðir Hallgríms á Drop- laugar stöðum var Agnes Páls- dóttir, b. á Fossi á Síðu Þor- steinssonar. Móðir Páls var Agnes Sveinsdóttir, b. á Fossi á Síðu Steingrímssonar og Ragn- hildar Oddsdóttur, systur Guðríð- ar, langömmu Jóhannesar Kjar- vals. Móðir Agnesar var Margrét Ólafsdóttir, systir Þuríðar, lang- ömmu Odds Björnssonar leikrita- höfundar. Laufey er dóttir Ólafs, b. í Holti í Fellahreppi Jónssonar, b. á Skeggjastöðum Ólafssonar, af Melaætt. Móðir Ólafs var Berg- ljót Sigurðardóttir, b. í Geitagerði Pálssonar, og Þorbjargar Jóns- dóttur, ættföður Vefaraættar Þor- steinssonar. Móðir Laufeyjar var Guðlaug, systir Halldóru, lang- ömmu Hrafns Gunnlaugs sonar. Guðlaug var dóttir Sigurðar, b. í Kolsstaðagerði Guttorms sonar, stúdents á Arnheiðarstöðum,Vig- fússonar, pr. á Valþjófsstað Orms- sonar, langafa Ingunnar, móð- ur Þorsteins Gísla sonar skálds, föður Gylfa Þ. Gíslasonar ráð- herra, föður Þorsteins heimspek- ings, Vilmundar ráðherra og Þor- valds hagfræðiprófessors. Móðir Guðlaugar var Guðríður Eiríks- dóttir, b. á Hafursá Arasonar og Þóru Árnadóttur, b. á Kappeyri Stefáns sonar, ættföður Sandfells- ættar Magnús sonar. Móðir Árna var Guðrún Erlendsdóttir, ætt- föður Ásunnarstaðaættar Bjarna- sonar. 75 ára á föstudag 90 ára á föstudag Jónína Jónsdóttir fyrrv. húsmóðir í rEykjavík Jónína fæddist á Gemlufalli í Dýra- firði, ólst þar upp í foreldrahúsum við öll almenn sveitastörf þess tíma og átti þar heima uns hún stofnaði sitt eigið heimili í Reykjavík. Jónína var í Núpsskóla 1937-39, tók bifreiðapróf til mannflutninga 1946 og fékk ökukennsluréttindi á bif- reið sama ár. Á milli þess að vinna í foreldrahúsum var hún við ýmis störf, svo sem saumaskap og bifreiðaakstur. Jónína hefur setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka, allt frá því á unglingsárum, og setið þing þeirra og ráðstefnur. Hún hefur m.a. verið félagi í Framsóknarfélagi Reykjavíkur, í fulltrúaráði Framsóknar félaganna í Reykjavík, sat í stjórn Lands- sambands klúbbanna Öruggur akstur og var varamaður í Umferðarráði á þeirra vegum. Fjölskylda Jónína giftist 28.11. 1952 Pétri Sigur- jónssyni, f. 25.10. 1913, d. 9.10. 2001, húsasmíðameistara og verkstjóra í Söginni hf. í Reykjavík. Börn Jónínu og Péturs eru Sigríð- ur, f. 11.5. 1951, gift Jan Overmeer en þau búa í Skotlandi. Dætur Sigríð- ar eru Edda, f. 27. 1. 1980, og Anna, f. 29.3. 1983; Sigurjón, f. 11.4. 1955, d. 21.5. 1972; Jón Ágúst, f. 18.10. 1959, en kona hans er Hólmfríður Helga Þórsdóttir og eru börn þeirra Fanney Helga, f. 26.6. 1989 og Pétur Þór f. 10.9.1992; Ólafur, f. 6.6. 1961, en kona hans er Anna M. Þ. Ólafsdóttir; Krist- ín, f. 18.9. 1966, en maður hennar er Þröstur Harðarson og eru börn þeirra Eyrún f. 22.1. 1991 og Njáll f. 23.4. 1994. Systkini Jónínu: Sigríður Kristín, f. 5.10. 1917 d. 17.2. 1999, var gift Eiríki J. Eiríkssyni, presti og þjóðgarðsverði á Þingvöllum; Nanna Valborg, f. 24.5. 1919, d. 8.6. 1919; Elín, f. 29.6. 1921, var gift Oddi Andréssyni, bónda. og alþm. á Hálsi í Kjós; Ingibjörg, f. 31.12. 1922, d. 18.11. 2006, var gift Gísla Andréssyni, bónda og hreppstjóra á Hálsi í Kjós; Guðmundur, f. 7.9. 1924, d. 16.8. 1983, húsasmíðameistari og hreppstjóri á Flateyri en ekkja hans er Steinunn Jónsdóttir á Flateyri. Fóstursystkini Jónínu: Ragnheiður Stefánsdóttir, f. 27.10. 1911, d. 28. 11. 1985, húsfreyja, systurdóttir Jóns, gift Steinþóri Árnasyni, bónda á Brekku í Brekkudal; Skúli Skúlason, f. 8.9. 1932 d. 18.2. 2009, bóndi á Gemlufalli, kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur hús- freyju. Foreldrar Jónínu voru Jón G. Ólafsson, bóndi á Gemlufalli, og k.h., Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja. Ætt Jón var sonur Ólafs Guðmunds sonar, b. í Hólum í Dýrafirði Guðbrands- sonar, Guðmundssonar. Móðir Guð- brands var Guðrún Guðbrandsdóttir, b. í Hólum Sigurðssonar, b. í Hólum Guðbrandssonar, b. á Gerðhömrum Sigurðssonar, prófasts í Holti Jóns- sonar, prófasts í Vatnsfirði Ara sonar, sýslumanns í Ögri Magnússonar prúða, sýslumanns í Ögri Jónssonar. Móðir Ólafs Jónssonar var Guðrún Bjarnadóttir, b. í Lambadal. Móðir Guðrúnar var Elísabet Markúsdóttir, pr. á Söndum Eyjólfssonar og Elísa- betar Þórðardóttur, ættföður Vigur- ættar Ólafssonar, lögsagnara á Eyri og ættföður Eyrarættar Jónssonar. Móðir Jóns var Sigríður Kristín, ljósmóðir Jónsdóttir, b. á Vöðlum í Önundarfirði Sigurðssonar, og Ingi- bjargar Bjarnadóttur murru, b. á Minna-Garði í Dýrafirði Ólafssonar. Ágústa var dóttir Guðmundar, b. og skipstjóra á Brekku Jens sonar, Guðmundssonar. Móðir Jens var Guðrún Magnúsdóttir, skrifara á Núpi í Dýrafirði Magnússonar og Jósabetar Jónsdóttur, pr. á Hrafnseyri Bjarna- sonar. Móðir Jósabetar var Þorkatla Sigurðardóttir, pr. í Holti í Önundar- firði Sigurðssonar, bróður Guðbrands á Gerðhömrum. Móðir Sigurðar í Holti var Helga Pálsdóttir, prófasts í Selárdal Björnssonar. Móðir Þorkötlu var Helga Pálsdóttir, sýslumanns Torfasonar. Móðir Guðmundar var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Gemlufalli Ólafssonar. Móðir Ágústu var Jónína, systir Egils, langafa Ólafs Ragnars Gríms- sonar forseta. Jónína var dóttir Jóns, b. á Kotnúpi í Mýrahreppi Ólafssonar og Þórdísar Egilsdóttur. Jónína tekur á móti gestum í fé- lagssal Sundfélags Hafnarfjarðar í Ás- vallalaug, Hafnarfirði, milli kl. 17.00 og 19.00, föstudaginn 11. júní. Aðalsteinn fæddist í Ási á Vopna- firði og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu 1942-44 og tók síldarverkunarpróf á Siglufirði 1957. Aðalsteinn var níu ára er hann byrjaði að beita, var sína fyrstu vetrar vertíð á Höfn í Hornafirði 1941-42 og stundaði síðan vertíðir þar eftir að hann lauk námi á Laugum. Þá var hann tvær vertíðir í Reykjavík og eina vertíð í Keflavík 1956-57. Aðalsteinn var á síldveiðum á bátum frá Eskifirði og Neskaupstað sumrin 1947-50. Hann og Sveinn, bróðir hans, byggðu Ásbryggju á Vopnafirði 1949 sem síðar varð síldar söltunarstöð. Aðalsteinn var verkstjóri og síldarmatsmaður hjá Auðbjörgu hf. 1956-70, hjá Kristni og Aðalsteini Jónssonum, er leigðu þá bryggju og aðstöðu Aðalsteins og Sveins á Vopnafirði. Seinni síldar- árin leigði Tangi hf. aðstöðuna og svo Bakkasíld sf. Aðalsteinn og Sveinn hófu grá- sleppuveiðar um 1960 og stund- uðu þær um árabil. Þá stofnuðu þeir fyrirtækið Ásbræður og áttu saman trilluna Fuglanes NS 72. Auk þess hefur Aðalsteinn stundað þorsk- veiðar, byggingavinnu, múrverk og alla almenna verkamannavinnu. Aðalsteinn hefur verið meðlimur í Hvítasunnusöfnuðinum um ára- bil. Hann lagði gjörva hönd á kirkju- byggingu safnaðarins 1954 og hefur verið gjaldkeri safnaðarins frá 1954. Einnig var hann gjaldkeri Ung- mennafélagsins Einherja um árabil. Fjölskylda Aðalsteinn kvæntist 2.6. 1955 Stef- aníu Sigurðardóttur, f. 22.7. 1925, d. 13.8. 1968, húsmóður. Hún var dóttir Sigurðar R. Halldórssonar, f. 16.3. 1897, bónda að Galtahrygg í Mjóa- firði við Djúp, og Guðmundínu Jóns- dóttur, f. 19.4. 1889, húsfreyju. Börn Aðalsteins og Stefaníu eru Páll, f. 23.7. 1956, skipasmiður en kona hans er Astrid Aðalsteinsson frá Finnlandi og eiga þau þrjú börn, Katrínu Stefaníu, f. 25.8. 1988, Lýdíu Linnéu, f. 6.8. 1990, og Enok Örn, f. 17.4. 1997; Ásmundur, f. 9.9. 1957, húsasmiður; Rósa, f. 30.9. 1958. Systkini Aðalsteins: Pála Mar- grét, f. 14.1. 1921, d. 21.1. 1994, hús- móðir í Reykjavík; Svava, f. 22.12. 1921, húsmóðir á Reyðarfirði, dvelur nú á Hulduhlíð, heimili aldraðra á Eskifirði; Sveinn, f. 12.6. 1925, d. 24.11.1997, útgerðarmaður á Vopnafirði; Guðni Þórarinn f. 6.10. 1926, d. 31.1.2004, útgerðarmaður á Vopnafirði. Foreldrar Aðalsteins voru Sigurð- ur Þorbjörn Sveinsson, f. 16.7.1892, d. 2.9. 1978, símamaður og bóndi að Ási í Vopnafirði, og Katrín Ingibjörg Pálsdóttir, f. 2.6. 1896, d. 28.4. 1978, ljósmóðir og húsfreyja. Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.is 85 ára á laugardag Aðalsteinn Sigurðsson fyrrv. útgErðarmaður í ási á vopnafirði 38 föstudagur 11. júní 2010 aðalsteinn með sonardóttur sinni, Lýdíu Linnéu, er hún dúxaði sem stúdent af listabraut Vma hinn 22.5. sl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.