Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2010, Page 13
mánudagur 23. ágúst 2010 fréttir 13
Áttuðu sig ekki
Á eftirskellinum
bankanna hafi lýst yfir áhyggjum sín-
um af því hvaða áhrif dómur Hæsta-
réttar um gengistryggð lán hafi á
eignasöfn bankanna. Flest þessara
lána voru færð yfir í nýju bankana,
en ríkið á í vissum tilfellum stóran
eignarhlut í þeim, sérstaklega í tilfelli
Landsbankans. Því er talið nánast
óumflýjanlegt að ríkið komist hjá því
að leggja þeim til aukið fé í gegnum
þessa eignarhluti. Það sama gildir um
kröfuhafa gömlu bankanna sem eiga í
nýju bönkunum.
Hundrað milljarða eftirskellur
Samkvæmt mati Fjármálaeftirlitsins
gæti ríkið þurft að leggja bankakerfinu
til hundrað milljarða króna sé gengið
út frá dekkstu sviðsmynd. Tap banka-
kerfisins gæti orðið um tvö til þrjú
hundruð milljarðar króna sé geng-
ið út frá ýtrustu túlkun dóms Hæsta-
réttar frá 16. júní. Í haust mun hugs-
anlega fást niðurstaða fyrir Hæstarétti
um hvort lægstu vextir Seðlabanka Ís-
lands eða samningsvextir skuli gilda
þegar lánin verða endurreiknuð.
Ríkið lagði bönkunum til 190 millj-
arða króna þegar þeir voru gerðir upp
í lok síðasta árs. Eftirskellur ríkisins
vegna dóms Hæstaréttar gæti því orð-
ið um helmingur af þeirri upphæð
sem það þurfti að leggja inn í bankana
þá. Þegar lokið hafði verið við upp-
gjörið í desember í fyrra sagði Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
að þeir sem hefðu borið hitann og
þungann af þessu viðamikla og flókna
verkefni hefðu unnið þrekvirki. „Þessi
niðurstaða léttir miklum byrðum af
ríkissjóði, sér í lagi vaxtagjöldum á
næstu árum. Við eigum nú þrjá heil-
brigða og fullfjármagnaða banka sem
geta nú einbeitt sér að því að veita
heimilunum í landinu og atvinnu-
lífinu nauðsynlega þjónustu. Þessar
góðu fréttir eru gott veganesti inn í
nýtt ár ásamt fréttum af lægri vöxtum,
lægri verðbólgu, minna atvinnuleysi
og jafnvel hagvexti á næsta ári.“
Þegar vinna stóð yfir við uppgjör
bankanna var rætt um hvort ríkið
ætti að halda eftir eignarhlut sínum
í þeim. Þegar Glitnir var gerður upp
í október sagði Steingrímur að hann
hefði verið þeirrar skoðunar að eign-
arhald ríkisins á Íslandsbanka hefði
verið ágætur kostur fyrir ríkissjóð og
almenning. Hins vegar hefði verið
mikilvægt að fjárútlát ríkissjóðs hefðu
verið mun minni en annars hefði ver-
ið. „Ríkissjóður mun leggja bankan-
um til eigið fé og ennfremur lausafjár-
stuðning ef á þarf að halda. Bankinn
stendur því uppi með afar trausta
fjárhagsstöðu og á að geta þjónað við-
skiptavinum sínum, almenningi jafnt
sem fyrirtækjum, af kostgæfni.“
Gylfi Magnússon virðist hafa staðið af sér veðrið vegna
gengistryggðu lánanna:
gylfi skorinn
úr snörunni
Gylfi Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, og Stein-
grímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra hafa verið boðaðir á
sameiginlegan fund efnahags-
og skattanefndar og viðskipta-
nefndar Alþingis á þriðjudag. Þá
hafa stjórnarformaður Banka-
sýslu ríkisins, bankastjórar
Seðlabanka Íslands og forstjóri
Fjármálaeftirlitsins einnig verið
boðaðir á fundinn. Umræðuefn-
ið er gengistryggð lán.
Gylfi var afboðaður á fund
þingflokks Vinstri grænna á
miðvikudag. Þá átti að ræða fjár-
lög næsta árs og var ekki talinn
vera tími til annarrar umræðu.
Árni Þór Sigurðsson, þingflokks-
formaður Vinstri grænna, seg-
ir þingflokknum ekki hafa veitt
af tímanum og því hafi komu
Gylfa verið frestað. „Við komum
saman til að fara yfir ríkisfjár-
málin og vildum ekkert blanda
öðrum málum inn í þann fund.
Þetta var rætt á þingflokksfundi
á þriðjudag og var talið að þetta
þyrfti að hafa forgang,“ segir
Árni Þór.
Svarar ekki hvort
sátt sé um Gylfa
Hann segir fulla sátt hafa ver-
ið innan þingflokksins um að
fresta komu Gylfa fyrir fund-
inn. Aðspurður hvenær Gylfi
muni mæta til fundar hjá þing-
flokknum segir Árni Þór ekki
vita til þess og getur ekki svarað
því hvort Gylfi verði kallaður til
fundar á ný. Hann getur heldur
ekki svarað því hvort almennur
stuðningur sé við Gylfa innan
þingflokksins.
Bæði Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra og Steingrím-
ur hafa lýst því yfir að þau styðji
Gylfa áfram í embætti og er ólík-
legt að þrýst verði á afsögn hans
miðað við orð þeirra stjórnar-
þingmanna sem DV hefur tek-
ið púlsinn á vegna málsins.
Hins vegar er ljóst að Gylfi sjálf-
ur gæti tekið frumkvæði að því
að segja af sér. Gylfi mætti fyrir
fund hjá þingflokki Samfylking-
ar á mánudag í síðustu viku þar
sem lögfræðiálitin voru rædd.
Þar var heitið fullum stuðningi
við hann.
Snýst ekki um
persónu Gylfa
Hreyfingin hefur krafist þess
að Gylfi segi af sér vegna þeirra
lögfræðiálita sem lágu fyrir hjá
viðskiptaráðuneytinu og Seðla-
banka Íslands á gengistryggðum
lánum í fyrrasumar án þess að frá
þeim væri greint opinberlega.
Þór Saari, þingmaður Hreyf-
ingarinnar, segir málið ekki snú-
ast um persónu Gylfa sem slíka
heldur að hann beri ábyrgð sem
ráðherra. „Hann vissi nákvæm-
lega hvað var að gerast því þetta
var á hans vakt. Hann hefði átt
að láta fjármálaráðherra vita af
áliti viðskiptaráðuneytisins. Þar
voru tvö álit sem síðan hefur ver-
ið reynt að bera til jafns á við lög-
fræðiálit úti í bæ. Hinn alvarlegi
anginn er sá hvernig hagsmunir
almennings voru fyrir borð born-
ir því að lögfræðiálitin innihéldu
allt aðra skoðun en haldið hafði
verið fram og var gengið hart að
fólki með greiðslur, afhendingu
eigna og upptöku. Margir gáfust
upp og flúðu,“ segir Þór sem telur
að fólki hefði verið gefin von um
framhaldið hefðu lögfræðiálitin
verið opinberuð.
Þór telur gefa augaleið að lög-
fræðiálitin hefðu getað breytt
uppgjöri bankanna. Þá hefði
hugsanlega verið farið af meiri
varfærni í uppgjörið og eignirnar
yrðu lánin dæmd ólögleg. Áður
hefur Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir, þingmaður Samfylkingar-
innar, lýst því yfir að hún telji að
uppgjörið hefði verið kostnað-
arsamara fyrir ríkið hefðu álitin
legið fyrir þá.
Vill pólitískan ráðherra
Lilja Mósesdóttir, þingmaður
Vinstri grænna, hefur áður sagt
að hún telji tímabært að pólit-
ískur ráðherra taki við embætt-
inu. „Ekki síst vegna þess að það
þarf að taka pólitískar ákvarðan-
ir um hvers konar fjármálakerfi
við viljum hafa. Annars er frekar
tilhneiging til þess að endurreisa
það sem var en að búa til eitt-
hvað nýtt,“ segir Lilja.
Lilja segir mjög slæmt að
minnisblaðið um gengistryggðu
lánin hafi ekki verið gert opin-
bert þegar Gylfi fékk að vita um
það. „Við höfum lofað því að
hafa allt uppi á borðum. Ef það
á að verða þjóðarsátt um end-
urreisnina verðum við að segja
nákvæmlega hverjar forsend-
urnar eru fyrir ákvarðanatökun-
um. Mér finnst miður að þetta
hafi ekki verið kynnt í fyrrahaust.
Síðan vakna ótal spurningar sem
Gylfi þarf að svara á þinginu og
fyrir viðskiptanefnd um hvers
vegna vitneskjan var ekki notuð
í uppgjörinu milli gömlu og nýju
bankanna,“ segir Lilja.
RóbeRt HlynuR balduRSSon
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Hann hefði átt að láta fjár-
málaráðherra vita af
áliti viðskiptaráðu-
neytisins.
afboðaður á þingflokksfund GylfiMagnússon
viðskiptaráðherravarafboðaðuráþingflokksfund
hjáVinstrigrænumámiðvikudagogerallsóvíst
hvorthannverðikallaðuráfundflokksins.