Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Side 10
10 | Fréttir 23. mars 2011 Miðvikudagur Á föstudagsmorgun verður tek- ið fyrir í Héraðsdómi Reykjavík- ur mál Sivjar Friðleifsdóttur gegn fyrrverandi sambýlismanni sínum og barnsföður, Þorsteini Húnboga- syni. Þau kynntust á meðan Siv var í háskólanum en síðastliðið haust skildu þau að skiptum. Skilnaður- inn hefur ekki verið átakalaus og nú er deilt um eignaskipti. Eitt af því sem tekist er á um er hlutdeild Þorsteins í lífeyrisréttind- um Sivjar, en þau eru umtalsverð þar sem hún hefur setið á þingi frá árinu 1995 og gegndi þar að auki ráðherra- embætti í sex ár. Siv hefur ekki fallist á kröfu hans um hlutdeild í þessum réttindum og stefnir honum því til opinberra skipta. Barist um milljónir Samkvæmt heimildum DV snýst deilan um rúmar hundrað milljón- ir króna sem Siv á inni í lífeyrisrétt- indum. Þorsteinn Einarsson fer með málið fyrir hönd Sivjar og Guðni Ástþór Haraldsson fyrir hönd Þor- steins en hvorugur þeirra vildi tjá sig um málið. Þorsteinn sagði þó að hann þekkti ekki önnur dæmi þess að þingmenn eða ráðamenn þjóð- arinnar glímdu um lífeyrissjóðsrétt- indi í dómsal, en auðvitað hefði oft reynt á ágreining af þessu tagi. Taldi hann að fólk ætti engan rétt á því að gera tilkall til þessara réttinda ef ekki væri um hjúskap að ræða. Þá vildi hann ekki staðfesta þær upphæðir sem heimildir DV herma að sé deilt um og sagði að enn hefðu ekki nein- ar tölur verið nefndar í því samhengi. Annars óskaði hann eftir því að þetta mál yrði ekki rekið í fjölmiðlum þar sem þetta væri einkamál skjólstæð- ingsins. Á brattann að sækja Málið er þó áhugavert fyrir nokk- urra hluta sakir. Þeir lögmenn sem DV leitaði til töldu allir að þetta væri fyrsta málið sem rekið væri fyrir dóm- stólum þar sem tekist er á um lífeyr- isréttindi þingmanns, ráðherra eða annarra ráðamanna. „Ég þekki ekki til þess að það hafi verið gert,“ sagði Flosi Hrafn Sigurðsson á lögmanns- tofunni Opus. „Í fyrsta lagi eru vænt- anlega ekki mörg dæmi þess að þeir sem hafi fengið slík réttindi hafi skil- ið við maka sinn og í öðru lagi staðið í deilum varðandi þetta.“ Þegar deilt er um hlutdeild fyrr- verandi maka í lífeyrisréttindum er yfirleitt tekið mið af aldri viðkom- andi, störfum þeirra og hvaða líf- eyrisréttindi þeir eiga sjálfir. Oftar en ekki er þessum kröfum hafnað en í þeim dómum þar sem fallist hef- ur verið á skiptingu lífeyrisréttinda hefur allajafna verið um flugstjóra að ræða þar sem réttindi þeirra eru óvenjumikil. Því á sá sem krefst hlut- deildar í lífeyrissjóðsréttindum yfir- leitt á brattann að sækja, nema mál- ið sé óvenjulegt fyrir einhverra hluta sakir eins og þær að lífeyrisréttindin séu meiri en gengur og gerist, eins og í tilfelli Sivjar. Þorsteinn þarf engu að síður að sýna fram á að tilkallið sé réttmætt. Sambúð en ekki hjónaband Málið er ekki síst áhugavert fyrir þær sakir að Siv og Þorsteinn gengu aldrei í hjónaband heldur voru þau í áratugalangri sambúð. Andstætt því sem Þorsteinn, lögmaður Sivj- ar, telur metur Flosi það þannig að maki eigi að geta fengið hlutdeild í þessum réttindum óháð því hvort um hjónaband sé að ræða eða ekki, að því gefnu að um nægilega mikla fjárhagslega samstöðu hafi verið að ræða, jafnvel þótt um persónubund- in réttindi sé að ræða. Yfirleitt eru þessi mál sótt á grundvelli ákvæðis í hjúskaparlög- um en þau eiga ekki við þar sem um óvígða sambúð er að ræða. Það er engin framfærsluskylda á milli sam- búðarfólks. Þar sem engin lög ná yfir sambúð eru slík skilnaðarmál yfirleitt mjög óljós. Þar sem lífeyris- löggjöfin gerir ráð fyrir því að sam- býlisfólk geti fengið makalífeyri eftir andlát er sennilega hægt að byggja kröfuna á þeim grunni. Dómafor- dæmi skapa hins vegar reglur sem hægt er að draga ályktanir af. Og dæmi eru um að dómsmál hafi fall- ið þannig að hlutdeild fyrrverandi maka í lífeyrisréttindum annarra í sama lífeyrissjóði, Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins, hafi verið metin og þá til einhverrar upphæðar. Lífeyrisréttindi ráðherra Siv hefur setið á þingi frá árinu 1995. Hún var umhverfisráðherra frá því í maí 1999 til september 2004 og heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra frá mars 2006 og fram í maí 2007. Þing- fararkaup er 520.000 krónur á mán- uði og á meðan hún starfaði sem ráð- herra lögðust 335.000 krónur ofan á það. Lögum um lífeyrisréttindi al- þingismanna var breytt árið 2009 en samkvæmt gömlu lögunum, þeim sem voru í gildi á meðan Siv var ráð- herra, var eftirlaunahlutfallið sex pró- sent af ráðherraviðbótinni fyrir hvert ár í embætti, eða 36% í tilfelli Sivjar. Samkvæmt þessum lögum öðlast fyrrverandi ráðherra, sem jafnframt hefur gegnt þingstörfum og uppfyll- ir skilyrði til að fá eftirlaun fyrir ráð- herrastörf, jafnframt rétt til eftirlauna fyrir þingmennsku sína. Eftirlauna- hlutfall fyrrverandi alþingismanns er þrjú prósent fyrir hvert heilt ár af þingsetu og samsvarandi fyrir hluta úr ári. Þar sem Siv hefur setið á þingi í tæp sextán ár er eftirlaunahlutfall hennar 48 prósent. Eftirlaunaréttur verður þó aldrei meiri en 70%. Ef mið- að er við núverandi stöðu Sivjar ætti hún því að fá um 370.000 krónur á mánuði í eftirlaun. Tjáir sig ekki, að svo stöddu Siv vildi ekki tjá sig efnislega um mál- ið þegar eftir því var leitað, sagði að málið væri persónulegt og ætti ekki erindi í fjölmiðla. Þorsteinn Hún- bogason vildi ekki heldur tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. „Ég vil ekki reka þetta mál í fjölmiðlum, að svo komnu máli.“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is SKILNAÐUR SIVJAR FYRIR DÓM n Siv Friðleifsdóttir og Þorsteinn Húnbogason í hár saman n Barist um hlutdeild hans í lífeyrisréttindum hennar n Gæti verið um ríflega hundrað milljónir að ræða n Voru ógift í áralangri sambúð n Lögmenn telja þetta fyrsta málið af þessu tagi Siv Friðleifsdóttir Hefur áunnið sér umtalsverð lífeyris- sjóðsréttindi sem þingmaður til sextán ára og fyrrverandi ráðherra. Þorsteinn Húnbogason Fyrrverandi sambýlismaður Sivjar eldar heiðagæs á góðri stundu árið 2007. Nú takast þau á fyrir dómstólum. Myndin er skjáskot af heimasíðu Sivjar, siv.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.