Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2010, Blaðsíða 16
16 erlent 23. ágúst 2010 mánudagur
Sádiarabískur dómari hefur lagt inn
fyrirspurnir hjá nokkrum sjúkrahús-
um í landinu um hvort þeir geti eyði-
lagt mænuna í dæmdum manni og
lamað hann. Maðurinn var dæmd-
ur fyrir að ráðast á annan mann með
kjötsaxi. Fórnarlambið, Abdul-Azis
al-Mutairi, 22 ára gamall, lamaðist
í árásinni og missti fótlegg. Ströng
sjaríalög eru í gildi í landinu og oft er
refsingum framfylgt með hinu forna
lögmáli auga fyrir auga.
Muitairi fór fram á að árásarmað-
urinn hlyti sömu refsingu með því að
gera hann lamaðan. Samkvæmt hin-
um stranga lagabálki er fórnarlömb-
um stundum leyft að óska eftir því að
árásarmenn hljóti sömu meiðsli og
þeir veittu þeim.
Bróðir Muitari segir að læknar hjá
sjúkrahúsi í Tabuk-héraði í norðvest-
urhluta landsins hafi staðfest að að-
gerðin sé möguleg, en hún þurfi að
fara fram á sérfræðistofu.
Sádiarabísk dagblöð skrifuðu
á föstudaginn að sjúkrahús í höf-
uðborginni Riyad hefðu neitað að
framkvæma aðgerðina, af siðferðis-
legum ástæðum.
Fyrirspurn dómstólsins og fórn-
arlambsins vitnar um aukna mót-
spyrnu trúarleiðtoga gegn nútíma-
væðingu Sádi-Arabíu. „Við biðjum
aðeins um að rétti okkar samkvæmt
múslímskum lögum verði framfylgt,“
segir bróðir Muitairis. „Það jafn-
ast ekkert á við orð guðs, auga fyrir
auga.“
Mannréttindasamtök hafa lengi
gagnrýnt réttarkerfið í Sádi-Arabíu.
Réttarhöld sjaríadómstólanna fara
oftast fram á bak við luktar dyr þar
sem ákærðir menn fái fá tækifæri til
að verja sig. Þeim sem dæmdir eru
til dauða er í mörgum tilvikum ekki
tilkynnt um gang réttarhaldanna og
dómsúrskurðinn. Þeim er þá ekki
sagt hvenær aftakan muni fara fram,
fyrr en að morgni þess dags er þeir
eru leiddir út og afhöfðaðir í snatri.
helgihrafn@dv.is
Kannað hvort læknar geti lamað dæmdan árásarmann í Sádí-Arabíu:
Biðja lækna um að lama mann
Lýtalækningastofur í Bólivíu, fátækasta landi Suður-Ameríku, auglýsa um þessar
mundir hræódýrar fegurðaraðgerðir á nefjum. Auglýsingaherferðinni er beint að fólki
af indíánaættum. Margir telja að vestrænt fegurðarmat ráði því að indíánar flykkj-
ast í aðgerðirnar en forvígismenn lýtalækningaherferðarinnar segjast aðeins hjálpa
fátæku fólki að laga útlitið.
Á iðandi torgi í La Paz, höfuðborg
hins fátæka Suður-Ameríkuríkis Ból-
ivíu, er vegfarendum afhentir afslátt-
armiðar fyrir fegurðaraðgerðum á
nefi. Lýtalækningafyrirtæki í Bólivíu
hafa hrundið af stað mikilli auglýs-
ingaherferð sem miðar að því að fá
fólk af indíánaættum til að gangast
undir nefaðgerðir til að breyta útliti
sínu. Aðgerðirnar eru umdeildar og
fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Evo
Morales forseta segir að vestrænt
fegurðarmat, sem sé allsráðandi í
heiminum, stýri fólki í ónauðsynleg-
ar læknisaðgerðir.
Stríði gegn hugmyndum
Morales
Fréttaritari BBC í La Paz heimsótti
lýtalækningastofu á dögunum og
ræddi við Juan Carlos Calamar, nítj-
án ára pilt sem gekkst undir slíka
aðgerð. „Mig langar að bæta útlitið,
svo að fólk hætti að gera grín að mér
vegna nefsins míns,“ segir Juan Carl-
os. „Fyrir mér er þetta alvarlegt mál.
Ég verð fyrir miklum fordómum. Og
ég hef heyrt frá öðrum sem hafa lent
í því sama.“
En eins og fréttamaður BBC lýs-
ir þykir mörgum að slík skurðaðgerð
stríði gegn hugmyndum Evo Mora-
les forseta um stolt indíána, en hann
er fyrsti þjóðhöfðingi Bólivíu af indí-
ánaættum.
Juan Carlos deilir ekki þeirri skoð-
un, en hann er af ætt Aymara-indí-
ána. „Andlitsfallið breytist bara, ekki
rætur mínar og menning. Mig lang-
ar ekki að monta mig af nýju og flottu
nefi. Mig langar bara að líða vel, auka
sjálfstraustið og geta svo unnið af
harðfylgi fyrir landið mitt,“ segir Juan
Carlos í viðtali við BBC í biðstofunni
á lýtalækningastofunni þar sem tug-
ir manna af indíánaættum bíða eftir
að gangast undir samskonar aðgerð.
Ódýrar aðgerðir
Fegurðaraðgerðir eru í mörgum
löndum lúxus sem aðeins hinir ríku
njóta, en í Bólivíu eru þær orðnar að
ódýrum kosti sem flestir hafa efni á.
Juan Carlos borgaði um 45 þúsund
krónur fyrir aðgerðina, en á Vestur-
löndum myndi samskonar aðgerð
kosta mörg hundruð þúsund krónur.
Lýtalækningafyrirtæki auglýsa
nefaðgerðirnar í miklum mæli og í
mörgum tilfellum virðist markaðs-
setningunni vera beint að fólki af
indíánaættum. Víða má sjá auglýs-
ingar þar sem stórum nefjum er lýst
sem vansköpun.
Richard Herrera skurðlækn-
ir er einn af forvígismönnum lýta-
lækningabyltingarinnar í La Paz en
hann hefur skorið um fimm þúsund
manns upp á síðustu árum. „Við hóf-
um auglýsingaherferðina til að ná til
fátæka fólksins, til að hjálpa fólki sem
hefur engan aðgang að skurðaðgerð-
um,“ segir hann.
Vestrænt fegurðarmat
En mörgum þykir þessi nýjung vera
skref í vitlausa átt. „Ég tel að fegurð-
araðgerðirnar séu tilkomnar vegna
alþjóðlegs, vestræns fegurðarmats
sem tröllríðir nú heiminum,“ segir
Pablo Groux, fyrrverandi menning-
armálaráðherra Bólivíu og sérfræð-
ingur í sjálfsmynd og heimssýn indí-
ána. „Fólk af ætt Aymara og Quechua
sem býr í borgum er ekki ónæmt fyrir
þessum áhrifum, við þurfum að átta
okkur á því,“ segir ráðherrann fyrr-
verandi.
Fréttaritarinn frá BBC hitti Juan
Carlos að nokkrum viknum liðnum
og sá mikinn mun á honum. „Mér
líður mjög vel, fólk er hætt að gera
grín að mér. Mér líður mun betur í
eigin skinni, ég er öruggari með sjálf-
an mig. Mér líður eins og ég geti gert
allt, uppfyllt alla mína drauma.“
helgi hrafn guðMundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Ég tel að fegurð-araðgerðirnar
séu tilkomnar vegna al-
þjóðlegs, vestræns feg-
urðarmats sem tröllríð-
ur nú heiminum
Bólivískir indíánar
hvattir í nefaðgerðir
hylla forsetann Bólivískarkonurafindíánaættumáfjöldasamkomuíútjaðri
höfuðborgarinnarLaPaz,þarsemforsetinnEvoMoralesvarhylltur.Margirtelja
aðnefaðgerðabyltinginíBólivíustangistáviðhugmyndirMoralesumaukiðstolt
indíána,ogeigisérræturívestrænufegurðarmati. MYnd reuterS
fyrir og eftir JuanCarlosCalamar
fyrirogeftirnefaðgerðina. MYnd: BBC
sendiherra
dauðans
Mahmoud Ahmadinejad, for-
seti Írans, kynnti um helgina nýja
ómannaða orustuflaug sem á að
geta borið allt að fjórar sprengi-
odda um eitt þúsund kílómetra leið.
Vestrænir fjölmiðlar hafa uppnefnt
flaugina sendiherra dauðans, eftir
að forsetinn notaði það orðalag. At-
hygli vekur að hulunni var svipt af
þessari nýju flaug aðeins einum degi
eftir að Íranar héldu hátíðlega at-
höfn til þess að halda upp á að fyrsta
kjarnorkuverið þar í landi var tekið
í notkun.
gjörbylta
kjötframleiðslu
Íbúar jarðar verða orðnir um 9 millj-
arðar árið 2050 og hafa vísindamenn
af því nokkrar áhyggjur að fæðu-
öryggi heimsbyggðarinnar verði
að tryggja betur. Vísindamenn spá
því nú að kjötframleiðsla muni fara
fram með allt öðrum hætti en nú er,
þar sem erfðabreyttir kjötskrokkar
verði ræktaðir í verksmiðjum. Færð
hafa verið rök fyrir því að með því að
umbylta kjötframleiðslu í heimin-
um megi gera kjöt að hollari og betri
matvöru fyrir fólk.
geit í skottinu
Lögreglumenn í Virgina-fylki í
Bandaríkjunum handtóku konu eftir
að þeir stöðvuðu hana við reglu-
bundið vegaeftirlit. Í ljós kom að
hún var með lifandi geit bundna
niður í skottinu á bílnum. Auk þess
fann lögreglan málverk sem reyndist
vera stolið. Konan fór fyrir rétt þar
sem hún var dæmd fyrir illa meðferð
á dýrum og þurfti að borga um 10
þúsund krónur í sekt. Konan sagði
fyrir dómi að hún hefði keypt geitina
af bónda á svæðinu til þess að gefa
fjórum vinum sínum frá Kenía. Hún
bar því ennig við að þar sem hún
væri sjálf frá Bretlandi, vissi hún ekki
að bannað væri að flytja lifandi dýr
bundin niður í skottinu á bílum.
endurheimtu
málverk
Lögreglan í Egyptalandi endur-
heimti málverk eftir hollenska
listmálarann Vincent van Gogh, sem
metið er á um 7 milljarða króna,
aðeins nokkrum klukkutímum eftir
að því var stolið. Lögreglan náði að
stöðva ítalskt par á flugvellinum í
höfuðborginni Kairo. Ekki liggur
fyrir hvernig þjófunum tókst að stela
málverkinu af safni í borginni, en
sama málverki var stolið af safninu
árið 1978. Þá fannst málverkið ekki
fyrr en tveimur árum seinna í Kúvæt.