Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 23. mars 2011 Miðvikudagur • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Er slakandi og bætir svefn • Notkun 10-20 mínútur í senn • Gefur þér aukna orku og vellíðan Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Nálastungudýnan Heilsudýn an sem slegið he fur í gegn Verð: 9.750 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Innan Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ríkja blendnar tilfinningar og skoðanir eftir úrsögn Lilju Móses­ dóttur og Atla Gíslasonar úr þing­ flokknum. Litið er svo á að ríkis­ stjórnin og þingmeirihlutinn hafi ekki átt stuðning þeirra vísan hvort sem þau yrðu áfram innan eða utan þingflokksins. Lykilmönnum innan Samfylkingarinnar sýnist brotthvarf þingmannanna vísa leið til bætts samstarfs stjórnarflokkanna og að þeir geti af meiri einhug barist fyrir einstökum stefnumálum. Engu að síður er ljóst að óbreytt nýtur stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar­ innar ekki lengur meirihlutafylgis á Alþingi. Formlega nýtur ríkisstjórnin stuðnings 33 þingmanna gegn ýmist 30, 29 eða 28 eftir því hvernig Lilja og Atli greiða atkvæði. Í mörgum stórum málum hefur þingmeirihlutinn þó sótt stuðning til einstakra þingmanna stjórnarandstöðunnar. Má þar nefna stuðning um 5 þingmanna Sjálfstæð­ isflokksins og Framsóknarflokksins við umsókn um aðild að Evrópusam­ bandinu. Lilja svaraði því ekki afdrátt­ arlaust á blaðamannafundi hvort hún myndi verja núverandi ríkisstjórn vantrausti yrði slík tillaga borin fram á Alþingi. Ekki ótítt í sögunni Líta má til sögunnar þegar metinn er þingstyrkur og staða ríkisstjórna. Viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem sat í 12 ár frá lokum sjötta áratugar síðustu aldar fram í byrjun þess áttunda, studdist yfirleitt við minnsta mögulega þing­ meirihluta, eða 32 til 33 þingmenn af 60. Alþingi var þá skipt í efri og neðri deild og þurfti því stuðning 32 þingmanna. Viðreisnarstjórnin var ekki talin sérstaklega veik af þessum sökum; allt eins má ætla að naumur meirihluti herði ríkisstjórnir og þétti raðir manna þegar til lengdar lætur. Þetta er og sjónarmið margra stjórn­ arliða sem telja jafnvel að línur hefðu mátt skýrast enn meir með brotthvarfi Ásmundar Einars Daðasonar úr þing­ flokki VG en hann kemur ýmsum flokkssystkinum sínum fyrir sjónir sem stjórnarandstæðingur. Í opna skjöldu Brotthvarf Atla og Lilju úr þingflokki VG kom þingflokki og öðrum flokks­ mönnum, svo sem stuðningsmönn­ um Atla Gíslasonar í Suðurkjör­ dæmi, í opna skjöldu. Lilja og Atli létu nokkra þingmenn VG vita um áform sín þegar á mánudaginn. Sam­ kvæmt heimildum DV er þar átt við Ásmund Einar, Ögmund Jónasson innanríkisráðherra, Jón Bjarnason, sjávarútvegs­ og landbúnaðarráð­ herra, og Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, en hún kemur aftur til starfa á Alþingi snemna í apríl. Atli hefur skýrt það svo í fjölmiðlum að þetta séu þeir ein­ staklingar sem þau hafi átt gott sam­ starf við innan þingflokks VG. Atli og Lilja létu með öðrum orðum Steingrím J. Sigfússon, formann sinn, ekki vita af áformum sínum fyrir þing­ flokksfund að morgni þriðjudags síð­ astliðins. Eftir því sem DV kemst næst gerðu Ögmundur, Jón eða Ásmundur ekki heldur formanni flokksins við­ vart um áform Atla og Lilju. Atli og Lilja reyndu þó að ná til formanns flokksins fyrir umræddan þingflokks­ fund en hann var upptekinn á fundi skömmu fyrir þingflokksfundinn. Atli mætir andbyr Fáum kom á óvart að Lilja Mósesdótt­ ir skyldi segja sig úr þingflokknum og rökin hennar fyrir því voru þekkt. Má þar nefna afdráttarlausa andstöðu hennar við samninga við Alþjóða­ gjaldeyrissjóðinn um endurreisn. Úrsögn Atla úr þingflokknum er mönnum innan þingflokksins meiri ráðgáta. Viðbrögð grasrótarinnar í kjördæmi hans, Suðurkjördæmi, hafa einnig verið honum mótdræg. Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns fram­ boðs í Vestmannaeyjum lýsti yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun hans um úrsögn úr þingflokknum og skoraði á hann að segja af sér þing­ mennsku svo varamaður hans gæti tekið sæti. „Með úrsögninni telur stjórnin að Atli sitji ekki lengur á Al­ þingi í umboði kjósenda VG í kjör­ dæminu.“ Öllu alvarlegri er þó ályktun kjör­ dæmisráðs VG í Suðurkjördæmi gegn Atla. Í yfirlýsingu sinni lýsir kjördæm­ isráðið vonbrigðum með að þing­ maðurinn skuli ekki hafa rætt fyrir­ ætlanir sínar við stofnanir og grasrót flokksins. „Þrátt fyrir yfirlýsingar Atla um að starfa á Alþingi eftir stefnu VG, telur stjórnin að um trúnaðarbrest sé að ræða þannig að Atla Gíslasyni sé ekki lengur sætt í umboði kjósenda VG á Suðurlandi. Ennfremur lýsir stjórn kjördæmisráðs yfir stuðningi við ríkisstjórn VG og Samfylkingar,“ segir orðrétt. Undir þetta tekur einnig stjórn VG á Suðurnesjum. „Fundurinn hvetur þing­ manninn til að stíga til hliðar og hleypa að Arn­ dísi Soffíu Sigurðardóttur, varaþingmanni okkar, sem við berum fullt traust  til.“ Að líkindum á útleið Atli sagði á blaðamannafundi að hvarflað hefði að sér að segja af sér sem þingmaður en hann ætlaði að sjá hver framvindan yrði næstu vikur og mánuði. Hann kvaðst ekki hafa upplifað ástandið sem þriggja flokka samn­ inga­ viðræður um langa hríð, Samfylk­ ingar, VG og síðan hans sjálfs og fleiri sem ekki hafa átt samleið með forystu VG. Sá var þó skilningur Svans Krist­ jánssonar stjórnmálafræðiprófessors snemma í janúar þegar þingflokkur­ inn hélt átakafundi vegna andstöðu Atla, Lilju og Ásmundar Einars við af­ greiðslu fjárlaga. „Hafi þingmennirnir ekki stutt bókun stjórnar þingflokks­ ins er staðfestur klofningur í flokkn­ um... Nú liggur fyrir svart á hvítu að ríkisstjórnin styðst við 32 manna meirihluta á þingi því þingmenn­ irnir þrír hafa í raun og veru stofn­ að nýjan flokk. Það verður því að líta svo á að nú standi yfir viðræð­ ur þriggja flokka um stjórnarsamstarf,“ sagði Svanur. Víkja úr nefnd- um þingsins Þegar í þess­ ari viku verð­ ur Lilju og Atla skipt út í nefnd­ um Alþingis þar sem þingmönn­ um gefst nokk­ urt færi á að hafa áhrif á gang mála. Lilja er formaður viðskiptanefndar en Atli er formað­ ur sjávarútvegs­ og landbúnaðar­ nefndar. Atli á auk þess sæti í allsherj­ arnefnd en Lilja í iðnaðarnefnd og menntamálanefnd. Atli og Lilja mynda ekki nýjan þingflokk og verða háð öðrum flokkum um sæti í nefnd­ um sækist þau eftir nefndarsetu á annað borð. Líklegast er að Lilja gæti samið við Hreyfinguna um nefndar­ setu en það yrði á kostnað þingmann­ anna þriggja sem sitja á þingi á vegum Hreyfingarinnar. Hvað með hin fjögur? Ekki eru allir viðmælendur DV á einu máli um hvaða þýðingu brotthvarf Atla og Lilju hefur úr þingflokki VG fyrir hin fjögur sem þau hafa átt sam­ leið með, Ögmund, Guðfríði Lilju, Jón og Ásmund Einar. Böndin sem halda Ásmundi Einari innan þingflokksins hafa trosnað með brotthvarfi Lilju og Atla, en hann á nú mesta samleið með Jóni Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra. Báðir eru þeir úr Norðvesturkjör­ dæmi og svarnir andstæðingar aðild­ arumsóknar að ESB, rétt eins og Atli. Ætla mætti að staða Jóns og Ög­ mundar innan ríkisstjórnarinnar hafi styrkst með útgöngu Atla og Lilju úr þingflokknum. Ljóst er að áform um að sameina fiskveiðar, landbúnað, iðnaðinn og fleira undir atvinnuvega­ ráðuneyti hafa ekki verið lögð á hill­ una þótt áformum þar um hafi ver­ ið slegið á frest vegna andstöðu Jóns sjálfs og ýmissa hagsmunaaðila. Framtíð Jóns er hins vegar talin velta á því hvort honum takist að leggja fram frumvarp sem fallið er til sátta um sjávarútveginn, en því hefur margoft verið lýst yfir af for­ ystumönnum ríkisstjórn­ arinnar að gagnger­ ar breytingar á n VG á Suðurlandi bregst hart við brotthvarfi Atla Gíslasonar og krefst afsagnar n Staða Jóns Bjarnasonar kann að styrkjast með brotthvarfi Lilju Mósesdóttur og Atla úr þingflokki VG n Halda ekki nefndarsætum sínum fyrir VG á Alþingi út þessa viku n Óvíst um áhrif á framtíð ríkisstjórnarinnar n SA og Viðskiptaráð vilja koma ríkisstjórninni frá „Lilja og Atli létu nokkra þingmenn VG vita um áform sín þegar á mánudaginn. Naumur meirihluti eN meiri samstaða Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar johann@dv.is Slitnar taugin við VG? Ásmundur Einar Daðason er að mati samfylkingarmanna harður stjórnarandstæðingur og því sé raunverulega um minnsta mögulega meirihluta að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.