Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Side 64
n Logi Ólafsson, þjálfari KR í fót- boltanum, var mættur í sínu fínasta pússi í Borgarleikhúsið á þriðju- dagskvöldið. Kvöldið áður mátti Logi horfa upp á sína menn tapa fyrir Val í Pepsi-deildinni og var lið- ið þá enn án sigurs í deildinni eftir fimm leiki. Menn lýsa leiktíðinni í Vestur- bænum sem harm- leik og því kannski viðeigandi að Logi hafi mætt til að berja frægasta harmleik allra tíma, Rómeó og Júlíu, augum. KR-ingar unnu svo glæstan sigur á Fram á fimmtu- dagskvöld eftir mikla dramatík. Tíbet, Tíbet! Harmleikur á Harmleik ofan n Gunnar Þorsteinsson, oft kennd- ur við Krossinn, kemur eiginkonu sinni Jónínu Benediktsdóttur til varnar á Facebook-síðu sinni. Talsverð umræða hefur verið á netmiðlum undanfarna daga um Detox-starfsemi Jónínu og meinta skaðsemi hennar. Þannig sakaði Svanur Sigurbjörnsson lækn- ir Jónínu á vef Pressunnar um að beita lygum til að fá útlendinga hingað til lands. Gunnar ber hins vegar fullt traust til starfsemi eiginkonunnar: „Íslendingar verða að losna úr viðjum lyfjarisanna og spilltra lækna.“ Gunnar til varnar Jónínu n Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson heldur áfram að vekja athygli erlendis. Hann prýðir forsíðu tímaritsins Physique MMA í júnímánuði og er hann klæddur í víkingabrynju. Í blaðinu er farið ítarlega yfir ótrúlegan feril Gunn- ars og er fyrirsögnin á greininni Bardaga- kappi sem er fæddur til að vinna. Gunnar er einnig í viðtalið við tímaritið Gracie Magazine en þar er fyrir- sögnin ekki tilkomu- minni. Afslapp- aður hugur, skotheld- ur líkami. Brynklæddur á forsíðu DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 Þegar Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, heyrði af heimsókn kínverskrar sendinefndar hingað til lands á miðvikudag fór hún rakleiðis út á svalir heima hjá sér og flaggaði tíbeska fánanum. Birgitta býr á móti Hótel Sögu, þar sem sendinefndin var til húsa. Hún segist hafa haldið fánanum vel úti þegar bílalest sendi- nefndarinnar bar að garði. „Þetta eru litlar aðgerðir sem fá mann til að líða betur. Það er alltaf einhver lítill andófsmaður í mér,“ segir Birgitta. Birgitta kallaði eftir fundi í utan- ríkismálanefnd Alþingis vegna heim- sóknar sendinefndarinnar hingað til lands. Varð henni að ósk sinni og fer fundurinn fram á föstudag. Vildi hún að nefndin óskaði eftir öllum upplýs- ingum sem tengdust heimsókninni. Hún hefði einnig viljað að fulltrúar sendinefndarinnar hefðu mætt fyrir utanríkismálanefnd og rætt málefni Tíbets við hana. He Guoqiang, flokksritari í mið- stjórn kínverska kommúnistaflokks- ins, var í tveggja daga reisu á Íslandi ásamt fjölmennu föruneyti. Í ferðinni voru undirritaðir gjaldmiðlaskipta- samningur milli Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Kína, sem og samstarfs- samningar í orkutengdum verkefnum. „Það er engin tilviljun að þeir séu hér. Þeir eru ekki hér vegna þess að þeir ætli að vera góðir við okkur,“ segir Birgitta. rhb@dv.is Birgitta Jónsdóttir þingkona var lítið fyrir heimsókn Kínverja til landsins: flaGGaði fyrir tíBetBúum Tíbeska flaggið blaktir Fáninn setti svip sinn á heimili Birgittu Jónsdóttur þingkonu. Parque Santiago Gott og eftirsótt íbúðahótel á allra besta stað við Playa de las Americas ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldufólk og ungt fólk á öllum aldri unir sér í frábærum sundlaugargörðum við ströndina. 13. nóv.-27. nóv. Verð frá 128.500 kr.* og 15.000 Vildarpunktar M.v. 2 fullorðna og tvö börn (2-12) í íbúð. Verð á mann m.v. 2 í íbúð 154.100 og 15.000 Vildarpunktar. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. *Verð án Vildarpunkta 138.500 kr. Las Camelias Snyrtilegt og vistlegt íbúðahótel á góðum stað á Ensku ströndinni. 29. mars.-5. apr. Verð frá 108.000 kr.* og 15.000 Vildarpunktar M.v. 3 fullorðna í íbúð. Verð á mann m.v. 2 í íbúð 115.500 og 15.000 Vildarpunktar. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. *Verð án Vildarpunkta 118.000 kr. Beint leiguflug með Icelandair allan næsta vetur! VITA - ferðaskrifstofa á traustum grunni Tenerife og Kanarí ÍS LE N SK A SI A .IS V IT 5 06 14 0 6/ 10 VITA er lífið VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Nýtt hjá VITA Aðeins hjá VITA Flugsæti Verð frá 89.000 kr* og 15.000 Vildarpunktar 4. jan. Tenerife 5. jan. Kanarí Innifalið: Flug fram og til baka með sköttum. *Verð án Vildarpunkta 99.000 kr. Tenerife Kanarí Flugáætlun Tenerife 7.,16. og 28. okt. 13. og 27. nóv. 11. og 21. des. 4. og 18. jan. 1. feb. – 5. apr. vikulegt flug 16. apr. Kanarí 30. okt. 27. nóv. 11. og 21. des. 5. og 18. jan. 1. feb – 5. apr. vikulegt flug 17. apr. Það var þessi þægilegheitatilfinning sem við höfðum í huga þegar við settum nýtt afþreyingarkerfi í flugflota Icelandair. Hver farþegi hefur sinn eigin skjá þar sem er í boði án endurgjalds fjölbreytt úrval af kvikmyndum, vinsælum sjónvarpsþáttum, tónlist og tölvu- leikjum. Hver og einn velur sína eigin dagskrá og getur auk þess sótt upplýsingar um flugferðina sjálfa og margt fleira. Beint morgunflug, glæsilegur farkostur. sólarupprás 03:03 sólsetur 23:53 ReykJavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.