Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Blaðsíða 48
Besta og versta sólarvörnin Nú þegar sólin er loksins farin að
skína er nauðsynlegt að fjárfesta í góðri sólarvörn. Á vefnumc osmeticsdata-
base.com er hægt að skoða lista yfir bestu og verstu tegundir sólarvarna en list-
inn er byggður á stórri rannsókn. Sum kremin eru hreinlega hættuleg heilsunni
á meðan önnur veita enga vörn gegn geislum sólarinnar þrátt fyrir að vera
merkt stuðlinum 15. Á vef Lyfju kemur fram að flestum dugir vörn 15 en á börn
ætti ávallt að nota vörn með stuðli 25.
Ástarsambönd í Hollywood ganga
sjaldnast upp og kannski vegna þess
að stjörnurnar eru ekki að horfa á
réttu eiginleikana. Í óformlegri könn-
un sem tímaritið People gerði á meðal
átta karlkyns stjarna kom í ljós að flest-
ir töldu heiðarleika mest aðlaðandi í
fari hins kynsins. Stórleikarinn Gerard
Butler segir útlitið skipta máli. Hann
vilji hávaxnar konur með dökkt, sítt
hár. „En þegar öllu er á botninn hvolft
er það þó innri maðurinn sem skipt-
ir mestu og sú tilfinning sem þú færð
með viðkomandi,“ sagði Butler.
Alexander Skarsgård úr True Blood
hrífst af gáfuðum, fyndnum konum.
„Hún verður að hafa húmor,“ sagði
Skarsgård. Unglingsúlfurinn Taylor
Lautner segir innri mann skipta öllu.
„Konan verður að geta slakað á og ver-
ið hún sjálf og bara haft gaman.“
Nýjasta American Idol-stjarn-
an, Lee DeWyze, segist hrífast af ein-
lægum og heiðarlegum konum. „Þær
verða að vera með báða fæturna á
jörðinni og geta verið þær sjálfar í
kringum mig.“
Hollywood-stjörnurnar hrífast af heiðarleika í fari hins kynsins:
innri maður skiptir mestu
UmSjóN: iNdíaNa ÁSa hreiNSdóttir, indiana@dv.is
n Flestir kettir eru með mjólkuróþol.
Líkt og flest spendýr missa kettir
hæfileika til að melta mjólkurvörur.
mjólkin er ætluð ungviðinu.
n hundar með „kramin“ andlit eru
líklegri til að þjást af slæmri heilsu.
n allir dalmatíuhundar fæðast hvítir.
Blettirnir birtast á fyrstu vikunum.
n Kettir hafa ekki veiðieðli. ef
kettlingur lærir ekki að veiða af
mömmu sinni er ólíklegt að hann
geti það nokkurn tímann.
n Þefskyn hunda er hundrað
sinnum öflugra en manna.
n heimiliskettir sofa um það bil
16 stundir á dag. Stórir kettir í
náttúrunni sofa enn lengur.
n Kettir eru annaðhvort rétt- eða
örv- „hentir“ nema þeir örfáu sem
eru jafnvígir á báðar.
n hundar og menn eru einu spen-
dýrin sem hafa blöðruhálskirtil.
n hundar eru ekki litblindir. Þeir sjá
liti en ekki jafn vel og menn.
n allir kettlingar fæðast með blá
augu. Litur þeirra breytist á fyrstu
tveimur vikunum eftir að þeir hafa
opnað augun.
n Blaut hundanef geta fundið meiri
lykt.
n Kettir mjálma ekki á aðra ketti.
Þeir nota mjálmið til að fá athygli
manna.
n Göngustíll katta minnir á gíraffa
og kameldýr.
n heimilishundar geta eignast
afkvæmi með úlfum.
Bekkjarfé-
lagar hækka
einkunnir
Í stórri amerískri rannsókn kom
í ljós að þeir nemendur sem eiga
fleiri vini innan skólans gengur
betur í námi en þeir sem eiga
fleiri vini utan skólans. Rann-
sóknin var byggð á viðtölum við
629 nemendur af báðum kynjum.
„Þeir sem eiga hlutfallslega stærri
vinahóp innan veggja skólans en
utan og geta því rætt saman um
kennarana, prófin og annað sem
viðkemur skóla og námi, virðast
fá hærri einkunnir,“ segir And-
rew J. Fuligni, höfundur rann-
sóknarinnar og sálfræðiprófessor
í UCLA, sem segir vini utan skól-
ans alls ekki óheppilega en að
þeir þjóni öðrum tilgangi.
Eftirfarandi setningar eru teknar úr viðtölum við karlmenn á aldrinum 26 til 52 ára.
48 föstudagur 11. júní 2010 lífsstíll
Sannleikurinn
um hunda
og ketti
Karlmönnum er sama hvort þú
ert grönn, passlega vaxin eða
örlítið þybbin
„Ef við erum enn æstir í að sofa hjá
þér þýðir það að við erum yfir okkur
ánægðir með útlit þitt.“
– 32 ára karlmaður
Karlmenn vita að konur eru
óánægðari með suma líkams-
hluta sína en aðra
„Engar áhyggjur – við elskum líkama
ykkar. Sérstaklega þar sem við erum
þeir einu sem fá að sjá hann í návígi.“
– 27 ára karlmaður
Karlmenn vilja konur sem
girnast þá
„Æsingurinn og hitinn magnast um
100% í þau skipti sem konan hefur
frumkvæðið.“
– 28 ára karlmaður
Karlmenn girnast
kynþokkafullar konur
„Við vitum að heitar konur þurfa ekki
endilega að vera ávísun á heita ást-
arleiki eða rómantískt ástarsamband
en samt girnumst við þær. Aðallega
til að geta montað okkur við vini okk-
ar.“
– 32 ára karlmaður
Karlmenn vilja líka kúra
„Stundum viljum við vera fyrir innan
við þegar við „spoon-um“.“
– 34 ára karlmaður
Útlitið er ekki allt
„Flestir okkar myndu velja gáfur
fram yfir stór brjóst, hvar og hvenær
sem er.“
– 26 ára karlmaður
Reykingar eyðileggja allt
„Það skiptir ekki máli hversu heit
þú ert, ef þú reykir missirðu allan
sjarma. Ég gæti aldrei kysst konu
sem reykir. ALDREI.“
– 32 ára karlmaður
Það er í eðli okkar að skoða
„Við getum ekki gert að því – við horf-
um á aðrar konur. Kannski er best
fyrir kærustuna að sætta sig við gláp-
ið og vera fegin að það sé ekkert ann-
að í gangi.“
– 52 ára karlmaður
Kærastan og uppáhaldsliðið
„Það er ekkert meira sexí en konan
mín í Liverpool-bol einum fata.“
– 35 ára Liverpool-aðdáandi
Of mikið af því góða
„Ef þú ert það langt í burtu að ég get
ekki snert þig en samt finn ég ilm-
vatnslyktina ertu að úða allt of miklu
ilmvatni á þig.“
– 34 ára karlmaður
Karlmenn þola ekki hvað konur
eru lengi að taka sig til
„En við elskum svo sannarlega að sjá
útkomuna.“
– 31 árs karlmaður
Karlmenn líta ekki eftir
giftingarhring
„Þó að við sæjum hring á fingri
myndum við samt reyna við þig.“
– 40 ára karlmaður
Þægindi fram yfir glamúr
„Auðvitað viljum við hafa ykkur
sætar og stelpulegar en það er ekkert
sexí við föt sem virðast óþægileg.“
– 34 ára karlmaður
Karlmenn vilja halda
í karlmennsku sína
„Lítill hlut af sál okkar
deyr í hvert skipti
sem við förum
út að ganga
með litla
smáhund-
inn þinn
klæddan í
bleikan og gyllt-
an kjól.“
– 29 ára
karlmaður
Karlmönn-
um líður
ekki vel í
kvennadeild
verslana
„Karlmaður sem
fer út í búð að
kaupa fyrir þig
túrtappa og
dömubindi er
kominn til að
vera.“
– 31 árs karlmaður
Karlmenn hafa aðrar
þarfir en konur
„Eins mikið og þið þurfið að
finna fyrir að einhver girnist
ykkur þurfum við að finna fyrir
að einhver þurfi á okkur að halda.“
– 29 ára karlmaður
Karlmenn bíða
líka við símann
„Ef þið svarið ekki í símann en vitið
að við ætlum að hringja vekur það
mikinn ótta hjá okkur.“
– 27 ára karlmaður
Karlmenn vilja konu
sem lyndir við mömmu
„Ég get ekki beðið um neitt meira
þegar þið mamma eruð sammála. Þá
fá báðar uppáhaldskonurnar mínar
það sem þær vilja.“
– 29 ára karlmaður
Það sem við vissum
ekki um karla
Vill gáfaðar konur
Leikarinn alexander
Skarsgård hrífst
af gáfuðum og
fyndnum konum.
Dökkhærðar gyðjur Stórstjarnan
Gerard Butler vill hávaxnar dökkhærðar
konur með sítt hár.