Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Blaðsíða 46
46 föstudagur 11. júní 2010
NafN og aldur?
„Ágúst Bogason. 29 ára.“
atviNNa?
„Fyrst og síðast er ég útvarpsmaður á Rás 2.“
Hjúskaparstaða?
„Sambúð – með reykvískum Suður-Þingeyingi sem
heitir Vala.“
fjöldi barNa?
„Barnlaus.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já. Nokkur kattardýr og einhverjar fleiri smáverur
þegar ég var barn. En ég er laus við dýrahald í dag.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Benna Hemm Hemm, Alasdair Roberts og Blásara-
sveit Reykjavíkur á Listahátíð. Svo sá ég Snorra Helga
í London fyrir tveimur vikum.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Já og nei. Var handtekinn um 250 metra frá heimili
mínu eftir samræmduprófin og var keyrður beint
heim. Þannig að það telur varla.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Það er ákveðið par af gallabuxum sem ég keypti fyrir
tveimur árum. Þær passa svo fáránlega vel að það
mætti halda að þær hafi verið klæðskerasaumaðar
sérstaklega fyrir mig.“
Hefur þú farið í megruN?
„Nei, þess hef ég aldrei þurft og á meðan ég passa í
uppáhaldsbuxurnar mínar þá er ég góður.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já. Mótmæli eru mjög heilbrigð þegar þau eru sæmi-
lega friðsamleg.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Nei, ég hef frekar miklar efasemdir um slíkt.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„Hérna áður fyrr var ég algjör tónlistarfasisti en í dag
er ég frekar fordómalaus á tónlist. Ég á samt erfitt
með að kyngja því að ég hafi fílað fyrsta lagið sem ég
heyrði með Limp Bizkit.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Margt sem kemur til greina. En Computer Love með
Kraftwerk virkar alltaf.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Meiri sólar og meira sumars. Og auðvitað heims-
meistarakeppninnar í fótbolta.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
„The Big Lebowski og Sódóma Reykjavík. Karakter-
arnir í þessum myndum eru bara svo góðir og sam-
tölin þeirra á milli enn betri.“
afrek vikuNNar?
„Að hlaupa 10 kílómetra í einni lotu.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Ég hef alla vega aldrei borgað neinum fyrir að spá
fyrir mér og mun seint gera.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Já, ég er gítarleikari. Ég hef meira að segja gefið út
plötur með hljómsveitinni minni – Jan Mayen.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Mér sýnist það vera að hrynja saman þannig að er
ekki best að vera utan við það dæmi í bili?“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að njóta þess.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Ég væri til í að heimsækja Bessastaði og fá nokkra
hluti hjá Ólafi Ragnari á hreint. Svo skilst mér að þeir
veiti vel þarna hjá forsetanum.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst vilja
Hitta og af Hverju?
„Obama – einfaldlega vegna þess að hann er maður-
inn nú um stundir.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já. Tók meira að segja þriðja sætið í ljóðasamkeppni
Kvennaskólans árið 2000 ásamt Valla vini mínum.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Það eru margir vinnustaðagrínarar á RÚV og stund-
um þarf maður að snúa vörn í sókn. En ég get ekki
farið út í smáatriði, af lagalegum ástæðum.“
Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest?
„Sumir segja Adrien Brody. Aðrir segja að ég líkist
ungum Jarvis Cocker. Sjálfur tel ég mig ansi líkan
James Earl Jones.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Ég kann ekkert sniðugt eins og að snerta nefið með
tungunni en ég get blístrað mjög hátt.“
Ágúst Bogason, útvarpsmaður á Rás 2, er í sambúð með
reykvískum Suður-Þingeyingi og hefur einu sinni komist í
kast við lögin. Computer Love með Kraftwerk kveikir í hon-
um og hann vill Ísland utan Evrópusambandsins. Ágúst þarf
stundum að snúa vörn í sókn gegn vinnustaðagrínurum.
margir viNNustaða-
gríNarar á rúv
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
NÝTT Á DV.IS
SIGGI STORMUR OG GULA PRESSAN
fRjáLST, óháð dAGbLAð
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur
skrifar nú daglega veðurpistla á dv.is.
Henrý Þór Baldursson skopmyndateiknari
hefur einnig gengið til liðs við DV og
birtir Gulu Pressuna daglega á dv.is.
+