Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Blaðsíða 52
52 föstudagur 11. júní 2010 helgarblað
I´ll be back
Án efa frægasta setning Arnolds fyrr og síðar. Sagði hana
fyrst í The Running Man sem kom út árið 1987. Það voru hins
vegar Terminator-myndirnar sem gerðu frasann ódauðlegan.
Arnold hefur þó notað frasann í öðrum útfærslum eða gert
grín að honum í myndum eins og Twins og Last Action Hero.
Hasta la vIsta, baby
Annar ódauðlegur frasi úr Terminator 2 sem kom út árið
1991. Arnold lét þessi fleygu orð falla rétt áður en hann
tortímdi T-1000 vélmenninu ógurlega.
you´re a cHoIr boy
compared to me
Þessa hógværu setningu sagði Schwarzenegger við Satan
sjálfan í myndinni End of Days sem kom út árið1999. Þar
lék Arnold fyrrverandi lögreglumanninn Jericho Cane sem
reynir að koma í veg fyrir að djöfullinn steypi heiminum í
eilífan glundroða.
you´re one ugly
motHerfucker
Árið 1987 lék Arnold hinn eitilharða Major Dutch Schaeffer
í myndinni Predator. Þar berst hann við eina illvígustu
geimveru fyrr og síðar. Einnig þá ljótustu að mati Arnolds
því hann hafði þetta um málið að segja þegar ófreskjan
fjarlægði grímu sína.
don‘t dIsturb my frIend. He´s dead tIred
John Matrix er ekkert lamb að leika sér við og það sannaðist í myndinni Commando sem kom út árið
1985. Eftir að hafa snúið einn af vondu körlunum úr hálslið um borð í flugvél sagði hann þetta við eina
flugfreyjuna. Stuttu seinna stökk hann út úr vélinni án fallhlífar.
fly or dIe!
Commando er svo uppfull af frösum að hægt væri að birta allan díalóg Arnolds úr myndinni. Ein af þeim
betri var þessi lína þegar Arnold reyndi að fá sjóflugvél til þess að fara í gang. Óþokkarnir komu akandi
eftir bryggjunni og létu kúlnahríð dynja á vélinni meðan Arnold svaraði í sömu mynt og vinkona hans
reyndi að koma vélinni í gang. Arnold fékk nóg á endanum, barði í mælaborðið og sagði „Fly or die“. Vélin
hrökk í gang og Arnold afgreiddi vondu karlana í sitt hvoru skotinu áður en lagt var í hann.
I´ll need your clotHes, your
boots and your motorcycle
En einn frasinn úr Terminator 2. Arnold labbar inn á frekar vafasaman bifhjólabar
kviknakinn í upphafi myndarinnar. Finnur þar ógnvænlegasta mótórhjólakappann
á svæðinu og biður hann um að láta umbeðna hluti af hendi við mikinn fögnuð
viðstaddra. Fögnuðurinn stóð ekki lengi yfir.
tHIs Is for sleepIng wItH my
wIfe
Jafnvel þótt mörgum finnist myndir Arnolds hafa verið slakari í seinni tíð leynast þar
góðar setningar inn á milli. Til dæmis þessi frasi sem hann sagði í myndinni The 6th
Day sem kom út árið 2000 í þann mund sem hann kýldi klónaða útgáfu af sjálfum sér
kalda.
you´ve been erased
Þessa frumlegu setningu sagði Arnold að sjálfsögðu í hasarmyndinni Eraser sem kom
út árið 1996. Þar lék hann John Kruger sem starfaði við vitnavernd og þurfti að gæta
hinnar fögru Vanessu Williams. Þetta var það síðasta sem nokkrir óþokkar fengu að
heyra áður en þeir yfirgáfu hið jarðlega líf.
alrIgHt everyone...cHIll
Margir deildu um ágæti myndarinnar Batman and Robin sem kom út árið 1997.
Arnold þótti þó nokkuð svalur í hlutverki Mr. Freeze sem mætti óboðinn í veislu
borgarstjórans og sagði þessa setningu við gesti rétt áður en hann frysti hópinn.
you‘re fIred
Eftir mikla bardaga við hryðjuverkamenn í myndinni True Lies sem kom út árið 1994
gerist lokauppgjörið í háloftunum. Þar berjast Arnold og höfuðpaur hryðjuverkasam-
takanna ofan á orrustuflugvél. Höfuðpaurinn flækir sig í flugskeyti og Arnold var ekki
lengi að senda hann í burtu með þessi orð í skilnaðargjöf.
Kvikmyndir hafa í gegnum tíðina getið af sér
mikið af ódauðlegum frösum. Sumir frasar eru
óneitanlega skemmtilegri en aðrir og ber þá helst
að nefna svokallaða „one liners“ eða einlínunga.
Konungur þessara frasa er án nokkurs vafa austur-
ríska buffið Arnold Schwarzenegger. DV lítur yfir
farinn veg og rifjar upp helstu frasa ríkisstjórans í
gegnum tíðina, en það var úr mörgu að velja.
bestu frasar arnolds
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4